Morgunblaðið - 23.03.1967, Síða 26

Morgunblaðið - 23.03.1967, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1967. Úr kránni í Grinzing. Karl Gruber og Adolf Schárf glettast. EFTIR ÞORBJÖRN GUÐ- MUNDSSON. KLIÐURINN í kránni þagnaði — og allra augu beindust að dyrunum, þegar hávaxinn, vörpulegur maður, festulegur á svip, kom inn, kvikur á fæti. Vfir honum hvíldi nokkur al- vöruþungi, en svo heilsaði hann glaðlega og bros færðist yfir frítt andlitið — eins og hann vildi undirstrika að hing að væri hann kommn til þess að „slappa af“, allar áhyggjur og sú byrði, sem starf hans lagði honum á herðar, væri skiiin eftir utan dyra. Við vorum þarna staddir í kránni allmargir norrænir blaðamenn ásamt austurrísk- um gestgjöfum okkar. Kráin var í Grinzing, sem eitt sinn var lítið þorp skammt utan við Vínarborg, en borgin hefur nú gleypt. Þarna og í nágrenninu er mikil vínviðarrækt og fjöldi svipaðra veitingastaða, sem hyggja afkqpiu sína á hinu ljúf fenga þrúguvíni. Þetta var árið 1951 — og sá, sem síðast bættist í hóp- inn, var dr. Karl Gruber, þá- verandi utanríkisráðherra Austurríkis. Hann byrjaði á að biðjast velvirðingar á því, hve seint hann kæmi og einn- ið hinu að hann væri í smók- ing, það væri ekki rétti klæðn- aðurinn á þessum stað. — „En ég vona að ég hafi gildar af- sakanir", sagði hann. „Fyrst þurfti ég að fara út á flugvöll ©g taka á móti Dean Acheson, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, og þegar ég hafði fylgt honum til hótelsins mat ég meira að hraða för minni hing að en fara heim og hafa fata- skipti. Það hljótið þið þó að skilja", bætti hann við og kímdi. Við höfðum beðið þessa fundar með dr. Gruber með nokkurri eftirvæntingu — því svo oft hafði verið á hann minnzt þá daga, sem við höfð- um ferðast um landið. Eftir þeim sögum hlaut hann að vera einstakt karlmenni, áræð inn og slyngur stjórnmálamað ur. Ekki fór á milli mála, að Austurrikismenn voru hrifn- ir af þessum utanríkisráðherra sínum, sem nú var aðeins 41 árs, en hafði gengt þessu vandasama embætti í meira en fimm ár. Hafði það bæði kom- ið fram hjá flokksbræðrum hans í Kristilega þjóðflokkn- um og andstæðingum hans, Jafnaðarmönnum. Þó át/ti fbr- setakjör að fara fram í landinu innan nokkurra daga og all- mikill hRi í glæðunum þótt flokkarnir ynnu saman í ríkis- stjórn. Og vissulega urðum við ekki fyrir vonbrigðum. Við vissum að maðurinn hlaut að vera skapfastur og einarður, sann- kallað hörkutól. Kom því hið glaðværa fas, glettnissvipur- inn, látleysið og hin ríka kímni gáfa þægiiega á óvart. ★ ★ ★ Dt. Karl Gruber er fædd- ur í fjöllum Tirol og þar sleit hann barnsskónum. Hann var af fátækum kominn og kynntist fljótt erfiðleikunum. Sjálfur varð hann að vinna fyr ir menntun sinni. Hann tók fyrst próf í verkfræði. en síð- ar doktorsgráðu i lögum. En erfiðið stælti hann, svo hann átti auðvelt með að vinna lang an vinnudag — og oftast gekk hann 3km. áður en hann gekk til náða. Eftir að námi lauk gerðist hann starfsmaður aust- urrísku póstþjónustunnar, en stjórnmálaferil sinn hóf hann sem andnazisti, og það kostaði hann atvinnuna þegar Hitler lagði Austurríki undir sig 1938. Þá réðst hann til raf- magnsfyrirtækis. Þegar á árinu 1938 skipulagði Gruber andstöðuhreyfingu gegn nazistum í Tirol, og þar var hún öflugust gegn þeim allt til stríðsloka. í Innsbruck höfðu borgarbúar undir for- ystu hans rekið nazista af höndum sér áður en Banda- ríkjamenn komu þangað 1945. Lýsti útvarpsstöð borgarinnar því yfir að hernámi Þjóðverja væri lokið. Foringjahæfileikar hans komu svo greinilega í ljós í barátt- unni gegn nazistum að sjálf- sagt þótti, að hann tæki sæti í ríkisstjórn landsins að stríð- inu loknu. Margir vildu að hann myndaði stjórn, en það féll í hlut Leopolds Figl, sem hafði verið í fangabúðum naz- ista í sex ár. Aftur á móti var Gruber falið það vandasama starf að fara með utanríkis- mál landsins. Bandamenn höfðu að vísu lýst því yfir, að Austurríki skyldi verða frjálst og fullvalda ríki, en þar fylgdi böggull skammrifi, landinu var gert að greiða skaðabætur fyrir þann stuðning, sem pað hefði veitt þýzku stríðsvélinnL Þetta þýddi, að Austurríki' var skipt í fjögur hernámssvæði eins og Þýzkalandi. Og nú féll það í hlut Grubers að sigla milli skers og báru — þannig að Austurriki liðaðist ekki 1 sundur í ölduróti kalda striðs- ins eins og urðu örlög Þýzka- lands. Fljótt kom til þess að Rúss- um þótti hinn ungi utanríkis- ráðherra ekki nógu auðsveip- ur og hugðust draga úr honum vígtennurnar. Til þess voru engin smámenni fengin, eða þeir félagarnir Molotov og Vhisinsky. Gruber var boðað- ur á þeirra fund í húsi rúss- nesku sendisveitarinnar i London. Þar töluðu Rússarn- ir yfir hausamótunum á hon- um í hart nær klukkustund. Gesturinn sat hljóður, en hlust aði með athygli á ásakanir þeirra. Megininnihald þeirra var, að Austurríki væri ósam- vinnuþýtt land og ókommún- iskt. Betra væri fyrir þjóðina að skipta um stefnu, vildi hún ekki hafa verra af. Loks þegar gesturinn komst að, lýsti hann því yfir, að aug- ljóst væri, að Sovétríkin að- hylltustu stefnu, sem væri Austurríkismönnum fjarlæg og óskyld. „Landar mínir verða að bera fram mótmæli gegn ólöglegum erlendum af- skiptum af stjórnarskrá og stjórn landsins", sagði hann. „Ef þið viljið þröngva ykkar stjórnarstefnu upp á land mitt, verðið þið að beita valdi." — Þetta ákveðna svar kom mjög flatt upp á Molotov og Vhisinsky. Þeir störðu hvor á annan — en viðtalinu var lokið og gesturinn hvarf út í rigninguna. Gruber varð strax ljóst, hvað Rússár ætluðu sér og hann var ákveðinn i að láta þá ekki blekkja sig né þjóð- ina. Hann vissi að undanláts- semi leiddi af sér enn frekari kröfur og sýndi þeim því strax í fulla hnefana. Hann ætlaði ekki að verða leppur þeirra, og gaf þeim fyllilega í skyn, að hann myndi leita aðstoðar Bandarikjamanna, e< þeir kynnu að verða of ágengir. Ýmsa furðar á því að Rúss- ar skyldu láta sitja við hótan- ir og ógnanir einar gagnvart Austurríki, þegar þess er gætit að þeir hersátu þriðjung lands- ins og höfuðborgin sjálf var á TOYOTA CORONA STATION — RÚMGÓÐUR 5 MANNA STATION KRAFTMIKILI. 74 HESTAFLA VÉL. — BURÐARÞOL 4«5 KG. — VERÐ AÐEINS Kr. 211.000.— Innif. í verði m.a.: Toyota ryðvörn — Þykk teppi — Rið- straumsrafall (Alternator) — Sjálfvirkt innsog — Tvöföld aðalljós — Tveggja hraða rúðuþurrkur — Rafmagnsrúðu- sprauta — Bakkljós — Góð miðstöð — Fóðrað mælaborð — Ljós í vélarrými — 6 strigalaga hjólbarðar — Rúmgott geymslurými. TRYGGID T0Y0TA GROWN STATION — GLÆSILEGUR OG VANDAÐUR « MANNA STATION — BYGGÐUR Á SJÁLFSTÆÐRI STÁLGRING — 6 CYL. 110 HESTAFLA VÉL — BURÐAR- ÞOL 825 KG. — VERÐ AÐEINS Kr. 268.500.— Innif. í verði m.a.: Toyota ryðvörn — Hvítir hjólbarðar — Þykk teppi — Tveggja hraða rúðuþurrkur — Sjálfvirkt innsog — Góð miðstöð fyrir fram- og aftursæti — Tvöföld aðalljós — Sjálfstæðtt loftræstikerfi — Sjálfvirk afturrúða — 6 strigalaga hjólbarða. YÐUR TOYOTA Ármúla 7 — Sími 34470. Japanska bifreiðasalan hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.