Morgunblaðið - 05.07.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1997.
BILALEIGAN
- FERD-
Daggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
IMAGNÚSAR
skipholti21 símar21190
eftir lokun simi 40381
sím. i_44_44
\mim
Sí&aéeigcz,
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
BÍLALEIGAN
ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensíu inniíalið < leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Siml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36211.
* --
Irt&fLEff/gP
RAUÐARARSTfG 31 SÍMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
Útvarps- og sjónvarpstæki
Rafmagnsvörubúðin sf
SuSurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði).
^ íslenzka sjónvarpið
Velvakanda barst eftir-
farandi bréf frá kunnum kenn-
ara og skólamanni:
„Eins og kunnugt er, stendur
nú tími sumarleyfa sem hæst,
og meðal þeima, sem fengið
hafa langþráð leyfi, eru starfs-
menn sjónvarpsins okkar unga.
Eru þeir vissulega vel að leyfi
sínu komnir eftir mikið og gott
brautryð j endastarf, og fylgja
þeim beztu þakkir og óskir í
sumarleyfið.
En um leið og þetta hlé verð-
ur á sjónvarpssendingum til
9. ágúst n.k., er ástæða til að
staldra við um stund og hug-
leiða með örfáum orðum þenn-
an fyrsta starfsþátt íslenzka
sjónvarpsins. Mættu gjama
heyrast fleiri raddir um það úr
ýmsum áttum í þessu hléi og
gætu þær orðið til athugunar
og áminningar fyrir ráðamenn
þessa mikla fjölmiðlunartækis.
Þeim, sem kveðið hafa sér
hljóðs á opinberum vettvangi
um sjónvarpið okkar, ber yfir-
leytt saman um, að það hafi
farið vel af stað og flestir
starfsmenn þess leyst störf sín
ágætlega af hendi. Þetta er rétt
í aðalatriðum að mínum dómi.
Hin fyrsta ganga þess hefur
tekizt framar öllum vonum, og
er það að sjá'lfsögðu mikið
gleði- og þakkarefnL Margir
þættir hafa verið ágætir og
standa í engu að baki því bezta,
sem maður þekkir frá ná-
grannaþjóðunum. Þetta er bæði
ljúft og skylt að viðurkenna.
En — „vinur er sá, er til
vamms segir,“ mælir einn af
okkar ágætu talsháttum. Og
um leið og þess, sem vel er
gert, er minnzt með virðingu
og þökik, er einnig skylt að
minnast þess, sem betur þyrfti
að fara og breyta ættL
Vil ég þá fyrst minnast þess,
sem mikilvægast er: Sjónvarp-
ið þarf að hafa miklu meira en
gert hefur verið af innlendu,
þjóðlegu efnL í myndum, tali
og tónum. Þar er um auðugan
garð að gresja og ástæðulaust
að rökstyðja frekar svo aug-
ljóst mál, en fæst ekki fram-
kvæmt nema með mikilli skipu
lagningu og vinnu.
Notað timbur
Til sölu eru 3—4000’ af lítið notuðum battingum
(2” x 4”).
NATHAN & OLSEN H.F.
Afgreiðslustúlka óskast
nú þegar. Uppl. í verzluninni ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9.
Solina rafmagnsorgel
Glæsileg svissnesk rafmagnsorgel. Ódýr en full-
komin. 1 árs ábyrgð.
RADÍÓVAL, Hafnarfirði. Sími 52070.
Undanfarnar vikur hefur
alloft, góðu heilli, verið vikið
að því í blöðum, útvarpi og
á fundum kennara að leggja
þurfi meiri rækt við að vemda
og þroska þjóðerniskennd
okkar, standa öruggan vörð um
okkar þjóðlegu verðmæti, og
þá ekki sízt okkar fornu og
fögru tungu, sem þjóðerni
okkar stendur og fellur með.
Þarna getur sjónvarpið unnið
ómetanlegt menningarhlutverk
og á að gera það. Þetta á að
vera sterkasti þáttur sjónvarps-
ins og mundu allir því vel una.
Að sjálfsögðu yrði svo ýmis-
legt annað efni öðru hverju, til
fróðleiks og skemmtunar, og
á norrænt efni að skipa þar
efsta sess.
Þið megið til með að vita
það, ágætu ráðamenn sjónvarps
ins, að fjölmörgum áhorfend-
um finnst, að teiknimyndarusl
og glæpa- og hryllingsmynda-
langloknr skipi alltof háan
sess, taki alltof mikinn tima í
sjónvarpinu. Okkar sjónvarp
má alls ekki flytja inn á þús-
undir íslenzkra heimi'la kvik-
myndir, sem eru stórkostlega
neikvæðar í uppeldislegu tilliti,
og hljóta því að hafa mjög var-
hugaverð áhrif á böm og ungl-
inga. En þetta hefur einmitt
íslenzka sjónvarpið þráfalt gert
með því að sýna margar ógeðs-
legar glæpa- og hryllingismynd-
ir. Látum kvikmyndahúsin ein
um þessa tegund mynda, en
vemdum heimili okkar gegn
þeim í lengstu lög.
Ég þykist vita, að gripið hafi
verið til þessara neikvæðu,
auðvirðilegu mynda, vegna
vandræða með efini til að fylla
fyrir fram ákveðna dagskrá. En
minnist þess einnig, góðir ráða
menn, að fjöldi sjónvarpsnot-
enda telur, að miklu farsælla
væri að sjónvarpa heldur færri
daga í viku, en vanda betur til
efnis. Er því hér borin fram sú
tillaga að lokum, að sjónvarp-
að verði aðeins þrjá daga í
viku næsta vetur, eingöngu
völdu efni, sem allir mtmdu
fagna, bæði yngri og eldri.“
^ Hátíðahöldin
í Laugardalniihi
Eftirfarandi bréf er frá
konu, sem segir farir sínar í
Laugardalinn 17. júní ekki
sléttar.
1. júlí, 1967.
Þetta bréf var skrifað 18.
júní, þó að ekki komist í verk
að senda það fyrr af vissum
ástæðum, en það er:
Nokkur orð um „þjóðhátíð í
Laugardal". Ég fór þangað ein-
ungis vegna þess að ég á litla
stúlku, sem langaði í skrúð-
göngu. Við vorum þama í ná-
lega 2 tíma, en fiórum heim,
þegar byrjaði að rigna. Þá voru
skórnir mínir orðnir stór-
skemmdir af að ganga til skipt-
ist í grasi, mold, sandi eða möl,
sokkarnir handónýtir og sár á
fætinum eftir að héifa rekizt á
vírflækju, sem lé hulin í gras-
inu nálægt „dýragarðinum". Ég
er svo heppin að eiga heima
nálægt „dýrðinni", svo afS ég
þurfti ekki að leita uppi stræt-
isvagn, heldur fór gangandL og
. telpan var jafn fegin og ég að
komast heim. Nei, það þýðir
ekki að kenna rigningunni
einni um mistökin, til þess höf-
um við átt of marga þjóðhá-
tíðardaga í rigningu. Ég legg
til að fólk mæti í gallabuxum
og stígvélum naest þegar verð-
ur „þjóðhátíð í Laugardal". Og
svo var ekki einu sinni útvarp-
að nema mjög litlum hluta af
því sem fram fór, t. d. ekki
barnaskemmtuninni.
Blessaðir leyfið okkur að
vera í miðborginni þennan eina
dag á ári til að sýna okkur og
sjá aðra. —
Kona.“
■^r Örnefni umhverfis
hólm
„Kæri Velvakandi!
I gnein minni Ár, vötn og ör-
nefni umhverfis Hólm, sem
birtist í dálkum þínum fimmtu-
daginn 29. júní s.L hafa orðið
nokkrar prentvillur, þar af ein
meinleg, þar sem felld hafa
verið niður tvö orð. Réfct er
málsgreinin þannig: Stóra tjörn
in vestur af Gvendarbrunnum
heitir Hrauntúnstjörn (ekki
Hrauntúnsvatn) og því síður
Helluvatn eins og Rg talar um.
Vinsamlegast
Karl E. Norðdahl
Hólmi“.
Iðnaðarhíisnæði óskast
Iðnaðarhúsnæði á jarðhæð 150—200 ferm. óskast.
Skriístofa mín
verður lokuð frá 5. júlí til 1. september n.k.
HÖRÐUR EINARSSON, héraðsdómslögmaður.
Aðalstræti 9.
Bókari
Heildsölufyrirtæki óskar að ráða mann til að sjá
um bókhald fyrirtækisins. Góð bókhaldsþekking
nauðsynleg. Góð laun. Upplýsingar veita: Björn
Steffensen og Ari Ó. Thorlacius, Endurskoðunar-
stofa 22210.
Bezt að auglýsa ■ Morgunblaðinu
VESTURROSThf
GAROASTRÆTI 2.SÍMM6770