Morgunblaðið - 26.04.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1967.
31
EINS og frá var skýrt í frétt-
um í gær, tók landhelgisgæzlu
flugvélin Sif, brezkffltogarann
Brand G.Y. 111 að Tneintum
ólöglegum togveiðum um 354
sjómílu innan fiskveiðilögsög-
unnar SV af Eldey. Sveimaði
flugvélin yfir togaranum, þar
til varðskipið Þór kom á vett-
vang og fylgdi togaranum til
Reykjavíkur, en hingað komu
skipin i gærmorgun. Blaða-
maður Mbl. brá sér um borð í
Brand í gær til að hitta skips-
menn að máli og spyrja þá
frétta.
Uppi í brú hittum við
Georg Hall fyrsta meistara,
sem var þar í hrókasamræð-
um við íslenzkan vörð lag-
anna. Hall sagðist ekkert hafa
á móti blaðamönnum og bauð
okkur að ganga aftur í messa,
þar sem strákarnir væru í
kaffi. Hall, sem er 51 árs að
aldri segir okkur, að hann sé
búinn að vera til sjós í 30 ár,
og hafi oft áður komið til ís-
lands, og einu sinni sem skip-
brotsmaður, er togari sem
hann var á, strandaði á Með-
allandsfjöru ,sem að hans áliti
væri ekki minni skipakirkju-
Rex, Ricky, Robert og Hector.
.Héldum tundurdufl vera í vörpunni'
Newton fyrst hafa haldið að
þeir hefðu fengið tundurdufl
í pokann og því var mikil að-
gæzla höfð við að innbyrða
trollið. >eim hefði þó tekizt
það tvívegis, en sjólagið verið
svo slæmt, að þeir misstu það
út aftur í bæði skiptin. Mjög
há yfirbygging er á skipinu
og því hefði það rekið hratt
innfyrir fiskveiðimörkin.
Kom Sif að togaranum er
skipsmenn höfðu verið þrjáir
klst. að reyna að ná trollinu
inn. Newton sagðist hafa
skýrt skipherranum á flug-
vélinni frá því, að þeir geetu
ekki haldið til lands, fyrr en
þeir hefðu náð trollinu inn, og
hyggðist hann skera pokann
frá. Rétt í þéssu kom þá í Ijós,
að hér var ekki um tundur-
dufl að ræða heldur heljar-
mikið bjarg, sem Newton
sagðist álíta vera um 4-5 lest-
ir að þyngd. Tókst skipsmönn
um að ná því innbyrðis við
illan leik, en síðan var beðið
eftir varðskipinu, sem fylgdi
Brandi til hafnar.
Sagði Newton að lokum að
hann teldi sig hafa næg sönn-
unargögn fyrir því, að hann
hefði ekki verið að veiðum
innan landhelgi og sagðist
treysta á réttsýni íslenzku
dómaranna.
— ihj.
— Rœft v«ð skipstjórann og nokkra skipsmenn á brexka
togaranum Brandi C.Y. 111, sem er eign íslendinga í Grimsby
garður en „Sjö steina rifin“
frægu, sem grönduðu Torrey
Canyon nú fyrir skemmstu.
Aftur í messa hittum við þá
Rex Vicars, 21 árs, sem hefur
verið 6 ár til sjós, Ricky
Pelton 19 ára, 3 ár til sjós,
Robert Williamson 22 ára, 3
ár til sjós, Hector MaMckie
21 árs, 3 ár til sjós og síðast
en ekki sizt kokkinn, Arthur,
sem sagðist vera 59 ára gam-
all og vera búinn að vera 45
ár til sjós. Þetta voru allt
hressilegir og kátir strákar,
sem létu vaða á súðum, og
voru ekki í minnsta vafa um
að „skipperinn“, eins og þeir
kölluðu hann, yrði sýknaður.
Er við spurðum þá hvernig
lífið væri um borð í brezkum
togara, litu þeir hver á annan
og sögðu með hálfgerðum
semingi „Oh, it‘s all right“.
Þeir sögðu að vaktirnar skipt-
ust þannig, að unnið væri
þrotlaust í 18 klukkustundir,
en síðan væri 6 tíma hvíld.
Það væri ekki oft, sem hætt
væri að toga vegna veðurs,
yfirleitt ekki nema um af-
spyrnurok væri að ræða.
Áhöfnin væri 20 menn, þar af
tíu á dekki, af þeim væru yf-
irleitt 2—3 í koju í einu.
— Hvernig er hluturinn
hjá ykkur?
— Við höfum kauptrygg-
ingu, sem svara 1440 ísl. kr.
á viku og svo fáum við hlut af
aflanum. Ef við seljum fyrir
t.d. 720 þús. ísl. kr. fáum við
í okkar hlut, þegar allt hefur
verið dregið frá um 2400 ísL
kr. Hver veiðiferð tekur yfir-
leitt um 3 vikur, þannig að
kaupið, miðað við ofan-
greinda sölu, er um 7000 ísl..
kr.
— Er auðvelt að fá pláss á
brezkum togurum þessa dag-
ana?
— Já, það vantar orðið
alltaf mannskap á síðutogar-
ana, enda eru þeir að verða
úreltir. Skuttogarar eru það
sem koma skal.
Þegar hér var komið kom
Hall 1. meistari og sagði okk-
ur að skipstjórinn hefði fall-
izt á að tala við okkur. New-
ton skipstjóri er rúmlega fer-
tugur að aldri, maður mynd-
arlegur og þéttur á velli.
Hann sagði okkur að eigend-
ur Brands væru íslendingarn-
ir Páll Aðalsteinsson og Þór-
arin Olgeirsson yngri, út-
gerðarmenn í Grimsby.
Er við spurðum hann hvort
hann áliti að hann yrði sek-
ur fundinn um landhelgisbrot,
svaraði hann þvi til, að hann
hefði ekki verið að veiðum
innan landhelgi. Málsatvik
hefðu verið þau, að er þeir
byrjuðu að taka trollið frá
botni eftir hádegi á sunnudag,
hefðu þeir orðið varir við ein-
hvern stóran og óþekktan
hlut í trollpokanum. Veður
var slæmt á þessum slóðum
8—9 vindstig VNV og erfitt
að ná trollinu inn. Sagðist
★
Mál brezka skipstjórans var
tekið fyrir rétt í Reykjavík í
gær og stóðu réttarhöld yfir
fram eftir kvöldi. Var þeim
ekki lokið er blaðið fór í
prentun.
Newton skipstjóri við bjargið.
- NORÐURL.RÁÐ
Frarnh. af bls. 32
vettvangi hverju sinni. Þannig
væri t. d. Víetnam á dagskrá
fundarins nú.
Samræmd yrði afstaða Norður-
landanna til ýmissa mála á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna, sem
Norðurlöndin taka sameiginlega
afstöðu til. Þá yrði rætt
um afvopnunarráðstefnuna, frið-
argæzlu Sameinuðu þjóðanna og
fleiri mál.
Aðild Færeyja að Norðurlanda-
ráði yrði vafalaust rædd og enn-
fremur Loftleiðamálið, enda þótt
það mál væri ekki á dagskrá.
Fréttamaður Morgunblaðsins
spurði Hans Splvhpj ráðherra,
fulltrúa Danmerkur á utanríkis-
ráðherrafundinum, hvort Fær-
eyjar myndu nú verða teknar inn
í Fríverzlunarbandalagið og svar-
aði ráðherrann þannig:
Um þetta liggur ekkert .fyrir
að svo stöddu, en af hálfu Fær-
eyinga hefur komið fram ósk í
þá átt
Hvað um aðild Færeyínga að
Norðurlandaráði?
Um það mál er ekki heláur
unnt að segja neitt að svo stöddu,
en það verður vafalaust til um-
ræðu á fundinum nú.
Hver er afstaða dönsku ríkis-
stjórnarinnar til atburðanna í
Grikklandi?
Danski sósialdemókrataflokkur
inn fordæmdi í gær valdarán
hersins í Grikklandi. Hins vegar
hefur danska stjórnin ekki tekið
neina afstöðu, enda er það ekki
í verkahring hennar að skipta
sér af ionanríkismálum Grikkja.
Hvaða mál teljið þér, að verði
mikilvægast á utanríkisráðherra-
fundinum nú?
Það verða mörg mikilvæg mál
rædd, svo sem afstaða Norður-
landa 'til afvopnunar o. fL
★
Fundarstörfum var hraðað í
gær m.a. með tilliti til þess að
Thorsten Nilsson, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar verður að fara
heim þegar í dag, miðvikudag
vegna þinganna heima fyrir.
Voru ráðherrarnir á fundi allan
daginn í gær og fram á kvöld,
en hin opinbera tilkynning um
störf fundarins mun verða birt
árdegis í dag.
Á fundinum í gær m.a. rætt
um, undir liðnum alþióðamál,
styriöldin í Víetnam. en öíí Norð-
urlönd hafa lýst yfir eindregnu
fylgi sínu við tillögu U Thants.
framkvæmdastjóra Sameinuðu
bjóðanna, þar sem lögð var á-
herzla á, áð Bandaríkjamenn
stöðvuðu loftárásir sínar á N-
Víetnam sem spor í friðarátt.
Rætt var um afyopnunarmál.
Einnig ræddu ráðherrarnir um
aukna samvinnu við kommún-
istaríkin í Austur-Evrópu.
Um þessar mundir er að hefj-
ast sérstakur fundur Allsherjar-
þings Sámeinuðu þjóðanha, en
eins og kunnugt er, hafa Norð-
urlönd haft nokkra samstöðu í
Allsherjarþinginu. Ráðherrarnir
ræddu m.a. um málefni Suð-
vestur-Afríku svo og Rhódesíu og
friðargæzlustörf Norðurlanda á
Kýpur, einkum með tilliti til
þess, að í júnílok nk. er gert ráð
fyrir, að hinar norrænu friðar-
gæzlusveitir hætti störfum á
eynni. Þá ræddu ráðherrarnir
um afnám vegabréfsáritanna til
Norðurlanda gagnvart öllum
þjóðum og munu þeir hafa orðið
sammála um að fres’ta því máli
til haustsins. Einnig bar á góma
aðild Færeyinga að Norðurlanda-
ráði. Það mun hafa komið fram
á fundinum, að í máli þessu hafi
íslendingar einir lýst fullum
stuðningi við tillögur Dana um
að taka Færeyinga með í hið
norræna samstarf. Urðu nokkrar
umræður um málið milli ráð-
herranna og komu þar fram ýmis
sjónarmið í þessu máli. Urðu
ráðherrarnir að lokum sammála
um að undirbúa málið hver í
sínu heimalandi til framhalds-
umræðna næsta haust, en þá
verður fundur forsætisráðherra
Norðurlanda í Reykjavík og
fundur í stjórn Norðurlandaráðs,
sem tekur málið á dagskrá.
Þá má geta þess, að ráðherr-
arnir ræddu einnig um atburð-
ina í Grikklandi, en varðandi það
mál mun þó ekki hafa verið gerð
nein samþykkt. Loks er þess að
geta, að Emil Jónsson utanrikis-
ráðherra vakti máls á Loftleiða-
málinu. Benti ráðherrann á ýms-
ar hugsanlegar leiðir til lausnar
málinu, en í hverju þær tillögur
eru fólgnar, munu ráðherrarnir
hafa orðið sammála um að kunn-
gera ekki á þessu stigi, heldur
fara með tillögur ráðherrans til
sinna ríkisstjórna til áframhald-
andi og frekari athugana.
. ★
I gærkvöldi hélt íslenzka fíkis-
stjórnin utanríkisráðherrunum og
fulltrúum á utanríkisráðherra-
fundinum kvöldverðarboð að
Hótel Sögu. í dag á fundinum að
ljúka en kl. 13 sitja utanrikis-
ráðherrarnir hádegisverðarboð
utanríkisráðherra íslands að Hót-
el Borg. Þá er ennfremur ráð-
gert, að þeir fari í flugferð til
Surtseyjar og Vestmannaeyja, ef
veður leyfir.
Við upphaf utanríkisráffherrafun dar Norðurlanda aff Hótel Sögu I gær. Frá vinstri: John Lyng,
Noregi, Hans Sdlvhpj, Danmörku, Emil Jónsson, íslandi, Thorsten Nilsson, Svíþjóff og Ahti Karjal-
ainen, Finnlandi.