Morgunblaðið - 03.05.1967, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAl 1967.
t Konan mín, Jórunn Guðmundsdóttir, Arnþórsholti, andaðist að Elliheimilinu Grund 1. maí. Magnús Sigurffsson, Arnþórsholti.
t Móðir mín, Emilía Skagf jörð, andaðist á Landspítalanum 30. apríl. Hanna Skagfjörð.
t Ásfkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, * Sigurlaug Waage, Skipasundi 37, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 1. maí. Jarðar verður frá Fossvogskirkju föstudagiinn 5. maí kl. 10.30. Jarðarförinni verður útvarp- að. Blóm afbeðin, þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagið. Guffmundur Waage, börn, tengdabörn, bamabörn og barna- barnabörn.
t Böðvar Böðvarsson, Voðmúlastöðum, Austur-Landeyjum, sem andaðist 24. apríl, verð- ur jarðsettur á Keldum laug- ardaginn 6. maí kl. 14,00. At- höfnin hefst með bæn að heimili hans kl. 12,00. Gróa Bjamadóttir, böm og tengðaböm.
t Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ólafur Runólfsson, Strandgötu 17, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóð- kirkjunnL HafnarfirðL mið- vikudaginn 3. maí kl. 2 e.h. Guffný Ólafsdóttir, Daníval Finnbogason, Sigríður Ólafsdóttir, Alfreff Anderson Og barnabörn.
t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Baldvina Guðlaug Baldvinsdóttir, Iézt að Kristneshæli 27. apríl. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju laugardaginin 6. maí kl. 13,30. Börn, tengdaböra og baraaböra.
Ölafur Runólfsson —
F. 27. sept. 1891 D. 23. apríl 1967
í DAG verður til moldar borinn
frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði,
vinur minn og nágranni Ólafur
Runólfsson, Strandgötu 17 hér
í bæ. Mig langar til að færa
honum kveðjur og þakkir frá
okkur hjónum og börnum fyrir
áratuga samveru, sem nágrann-
ar á sama hlaðinu. Ég ætla mér
ekki að skrifa að neinu marki
starfssögu þessa merka dugnað-
armanns, því ég býst við að það
verði gert af einhverjum öðr-
um.
Ólafur sálugi var Mýrdælmg-
ur, fæddur 27. 9. 1891. Hann
missti kornungur föður sinn, en
10 ára gamall komst hann ti)
bændahöfðingjans og kaup-
mannsins Halldórs Jónssonar í
t
Útför konunnar minnar,
móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Sigþrúðar Guðnadóttur,
Gýgjarhólskoti,
Biskupstungum,
er lézt 29. apríl, fer fram að
Haukadal laugardaginn 6. maí
kl. 14.
Bílferð verður frá Umferð-
armiðstöðinni kl. 11.
Karl Jónsson,
börn, tengdabörn
og barnaböm.
t
Hjartkær eiginkona mín,
Eygló Björk
Hermannsdóttir,
Langagerði 60,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu 3. maí kl. 1.30.
Blóm og kransar afbeðin,
en þeir sem vildu minnast
hennar er bent á Minningar-
gjafasjóð Landsspítalans.
Fyrir hönd vandamanna.
Rútur Eggertsson.
t
Alúðarþakkir tn allra er
á einn eða annan hátt sýndu
samúð og hjálp við andlát og
jarðarför föður okkar,
Sigurjóns Jónssonar
frá Vatnsleysu.
Sérlega viljum vér þakka
læknishjónunum á Vifilsstöð-
um, einnig hjúkrunarkonum,
starfsstúlkum og meðsjúkling
um hans.
Jóna Heiðar,
Guðrún Sigurjónsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
Tryggva Björnssonar
frá Litlavelli.
Fyrir hönd ættingja og
vina.
Kristjana Guðlaugsdóttir.
Vík og ólst þar upp til fullorð-
ins ára.
Ungur að árum fór hann að
stunda sjó eins og þá var títt
með unga og dugmikla menn.
Réri hann frá Vestmannaeyjum
og víðar. Til Hafnarfjarðar
kemur hann fyrst er hann ræðst
sem háseti á b.v. Víði sem Böðv-
arsbræðurnir gerðu þá út. Mun
það hafa verið fyrir áhrif
Halldórs í Vík að hann kom hér
suður, en Halldór var hluthaíi
í hlutafélgi því er gerði út b.v.
Víðir.
Á þessum árum kynnist Ólaf-
ur heimilinu að Strandgötu 17,
en þar var ung og fögur heima-
sæta, Henríkka Hendriksdóttir.
Felldu þau hugi saman og 2.
jóladag árið 1922 voru þau gef-
in saman í hjónaband. Var hjóna
band þeirra farsælt og bjuggu
þau ávalt í húsi foreldra brúð-
arinnar. En konu sína missti
hann eftir langa og stranga
sjúkdómslegu, lengst á spítala,
árið 1958. Var það mikið áfall
fyrir Ólaf, fyrst að horfa uppá
mikil veikindi hennar um 13 ára
skeið og missa hana svo unga
að árum. Þau hjónin eignuðust
3 dætur, Sigríði, hjúkrunarkonu,
sem gift er Alfred Augen Ander-
sen, sænskum manni, og Guð-
nýju, sem gift er Danival Finn-
bogasyni. Þirðju dótturina
misstu þau þegar hún var á 1.
ári, andaðist 24. des. 1933. Tóku
þau hjónin þennan missir mjög
nærri sér.
Fyrstu árin eftir að Ólafur
kvæntist, rak hann verzlun. en
hætti því og eftir það hefir har.n
t
Þakka innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við fráfall
og útför systur minnar,
Halldóru Gísladóttur,
Hafnarfirffi.
Jóna Gísladóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og vináttu við
andlát og útför sonar míns,
Ólafs Sveinbjörnssonar,
lögfræffings,
Frey jagötu 47.
Oddrún Þorkelsdóttir.
t
Ég þakka af alhug öllum
þeim, sem sýnt hafa mér og
fjölskyldu minni samúð og
mikilsverða hjálp í sambandi
við fráfall og jarðarför manns
ins míns,
Sveinbjörns Pálmasonar.
öll þessi hjálp og hugur-
inn á bak við hana hefir ver-
ið mér mikill styrkur, og gef-
ið mér aukinn kraft til að
sinna minu hlutverki í lífinu.
Sécstakar þakkir vil ég
færa Axel Kristjánssyni, for-
stjóra, og stjórn Raftækja-
verksmiðjunnar Rahfa í Hafn
arfirði, Hilmi h.f., Reykja-
vík, svo og starfsmönnum
Slökkviliðs Hafnarfjarðar.
Megi Guð blessa ykkur.
Ásdis Ragna Valdimarsdóttir.
Minning
stundað búskap af miklum dugn
aði. Nú síðast hafði hann hænsna
rækt og dálítinn sauðfjárbú-
skap. Hann hafði ræktað mikið
land við Keflavítourveginn og
gerði þar grjótmela að grænum
grundum. Hann vann ávallt sjálf
ur að öllu því, sem að búskapn-
um laut og vann oft langan
vinnudag.
Eftir að konan hans dó og
báðar dæturnar voru giftar qg
farnar að heiman, bjó hann með
ráðskonum og síðustu 7 árin með
Guðbjörgu Ástgeirsdóttir, mynd
ar- og dugnaðarstúlku. En starfs
kraftar hans tóku nú að bila,
seinnipartinn í vetur og síðustu
3 vikurnar af ævi hans var hann
rúmfastur.
Ólafur sálugi var mjög barn-
góður og þess nutu dætrabörn-
in hans. Élzti sonur Guðnýjar,
sem bar nafn afa síns, var fermd
ur sunnudaginn 16. apríl, réttri
viku áður en Ólafur andaðist.
Við hjónin litum inn til hans
þegar við komum úr kirkju
þann dag og var hann þá að
venju broshýr, enda þótt hann
ætti erfitt með að láta skilja sig.
En þá kom-u dæturnar úr kirkju
og Ólafur litli sem verið var að
ferma og þá var yndislegt að
sjá gleðisvip gamla mannsins
sjúka, þegar hann umvafði nafna
sinn að sér og með tár í augum
og flutti honum hljóðlaus bless-
unarorð, drengnum sem var svo
sérstaklega mikið uppáhald hjá
afa sínum. — Ég sá hann svo
ekki lifandi eftir þetta, en þessi
stund gleymist mér seint.
Ég ætlaði mér nú ekki, eins
og ég sagði hér að framan, að
rekja æviferil Ólafs vinar míns.
Heimilin okkar hafa verið hlið
við hlið í rúm 46 ár og engin
skuggi fallið á vináttu heimil-
anna. Börnin okkar hjóna hafa
leikið sér við dætur ólafs og
Hendrikku, og þau hafa verið
eins og systkini alla tíð. Eiga
þau margar og hugljúfar minn-
ingar frá æskuárunum, sem þau
þakka fyrir.
En allir dagar eiga kvöld.
Húsmóðirin og húsbóndinn í
litla og vinalega heimilinu að
Strandgötu 17 eru dáin. Dæturn
ar hafa eignast sín heimili. Við
söknum þessarar fjölskyldu mik
ið. En þetta er lífsins lögmál, sem
allir verða að lúta.
Við hjónin í Strandgötu 19 og
börnin okkar, kveðjum þenran
látna vin og biðjum honum bless
unar Drottins á landi lifenda,
þar sem hann finnur ástkæru
konuna sína og aðra horfna ást-
vini.
Við vottum dætrum hans,
tengdasonum og börnum þeirra
og öðnum sem syrgja okkar
innilegustu samúð í sorg þeirra
og biðjum þeim öllum tlessun-
ar Drottins.
Gísli Sigurgeirsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og j-arðarför,
Þorsteins Ólafssonar,
Kirkjubæjarhraut 4,
V estmannaey jum.
Gíslný Jóhannsdóttir
og börn.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og hluttekningu við
fráfall og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og
afa,
Haralds BöSvarssonar,
útgerffarmanns.
Ingunn Sveinsdóttir,
börn, tengdabörn og
barnabörn.
VIÐ fráfall Ólafs Runólfssonar
verða þáttaskil í atvinnusögu
Hafnarfjarðar, þó að hann værl
ekki Hafnfirðingur að uppruna
átti hann heima hér í bænum í
rúmlega hálfaöld, lengst af á
þessu tímabili stundaði hann bú
skap og framleiðslu á landbún-
aðarafurðum. Síðustu þrjá ára-
tugina var búskapurinn hans að-
alatvinna og til dauðadags sfund
aði hann búreksturinn. Með hon
um er genginn síðasti bóndinn
í Hafnarfjarðarkaupstað.
Ólafur fór ungur að árum I
bændaskólann á Hvanneyri og
útskrifaðist þaðan tvitugur. Þar
mun honum hafa orðið ljós köll-
un sín í lífinu, þar hóf hann
merki bændastéttarinnar og með
þrotlausu starfi og ótrúlegri
elju hélt hann þvi á lofti til
dauðadags.
Hann trúði á mátt íslenzkrar
moldar enda stundaði han.i alla
tíð ræktunarstörf á gróðri og
búpeningi af miklum dugnaði
og með góðum árangrL
Ólafur var fyrst og fremst
maður starfsins í önn hins dag-
lega lífs. Hann vann bústörfin
hvern dag meðan kraftar entust,
hann hikaði aldrei við að leggja
á sig líkamlegt erfiði til að
brjóta sér braut til efnalegs sjá.f
stæðis, en þó að Ólafur væri
hygginn og ötull við störf, fyrir
eiginn hag, lét hann ekki þar
við sitja.
Hann lét alla tíð félags og
skipulagsmál bændastéttannnar
til sín taka og var alltaf, til
hinztu stundar, tilbúinn til að
vinna að þeim málum og taka að
sér aukastörf í þágu samtaka
bændanna. Á félagsmálasviðinu
ekki síður en við bústörfin nutu
hæfileikar Ólafs sín vel og það
Þakka ykkur öllum vinum
og ættingjum fyrir gjafir og
heillaskeyti og alla vinsemd
í tilefni af sextugsafmæli
mínu. Guð og gæfan fylgi
ykkur öllum.
Gísli Guffmundsson,
Staðarbakka.
Mínar innilegustu þakkir
vil ég færa öllum, bæði
sunnanlands, af Vestfjörðum
og allt norður í Suður-Þing-
eyjasýslu, sem með fégjöfum
og á annan hátt hafa styrkt
mig í veikindum minum nú
undanfarið. — Sérstaklega
þakka ég þeim Ingibjörgu
Andrésdóttur og séra Þor-
steini Jóhannessyni, fyrir að
gangast fyrir fjársöfnun mér
til handa.
Guð blessi ykkur 511.
Sigríffur Valdís Elísdóttir,
Neðri-Bakka.