Morgunblaðið - 18.04.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.04.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 54. árg. — 87. tbl. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tugir þús. mótmæía styrjöldinni í Vietnam New York, San Francisco, ' Tókíó, 16. og 17. apríl (AP—NTB) TVGIR þúsunda manna koma saman til útifunda í New York og San Francisco á laugardag til að mótmæla styrjöldinni í Viet- nam. Ekki kom til alvarlegra árekstra vegna útifundanna. en fjölmennt lögreglulið 1mr þar m»*tt til að haida uppi rcglu. Örfair menn voru haudteknir fyrir éspektir, meðal amiars tveir, sem reyndu að heng.ja upp nazistamerki á mynd aí handa- ríska fánanum. Um 50 ungir menn á fundinum í Neiv York breni.au herskyiduskjöl sín, en það hefur nýlega verið úrskurð að retsivert athæfi í liandarikj- uíium og eiga þeir á hættu að verða tíæmdir til fangelsisvist- mt. Aðal ræðumaðurinn a fund- lnum í New York var dr. Martin Luther King. Sjálfur er hann blökkumaður, og hefur til þessa staðið framarlega í baráttunni fyrir jafnrétti blökkumanna í heimalandi sínu .Krafðist hann þess að Bandaríkin hættii tafar laust ölluin loftárásum á Norð- ur-Vietuam. Fundurinn í New York var haldinn við hús Sarneinuðu þjóðanna, en í San Francisco kom mannfjöldinn saman á Kezar-Ieikvanginum að lokinni átta kílómetra kröfugöngu um borgina. Ekki ber fregnum sam an um fjölda fundarmanna. Lög reglan telur að um 125 þúsund manns hafi verið á fundinUm í New York, og um 60 þúsund í San Francisco. Fundarboðendur telja hins vegar óhætt að tvö- Framhald á bls. 31 Liu Shao Chi sakaður um samsæri gegn Mao Veggfréttablöð heimta dauðadóm yfir honum Peking og Tókíó, 17. apníl, AP, NTB. DAGBLAÐ þjóðarinnar, mállgagn kínversika kommún- ietaflokksins, sakaði í dag andstæðinga Mao Tse Tungs um að untdirbúa stjórnarbyilt- ingu í Kína með það fyrir augurn að fela Liu Shao Ohi, forseta ríkisins, ölil þau völd er tiil þessa hafa verið í hönd- um Maos formanns. Þá bar blaðið einnig andstæðinga Maos þeim sökum, að þeir hefðu reymt að ná undir sig fjölmiðlunartækjum í land- inu, og gefið var í skyn, að um tíma hefðu þeir haldið Adenauer: Enn í hæitu líður þó betui Bonn, 17. apríl (NTB) KONRAD Adenauer, fyrrum kanzlari, er enn þungt hald- inn af lungakvefi og inflú- enzu, en heilsu hans hefur ekki hrakað undanfarna tvo daga. Skánaði honum nokkuð í gær, og á hann nú auðveld- ara með andardrátt. Öðru hverju er hann með rænu, og getnr þá rætt við fjölskyldu sína, sem er saman komin að heimili Adenauers á Rínar- bökkum. Læknar Adenauers gáfu í dag út þrjár tilkynningar um líðan hans, þá síðustu klukk- an 19. Segja þeir þar að sjúkl ingurinn sé enn í lífshættu, líkamsþrek hans lítið og lung un veikluð eftir leguna. Ligg- ur Adenauer enn í súrefnis- tjaldi og hefur lítillar nær- ingar neytt. Peking sem næst í herkví og haft þar öll tögl og hagldir um nokkurt skeið. í veggfréttablöðum í Peking segir að Liu 9hao Ohi forseta verði að leiða fyrir rétt og hann látinn svara til saka fyrir meint samsæri, að hafa ætlað að ná undir sig öllum völdum í land- inu með aðstoð hersins. Er kraf- izt óvæginnar refsingar til handa Liu forseta og fylgismönnum hans fyrir afbrot þeirra og sagt að gjörvöll þjóðin eigi að rísa gegn þeim. í Peking er það mál manna, að fréttir þessar kunni að benda til þess, að Mao og menn hans telji sig nú nægilega fasta í sessi til þess að ráðast gegn ,andstæðingum sínum með oddi og egg og er á það bent í þessu sambandi, að ekki hafi Framhald á bls. 31 Þessi mynd var tekin i 1 Central Park í New York á laugardag þegar nokkrir þeirra, sem sóttu útifundinn þar, komu saman til að brenna bandarískan fána. Það vakti almenna reiði í Bandaríkjun- um fyrir nokkru, meðan Humphrey varaforseti var í París, að nokkrir unglingar þar í borg brenndu bandarísk- an fána. Ekki virðist þó öllum Bandaríkjamönnum þjóðar- táknið jafn mikilvægt. Ofveiði við Græniand Kaupmannahöfn, 17. apríl (NTB) Á RÁÐSTEFNU í Kaupmanna- höfn um fiskveiðar við Grænland sagði Sv. A. Horsted magister, sem starfar að grænlenzkum fiskirannsúknum, að mjög óvit- urlega hafi verið gengið á þorsk- stofninn þar. Vegna samkeppni allra þeirra, sem sækja á grænlenzku miðin, gengur mikið á nýrri árgangana. Telur Horsted að éftir nokkur ár teljist það viðburður ef þar veið- ist þorskur sjö ára eða eldri. Seg- ir hann að mjög væri aeskilegt að stækka möskva netanna, sem notuð eru við Grænland, úr 130 mm í 150 mm til að draga úr ofveiði smáfisks. Nýjar kaupbiningar brezku stjórnarinnar LONDON, 17. apríl (NTB). — Ríkisstjórn brezka Verkamanna- flokksins stofnaði í dag til nýrra átaka innan flokksins með þvi að leggja til áframhaldandi eftirlit hins opinbera með þróun kaup- gjaldsmála. Undanfarið hefur öll kauphækkun verið bönnuð í Bretlandi, en hann þetta gildir aðeins þar til i sumar. Mihajlo Mihajlov fyrir rétti á ný Michael Stewart efnahagsmála- ráðherra skýrði í því sambandi frá því í Neðri málstofu þings- ins í dag að stjórnin hyggðist leggja fram nýtt frumvarp til laga varðandi kaupbindingu, og tækju þau lög gildi þegar nú- gildandi bindingarheimild renn- ur út. Samkvæmt nýja frumvarpinu ber að tilkynna stjórninni allar kröfur um kauphækkanir, og á hún þá að geta frestað auka- greiðslum í sjö mánuði, í stað fjögurra, eins og gert er ráð fyrir í gildandi reglum. - i þriðja sinn á 2 árum Djilas og Tarsis í hópi er vinnur að frelsi hans Belgrad, 17 apríl. NTB-AP. JÚGÓSLAVNESKI sagnfræð- ingurinn og rithöfundurinn, Mihajlo Mihajlov var leiddur fyrir rétt í Belgrad í dag, í þriðja sinn á tveimur árum. Að þessu sinni er hann sak- aður um að hafa skrifað grein ar fjandsamlegar Júgóslavíu og dreift þeim — og flugrit- um, er hann hafði fengið frá júgóslavneskum flóttamönn- um, andstæðum Titó forseta. Verði Mihajlov sekur fund- inn að þessu sinni, getur beð- ið hans allt að því tólf ára fangavist. Mihajlov varði mál sitt sjálfur fyrir réttinum í dag Framhald á bls. 31 Tilkynningu Stewarts var illa tekið, ekki sízt meðal þeirra að- ila innan stjórnarflokksins, sem tengdir eru verkalýðssamtökun- um. Lýsti Emanuel Shin-#ell fyrrum varnarmálaráðherra, sem nýlega sagði af sér formennsku þingflokks Verkamannaflokksins í Neðri málstofunni vegna ágrein ings við stjórnarstefnuna, því yfir að ríkisstjórnin mætti búast við öflugri andstöðu úr eigin flokk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.