Morgunblaðið - 03.05.1967, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1967.
punda verðlaun fyrir upplýsingar
Sigluf^örSuir
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
opnað kosning'askrifstofu að
Grundarstíg 11 (uppi) á Siglu-
firði. Forstöðumaður skrifstof-
unnar er Jóhannes Ólafsson, en
sími 7 11 54.
Þess er óskað að Sjálfstæðis-
menn veiti skrifstofunni upplýs-
ingar um þá, sem búast má við
að dveljist utan kjörstaðar 11.
júní, og aðra aðstoð.
London, 2. maí (AP-NTB)
MESTA gullrán I sögu Englands
var framið á mánudag þegar
vopnaður ræningjaflokkur réðst
á bifreið á götu í norðurhluta
London. Var hér um brynvarða
flutningabifreið að ræða, er flutti
140 guilstengur á vegum N. M.
Rothschild bankans. Hver gull-
stöng vegur 12% kíló, og er verð
mæti farmsins alis talið nema
785 þúsund pundum (ísl. kr. 95
millj).
Ræningjarnir réð>ust á bifreið-
ina og vörpuðu ammoníak-
sprengjum á þrjá menn, sem í
henni voru. Einnig beittu þeir
kylfum til að ráða niðurlögum
varðmannanna þriggja eftir að
þeir voru orðnir hálf ósjálf-
bjarga vegna ammoníaksins.
Náðu ræningjarnir bifreiðinni á
sitt vald, færðu varðmennina í
bönd og óku á brott. Fannst bif-
reiðin fjórum og hálfum tíma
seinna, og höfðu þá ræningjarnir
komizt undan með gullfarminn.
Gripið var til víðtækra ráð-
stafana til að hafa hendur í hári
ræningjanna, og m.a. heitið 50
þúsund punda verðiaunum fyrir
upplýsingar, er leitt gætu til
handtöku ræningjanna, ea ráð-
stafanirnar hafa enn engan ár-
angur borið.
Scotland Yard hefur snúið sér
til lögregliunnar í öðrum löndum
með ósk um aðstoð, og leitað hef
ur verið í flugvélum og skipum
á leið frá Bretlandi. Talið var
líklegt að ræningjarnir hyggð-
ust reyna að koma gullinu úr
landi, og einnig telur lögreglan
hugsanlegt að gullið verði brætt
og selt í smáskömmtum ýmsum
gullsmiðum, sem ekki spyrja of
margra spurninga.
Þetta er mesta gullrán, sem
um getur í sögu Englands, og
mesta rán, sem þar hefur verið
framið frá lestarráninu mikla
árið 1963. Þá réðust ræningjar
á járnbrautarlest á leið frá
Glasgow til London og stálu úr
henni tveimur og hálfri milljón
punda.
VestíirSíngo-
fé'agið heldar
skemmtun
Vestfirðingafélagið heldur
skemmtun fimmtudagskvöldið
4. maí kl. 8.30 í Súlnasal Hótel
Sögu.
Til skemmtunar verður upp-
lestur og þjóðdansasýning og
gamanþáttur Ómars Ragnarsson
ar.
Aðgöngumiðar að skemmtun-
inni verða seldir við ínngang-
inn frá kl. 6.30 sama dag. Þeir
sem vilja fá sér að borða geta
pantað að Hótel Sögu en matur
verður framreiddur frá kl. 7.
Allur ágóði af skemmtuninni
rennur til aðstandenda þeirra er
misstu ástvini sína í sjóslysum
út af Vestfjörðum í vetur.
Alþýðubandalagið i
Reykjavík klofið
Cuggna Hanníbalistar samt?
'i
Heim af
léfegri vertíð
ALÞÝBBANDALAGIÐ í
Reykjavík hefur nú verið
klofið. Sl. laugardag stofn-
aði nokkur hópur manna úr
þvi „Félag Alþýðubandalags-
manna í Reykjavík“ og er for-
maður þess Jón Baldvin
Hanníbalsson, sá sem komm-
únistar vildu með engu móti
þola á framboðslista sínum í
Reykjavík.
Þeir sem að félagsstofnun
þessari standa hafa að undan-
förnu undirbúið sérstakt
framboð í Reykjavík, en nú
bendir ailt til þess, áð þeir
muni guggna á sjálfstæðu fram
boði en gera þess í stað til-
raun til þess að bera fram
svonefndan „tviburalista" þ.e.
lista í nafni Alþýðubanda-
lagsins, sem þá yrði merktur
bókstöfunum gg.
Neskaupstað, 2. maí: — Flestir
bátar héðan, er voru á vetrar-
vertíð i vetur, eru nú komnir
heim eftir fádæma lélega vertíð.
Sérstaklega urðu þeir bátar, sem
eru með þorsknót, hart úti og
var aflinn yfir vertíðina ekki
nema um 50 tonn hjá sumum.
í»eir hafa nú tekið nætur sínar
í land og er alveg óvíst hvenær
haldið verður af stað aftur, í leit
að sildinni. Hefur jafnvel heyrzt,
að ekki verði farið af stað fyrr
en í byrjun júni.
Unnið er í síldarverksmiðjunni
hér að undirbúningi síldarmót-
töku, „en þó flýtum víð okkur
hægt,“ eins og framkvæmda-
stjóri verksmiðjunnar sagði á
dögunum.
— Asgeir.
Frá kröfugöngunni i Reykjavík 1. mai.
(Ljósm.
1. maí
í Reykjavílt
HATfÐAHÖLD verkalýðsfélag-
anna i Reykjavík 1. maí foru
tram með svipuðum hætti og
nndanfarin ár. Yeður var bjart,
ec fremur kalt.
Hátíðahöldin hófust með því,
að mannfjöldi safnaðist saman
við Iðnó kl. 1.30, en þaðan hófst
svo kröfugangin kl. 2. Gengið
var um Vonarstræti, Suðurgötu,
Aðalstræti, Hafnarstræti, Hverf-
isgötu, Frakkastíg og sveigt það
an niðu Laugaveg og Banka-
stræti og staðnæmzt á Lækjar-
torgi. Lúðrasveitin Svanur og
Lúðrasveit verkalýðsins léku
fyrir göngunni og einnig á úti-
fundinum.
Formaður Fulitrúaráðs verka
lýðsfélaganna í Reykjavík, Ósk-
ar Hallgrimsson, setti útifund-
inn á Lækjartorgi og stýrði hon
um. Ræður fluttu: Jón Snorri
Þorleifsson, formaður Trésmiða-
félags Reykjavíkur og Jón Sig-
urðsson formaður Sjómannafél-
ags Reykjavíkur.
Fjölmennl var í kröfugöng-
unni og einnig á útifundinum.
Mynd þessi var tekin er Karl F. Rolvaag undirritaði embættiseið
sinn sem sendiherra Bandaríkjan na á fslandi 19. april sl. í ntan-
ríkisráðuneytinu í Washington. Aðrir á myndinni eru, talið frá
vinstri: Frú Rolvaag, Humphrey varaforseti, Katzenbach aðstoð-
arutanríkisráðherra, frú Humphrey. Rolvaag sendiherra kemur
hingað til lands 4. maí nk.
Akureyri
KONUR, AKUREYRI
Munið kökubazariinn í Sjálfstæðishúsinu, litla salnum, kl. 15.00
á uppstigningardag. — Sjálfstæðiskvennafélagið VÖRN.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri efna til almenns fundar á Akur-
eyri miðvikudaginn 10. maí n.k. kl. 20,30 í Sjálfstæiðshúsinu. —
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráðherra, talar um: Iðnþróun á
íslandi. Öllum heimill aðgangur.
Vörður FUS á Akureyri efnir til kvöldverðarfundar n.k. föstu-
dagskvöld í litla salnum í Sjálfstæiðshúsinu og hefst fundurinn
kl. 19.30. Knútur Otterstedt rafveitustjóri flytur erindi um ný-
virkjun Laxár.
Kópavogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins er í Sjálf-
stæiðshúsinu, Borgarholtsbraut 6, Kópavogi. Síimar 40708,
42576 og 42577. Skrifstofan er opin frá kl. 9—22. Sjálf-
stæðisfólk er hvatt til þess að koma á skrifstofuna og gefa
upplýsingar varðandá kosningarnar.
Ágætur fundur Sjálf-
stæðismanna á Hólmavík
Hólmavík, 2. maí.
Sjálfstæðisfélögin í sunnan-
verðri Strandasýslu efndu til al-
menns stjórnmálafundar á
Hólmavík sl. laugardag og hófst
hann kl. 4 síðdegis. Séra Andrés
Ólafsson, formaður Sjálfstæðis-
félags Strandasýslu, setti fund-
inn og stjórnaði honum.
Framsöguræðu flutti Sigurður
Bjarnason, alþingismaður frá
Vigur. Ræddi hann itarlega um
héraðsmál Strandamanna og
stjórnmálin almennt. Var ræðu
hans ágætlega tekið. Miklar um-
ræður urðu að henni lokinni
og stóð fundiurinn hátt á þriðja
tíma.
Til máls tóku, auk Sigurðar
Bjarnasonar, m.a. þeir Hans Sig-
urðsson oddviti, Séra Andrés
Ólafsson og Kristján Jónson,
kennari. Að lokum svaraði frum
mælandi fyirrspurnum er fram
höfðu komið.
Fundurinn fór í öllu hið bezta
fram. Voru Sigurði Bjarnasyni
þökkúð mikil og góð störf 1
þágu heraðsins á liðnu kjörtíma-
bili. Mikill áhugi ríkir meðal
Sjalfstæðisfolks í Strandasýslu
að vinna sem ötullegast að sigri
Sjálfstæðisflokksins og ríkis-
stjórnarinnar í kosningunum.
— Fréttaritarl.
Hogíræðafélagið ræðir
staðgreiðslukerfi skatta í kvöld
HAGFRÆÐAFÉLAG íslands
efnir til fundar í kvöld kl. 20.30
í Tjarnarbúð uppi. Umræðuefni
verður: Staðgreiðslukerfi skatta
og breyting skattalaga af því
tilefni. Framsögumaður verður
Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkis-
skattstjóri. Umræðuhópur úr
undirbúningsnefnd reifar og
ræðir málið en í honum eru dr.
Gísli Blöndal, Guðlaugur Þor-
valdsson, ráðuneytisstjóri, Jón
G. Tómasson, skrifstofustjóri,
Ólafur Björnsson, prófessor, og
Sigurbjörn Þorbjörnsson. Félags
menn eru hvattir til þess að
fjölmenna og taka með sér gesti.