Morgunblaðið - 08.07.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1987.
%
BÍLALEICAN
-FERÐ-
Daggjald ter. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGNÚSAR
skiphoiti21 sÍm/^21190
eftrr lokun slmi 40381
SIM'1-44-44
mmf/Ðifí
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
lngólfsstræti 11.
Hagstætt leigagjald.
Bensín innifalið > leigngjalði
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 Og 36211.
IFfKAft
RAUÐARARSTlG 31 S(MI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
Útvarps- og sjónvarpstæki
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði)
fíílaskipti
* fíilasaía
Bilasýning í dag.
Góðir notaðir bílar, verð og
greiðsluskilmálar við allra
hæfi.
•k Samskiptin
við börnin
Hér fer á eftir bréf frá
einum vinnufélaga mínum:
„Heiðraði Velvakandi. — Þú
verður að fyrirgefa, hvað ég
ávarpa þig hátíðlega, en þetta
er líka fyrsta bréfið, sem ég
skrifa þér. Ég ætla að segja
þér sögu af litlum herramanni,
sem heimsótti mig fyrir nokkr-
um dögum. Hann sagðist vera
10, bráðum 11 ára, gerðarleg-
asti piltur. Samt var hann held
ur súr á svipinn, og kannski
ekki að furða, hann var að
verða atvinnulaus. Var honum
sagt upp starfi? Nei, hann sagði
sjálfur upp. Hvers vegna? Og
þá kom sagan:
— Ég hef, sko, borið út Morg
unblaðið síðan í vor, sagði
hann.
— Var það svo leiðinlegt að
þú hættir?
—• Nei, nei, svaraði hann að
bragði. — Mér fannst það voða
gaman. Ég á ekkert vont með
að vakna snemma á mongnana.
Mamma vakti mig alltaf klukk
an 7, og stundum hálf 7 *— og
ég var alltaf búinn að bera út
klukkan rúmlega átta og stund
um fyrr.
— En 'hvers vegna heldurðu
þá ekki áfram? Kaupendurnir
geta ekki hafa verið óánægðir
með þig.
— Nei, það held ég ekki.
Margir sögðu meira að segja að
ég vaeri duglegur, það væri svo
gott að fá blaðið svona snemma.
En það er rukkunin. Sko flestir
borga strax, þegar ég rukka,
eða konan segir mér að koma,
þegar maðurinn hennar sé
heima, í hádeginu eða á kvöld-
in. En svo eru það nokkrar
konur, sko, það eru konurnar,
sem eru heima, sem segja
„komdu seinna“ — og sumar
skella bara strax aftur hurð-
inni. Svo þegar ég kem seinna,
segja þær það sama, spyrja
stundum hvaða læti þetta séu,
þetta verði borgað seinna. Ég
verð stundum að koma fimm,
sex sinnum til þessa fólks áður
en reikningurinn er borgaður.
og er þá stundum skammaður,
— fyrir hvað veit ég ekki. Mér
finnst þetta svo leiðinlegt af
því ég geri mitt bezta og held
að ég standi mig vel við út-
burðinn. Að minsta kosti hafa
margir hælt mér. Þetta er allt-
af sama fólkið, sem lætur
svona, og ég skal segja þér, ég
veit að það á ekkert minni pen-
inga en hitt, sem er vingjarn-
legt og borgar strax eða segir
mér hvenær ég eigi að koma
og borgar þá. Kannski er það
svona við mig af því að ég er
bara krakki og því finnst það
geti komið fram við krakka
eins og því sýnist. En finnst
þér það rétt? Ég veit að við
krakkarnir erum stundum ó-
þekk og þá má skamma okkur,
en það er eins og sumir þurfi
alltaf að vera að ónotast við
okkur og líka þegar við stönd-
um okkur vel. — Svo skal ég
segja þér frá einni konunni.
Hún neitar algerlega að borga
blaðið af því að hún fái það
aldrei. Ég hef þó alltaf borið
blaðið út til hennar, sett það
inn um rifu hjá hurðinni inn í
ganginn. Ég sagði henni að hitt
fólkið í húsinu hlyti þá að taka
það. Nei, nei, hún sagði að það
tæki það aldrei, ég kæmi bara
ekki með það. Ég spurði hana
þá, hversvegna hún hefði ekki
kvartað, ég hefði aldrei fengið
kvörtun, hvorki frá henni né
öðrum nema 2—3 fyrstu dag-
ana, þegar ég var ekki búinn
„að læra á“ hverfið. Hún sagð-
ist ekkert nenna að standa í
því að kvarta, blaðið kæmi
hvort sem er aldrei. Hvernig
heldurðu svo að mér líði, þeg-
ar ég kem og skila og verð að
segja að kaupandinn neiti að
borga af því að hann fái aldrei
blaðið?
TÍfFullorðnir mega
vara sig
Þetta er saga 10, bráðum
11 ára — drengsins. Hvað seg-
irðu um hana, Velvakandi góð-
•ur? Vildir þú standa fyrir
framan púltið hjá atvinnuveit-
anda þínum og segja honum að
þú hefðir svikizt um að gera
það sem þú áttir að gera, vit-
andi um leið að þú skrökvaðir
þeim vömmum á sjálfan þig?
Ýmsir virðast álíta að það
sé sama, hvernig þeir komi
fram við börn, en sem betur
fer eru þeir í miklum minni-
hluta. Sannleikurinn er sá, að
börnin eru aðeins spegilmynd
hinna fullorðnu. Þau eru næm
og taka vel eftir því, sem í
kringum þau gerist. Þau líta
upp til hinna fullorðnu, sem
verða fyrirmynd þeirra. Mikið
er því undir því komið að þau
séu ekki höfð fyrir rangri sök.
Það veikir trú þeirra á fyrir-
myndirnar og þau hætta að
taka alvarlega réttmætar ávít-
ur.
'k í umferðinni
Stundum geta fullorðnir
meira að segja tekið börnin sér
til fyrirmyndar. Virtu þau til
dæmis fyrir sér í umferðinni
og berðu þau saman við full-
orðna fólkið. Eitt lítið dæmi:
Ég átti leið eftir Hringbraut-
inni í morigun. Roskinn maður
og 11—12 ára drengur gengu
hlið við hlið eftir gangstétt-
inni. Um tíu metra frá merktri
gangbraut fór maðurinn út á
götuna án þess að l#a til hægri
eða vinstri og gekk á ská yfir
hana, en drengurinn hélt á-
fram að gangbrautinni, horfði
í kringum sig og hélt síðan
yfir götuna.
Jæja, ég held ég hafi þetta
ekki lengra að sinni, en vildi
í lokin minna á hina gullvægu
reglu: „Komdu fram við aðra
eins og þú vilt að þeir komi
fram við þig“.
■k Bílastæðið við
Garðastræti
Þá er hér stutt bréf frá
bíleiganda:
„Kæri Velvakandi. Ég veit að
í okkar velferðarþjóðfélagi, þar
sem bílaeignin hefur aukizt
hröðum skrefum, getur verið
erfitt fyrir borgaryfirvöldin að
sjá fyrir nægum bílastæðum í
miðborginni, þótt hvert tæki-
færi sé gripið til þess að bæta
þar úr. En það er annað, sem
mig langaði til þess að vékja
athygli á. Rílastæðið við Garða
stræti er að verða illkeyrandi.
Ég held að tími sé kominn til
þess að lappa svolítið upp á
það“.
að auglýsa í JVlorgunblaðinu.
að það er ódýrast og bezt
Til leigu
Iðnaðarhúsnæði á jarðhæð um 170 ferm. á mjög
góðum stað í Hafnarfirði. Uppl. í síma 52187 og
50312.
„HÆFNISAKSTDR"
í dag laugardaginn 8. júlí fer fram keppni í HÆFN-
ISAKSTRI. Keppnin fer fram á lóðinni við Há-
Lagermaður og
verkstjóri óskast
Reglusamur og áreiðanlegur maður óskast við lag-
erstörf og verkstjórn hjá iðnfyrirtæki. Listhafend-
ur sendi upplýsingar um fyrri störf o.fl. til Morg-
unblaðsins fyrir 15. júlí n.k. merkt: „Iðnaður 5742.“
skólabíó og hefst kl. 14.00. Keppt verður um veg-
legan bikar innan klúbbsins. Öllum er heimil þátt-
taka, félagsmönnum sem utanfélagsmönnum.
Væntanlegir keppendur mæti til skráningar kl.
1.30 við Háskólabíó.
Bifreiðaklúbbur Reykjavíkur.
Orlof húsmæðra í Keflavik
Orlof húsmæðra í Keflavík verður að Laugum í
Dalasýslu frá 10.—20. ágúst n.k. Á Laugum er
innisundlaug, þar er veðursæld mikil og einnig
er þar nokkuð berjaland. Meðan á dvölinni stend-
ur verður farin sketnmtiferð um fögur héruð á
þessum slóðum. Æskilegt er að konur tilkynni
þátttöku sem fyrst í síma 2072, 1692, 1608, og 2030.
ORLOFSNEFND.
Kantsteinn og
gangstéttarhellur
fyrirliggjandi.
HELLUSTEYPAN við Lyngás,
Sími 52050 og 51551.
íbúð til leigu
2ja til 3ja herbergja íbúð til leigu í ca. 9 mánuði.
Öll húsgögn með eldhúsáhöldum, ísskáp, síma og
útvarpi geta fylgt ef vill. Tilboð merkt: „Sann-
gjörn leiga 5743“ sendist blaðinu fyrir þriðju-
dagskvöld.
> j JÓNKONHf.
VÖKULlf
Hringbraut 121 Sími 10600
^^CHRYSLER
MV fNTERNATlONAi.