Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1&67. s . *tóð við björgunarstörf í sprengjuJhríð frá flugvélum Bandamanna. En hann sagði ekki, að hann hefði orðið að flýja til Bandamanna, er Ra.uði herinn nálgaðist. né hvernig til þess kom, að hann gerðist trú- arleiðtogi Duohobortza í Kanada. Þann þátt ævisögu hans heyrði ég af vörum eigin- konu hans og Landis skóla- stjóra. En hverfum nú um stund aft ur í tímann, — til miðrar sautj ándu aldar. Þá bar svo við í trúarlífi Rússlands að nokkr- ir hópar manna sögðu skilið við grísk-kaþókku kirkjuna vegna óánægju út af endur- •koðun kirkjubóka, er gerð var árið 1666, að tilhlutan Nikons patriarka. Mynduðust af þess- um hópum sértrúarflokkar, sem nefndir voru einu nafni Raskolniki. Sértrúarflokkum þessum óx skjótt fylgi og þeir háðu þó nokkra baráttu hver við annan. Síðan fléttuðust allskonar veraldleg mál inn í •tefnu þeirra og þjóðernis- ítefna varð þar tíðum öfga- full. Fylgismenn þeirra voru •ndvígir öllum tilraunum til að •uka áhrif Vestur'landa og töldu Rússum hættu búna af innleiðingu vestrænnar tækni og menningar. Varð þetta til þess, að beir voru mjög ofsótt- ir af stjórnarvöldum og fram- farasinnum. Um miðja átjándu öldina er fyrst getið flokks, er nefndist Duchobortzar, — fyrst í ná- grenni Jekaterinoslav en síðan breiddist hann út 'til héraðanna við Tambov, Saratov og Arkan- gelsk. Framan af urðu fylgis- menn hams fyrir blóðugum of- •óknum, en Alexander II keis- •ri dró úr þeim um hríð og leyfði þeim að lifa nokkurn veginn í friði á nokkrum stöð- um í Suður-Rússlandi, — eink- um við ána Dniepr. Duöhobortzar tiúðu blint á bókstaf biblíunnar en afneit- uðu prestum og sakramentum. Guðsþjónustur þeirra voru af- •r fábrotnar, þeir fordæmdu blóðsúthellingar og eru fræði- kenningar þeirra að nokkru blandaðar dulspeki. Guðdómurinn opinberaðist •ð þeirra áliti í ýmsum mynd- um, faðirinn t.d. sem ljósið, •onurinn sem lífið og heilagyr •ndi sem hvíldin og þessar myndir guðdómsins áttu að eiga sér samsvörun í eiginleik- um mannanna, minni, skyn- •emi og vilja. Sálin er að þeirra áliti guðleg en hefur skilið við guðdóminn, áður en maðurinn fæðist — á hinn bóginn tselja þeir líkö>mnun Guðs í Jesú Kristi ekkert einsdæmi og *egja að hún endurtaki sig allt »f öðru hverju meðal hinna trúuðu. Hin sanna kirkja er að þeirra áliti innra ljós hverrar mannssálar. í lok síðustu aldar voru farn •r ofboðslegar hierferðir gegn þessum sértrúarflokki og um fimmtán þúsund manns drepn- ir með hinum hroðalegasta hætti. Varð það blóðbað til þess, að margir menn tóku svari þeirra, meðal annars rit- höfundurinn Tolstoi, sem hjálp aði um það bil tíu þúsund Duchobortzum að flytjast til Kanada. Áðui en þeir fóru- brenndu þeir bæi sína og eig- ur allar og sömuleiðis vopn öll, er þeim hafði verið fengin í hendur. Síðan hefur fólk þetta lifað Út af fyrir sig í Kanada, frem- ur einangrað til skamms tíma, en endrum og eins hefur það vakið athygli umheimsins með því að brenna hús sín og klæði til áréttingar afstöðu sinni í ýmsum málum —- til dæmis gegn herþjónustu. Eldri kyn- slóðir tala enn aðeins rúss- nesku og viðhalda í einu og öllu rússneskum siðum og hátt um, en yngri kynslóðirnar líta jafnframt á sig sem Kanada- búa og semja sig meira að sið- um, háttum og ríkjandi tung- um í Kanada. Þegar Valentin Sorokin kom til byggða Duahobortza í Kanada upp úr styrjaldarlok- unum, var hann enn ungur maður og glæsilegur. Þá var svo ástatt í þessu litla rússneska samfélagi að leiðtogi þess, and- legur og veraldlegur, — full- trúi Guðs á jörðu — var lát- inn fyrir sköinmu og voru nú Duöhobortzar sem höfuð'laus her. Þeir biðu þess, að guð sendi þeim nýjan leiðtoga til að taka við handleiðshi þeirra. Þegar Sorokiri hóf. upp raust sína meðal þeirra, söng söngva sína og sagði frá björgunaraf- rekum í Þýzkalandi, fór þ >8 smám saman að kvisast, að hér væri kominn sá, er beðið var eftir. Sorokin var fljótur að átta sig og beitti svo með- fæddri mælskulist sinni, að innan tíðar höfðu kanadískir Duchobortzar lagt öll sín mál, veraldleg og andleg, í hans hendur. Liðu svo fáein ár. Soro- kin var maður virtur og naut skilyrðislausrai hlýðni þegna sinna. , En svo kom að því einn góð- an veðurdag, að verðir laganna börðu að dyrum hjá honum. Hann hafði gerzt sekur um ólöglegt atíhæfi í fjármálum og var nú tjáð eiidanlega að um- sókn hans um ríkisborgararétt- indi í Kanadg hefði verið synj- að og dvalarleyfi hans í land- inu væri útrunnið. Um betta mál vissu aðeins örfáir Duöho- bortzar — ennþá — og þeir voru fljótir að bregðast við, þegar Sorokin bauð þeim að leggja fram fé í sjóð, er hann ætlaði að nota til að kaupa þeim dval- arleyfi í Sovétríkjunum á ný og land, þar sem þeir gætu Iif- að saman í friði. Flestir Ducho- bortzar — einbum þó þeir eld-i — þráðu að komast aftur til gamla landsins. þó ekki væri nema til að bera þar beinin. Þeir tóku því fagnandi þeun fréttum, að Sorokin hefði náð sambandi við Sovétstjórn'.na um hugsanlegan heimflutning þeirra. En Sorokin fór ekki til Sovétríkjanna. Hann hélt úr landi með stórfé í höndum og lagði leið sína til Suður-Ame- ríku, Hann hafði líka meðferð- is unga konu — „hann kom einn daginn, sagði hún — hann gekk inn í eldhúsið heima og sagði: „ég er að fara, þú kem- ur með mér, strax“. Ég þorði ekki annað en hlýða honum, nauðug viljug. Víst var ég undir áhrifavaldi hans — sterk lega — og að Vissuleyti elskaði ég hann og geri enn. En hann er afskaplega undarlegur, ein- ráður og að mörgu leyti erfið- ur maður“. í Uruguay keypti Sorokin stórbýsi í borg og sveitasetur úti við strönd og þar lifa þau hjónin i vellystingum, ásamt tveimur ung.um börnum. Ekki verður þó um Sorokin sagt, að hann hafi algerlega slitið sam- skiptum við Duöhobortza. Þeir heyrðu frá honum annað veif- ið og hann íékk stundum frá þeim meiri peninga. Hann sótti um leyfi til að ferðast til Sov- étríbjanna og s-krifaði þeim, að hann ætlaði að leita að hent- ugum stað og ræða við yfir- völdin. Sama sagði hann Land- is mæðginunum, en aldrei urð- um við þess vör. að hann hefði samband við opinbera aðila um málefni Duöhobortza. Kona hans stóð í stöðugum ótta um, að fortíð hans mundi koma honum í koll í ferðinni — en ekkert gerðist, annað en að tilraunir hans til að ná sam- bandi við ættingja sína urðu árangurslausar. Hann komst að því, að kona hans og börn væru enn búsett í þorpinu hans litla í Ukraínu, en er hann sendi þeim símskeyti og bað þau að koma til móte við sig í Kiev 'fékk hann ekkert svar. Sjálfur gat hann ekki breytt1 þeirri ferðaáætlun, sem hann hafði gefið upp við sovézk ferðayfirvöld. — Við vorum þrjá daga í Kiev og var tæpast, að hann fengist frá gistilhúsinu, — hann vildi vera viðbúinn, ef eitthvert svar bærist. En hann fékk ekkert svar. Konu hans tók sárt að sjá vonbrigði hans, en hún virtist skilja betur en kann, liTtrntg ættingjar hans nundu lKa á það, sem hann hafði gert. nig get sett mig í *por konunnar hans, sem hann skildi eftir mefl tvö ung börn, sagði hún — éfl er líka móðir tveggja ungr» barna hans. Ef hann gerði mér það, sem hann gerði henni, mundi ég aldrei líta við hon- um framar, ég mundi reyna afl má hann úr huga mér og barn* minna“. Aðalfundur Byggingarsamvinnufélags verkamanna og sjó- manna verður haldinn 30. marz kl. 8 e.h. í Breið- firðingabúð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Suntarvinna í Englandi Getum útvegað íslenzkum stúlkum, 18 ára og eldri með nokkra enskukunnáttu, sumarvinnu í Englandi við hóteiaf- greiðslu, verzlun og veitingastörf. Einnig dvöl og vinnu á enskum heimilum. Ferðaskrifstofan ÚTSÝN, Austurstræti 17. Fermingagjafir Síðumúla 23, sími 36503, (erum fluttir af Laugavegi 62). ALLAR GERÐIR TIL AFGREIÐSLU í APRÍL. DRAGIÐ EKKI AÐ HAFA SAMBAND VIÐ OKKUR. Kraftur hf. Hringbraut 121 — Sími 12535.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.