Morgunblaðið - 23.03.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.03.1967, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ ldOT. 4! „Þetta er hann Matthías, sem ég minntist á við þig um dag- inn“ sagði Jón Tómasson. „Djöfullinn eigi það“ sagði Jón seglasaumari með fyrirlitningu. Síðan hnykkti hann til höfðinu, leit til þeirra í dúknum, „Blaðamannstrunta í heim- sókn“, sagði hann og drakk úr brúsanum. ist að vísu ekki við því að svona iðjuleysingi hefði margt fyrir stafni. En hann vildi bara taka fram til að koma í veg fyrir misskilning, að hann aetti ekkert. Ef menn væru menn, en ekki himpigimpi, gætu þeir komið með sína lögg sjálfir, en þyrftu ekki að vera með neinar augnagotur í segldúkinn. — með ósk um að nota hann á réttum stað,.. Ég skildi sneiðina. Það virtist létta af honum áhyggjum. Nú hafði Jón seglasaumari lokið sér af í fyrstu atrennu. Ég þóttist vita að hann væri að velta því fyrir sér, hvort hon- um hefði tekizt að skapa rétt andrúmsloft við fyrstu kynni. Og hann var augsýni- lega harla ánægður með árang- urinn. Þarna stóð blaðamanns- kvikan á miðju gólfi eins og lúbarinn hundur og komst ekki upp með moðreyk. Það líkaði honum. Þetta nægði, Nú gat samtalið farið að hefjast. Jón seglasaumari settist aftur og tók tii hendi. „Hvað viltu fá að vita drengur?“ spurði hann og fór aftur að huga að seglinu. Nú þurfti ég á allri lagni að halda. Það var eins gott að mis stíga sig ekki eins og ástatt var. En karlinn var erfiður; það var eins og hann nyti þess að æra upp sultinn í þessum hungraða gesti, sem nú sat á flísóttum hnalli andspænis hon- um og horfði beint framan 1 hann. Mörg vopn voru notuð, en hægt beit. Hann minntist eitthvað á Færeyjar. „Konan mín er ættuð frá Klakksvík“ sagði ég. Þá varð karlinn ein eftirvæntingarhlust. Ekki hafði Jón Tómasson haft smekk fyrir því að geta svo veigamikillar staðreyndar. Öldungurinn tókst allur á loft og það var eins og klaka- stífla hyrfi í strauminn: „Það var á balli í Trangisvogi. Þá kom Færeyingsdraugur og ætl- aði að taka flöskuna úr rass- vasanum á mér. .. Ég greip naglann . . Hann bað mig að gefa sér snafs. Haltu kjafti, segi ég og fleygi honum niður brekkuna. Þar lá hann. Svo fór ég á ballið og byrjaði að dansa. nú stóð ég þarna á braggagólf- inu við hliðina á Jóni Tómas- syni, en við borðið sat Jón gamli Magnússon, og tók nú upp kaffibrúsa og saup á. Ég renndi augum til lofts til að sýna að mér kæmi ekkert við þau sem sóluðu sig í tjalddúkn- um. Jón seglasaumari leit einnig upp, pírði augun, hvessti þau síðan á mig. „Það míg- lekur allt saman" sagði hann. „Skál“, sagði maðurinn og reis uþp við dogg. Kvenmaður- inn strauik skolhært hárið. „Þeg ið þið“, sagði karlinn og þau hreiðruðu aftur um sig í segl- inu. Öldungurinn hand'fjallaði aftur segldúkinn, eins og annað skipti ekki máli. Mér fannst ísinn brotinn. Mér leið vel. Þetta stóð heima hjá Jóni Tómassyni. Og ég brann í skinninu að eiga við karlinn samtal í Morgunblaðið. Jafnvel þó hrikti í velsæminu. Brann í skinninu að komast inn fyrir skrápinn. En það var engin bagga- braut inn í hugskotið á þessum manni. Hann stóð upp og haltraði til mín. Ég var þess fullviss að gigtin hefði hlaupið í kroppinn á honum, eins og illur andi. Ég hafði orð á því við hann. „Nei, það hefur ekkert hlaupið í mig nema bölvuð girndin", sagði hann eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Þau í „sólskininu“ flissuðu, en hann sussaði á þau. Það fór svo sem ekki milli mála hver hafði lyklavöldin í þessu braggagreni. Hann rétti mér lúkuna, stóra og harða eins og stungugaffal. „Það er eins og að taka í ungpíuhönd“ sagði hann — „fjandinn annars að maður muni lengur hvernig það er“, bætti hann svo við. Hann staulaðist um braggann, tuldrandi eitthvað um að ég gæti vel verið, ef ég hefði ekk- ert annað að gera; hann bygg- Þeir sögðu að fjallatussinn væri kominn. Ég hafði ekki farið nema hálfhring með eina gent- una, þegar sýslumaðurinn birt- ist allt í einu í dyrunum — Ég sleppti stelpunni á auga- bragði og gekk að honum. Hann steinþagði. En ég sá af svip hans að hann velt vínhat- ari . . Þá sótti ég stelpuna aftur og reyndi að hvísla einhverju fallegu að henni .. Nu har jeg törvur í kroppinn, sagði ég. Hún hváði.. .“ Meðan á frásögninni stóð, ot- aði hann nálinni að mér, hún var líkust spjótsoddi. Honu.m þótti hún nauðsynlegur áherzlu auiki. „Þú ert ekkert of góður tCl að muna þetta, strákur,“ sagði hann, ef ég ætlaði að punkta eitthvað niður hjá mér. Og auðvitað jánkaði ég svo sjálf- sögðum hlut. Frásögn hans jókst orð af orði og meira að segja þau 1 seglinu voru farin að hlusta; alltaf óx honum ásmegin og þegar samtölin birtust í Morg- unblaðinu um páskaleytið fyrir nær áratug tóku ábyrgar rabb- kerlingar upp pólitískit tauga- stríð á hendur blaðinu, sumar töluðu meira að segja sjálfar við einn af þáverandi ritstjór- um blaðsins, Bjarna Bened'kts- son, sem brosti á sinn hátt. En Jón seglasaumari lét sér fátt um finnast. Orðbragð han« var ekki agað í aopagillum sendiherra. Þegar ég sagði hon- Framhald á næstu síðu. EFTIR MATTHÍAS JOHANNESSEN HANN sat á hnalli með segl- dúk í kjöltu sér. Hann leit ekki upp úr vinnunni. Það var eins og annað skipti ekki mán á þeirri stund en nálin og seglið. Hvítir hárlokkarnir risu í lönum á höfði hans, svo mér fannst hann einna helzt líkjast hundraðshöfðingja á dögum rómversks keisara. Samt var hárið úfið og bar þess greini- leg merki að hafa í mannsaldur verið strokið söltum fingrum febrúarbylja. Andlitið sterkt og grópað þessum sömu áhrif- um særoks og lurkveðra. Þó hann liti upp var ekki að sjá að hann hefði neinn áhuga á því, sem kom utan af göt- unni; mér ókunnugum manni, og þessum þybbna gamla skip- •tjóra sem með mér var. Hann leit aðeins á okkur sem snöggvast, virtist hundsa okk- ur. Síðan setti hann nálina aft- ur í gang. Það var eins og hann vildi fá frið til að tala við hana í einrúmi. Nei, annars, þau töl- uðu ekki saman, þau mösuðu. Og það fór vel á með þeim. Við fórum okkur hægt í átt- ina að þessu úfna trölli og ég virti um leið fyrir mér húsa- kynnin; óhrjálegan, gamlan bragga í skugga af pakkhúsi Sambandsins, fullan af allskyns drasli — líklega gömul vöru- skemma frá stríðsárunum. Kola ofn og björgunarbátur Kristín- ar KE-40 einu húsgögnin í þessu hreysi. Bak við hvíthærðan öldung- inn voru dyngjur af tjalddúk með hvítum lautum og hlýju athvarfi. Það var varla lesbjart í bragganum, samt grillti ég í tvær mannpersónur, sem lágu í tjalddúksbollunum og fann strax að þær áttu sameiginlegt leyndarmál ; hvorki líkamlega ást né andleg launungarmál fyrir opnum tjöldum, heldur eitthvað annað, sem skipti meira máli. Þegar við nálguð- umst seildust þau ósjálfrátf í eitthvað sem lá á milli þeirra. Síðan greip hún flöskuna og faldi ’nana undir peysunni. Þá lagðist hann aftur rólegur, eins og nú væri öllu borgið. Þau horfðust í augu, dálítið bros færðist yfir andlit þeirra, svo hamingjusamt var þetta fólk. Ég hafði vísit horft á þau af of miklum áhuga, því að nú sá ég að gamli maðurinn var hætt- ur að splæsa og gaut auga til mín; færði jafnvel stólinn frá borðinu eins og til að vera við öllu búinn. Ekki laust við að mér fyndist hann eiga hags- muna að gæta, að veita þeim þarna i seglinu skjól og sjá um að þau yrðu ekki fyrir áreitni aðkomufólks. Blaðamaðurinn kom upp í mér. Ég varð að vekja traust þessa hvíthærða öldungs, því ekki var ég kominn hingað eins og hver annar útsmoginn óvinur, heldur fyrir áeggjan góðs manns, Jóns Tómassonar, skipstjóra, sem með mér var. Hann hafði mætt mér niðri í Austurstræti og sagt; „Þú verður að hitta hann Jón Magn ússon“. „Hver er það?“ spurði ég. „Gamall skútukarl og skip- stjóri, nú seglasaumari“ sagði hann. „Það er svoddan kjaftur i ykkur báðum að það hlýtur að fara vel á með ykkur.“ Áhugi minn var vakinn. Og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.