Morgunblaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 1
32 SIDUR
L
54. árg. — 119. tbl.
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Oryggislögreglan metur
bókmenntaverk Sovéthöfunda
— segir Svetlana í grein um
Zhivago lækni eftir Pasternak
jafnframt upp myndum vors og
endurfæðingar, sem alls staðar
sé að finna í verkum Pasternaks.
Rithöfundur í fangeJsi
Svipmiyndir af Zhivago lækni
á heimleið úr stríðinu eftir bylt-
inguna, þar sem húsvörður hans
'fyrrverandi auðmýkir hann,
'minnir Svetlönu á rithöfundinn
Andrei Sinyavsky og híbýli
Sinyavskys í Moskvu á herbengi
húsvarðarins í skáldsögu Past-
ernaks.
„t»ú hafðir aldrei mikið til
Framhald á bls. 31.
Boris Pastemak
Svetlana Alliluyeva
„Ó, l>IÐ píslarvottar rúss-
nesikra bólkmennta! Ekkert
hefur breytzt .... nú sem
fyrr er það htutverk öiryggis-
lagreglu og annarra laganna
varða að leggja fyrstir mat á
verk rithöfunda og skálda“.
Þessi orð eru höfð eftir Svet-
lönu, dóttur Stallíns, sem nú
er landflótta í Bandaríkjun-
um.
í brtóka stórblaðinu
„Times“ segir frá því sl.
fimmtudag í frétt frá frétta-
ritara blað'sins í Washington,
að Svetlana Alililuyeva, dótt-
iir Stalíns, hafi í grein sem
birtast mun í júnihefti tíma-
ritsins „Atlantic Monthly",
sagt frá áhrifum þeim er lest-
ur bókar Boris Pasternaks,
„Zhivago lælknir“, hafði á
hana, en þeim lýsir hún svo,
að þau hafi verið: „eins og
lost, eins og óskaplega sterk-
uir rafstraumur“.
„Sérhvert orð í þessari
undraverðu bók“, segir Svet-
lana, var mér sem uppljóstr-
an leyndardóma míns eigin
Mfs og iífs rússnesku þjóðar-
innar þann tíma sem ég til
þekkti. Ég hef séð þetta allt
og heyrt. Ég þekki angan og
braigð þessa tunglbjarta snæv
ar, þessa gaddfreðna reyni-
trés, flóðanna í fljótum Síb-
eríu, óupphitaðra herbergj-
anna í sameignaríbúðunum í
Mosikvu, þar sem allt var al'lt
af á tvist og bast“.
■ í formála að grein Svetlönu
skrifar Max Hayward, fræði-
maður við Oxford University og
sá er þýddi „Zhivago lækni“ á
enska tungu, að ummæli hennar
Varpi ljósi á hina réttu merk-
'ingu ritverka Pasternaks framar
■nokkrum ummælum öðrum. —
Hann bendir á að þótt Svetlana
Alliluyeva harmi örlög landa
sinna og aðskilnaðinn frá ætt-
ingjum og vinum bregði hún
Engin ákvörðun
um aðild Breta
Leiðtogafundi EBE lokið í Róm
Róm, 30. maí (AP-NTB)
TVEGCrJA daga ráðstefnu leið-
toga rikja Efnahagsbandalags
Evrópu lauk í Róm í dag án þess
að tekin væri ákvörðun um um-
sókn Breta um aðild að samtök-
unum. Verður brezka umsóknin
tckin til umræðu á fundi utan-
ríkisráðherra bandalagsríkjanna
í Briissel á þriðjudag í næstu
viku. Ákveðið var á ráðstefn-
unni í dag, að leiðtogar aðildar-
ríkjanna kæmu saman til við-
ræðna, og verður sá fundur
væntanlega haldinn á þessu
ári.
Sex ár eru liðin frá því að
leiðtogar Efnahags'bandalags-
ríkjanna sex komu síðast
til fundar, en samtökin eru rúm-
lega tíu ára. Ýms mál voru tek-
in til umræðu á ráðstefnunni að
þessu sinni, en ekkert þeirxa
hlaut endanlega afgreiðslu. Auk
umsóknar Breta voru aðalmálin
stofnun framkvæmdaráðs Etfna
hags'bandalagsins og frekari
stjórnmálaeining ríkjanna sex,
Varðandi brezku umsóknina
telja áreiðanlegar heimildir að
de Gaulle, Frakklandsforseti,
vilji ekkert um málið ræða að
sinni, eða ekki fyrr en hann hef-
ur átt fund með Harold Wilson
forsætisráðherra Bretlands, sem
kemur í heimsókn til Parísar
hinn 19. júní n.k. í>ótt málinu
hafi nú verið vísað til utanríkis-
ráðherrafundarins í Brússel á
þriðju'dag, er ekki talið að nein
ákvörðun verði tekin þar af
þessum sökum.
Algjör samstaða
w
Araba gegn Israel
Sögulegur samningur Jórdaníu og Egypta-
lands um sameiginlegar varnir ríkjanna
Karíó, 30. mai (AP-NTB)
ÖL.LUM að óvörum lenti Huss-
ein Jórdaníukonungur flugvél
sinni á flugvellmum við Kaíró í
dag. Þangað var hann kominn
til viðræðna við Nastser forseta,
og lauk þeim viðræðum með
samningi um sameiginlegar
varnir Jórdaniu og Egypta-
lands. Samningurinn er til fimm
ára og þar tekið fram að árás á
annað ríkið jafngildi árás á þau
bæði.
Fregnin nm komu Husseins til
Kaíró vakti mikla furðu víða
nm heim, enda ekki nema fjórar
vikur síðan Nasser lýsti því
opinberlega yfir að Hussein
starfaði á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar CIA.
Langvarandi fjan-dskapur
Jórdaniu og Egyptalands guf-
aði upp eins og dögg fyrir sólu
við komu Husseins, og var kon-
ungi ákaft fagnað í Kaíró. Sam-
kvæmt egypzkum heimildum
átti Hussein sjálfux frumkvæð-
ið að Kaíróferðinni, og stýrði
sjálfur flugvélinni, sem fluitti
hann þangað. Hann gekk rakleið
is til fundar við Nasser', og
tókst leiðtogunum fljótlega að
komast að samkomulagL Sam-
kvæmt samningnum skipa ríkin
sameiginlega varnarmálanefnd
og herstjórn, en komi til styrj-
aldar verður her Jórdaníu undir
stjórn Egypta.
Eftir að leiðtogarnix höfðu
undirritað sáttmálann, ræddu
þeir við fréttamenn. Brostu
hinir fornu fjandmenn hvor til
annars og fóru hlýjum orðum
um samstöðu Araba. „Fregnin
um þennan samning mun vekja
furðu í heiminum“, sagði Nasser,
og var það ekki ofsagt. „En þetta
er sönnun þess, að Arabar
gleyma innbyrðis deilum á al-
vörutimum. ísrael, Bandarfkin
og Bretland verða að skilja að
við erum staðráðnir í að verja
rétt okkar í Palestdnu", bætti
Nasser við.
Egyptar og Jórdanar féllust I
faðma frammi fyrir fréttamönn-
um, og sumum vöknaði um
augu á þessari alvörustund þeg-
ar fornar deilur hurfu sjónum.
„Ég þakka bróður mínum Nasser
árangur þann, sem náðzt hefur“,
sagði Hussein. „Við erum »ið
upphaf vegarins, og ég er sann-
færður um að við komiumst brá,tt
á leiðarenda".
Nasser svaraði og horfði beint
framan í manninn, sem hann i
ræðu hinn 2. maí sL kallaði
„hand'bendi heimsvaldasinna":
„Kæri bróðir, í nafni Araba-
þjóðarinnar gríp ég þetta tæki-
færi til að lýsa yfir þakklæti
mínu fyrir það skref, sem þú hef
ur stigið með heimsókninni til
okkar. Nokkur ágreiningur
ríkti okkar í milíi, en hættan,
sem steðjar að Aröbum í dag,
fær okkur til að snúast gegn ógn
unum ísraels, Bandaríkjanna og
Bretlands.“
í samningnum er ekkert tek-
ið fram um það hvað verðuT um
hersveitir flóttamanna frá Pal-
estínu, sem Hussein hefur neitað
um landvist í Jórdaniu. Það
bendir þó til þess að eitthvert
samkomulag hafi náðst um það
atriði, að formaður flóttamanna
samtakanna, Ahmed Shukairi,
varð samferða konungi er hann
sneri heim til Amman, höfuð-
borgar Jórdaníu.
Samningurinn nýi táknar það,
að Nasser forseta hefur tekizt á
þremur vikum að sameina öll
Arabaríkin, þótt það hafi virzt
útilokað í byrjun þessa mánað-
Framhald á bls. 31.
Almenningsálitið snýst gegn Framsókn
1
— Andleg móðuharÖindi heltaka forustumenn hennar
F Ó L K um land allt er
furðu lostið yfir framferði
Framsóknarmanna á Fá-
skrúðsfirði, þegar þeir í
krafti yfirráða sinna yf-
ir atvinnufyrirtækjum á
staðnum beittu ungt fólk
atvinnukúgun, vegna þess,
að það ætlaði að taka þátt
í stofnun félags ungra
Sjálfstæðismanna á staðn-
um. Menn spyrja hvernig
það geti átt sér stað, að
slíkir atburðir gerist á ís-
landi á árinu 1967.
Þá hefur fólki ekki síður
ofboðið sú blygðunarlausa
ósvífni, sem fram kemur í
viðtali forráðamanna kaup
félagsins og Framsóknar-
flokksins á staðnum við
Mbl. þegar þeir viður-
kenna verknaðinn og virt-
ust ekki sjá neitt athuga-
vert við að beita atvinnu-
kúgun gegn frjálsri skoð-
anamyndun.
Ummæli þessara tveggja
manna lýsa slíku pólitísku
ofstæki og svartnættishug-
arfari að næsta ótrúlegt er
og svo virðist, sem andleg
móðuharðindi hafi heltek-
ið forustumenn Framsókn-
arflokksins.
Það er einnig að skýrast
hve veigamikill þáttur for-
manns Framsóknarflokks-
ins, Eysteins Jónssonar, er
í þessu athæfi, en hann var
svo sem kunnugt er á ferð
um Fáskrúðsfjörð daginn
áður en atvinnukúguninni
var beitt og bendir allt til
þess, að hann hafi átt hlut
að aðgerðum þessum.
Austurland hefur lengi
verið mesta áhrifasvæði
Framsóknarflokksins og
Framsóknarmenn hafa
löngum reynt að setja upp
eins konar járntjald milli
Austurlands og annarra
landshluta. Á síðustu ár-
um hefur nokkuð tekið að
rofa til í þessum efnum og
Mbl. birtir í dag viðtöl við
ýmsa forustumenn á Aust-
urlandi um málefni þessa
landshluta. Kemur þar
glöggt fram, að á síðustu
árum hefur mikil upp-
bygging orðið á Austur-
landi, fyrst og fremst fyrir
tilverknað hins mikla síld-
arafla, sem þar hefur hor-
izt á land og fyrir dugnað
og framtak fólksins þar. í
kjölfar þessarar miklu upp
byggingar hafa tök Fram-
sóknarmanna á málefnum
Austfirðinga slaknað, en
þó hafa þeir enn mikil á-
hrif á ýmsum stöðum á
Austfjörðum eins og t.d. á
Fáskrúðsfirði. En margt
bendir nú til, að það sé
rétt, sem Margeir Þórorms
son símstöðvarstjóri á Fá-
skrúðsfirði sagði í viðtali
við Mbl. í gær:
„Raunverulega hygg ég,
að þetta mál hrjóti þá
fjötra, sem hér hafa legið
á um árabil, þvi að al-
menningsálitið snýst gegn
Framsókn í þessu máli“.
Nánar er rætt um mál
þetta í ritstjórnargrein-
um Mbl. í dag og á bak-
síðu eru viðtöl við tvo
frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins í kjör-
dæmum, þar sem Fram-
sóknarmenn hafa mis-
notað vald sitt yfir sam-
vinnuhreyfingunni.