Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.03.1967, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967. EFTIR EDWARD TAYLOR. Blaðamennska er starfi, sem gefur tilefni til lauslegra eða náinna kynna af ótrúleg- um fjölda fólks, alls konar fólki, góðu fólki og vondu fólki, snillingum og misheppn uðum gáfumönnum, stjórn- málamönnum og taugabiluð- um óperusöngkonum, sjómönn um og örvasa öldungum. Góð- ur blaðamaður er áhugamaður um mannlífið. Góðum blaða- manni þykir mjög vænt um mennina, mönnunum þykir hins vegar, misjafnlega vænt um hann. En laun blaðamanns ins eru vissulega oftast van- þakklæti og hann hættir venju lega milli þrítugs og fertugs og snýr sér að öðrum störfum, sem væntanlegri eru til fram- gangs í veröldinni. Blaðamenn eru taldir lygn- ir af almenningi; það er mik- ilil misskilningur, ég þekk.i fólk úr mörgum stéttum, sem er svo stórlygið, að blaðamenn verða sem saklaus ungbörn við hliðina á því. Yfirleitt eru blaðamenn grandvarir og enga tekur það sárar en þá sjálfa, ef þeir fara með rangt mál, eða gera sig seka um smekkleysur í málfari. Hitt er annað mál, að það er hægt að skýra frá staðreyndum á ýms- an máta. Frétt er fyrst vel skrifuð, þegar engum dettur í hug, að neinn sérstakur hafi skrifað hana, þegar menn álíta, að eitthvað ópersónulegt afl, Morgunblaðið sj'álft, standi á bak við þessa frétt og hafi á einhvern yfinskilvitlegan hátt ritað hana. Ella Fitzgerland mun hafa virzt fremur geðugur kven- maður og sómi sinnar stéttar, þegar hún kom til Reykjavík- ur fyrir ári, í augum þeirra sem lásu fréttina um hingað komu hennar. „Ósköp hefur hún verið þreytt, auminginn", sagði við mig maður á götu, daginn sem fréttin birtist. Satt var það. Hún var að niðurlot- um komin, veslings konan, ég man þó ekki til þess að hafa séð öllu vansælli og tor- tryggnari veru. Þegar hún steig út úr flug- vélinni að kvöldi dags lýstu blossaperur ljósmyndaranna hana upp af hreinræktuðu samvizkuleysi, enda kveinaði hún í miðjum landgöngustig- anum: „You’re blinding me!“ En ljósmyndararnir héldu kaldrifjaðir áfram að blinda hana. Hún hefur ekki gert sér ýkja háar hugmyndir um veð- urfar á íslandi, því hún var íklædd þremur loðkápum, að því bezt varð séð, og bar mjög furðulegt höfuðfat, einhvers konar millistig af baðhettu og sjóhatti. Á eftir henni komu þrír á- búðarmiklir negrar og kona, sem leit út eins og vasaútgáfa af Ellu, kannske systir henn- ar, og loks Ameríkani hvítur, eða öllu heldur blárauður, sér legur umboðsmaður frúarinn- ar, fremur óviðfelldinn, jafn- vel í fjarlægð. Nokkuð blánefj uð ungmenni höfðu safnast saman fyrir utan flugvallar- girðinguna en voru stillt, enda hér hvorki um liverpúlskar hetjur eða heimsfræg gaul- menni af öðru tagi að ræða. Einn negranna blístraði músik alskt og horfði spozkur á næt- urhimininn. Hinir voru ekki eins kátir og geispuðu. Frú Ella sigldi með þungum and- vörpum inn í flugstöðvarbygg- inguna með litla handtösku Ég hefði haldið að hún væri grennri en ltklega vegna radd- arinnar. Rödd hennar er grönn og spengileg. Brátt tilkynnti sérlegur túlk ur og handhafi frúarinnar á íslandi, að við mættum ræða við hana í 60 sekúndur. Hún væri þreytt eftir langt ferða- lag og syfjuð og þyrfti að fara að leggja sig. Meðan við rædd um við Ellu í einu herbergja flugstöðvarinnar vappaði hinn blárauði Ameríkani fyrir ut- an, væntanlega með skeið- klukku upp á vasann. Hin marglofaða söngdis 1 djassheiminum og vildarvina manna eins og Louis Arm- strong og Ellingtons og fleiri þvílíkra stórmenna hlammaði sér niður á stólræfil og dæsti umkomulaus og horfði á fæt- urnar á sér eins og hún vænti sér í þeim styrks og aðhalds á því grimma íslandi. Hún svar- aði spurningum með jáum og neium eins og leik- ritaskáld, sem eru að debútera á Fróni. Hún var að auki ekki vel ánægð með spurningarna og bað okkur að spyrja sig að einhverju Arnarnes Til sölu er sjávarlóð á bezta stað í Arnarnesi. UppL í sima 22607. Ný íbúð til leigu 4—5 herbergja á bezta stað í Árbæjarhverfi. Til- boð sendist afgr. Morgunbl. merkt: „2075“ fyrir 29. marz. m&LON NÝJA EFNID SEM VEKUR GÍFURLEGA ATHYGLI Firmað GEBRÚDER COLSMAN, Essen Þýzkalanðl, er einn stcersti kjólaefnaframleiðandi Evrópu. Hefur það lengi ver ið brautryðjandl á sviði hinna nýrri gerfiefna, sem lagt hafa undir sig markaðinn á örskömmum tíma. COLSMAN hefur nú fullkomnað og sett á markaðinn nýja gerð af Polyesterefnum (sama og Terylene), undir nafninu 100% DIOLEN Tex turé. Þcss! nýjtt efnl hafa sérlega mjúka og fallega óferð, og einnig þann kost umfram eldrt gerðir af Terýlene, að þau hindra ekki eðlilega svitaútgufun likamans, og eru því „opin“ á sama hátt og ull og bómull. AFGHALON-efni eru þcssvegna hlý f kulda, en svöi 1 hita AFGHALON-efnl fást nú .þegar í mörgum gerðum bæði einlit og mynstruð* a gt la •n NOVALtTnJ JAPON Flíkur úr Afghalon. sem eru fóðraðar með ;NOVALIN fóðri frá COLSMAN (það hieypur ekki), MÁ ÞVO. EFTIR VILD, og hengja upp blautar að kveldi, og fara f sem nýjar að morgni. — Breyttar aðstæð ur og hraði nútímans krefst hættra og _________________________hagkvæmra efna, tii að spara tíma og fyrirhöfn. Fatnaður úr AFGHALON með NOVALIN fóðri, fullnægir þessum þörfum á hinn hagkvæmasta hátt. — Allar nánari upplýsingar gefa undirritaðir umboðsmenn verksmiðjanna á íslandi. Ágúst Ármann Hf. - Sími 22100 öðru, blaðamenn væru alls staðar eins, þeir spyrðu alls staðar sömu spurninganna, henni fannst lítið til um frura leik blaðamanna í heiminum. • „Nú, jæja, spyrjið mig að einhverju", sagði blessuð kon an. í>á var hún spurð að ein- hverju og brást hin versta við og mælti í sárum einstæðings- tón: „Af hverju spyrjið þið mig að þessu? Af hverju spyrj ið þið mig ekki að einhverju öðru?“ Þetta var mikið vand- ræðaástand og frúin sat hvap holda í keng á stólnum og stundi og ég hefði það á til- finningunni, að hún mundi þá og þegar síga saffian og verða að einhvers konar polli á góif inu. Það varð að hafa hraðann á. 60 sekúndur eru stuttur tími að ræða við ástfólgna söngkonu, heimsfræga alls staðar, og sem þar að auki þarf að fara að leggja sig. Undirritaður hafði ekki kynnt sér gerla dagsskrá frú- arinnar á íslandi og spurði þvl frómur hversu lengi hún hyggðist heiðra landið með nærveru sinni. Hún var ófróð um þau efni. „Hvað veit ég um það“, sagði hún af þjósti mikl um, „þú ert héðan, þú ættir að vita það betur en ég.“ Síðan hélt hún áfram að stynja og dæsa svo maður fékk fyrir hjartað að hlusta á hana. „Þér eruð að koma frá Spáni?“ spurði einn blaða- mannanna hógvær, til að rjúfa andartaksþögn. „Já,“ sagði Ella dapurlega. „Ég kom frá Spáni, lenti í París, söng í París, flaug til Lundúna, lenti þar og söng og fiaug til íslands." „Dg lentuð hér?“ sagði einn blaðamannanna, og það hlakk aði ofurlítið í hcnnum. Frúin var hátt yfir slíka aulafyndni hafin og þagði eins og steinn. Blárauði Ameríkaninn stakk andlitinu í gættina ocg skim- aði í kringum sig. Hann horfði tortryggnislega á eiinn blaða- manninn, sem var með segul- bandstæki og hélt hljóðnem- anum að vitunum á söngkon- unni. „Ask me something", sagði hún mæðulega. „What do you think I’m here for?“ Svo var hún spurð og svar- aði með neii, sem hún ítrek- aði í annarri tilraun. Þá var mínútan liðin, guði sé lof. „Þeir spurðu mig aðein* þriggja spurninga", sagði söng konan, þegar hún gekk út. Það var eins og þimgu fargi hefið verið létt af hennar mædda hjarta. Samlagning er áreiðanlega ekki sterkasta hlið Ellu, spurningarnar voru mun fleiri, hins vegar hefur hún líklega álitið að einungis þrjár þeirra hefðu verið svaraverð ar. Þetta var mikil tragedía fyr- ir . fréttaþjónustuma. Blaða- mennirnir rifu í hár sér og spurðu hvaða viit væri í að skammta manni eina minútu til að tala við konuna. „Hún var ekki komin í gang“, sagði einn. „Fólk eiins og hún þarf fimm mínútur til að komast í gang.“ Einn kvaðst aldrei hafa vitað annað eins og var mjög gramur vegna alls þessa. Það kom þó ekki í veg fyr- ir, að daginn eftir birti blað hans baksíðufrétt um hingað- komu hins aldraða næturgala úr vestrinu. Það var engu lík- ara en Islendingar hefðu beð- ið eftir þessu einstæða tæki- færi í þúsund ár. Það kom þó í ljós seinna, að þeir voru ekki margir, sem virtust hafa áhuga á að hlýða á söng hennar, ef til vill hefur óhóflegt verð aðgöngumiða ráðið því, en Ella Fitzgerald varð að láta sér nægja hálf- skipað Háskólabíó tvö kvöld 1 röð. Ég hygg að það yrði lít- i landkynning fyrir ísland, et frúin einhvern tíma ritar end- urminningar sínar, ef hún þá minnist á það einu aukateknw orðL Sem mér þykir haria 4- trúlegt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.