Morgunblaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1967.
lir stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn telur með öllu óhjákvæmilegt að hér á landi sem
annars staðar sé viðbúnaður til varna, ef á landið yrði ráðist. Vörnunum
ber að sjálfsögðu að haga á hverjum tíma með hliðsjón af hagsmunum
þjóðarinnar og friðarhorfum í heiminum. Flokkurinn er þeirrar skoðun-
ar, að varnir landsins verði ekki tryggðar á næstunni, nema með sam-
vinnu við Atlantshafsbandalagið, svo sem verið hefur.
Framboðsfundur
í Suðurlandskjördæmi
— Útvarpað frá sameiginlegum fundi á
Selfossi í kvöld
T^FVARPAÐ verður frá sam-
eiginlegum framboðsfundi í Suðr
urlandsk'iördaemi, sem hald-
inn verður á Selfossi í kvöld
og hefst kl. 21.00. Bylgjulengdin
er 1412 kílórið eða 212 m á mið-
bylgju.
Tveir sameiginlegir framboðs-
fundir verða haldnir í kjördæm-
inu í dag, sá fyrri að Flúðum
og hefst hann kl. 13.30, en hinn
siðari í Selfossbíói í kvöld kl.
21.00.
Frambjóðendur allra flokka í
kiördæm.inu munu svo halda
isíðasta sameiginlegan fund sinn
í Vestmannaeyjum miðvikudag-
inn 7. júní nk. kl. 20.30.
Engínn
fundur
BKKI var neinn fundur boðaður
í farmannadeilunni í gær og
er því allt við það sama. Að
vísu var sameiginlegur fundur
kl. í gær, en hann var aðeins
til að ræða framkvæmd verk-
fallsins.
Nú hafa þessi skip stöðvazt 1
Reykjavíkurhöfn: Reykjafoss,
Goðafoss, Tungutfoss, Litlafell,
Bsjan og Herðubreið. — Herjólf-
ur og Akraborgin hafa undan-
þágu og ganga eins og vant er.
Othar og Helga Petersen.
— Fiskveiðar
Framhald af bls. 32
hÁtt þær muni taka þátt í
eftirlitinu.
Davíð Ólafsson, fiskimála-
stjóri, var í forsæti á fundnm
nefndarinnar, en þá sóttu full
trúar allra aðildarríkjanna en
þau eru Belgía, Danmörk, V-
Þýzkaland, Frakkland, ísland,
trland, Holland, Noregnr, Pói-
land, Portúgal, Spánn, Sví-
þjóð, Sovétríkin og Stóra-
Bretland. Áheyrnarfulltrúar
sóttu fundina frá Bandaríkj-
nnum, Kanada, Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Samein-
uðu þjóð .nna (FAO), Alþjóða
fiskveiðii.efndinni fyrir Norð-
vestur-Atlantshaf og Efna-
hags- og framfarastofnuninni
(OECD).
Fishing News skýrir frá
því, að á fundunum hafi einn-
ig verið skipzt á skoðunum
um takmörkun fiskveiða. —
Hins vegar hafi fulltrúarnir
verið sammála um að fyllri
upplýsinga væri þörf áður en
ákvörðun yrði tekin í því
efni.
Þó væri rétt að halda at-
hugunum áfram og kanna mál
ið til hlítar, þegar nefndin
haldi sjötta fund sinn í Reykja
vík dagana 7.—13. maí 1968.
Á fundinum í Reykjavík
verður einnig fjallað um
skýrslu um tillögur um bann
við togveiðum á svæði undan
norðausturströnd fslands.
Sýnum einhug
í lokasókninni
— dregið eftir 6 daga
í DAG eru aðeins 6 dagar
þar til dregið verður í
landshappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins, sem er hið
glæsilegasta sem stofnað
hefur verið til fram til
þessa. Uti á skrifstofu happ
drættisins í Sjálfstæðishús
inu við Austurvöll, hittum
Skömmtunartillögur Framsóknar:
Ætlaði að sölsa undir SIS meg-
in hluta innflutningsins
— Binda neytendur í ,,átthagafjotra" við verzlanir
— Stofna til kapphlaups milli verzlana um skömmtunarseðla
ÁRIÐ 1949 klauf Fram-
sóknarflokkurinn þriggja
flokka stjórnina, sem set-
ið hafði að völdum síðan
1947, vegna þess, að Sjálf-
stæðisflokkurinn vildi
ekki fallast á tillögur Fram
sóknarmanna um nýtt
skömmtunarfyrirkomulag,
sem hefði
□ veitt SÍS tækifæri til
þess að sölsa undir sig
meginhluta innflutn-
ingsins,
□ stofnað til kapphlaups
milli innflytjenda um
skömmtunarseðla hjá
neytendum.
□ bundið neytendur í
viðskiptum við þá
verzlun, sem veitti
skömmtunarseðlum
þeirra móttöku.
Það er fróðlegt að rifia
þetta upp nú, þegar Fram-
sóknarflokkurinn heldur
því ranglega fram, að á
þessu tímabili hafi hann
haft forustu um afnám
hafta.
Þessar skömmtunartillög
ur komu m.a. fram í frv..
sem nokkrir Framsóknar-
þingmenn lögðu fyrir þing
ið, sem sat 1948—1949 og
voru í stuttu máli á þá leið,
að taka skildi upp nýtt
kerfi skömmtunar og út-
hlutunar gjaldeyris- og
innflutningsleyfa með
þeim hætti að slíkurn leyf-
um yrði úthlutað eftir því,
hversu miklu magni af
skömmtunarseðlum verzl-
unum og innflytjendum
tækist að safna saman hjá
neytendum.
Með þeseu fyrirkomu-
lagi ætluðu Framsóknar-
menn að sölsa undir sig
meginhluta innflutnings-
verzlunarinnar, þar sem
þeir töldu að þeir ættu
auðvelt með að safna
skömmtunarseðlunum í
krafti félagssamtaka sinna
út um land. Það hefði einn
ig augljóslega haft í för
með sér kapphlaup milli
verzlana um skömmtunar-
seðla og slíkt hefði að sjálf
sögðu getað leitt til marg-
víslegrar spillingar og
brasks. Loks hefði þetta
kerfi bundið neytendur
við þær verzlanir, sem
þeir hefðu lagt skömmtun-
arseðla sína inn hjá og
þar með takmarkað enn
valfrelsi þeirra. ÞETTA
VORU TILLÖGURNAR,
SEM FRAMSÓKN ÞÓTTI
SVO MIKILSVERT AÐ
NÆÐU FRAM AÐ
GANGA, A Ð HÚ N
KLAUF RÍKISSTJ ÓRN
ÞEIRRA VEGNA.
Bjarni Benediktsson
lýsti afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins á þessum tíma til
verzlunarmálanna í ræðu
er hann flutti á hátíðisdegi
verzlunarmanna 1. ágúst
1949 með þessum orðum:
„Einn veigamesti þáttur-
inn í því að koma heiibrigðri
skipun á í fjármálum lands-
manna er sá að lagtfæra það,
sem aflaga fer í verzluninni.
Menn eru að vísu mjög
ósammála um, hvemig að því
skuii fara. Nokkur hluti
landsmanna trúir á, að þetta
verði ekki gert að gagni
nema með enn auknum höft-
um og hömlum á einstakl-
inga og auknum afskiptum
rikisins, helzt algerum ríkis-
rekstri á allri verzlun, eða
a.m.k. á allri milliríkjaverzl-
un til að byrja með.
Aðrir neita þessu og segjast
vilja stefna að því, að verzl-
unin verði frjáls. Ýmsir og
e.t.v. fiestir, sem þannig tala
hafa þó ýmsa fyrirvara um
þessa stefnu sina. Þeir eru
tiltölulega fáir, sem gerzt
hafa talsmenn þess að af-
nema höftin með öllu, eins og
nú standa sakir.
Sumir segjast meira að
segja vilja hafa frjálsa verzl-
un og þó halda höftunum.
Auðsætt er að þeir, sem svo
mæla, eiga frekar við þá
framkvæmd haftanna, sem
þeim sjálfum hentar og þeir
telja sanngjarna, en við af-
nám þeirra. Það er skiljanlegt
og gamalkunnugt, að þeir,
sem framkvæmdinni ráða,
finna siður til ófrelsis en
hinir, sem telja það bitna á
sér.
Ég efast heldur ekki um,
að mörgum muni i alvöru
hrjósa hugur við, ef stungið
er upp á frjáisri verzlun
„eins og nú er ástatt", hvað
þá, ef þeirri breytingu ætti
að koma á skyndilega. Á móti
þessu má telja ýms rök og
hræða menn með því, að allt
hljóti um koll að keyra og
sökkva í skuldafen, ef menn
fengju í þessum efnum fullt
frjálsræði á ný. Hér er
hvorki staður né stund til að
gera upp á milli þeirra mis-
munandi skoðana, sem menn
hafa í þessum efnum. Það
eitt er og viðhlítandi, að fyrir
hverri skoðun geri sá grein,
sem henni er fylgjandi, því
að með því móti einu er
tryggt, að hin heztu rök séu
talin fram.
Framhald á bls. 19.
við Othar Petersen fram-
kvæmdastjóra happdrættis
ins og eiginkonu hans,
Helgu Petersen, og spyrj-
um þau hvernig gangi.
Obhar segir okkur að happ-
drætti Sjálfstæðisflokksins
hafi sjaldan gengið jafnvel
og í ár, og að sjálfstæðisfólik
hafi aldrei sýnt jafnmikinn
baráttuvilja og einhug um að
gera árangur happdrættisins
sem glæsilegastan. Það beri
einnig að athuga að vinning-
arnir séu nú með allra glæsi-
legasta móti, 5 evrópskar bif-
reiðir að verðmæti 1.1 milljón
kr. FóL'k hugsar með sér, að
jafnframt því að styðja flokk-
inn í baráttunni öðlist það
möguleika á að eignast nýjan
og glæsilegan bíl til að fara á
í suimarleyfið og það fyrir að-
eins 100 kr.
Hann hvatti að lokum þá
sem enn ihafa ékki gert skil
eða keypt miða, að láta verða
af því sem fyrst, þvá að það
auðveldar allt starf happ-
drættisins og flýtir fyrir birt-
ingu vinningsnúmeranna. —•
Þegar við fórum, fylltist skrif
stofan af fólki, sem einmitt
var að koma til að gera skil.
Meðal þeirra var einn maður,
sem fyrir mistök hafði ekki
fengið senda miða heirn og
bað uim að fá þá þegar í stað.
Mistök geta alltatf átt sér stað
og ef að einhverjir fleiri hafa
sömu sögu að segja þurfa þeir
aðeins að hafa samband við
skrifstofuna eða hringja 1
síma 17104 og þá verða mið-
arnir umsvifalaust sendir. —
Skrifstofan er opin til kl. 22.00
alla daga vikunnar.
Vörusýníngunni
lýkur n.k.
sunnudag
VÖRUSÝNINGIN 1 Laugar-
dalnum hefir nú verið opin í 10
daga og lýkur næstkomandi
sunnudags'kvöld og verður ekki
framlengd. 10—15 þúsund manns
hatfa séð sýninguna, en búast má
við að sú tala hækki verulega
síðustu dagana.
Á hverju kvöldi er tízkusýn-
ing í pólsku deildinni kl. 6 —•
8,30 og sýna þarlendir herrar og
dömur alls konar fatnað. Þá er
kvikmyndasýning á klukkutíma
fresti.
Sýningin er opin kl. 2-10 dag-
lega.