Morgunblaðið - 23.03.1967, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967.
7140it.NET. etscuns angiais
3» OtAMMW
ENROSÉS DE CHÖCOIAT AU iAfT OAíRY M»tK
JÁRNSMÍÐAVÉLAR
Notaðir rennibekkir til sölu:
1 stk. NEBEL þvermál 460 m.m., lengd 2000 m.m.
2 stk. Köping þvermál 360 m.m., lengd 1250 m.m.
1 stk. MUNKTEL þvermál 500 m.m., lengd 2000 m.m.
1 stk. MUNKTEL þvermál 400 m.m., lengd 1500 m.m.
Rennibekkirnir eru í góðu lagi og seljast ódýrt með fylgihlutum
Hafið samband við Kolbein Jón sson.
= HÉÐINN =
Sími 24260.
Laugardagur 25. marr
20:0O Fréttir
20:30 Kraftaverkin í Lourdes
Á hverju ári streyma þúsundir
manna í eins konar pílagríms-
ferð til hins fræga hellis í
I^ourdes í Frakklandi. Sumir til
þess að öðlast andlegan styrk
en aðrir í von um lækningu
Mkamlegra kvilla í lindinni við
hellinn.
20 :55 Biskupsvígsla 1 Stoálholti
Kvikmynd frá biskupsvígslunni
1 Skálholtskirkju í september-
mánuði síðast liðnum, sem var
önnur biskupsvígslan á þeim
stað frá upphafi.
Biskupinn yfir íslandi, dr. Sig-
urbjöm Einarsson, vígði þá síra
Sigurð Pálsson, prófast, vdgslu-
biskup Skálholtsbiskupsdæmis
hins forna. Þulur er Ólafur
Ragnarsson.
21:35 Rembrandt
Mynd þessa gerði Alexander
Korda árið 1036. Handritið gerði
Carl Zuckmayer.
Rembrandt: Charles La-ughton
Gretje: Gertrude Lawrence
Hendrickje: Elsa Lanchester
Fabrizius: Edward Chapman
Banning Coq: Walter Hudd
Beggar Saul: Roger Livesey
íslenzkan texta gerði Ingibjörg
Jónsdóttir.
Sunnudagur 26. xnarz
Páskadagur
16:00 Páskaguðsþjónusta
Prestur er séra Jón Auðuns
17:00 Stundin okkar
Þáttur fyrir börnin í umsjá
Hinriks Bjarnasonar.
Meðal efnis:
Börn úr tónlistarskóla Garða-
hrepps leika, og nemendur úr
Réttarholtsskóla flytja þátt úr
Skugga Sveini eftir Matthias
Jochumsson, Grasafjallið.
17:50 Hann er upprisinn
Þessi mynd er í svipuðum stfl
og „Koma frelsarans*, sem sýnd
var um jólin, byggð á málverk-
um eftir heimfræga meistara
miðalda- og Renaissance tímans
er sýna ásjónu Krists, eins og
þeir hugsuðu sér hann. Saga
myndarinnar snýst um siðustu
daga Krists á jörðunni. Robert
Russell Bennett samdi hljóm-
listina, sem er symfonískt verk
í fjórum þáttum.
Þýðandi textans og þulur er
eéra Arngrímur Jónsson.
16:15 Dagskrárlok.
Mánudagur 27. marz
Annar í páskum
20:00 Fréttir
20:30 Bragðarefir
Þessl þáttur nefnist ,.OHa og
ættarbönd* Aðalhlutverkið leik
ur Gig Young. í gestahlutverki
er Joanna Moore.
íslenzkur texti: Eiður Guðna-
eon.
21:20 í tónum og tali
Að þessu sinni er fjallað um
Emil Thoroddsen. Þorkell Sig-
urbjörnsson kynnir tónskáldið,
og söngflo'kkur syngur nokkur
þekkt lög þess.
Einsöngvarar eru Svala Nielseil
og Kristinn Hallsson.
21:50 Farandtrúðarnir
(Los Forains) Franskl ballett-
meistarinn Roland Petit hefur
eamið þennan ballett, sem fjall
ar um farandsirkus, sem kemur
í lítið þorp til þess að skemmta.
Auk Roland Petit dansar m.a.
Zizi Jeanmaire. en tónlistin er
eftir Henri Sauguet.
22:20 Öld konunganna Leikrit eftir
William Shakespeare, búin til
flutnings fyrir sjónvarp. VIII
hluti — Bræðralagið.
Ævar R. Kvaran flytur inngang*
orð. Söguþráður:
Hinn ungi Hinrik konungur
dulbýr sig og gengur á meðal
manna sinna í þvi skyni að
kanna hugi þeirra, því að i
vændum er orusta við ofurefli
liðs. Hann rökræðir við her-
menn sfna sem einn þeirra og
hlýðir á tal þeirra og verður
þá enn ljósari hin þunga ábyrgð,
sem hvílir á herðum hans. Hann
leggst á bæn og biður um fyrir-
gefningu synda sinna og föður
síns og um styrk til hinnar
miklu mannrauna í orustunni
daginn eftir. — Morguninn eftir
hafnar konungur með fyrirlitn-
ingu þeiri beiðni franska mar-
skálksins að hafa sig á burt og
fylkir nú ótrauður liði til orustu
Frakkar bíða hinn herfilegast
ósigu enda her þeirra lila stjórn
að og brezki herinn að sama
skapi undir stjórn viljastérks og
þróttmikils herforingja. Missa
Frakkar tiu þúsund menn en
Bretar aðeins tuttugu og niu.
Hinrik konungur þakkar guðl
einum þennan mikla sigur og
heldur til London sigri hrósandi.
Fyrir milligöngu hertogans al
Búrgund kemst á friður milli
landanna, og friðurinn er stað-
festur með trúlofun og hjóna-
bandi Hinriks V og Katrínar,
dóttur Frakkakonungs. Fylgir
það skilyrði, að barn þeirra skuli
erfa bæði rikin, Frakkland og
Bretland, að konungum þeirra
látnum og þau sameinast þann-
ig undir einum konungi.
23:30 Dagskrárlok.
Nú er verið að hefja byggingu á húsum
samkvæmt teikningu þessari við Fögru-
kinn í Hafnarfirði. íbúðirnar eru 101,4
ferm. að stærð. Á hvorri hæð eru 3 svefn-
herbergi, eldhús, stór stofa, bað og þvotta
hús. Sameiginlegur kyndiklefi fyrir báð-
ar hæðirnar, undir tröppum efri hæðar.
íbúðirnar verða seldar fokheldar, með
bárujárni á þaki og tvöföldu verksmiðju-
gleri í gluggum. Efri hæð verð kr. 525 þús-
und. I. greiðsla kr. 200 þúsimd. Neðri hæð
verð 475 þús. 1. greiðsla kr. 175 þúsund.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON HRL.
Linnetsstíg 3, Hafnarfirði. Sími 50960.