Morgunblaðið - 18.04.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.04.1967, Blaðsíða 10
10 MOKOUNBDAöIÐ, ÞRIÖJUDAGUR 18. APRÍL 1967. Mognús Úlofsson, prentsraiðjn- stjóri — Minningororð EINN af merkustu borgurum ísafjarðarkaupstaðar, Magnús Ólafsson fyrrum prentsmiðju- stjóri er í dag til moldar borinn frá ísafjarðarkirkju. Þessi heið- ursmaður lézt að kvöldi mánu- dagsins 10. apríl síðastliðins að heimili sínu Sólgötu 1, naer 92ja ára gamall. Hafði hann verið heilsugóður fram undir níræðis- aldur og andlega hress var hann fram til síðustu stundar. Magnús Ólafsson var fæddur að Selakirkjubóli í Önundarfirði 3. júlí árið 1875. Voru foreldrar hans Elín Halldórsdóttir frá Gili í Bolungarvík, af Arnardalsætt, og Ólafur Ólafsson, Jónssonar bónda á Skjaldfönn í Nauteyrar- hreppi. Ólst Magnús upp hjá foreldrum sínum þar vestra til fimm ára aldurs. Þá fluttust þau vestur í Hnífsdal og áttu þar heima í tvö ár. En árið 1882 fluttust þau búferlum til ísafjarð ar. Ari síðar ræðst Magnús til prentnáms í prentsmiðju Þjóð- viljans á ísafirði hjá Skúla , Thoroddsen. Vann hann jafnhliða prentnáminu við verzlun Skúla. Lýkur hann svo prentnámi. En um aldamótin flytur Skúli Thor- oddsen suður og tekur þá Magn- ús við stjórn á fyrirtækjum hans, prentsmiðju og verzlun. Árið 1905 flytzt Magnús til Reykjavíkur og starfar þar í Félagsprentsmiðjunni í eitt ár. Flytur siðan til Isafjarðar aftur og hefur þá keypt hina litlu prentsmiðju Skúla Thoroddsens. Byrjar hann jafnframt sjálfur að verzla. Á þessum árum stund- ar Magnús eitthvað sjómennsku á litlum vélbátum, sem þá var að hefjast útgerð á við Djúp. Síð- an flytzt hann aftur um skeið í Félagsprentsmiðjuna í Reykja- vík og er þar verkstjóri í tvö ár. En hann unir ekki hag sínum syðra og flytur aftur vestur og á þar siðan heimili til dauða- dags. Tekur hann nú við for- stöðu íshússfélags ísfirðinga árið 1914 og starfar við það í 2-3 ár. Kaupir þá frystihúsið Jökul með Elíasi Pálssyni og fleirum, og starfar við það í 17 ár, en rekur alltaf prentsmiðjuna jafnhliða og prentar þar aðallega blöð og smá prept. Árið 1933 hættir hann við ís- hússrekstur og stofnar prent- stofuna ísrún h.f. með Jónasi Tómassyni tónskáldi og bóksala mági sinum og fl. Er Magnús prentsmiðjustjóri ísrúnar fram til ársins 1951, er hann lætur af prentarastörfum, þá 78 ára gam- all. /■ v/ ' /""/ 'Tvo^v^.jW/"^ym- "/■' w* ' ,*/ gáfaður. Var hann um áratuga skeið einn fremsti og fjölhæfasti leikari Isafjarðarbæjar, ásamt systkinum sínum Halldóri og Sig ríði. Hann hafði yndi af fögrum listum og leiklistarstörf stundaði hann eins og önnur störf sin af lifi og sál. Er mér í barnsminni túlkun hans á ýmsum hlutverk- um á leiksviðinu á ísafirði. Magnús Ólafsson var einkar ljúfur maður og elskulegur í daglegu viðmóti. Hann var af- kastamaður í prentsmiðju, skemmtilegur og fjölfróður. Á ég margar ánægjulegar endurminn- ingar um samstarf okkar í prent- stofunni ísrún, þegar ég var rit- stjóri Vesturlands og átti heima á ísafirðL Minnisstætt er mér, þegar ís- rún eignaðist setjaravél í fyrsta skipti haustið 1942. Þá voru mikil tímamót í þessari gömlu prent- smiðju. Bæði prentarar og rit- stjórar voru glaðir og fagnandi, þegar tæknin í prentiðninni hélt innreið sína á ísafjörð. Magnús Ólafsson kvæntist Helgu Tómasdóttur frá Hróars- stöðum í Fnjóskadal 31. október árið 1897, mikilhæfri og merkri konu. Var heimili þeirra mikið menningarheimili. Áttu þau níu greind og fjölhæf börn. Eru átta þeirra á lífi, fimm búsett á ísa- firði og þrjú í Reykjavík. Urðu mörg þeirra ágætir leikarar og hljómlistarfólk, eins og þau áttu kvn til. En nú er hljótt yfir Sólgötu 1. Nú eru þau bæði horfin, frú Helga og Magnús Ólafsson. Síð- ustu árin bjó Magnús þar hjá þremur börnum sínum, Sigrúnu, Elínu og Jónasi. Þessi háaldraði maður kvaddi ástvini sína og þennan heim af sömu hógværð eins og hann hafði lifað lífi sínu. Nokkru eftir að hann hafði geng- ið til hvílu, þremur dögum fyrir andlát sitt fékk hann heilablóð- fall. Magnús Ólafsson verður öllum er honum kynntust minnisstæð- En þessi mikli starfsmaður sezt ekki í helgan stein, er hann lætur af prentsmiðjustjórn. Hann tekur nú að fást við bók- band og bindur bækur í næstu 10 ár. En þá er hann kominn fast að níræðu. Þá fyrst ann hann sér hvíldar, enda er heilsu hans þá tekið að hraka. Sjónin er biluð. Magnús Ólafsson gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum á ísa- firði, enda var hann ágætlega starfhæfur maður. Hann var í bæjarstjóm kaupstaðarins árin 1903 til 1909 og aftur árin 1921'til 1930. Hann átti sæti í yfirskatta- nefnd, í mörg ár, bjargráðanefnd og fleiri nefndum. Innan Góð- templarareglunnar vann hann einnig mikið og gott starf í stúk- unni Dagsbrún nr. 67. Fyrir störf sín að bindindismálum var hann kjörinn heiðursmeðlimur Stór- stúku íslands. Magnús Ólafsson var mikill hæfileikamaður, listfengur og Flestir vegir slark- færir stórum bílum FÆRÐ hefur ekki spillzt á veg- um hér sunnanlands við síðustu veðrabrigði, en frostið hefur gert það að verkum, að þunga- takmörkun vegna aurbleytu hef- ur hvarvetna verið numin úr gildi. Hins vegar kom það fram, er blaðið átti tal um þessi mál við Vegamálaskrifstofuna í gær, að vegir eru víða varasamir, þar HafnfirSingar! Gerið skil ÞEIR sem fengið hafa senda miða í Landshappdrætti Sjálf stæðisflokksins, vinsamlega ger ið skil í skrifstofu flokksins Strandgötu 29. Skrifstofan verð ur fyrst um sinn opin á laug ardögum og sunnudögum frá kl. 1—3. Þessar tvær myndir voru tek nar nýlega og sýna Iléraðsskóla nn á Núpi í Dýrafirði og nm- hverfi hans í vetrarbúningi. E fri myndin er af skólabygging unum og kirkjunni, en hin neðri sýnir nemendur skólans á skautum. (Myndirnar tók ei nn af nemendum skólans, Jón Karl Snorrason frá Reykjavík). sem fennt hefur í hvörf, er myndazt höfðu. öxnadalsheiði og Holtavörðu- heiði voru báðar illfærar í gær, en verða mokaðar í dag. Annars voru flestar aðalleiðir um héruð norðanlands færar mjólkurbif- reiðum, en færð var einna þyngst í Eyjafirði. Frá Akureyri til Húsavíkur var slarkfært stórum bílum. Vegir um Snæfellsnes lokuðust ekki um helgina og á Vesturlandi er fært allt til Reykhólasveitar. — Chana Framhald af bls. 2 efnahagskerfi Ghana hefði verið í rústum, heilbrigðis- ástandið mjög slæmt, og land ið hefði staðið á barmi hung- ursneyðar. Nkrumah var mjög hrædd- ur um líf sitt og dvaldist í einangruðu dönsku þræla- virki í höfuðborg landsins, Accra. Mikill fögnuður ríkti I Accra eftir byltinguna. „Harð stjórninni er lokið“, hrópaði fólk á götunum. Daginn eftir byltinguna braut hópur verka manna niður mikla styttu af Nkrumah, sem stóð fyrir utan þinghúsið. Þá birti utanríkis- ráðherra Nkrumah, Alec Quaison-Sackey, yfirlýsingu frá forsetanum, þar sem sagði, að hann væri ennþá þjóð- höfðingi í Ghana og myndi halda þangað innan skamms. Nkrumah barst bráðlega boð frá Sekou Toure, forseta Gíneu, um landvist. í boði Toure sagði, að byltingin væri runnin undan rifjum heims- veldissinna, nýlendusinna og útsendara þeirra. í svari sínu hvatti Nkrumah til að þeir Toure tækju höndum saman og berðust gegn útsendurum þessara aðila og „svikurun- um“ sem stæðu að baki bylt- ingunni. Sendiráð Ghana í Peking, þar sem Nkrumah hafði dval ið er byltingin var gerð, lýsti yfir stuðningi sínum við bylt- ingarmenn heima fyrir, og stór mynd af Nkrumah, sem var fyrir utan sendiráðið, var tekin niður. í Nígeríu skýrðu dagblöð frá byltingunni og gagnrýndu öll Nkrumah harð lega. Eitt þeirra komst þann- ig að orði, að á valdatíma hans hefðu tekjulindir Ghana verið gjörsamlega þurrkaðar upp. ur, í senn fyrir hæfileika sína, góðvild og dugnað, að hvaða starfi, sem hann gekk. Með hon- um var gott að starfa og af hon- um mátti margt læra. Far þú svo heill, gamli vinur og samstarfsmaður. Vinir þínir og fjölskyldu þinnar þakka þér liðinn tíma um leið og þeir votta ástvinum þínum einlæga samúð á kveðjustund. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Ekið á kyrr- slæðar bifreiðar EKIÐ var á kyrrstæða blfreið, R-1586, hinn 13. apríl sl., þar sem hún stóð á móts við hús nr. 13 í Þingholtsstræti. Bifreið sú, sem hér um ræðir, er af gerðinni Volvo Amazon, árgerð 1966, og hvít að lit. Var hún beygluð á vinstra frambretti og brotið stefnuljós. Tveimur dögum áður var ekið aftan á Volkswagen-bifreiðina U-1188, árgerð 1963. Gerðist þetta á Reykjanesbraut við Miklatorg milli kl. 4.30—5. Kona, sem ók bifreiðinni, varð ekki vör við neinar skemmdir í fyrstu, og var því ekki kallað á lögregluna. Síðar þegar betur var að gáð kom í ljós að bifreiðin var nokk- uð beygluð að aftan, en konan hafði ekki verið svo forsjál að skrifa niður númer bifreiðar þeirrar, sem ók til hennar og er ökumaður hennar, sem var ung stúlka, því beðin að gefa sig fram. Sunnudaginn 16. apríl var ekið á bifreiðina R-10734, sem er af Mercedes-Benz gerð, þar sem hún stóð í bifreiðastæði við Laugardalshöllina. Hefur þetta gerzt einhvern tíma á tímanum milli kl. 8—10. Var hægra fram- bretti og stuðari beyglað nokkuð. Þeir, sem geta gefið einhverj- ar upplýsingar um þessa þrjá árekstra, eru beðnir að snúa sér til umferðardeildar Rannsóknar- lögreglunnar. 1. marz hélt Nkrumah til Moskvu frá Peking, þar sem hann ræddi við Gromyko. Þá höfðu þau tíðindi borizt frá Ghana, að eftirmaður hans, Ankrah hershöfðingi, hefði lýst því yfir í útvarpsávarpi, að Nkrumah yrði dreginn fyr ir rétt, ef hann sneri aftur til Ghana og látinn svara til saka fyrir óheyrilegt misferli í embætti. Lýsti Ankrah fyr- irrennara sínum, sem mesta harðstjóra í Afríku. Daginn eftir lýsti byltingar stjórnin því yfir, að öll stjórn málastarfsemi í landinu væri bönnuð, svo og fjöldasamkom ur hverskonar. Þá gerðist það, að Quaison-Sackey sneri baki við Nkrumah og lýsti yf- ir stuðningi við þjóðfrelsis- ráðið nýja. Samdægurs hélt Nkrumah flugleiðis til Gíneu, þar sem honum var fagnað sem þjóðhöfðingja. Forseti Gíneu, Sekou Toure, tók á móti honum og þjóðsöngvar ríkjanna beggja voru leiknir, eins og venja er til, þegar þjóðhöfðingjar koma í heim- sókn. Á miðvilkudag, 2. marz, lýsti Toure því yfir, að Nkrumah hefði tekið við völdum í Gín- eu, sem æðsti maður þess lands, og aðalritari þess stjórnmálaflokks, sem hefur töglin og hagldirnar í land- inu. Hefur Nkrumah síðan stjórnað landinu ásamt Sekou Toure, og ekki er ósennilegt, að hin misheppnaða byltingar tilraun í Ghana í gær hafi að einhverju leyti verið gerð að undirlagi Nkrumah. f síðustu fregnum frá Ghana er upplýst, að yfir- maður alls herafla Ghana, E. K. Kotoka, hafi verið myrtur af samsærismönnum fyrir framan ríkisráðsbygginguna í gærmorgun. Kotoka var aðal- forsprakki byltingarinnar f Ghana í febrúar síðastliðið ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.