Morgunblaðið - 21.07.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐIJR
54. árg. — 161. tbl.
FÖSTUDAGUR 21. JULI 1967
PrentsmiSja' Morgunblaðsins
Svifflugið er heillandi og
skemmtileg íþrótt. Þessa dag-
ana fer fram Svifflugmót
Flugmálafélags íslands aust-
ur á Hellu. — Myndin sýnir
eina sviffluguna dregna á loft.
Fósturlót
hjd Gruce
prinsessu
Montreal, Kanada, 20. júlí
(AP-NTB)
TII.KYNNT var í Montreal í dag
að Grace, prinsessa af Monaco,
sem er á ferð um Kanada með
manni sínum Kainer fursta og
þremur börnum þeirra hjóna,
hefði verið flutt í sjúkrahús þar
í borg í gærkvöldi eftir fóstur-
lát. Átti prinsessan von á fjórða
barni sínu í janúar.
Grace prinsessa, sem áður hét
Grace_ Kelly og var kvikmynda-
leikkona, verður í nokkra daga
í sjúkrahúsinu, en læknar segja
líðan hennar góða eftir atvikum.
Jfurstahjónin komu til Montre-
al til að vera viðstödd hátíða-
Framhald á bls. 81
Ákvörðun tekin í dag
framsal Tshombes
Búizt við að hæstiréttur
Alsir samþykki framsalið
Algeirsborg, 20. júlí (AP-NTB)
MOISE Tshombe, fyrrum forsæt
isráðherra Kongó, situr nú í
fangelsi í útjaðri Algeirsborgar
og bíður þess að hæstiréttur
Alsir ákveði hvort hann skuli
framseldur yfirvöldum í Kongó,
þar sem hans bíður dauðadóm-
ur. Er úrskurður hæstaréttar
væntanlegur í fyrramálið, föstu-
dag, og allar líkur taldar fyrir
því að hann verði á þá lund að
framselja beri Tshombe.
Tshombe hefur setið í fangelsi
í Alsír í þjár vikur, allt frá því
flugvél, sem hann var í á leið til
Mallorka, var rænt og henni
flogið til Alsír. Öflugur hervörð
ur er við fangelsið, því yfirvöld-
in óttast að hvítir málaliðar hlið
hollir Tshombe kunni að gera til
raun til að frelsa hann.
Talið er að hæstiréttur fallist
á framisal Tshombes á þeim
grundvelli að hann sé sekur um
morð og svik í heimalandi sínu.
Verjandi Tshombes heldur því
hins veg.ar fram að afbrot
Tshombes séu eingöngu á sviði
stjórnmála, og því óheimilt að
framselja hann.
Dagblöð í Algeirs'borg, sem öll
eru undir opinberu eftirliti,
hafa á unidanförnum vikum
margsinnis haldið því fram að
Framihald á bls. 2
Samsæri
í Indó-
nesíu
Jakarta, Indónesíu, 20. júlí
(NTB)
KAMAL Nasserie, ofursti, for-
scti herráðsins í Jakarta, skýrði
fréttamönnum frá þvi í dag, að
erlent ríki hefði staðið á bak við
samsæri um að steypa stjórn
Indónesíu fyrir næstu mánaða-
mót og koma Sukarno, fyrrum
forseta, til valda á ný. Staðfesti
ofurstinn að 14 menn hefðu ver-
ið handteknir vegna meints sam
særis, þeirra á meðal háttsettir
foringjar úr hernum.
Nasserie, ofursti, sagði, að ætl-
unin hafi verið að stofna til
byltingar með stuðningi sveita
úr hernum og koma Sukarno til
valda á ný. Sagði hann að hand-
tökum væri haldið áfram, en gaf
engar frekari skýringar á því
hvaða erlent ríki átti að hafa
staðið á bak við samsærið, né
á hvern hátt.
Nýnazistar líkja
Dayan viÖ Hitler
Itlálgagn þeirra, „National
Zeitung44, gert upptækt
LÖGREGLAN í Vestur-Þýzka-
landi gerði allt upplag síðasta
tölublaðs „National-Zeitungs",
málgagns öfgasinna lengst til
hægri, upptækt í dag, réttum 23
árum eftir hið misheppnaða
banatilræði við Hitler, þar sem
í uppsláttargrein á forsíðu var
Moshe Dayan hershöfðingja,
Framhald á bls. 31
Sókn Nígeríuhers inn
í Biafra gengur vel
,,Smávœgilegar tafir" — Loftárásum
haldið áfram — Borgurum hlíft
segir Lagosstjórnin
Lagos, 20. júlí NTB.
HERSVEITIR Nígeríustjórnar
hafa haldið áfram sókn sinni suð-
ur á bóginn frá Nsukka til höfuð-
borgar uppreisnarmanna í Aust-
ur-Nígeríu, og loftárásum á sveit-
ir uppreisnarmanna er haldið
áfram, að því er tilkynnt var í
Lagos í dag.
JEn nioklkrum kluikkustumdium
óður hafði því verið haldið fram
í Engu, hiöifuðborg Austur-Ní-
geríiu, sem uppreisnarmenn kalla
Biafra, að hersveitir hins ný-
stoifnaða rílkiis hefðu náð Nsukka
og fleiri stöðuim nálægit landa-
mærum Ní'geríu aftur á sitt vald.
Nsulkka er 56 km fyrir norðan
Enugu. Þótt talsmaður Nígeríiu-
stjórnar segði, að Nsuikka væri á
valdi stjórnadhersins, játaði hann,
að enn hefði ekki tekizt að ráða
niðuTlögum lteyniskyttna í bæn-
um. Einnig játaði hann, að sókn-
in gengi hægar en við hefði verið
búizt. Uppreismarmenn hefðu gert
gagnáráisir á nokikrum stöðum,
Framhald á bls. 3
Athyglisvert vísindarit kín-
versku læknasamtakanna
MORGUNBLAÐINU hef-
borizt þriðja hefti árgangs
1967 af tímariti kínversku
læknasamtakanna. Tímarit
ið er gefið út á ensku und-
ir nafninu „China’s Medi-
cine“ og þess getið sérstak
lega, að það sé hið opin-
bera málgagn kínversku
læknasamtakanna.
mm, ,4'
Rif — úr hverjum?
Efni þessa vísindarits er
hið athyglisverðasta. í því
eru eftirfarandi greinar:
1. Tilvitnanir i rit Mao Tze ' j
tungs, formanns, á ensku, :í
frönsku og spænsku.
2. Ljóð eftir Mao Tze tung,
formann: „Svar til Kuo Mo-
jo“, ort við lagið „Man
Chiang hung“.
3. „Um leiðréttingu mis-
skilinna hugmynda í flokkn-
um“, grein eftir Mao Tze
tung.
4. Ritgerð um greinina
„Um leiðréttingu misskilinna
hugmynda í flokknum“ end-
urprentuð úr dagblaði Frels-
ishersins og er þess getið, að
ritgerð þessi sé einskonar
leiðarvísir við grein Maos.
5. „Byltingarmenn alþýð-
unnar mynda stórbandalag
til þess að ná völdum úr
höndum þeirra, sem gengið
Mao
formaður
hafa inn á braut kapitalism-
ans“. Ritstjórnargrein úr
blaðinu „Ren Min Ribao“.
6. „Um baráttu byltingar-
Framfhald ó bls. 3