Morgunblaðið - 23.03.1967, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.03.1967, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967. TRESMIOIR NÝJUNG! Höfum fyrirliggjandi innfelldar skápalamir I miklu úrvali. Gerið pantanir yðar sem fyrst. Kynnist nýjungum. / Seitenwa nd ® V>(&) * i W • A' REIlDVeEZIuNIM H HVERFISGÖTU 42 A REYKJAVÍK A SÍMI 1 Sl 11 Tómasarhagi - íbúð - Tómasarhagi Til sölu 3ja herb. 100 ferm. jarðhæð við Tómasar- haga allt sér. Uppl. í síma 15866. Enskunám í Englandi Skólastofnunin Scanbrit skipuleggur nám fyrir er- lenda nemendur í Englandi á sumri komanda eins og áður. Nemendur dvelja á úrvalsheimilum, að- eins einn frá hverju landi á hverju heimili, og er ■kólaganga um 3 tímar á dag. Ábyrgur leiðsögu- maður verður með nemendum bæði til Englands og heim aftur. Mjög hagstætt verð. Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík, ■ími 14029. EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON. Í»AÐ VAR að haustlagi fyrir sex árum. Norðannæðingur- inn blés ofan af Ingólfsfjalli og feykti með sér mold og sandi, sem þyrlaðist framan í menn á bílaplaninu á Selfossi; langt að komna menn í græn- um úlpum og gúmmístígvél- um. í>eir voru að útrétta í búð unum; sumir úr Fljóts- hlíðinni sumir úr Grímsnesinu. Þeir heilsuðust með þeirri aug ljósu mannvirðingu sem bænd um er eiginleg, fundu sér skjól fyrir næðingnum og tóku t nefið; þeir höfðu verið að farga „niðri við Skála“ eða „við ölfusá.“ Þeim var að jafn aði ekki tamt í munni að tala um Selfoss. Mér var þetta umhverfi harla kunnuglegt frá fyrri ár- um. Nú var ég hins vegar gestkomandi, kominn til að hitta Egil, sjálfan jarlinn 1 Sigtúnum. Ég hafði kynnzt honum allvel meðan ég átti heima þarna í plássinu, en nú vann ég að grein um hann og fannst betra að fá upplýsing- ar frá fyristu hendi. Hann kom eins og hvirfil- bylur fyrir húshorn klæddur gráum tvítfötum, mjög ljós yfirlitum og skar sig úr bíl- stjórum, bændum og bifvéla- virkjum, gem fjölmennastir voru þarna á hlöðunum, Hann gekk með hendurnar fyrir aft- an bak, en snerist á hæli öðru hvoru og leit fránum sjónum yfir völlinn; bandaði höndun- um út um leið með. sérstakri hreyfingu, sem var einkenn- andi fyrir hann. Þennan handa útslátt hans hafði ég oft séð, þegar hann kastaði kveðju á menn á förnum vegi í þorp- inu. Það er f mildara lagi að segja, að Egill Tthorarensen var þó nokkuð ólíkur hjörð- inni; að minnsta kosti þeirri hjörð sem jafnan var fjölmenn ust í sandkófinu á bökkum Ölfusár. Hann var fremur há- vaxinn og teinréttur; bar höf- uðið hátt. Mér er stórlega til efs, að ég hafi 1 annan tíma séð höfðinglegri mann og ég hygg, að mér sé hann einna minnistæðastur þeirra manna sem ég hef kynnzt á nærri tólf ára blaðamennskuferli, en Moskvich fólksbifreíðar til afgrelöslu strax kosta kr. 146.B25.oo • bagstæölr greiösluskilmálar ^BijreiÖar & i^anctbúnaöarvélar U.l\ SUÐURLANDSBRAUT 14 — REYKJAVlK — SlMI 38600 1ÍÍMÍUS kynni okkar Egils voru raunar eldri. Hann var einhverskonar sambland af enskum lord, og íslenzkum héraðshöfðingja að fornu fari; þó með listrænu ívafL Kinnbeinin voru óvenju há, granstæðið vítt og yfir- skeggið snyrtilega klippt Ég færði í tal við hann er- indi mitt austur þangað og hann rak upp hroseahlátur eins og hann átti stundum til. alls konar óþægð við yfirboðarana f SÍS. Ég fann að ég kom við viðkvæm- an blett, þegar ég minntist á þetta; hann hristi höfuðið og sagði sem svo að þau hross»- kaup, sem fram færu í stjórn málum, væru utan við sitt áhugasvið; hann hefði aldrei haft minnstu löngun til þes» að komast á þing. Ég hygg að hitt hafi einnig verið staðreynd, að Egill gat naumast fagnað víðtækum vin sældum þar eystra; vinir hana voru flestir sunnan yfir fjall; kaupmenn og athafnamenn, skáld og listamenn. Ekki man ég til þess að ég heyrði menn hrífast af hugsjónum Egils f mínu ungdæmi; þær voru flest ar of stórar í sniðum til þesa að menn meðtækju þær skil- yrðislaust. Það jók jarlinum f Sigtúnum heldur ekki vinsæld Við fylgdumsf að heim í Sig- tún. „Hvað má helzt bjóða svona greifum að sunnan, whiský eða koníak? Hann skenkti í glös, vertinn par exellence og við tókum tal saman, mest um myndlist minnir mig. Egill var furðulega vel að sér um þá hluti, enda liðtækur safnari. Á heimili hans var meira af mál verkum en með góðu hófi komst fyrir á veggjum; mest Kjarval og Ásgrímur. „Jón Stefánsson kannske beztur af þeim öllurn", sagið EgilL Ég er smeykur um að ég hafi ekki verið sammála, en kvaðst þangað kominn til þess að fá vitneskju um, hvort hann ætti ásamt Vilhjábni Þór öll þau ósköp af skógi í Sví- þjóð svo sem sögur hermdu; hvort hann hefði lií- að af sprúttsölu hér á árun- um meðan hann höndlaði í bárujárnskumbalda og plássið var samtals fjögur hús. Ég fékk auðvitað ekkert út úr honum annað en það sem ég átti von á; háðsglotit sera klæddi vel aristókratískt yfir- bragð hans og þar á ofan heim spekilegar bollaleggingar um sannleikanin og almannaróm- inn. Ef ég hefði heyrt eitt- hvað í þessa veru, þá hlyti það að vera meira eða minna satt. •Margir hafa undrast að mað ur á borð við EgU skyldi ekki hafa hlotnast þingsæti. Ég þekkti af eigin raun, að hann áfcti ekki pólitísku fylgi að fagna í héraði og margir töldu hann einhverskonar platfram- sóknarmann og var þá í þvl gambandi óspart vitnað i fé- lagsskap hans við heildsala og ir að hann var framan af að minnsta kosti, óþolinmóður gagnvart þeirri gagnrýnL sem stundum var fram borin af ó- nógri þekkingu. Það var hrífandi að heyra EgU tala um framtíðarmögu- leika Suðurlands; um Þorláks- höfn, um ræktunarmöguleika og jarðhitann. En gagnstætt því að flestir eru negldir við sína f jöl, var EgiU eins og kam« ljón. Hann var alltof fjölgáf- aður til þess að geta orðið fag- idíót. Mér fannst fyrir mitt leyti allra skemmtilegast a8 heyra hann ræða um stefnur í skáldsagnarritun eða innviðu leikrits. Þó var myndlistin honum hugþekkust að ég hygg. Þegar verk Egils á SeÞ fossi eru höfð í huga, þá er erfitt að ímynda sér, hvaðan honum kom tími til fagur- fræðilegra iðkana, en langar sjúkdómslegur mun hann hafa notað til lesturs. f Hvaða kaldhæðnl örlaganna er það að marka þeim manni bás í sveitakauptúni, sem ætlr ar að standa hátt í stafni og stýra dýrum knerri; verða skipstjóri? Berklar. Egill sýkt- ist ungur af þessum sjúkdómá og það var ekki heppUegt fyr- ir hann að ástunda vosbúð á sjó. Hann gaf skipstjóradraum inn á bátinn. En hann bognaði ekki und- an langvarandi veikdndum; jafn teinréttur var hann og hvatur i spori þegar hann ark- aði yfir hlöðin á Selfossi eft- ir margra vikna spítalalegu. Þar í plássinu sögðu menns „Sá hvíti, hann væri löngu dauður e< það væri ekki fyrtr hörkuna.“ Stundum lenti hana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.