Morgunblaðið - 01.08.1967, Side 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967
Guðlaxar veiðast hér við land
SKIPVERJAR á b.v. Agli
Skallagrímssyni munu hafa
rekið upp stór augu sl. sunnu
dag, er þeir innbyrtu tvo ó-
þekkta fiska. Frskar þessir,
sem voru stórir og rauðleitir,
voru settir í ís og afhentir
Hafrannsóknarstofnuninni
þegar við heimkomu skipsins
Kom í ljós að hér var um
að ræða svonefndan guðlax.
Svo virðist, sem þessi sjald-
séði fiskur gerist nú heima-
komnari við íslandsstrendur
en áður, því fyrir nokkrum
vikum kom einn slíkur í
vörpu togarans Narfa. Var
skipið þá statt á svipuðum
slóðum og Egill Skallagríms-
son nú.
Fiskarnir eru varðveittir í
frystigeymslum Hafrannsókn
arstofnunarinnar, unz færi
gefst á að rannsaka þá.
Guðlaxarnir eru eins og
áður segir stórir fiskar og lit
fagrir. Hávaxnir eru þeir og
allþykkir, munnlitlir og með
öllu tannlausir. Einkennandi
eru kviðuggarnir, þeir eru
langir með mörgum geislum
og festir á miðjan kviðinn.
Hreistrið er smátt og rákin
greinileg. Sundmaginn er
klofinn að aftan og skúf-
langar margir. Augun eru
stór og snjáldrið stutt. Ættin
er nefnd guðlaxaætt og til-
heyra henni margar ættkvísl
ir. Þrjár tegundir hafa veiðzt
við ísland. Ein samnefnd ætt
Myndin sýnir þennan flatvaxna og rauðleita fisk. Eldspýtu-
stokkurinn neðan eyruggann gefur til kynna stærð
guðlaxins.
inni, en hinar eru Stóri og
litli bramafiskur.
Fiskar af þessari ætt eru
flestir suðrænir úthafsfiskar
og djúpfiskar, sem villast
stundum upp að löndum.
Nafnið guðlax er ævafornt og
neínt i Eddu. Bendir það til
að norrænir menn hafi
snemma veitt þessum til-
komumikla fisk eftirtekt og
valið honum virðulegt nafn.
Guðlaxinn getur orðið allt
að 150—180 cm. langur og
vegið 70 kg. eða meir. Bolur-
inn er þó mjög stuttur, en
spoi'ðurinn breiður og hvass-
hyrndur.
Liturinn er afar sxrautleg-
ur. Á höfði og baki er hamn
dimmblár, á hliðuro grænleit,
ur, neðanvert höfuðið og
kviðurinn er silfurlituð, en
með ljósrauðri súkju, ugg
arnii eru allir b’óðrauðir.
Heimkynni guðlaxins eru í
sunnanverðu N-Atlantshafi og
Miðjarðarhafi, hans hefur
orðið vart frá Kanaríeyjum
og norður að Finnmörku.
Kringum Bretlandseyjar og
við Norðurlönd.
Talið er að fæða hans sé
einkum smokkfiskui. Behda
koraur hans hingað til lamds
til, að hann fylgi ef'.ir beitu
smokkinum. sem gengur hér
með ströndum síðari hluta
sumars. Þá kemur tíminn,
sem hann hefur veizt á, heim
við þetta, þ.e. sumar og
haust.
G.uðlaxinn er ágætur til
matar, holdamikill, feitur og
bragðgóður. Alllíkur er hann
feitu heilagfiski en bleikrauð
ur á fiskinn (eins og lax).
Ekki getur guðlaxinn talizt
nytsemdarfiskur til þess er
hann of fágætur. Hann veið-
ist aðeins af hendingu á lóð
eða í sterk net. Hann mun
þó haifa verið veiddur lítið eitt
á öngul, beittan makríl við .
Madeira eyjar í N-Atlants-
hafi.
1 skýrslu Gunnars Jónsson-
ar, fiskifræðimgs um fágæta
fiska, sem veiðzt hafa við ís-
landsstrendur á tímabilinu
1955—99, er þess ekki getið
að guðlax hafi veiðzt. Svæð-
ið þar sem b.v. Egill Skalla-
grímsson fékk hina tvo guð-
laxa í vörpuna nú var, 18
sjómílur undan Lóndröngum
á 100—105 faðma dýpi.
Á tímabilinu 1870—1926,
getur um nálega 30 guðlaxa,
sem nekið hafa á land eða
náðst á annan hétt hér við
land.
Upplýsingarnar um fiskinn
eru byggðar á bókinni. Fisk-
arnir eftir Bjarna Sæmunds-
son.
Skógarhátíð í Atlavík feLnnedy
— um Verzlunarmannahelgina
- Fulbright
Johnson - Humphrey
Óttast stórsigur republikana
fari Johnson ekki frá
SKÓGARHÁTÍÐ Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands
verður í Atlavík í Hallormsstaða
skógi um Verzlunarmannahelg-
ina. Slíkar hátíðir hafa verið
haldnar. tvö síðustu ár og tekizt
sérstaklega vel, enda hefur ölv-
un ekki verið leyfð á samkomu-
svæðinu.
Hátíðin hefst með dansleik kl.
21 á laugardagskvöldið. Dúmbó
og Steini og Austmenn leika fyr
ir dansi, bæði innan húss og á
útipalli.
Um nóttina kl. 1 verður mið-
næturvaka við varðelda. Þar
verður flugeldasýning, leikararn
ir Róbert og Rúrik skemmta,
danski fjöllistamaðurinn Barly
leikur listir sínar og Dúmbó og
Steini leika. Auk þess syngur
Tónakvartettinn frá Húsavík.
Á sunnudagsmorgun kl. 10
hefst keppni í frjálsum íþrótt-
um, hástökki og langstökki
HEIMSMÓTI stúdenta í skák í
Harrachov í Tékkóslóvakíu er
lokið. Sovétríkin siigruðu í A-
flokki, en þó með minni yfir-
burðum en búizt var við. Sveit
þeirra hlaut 24 vinninga úr 36
ekákum. Bandariska sveitin varð
önnur í röðinni með 22 vimn-
inga og enska sveitin þriðja með
21 v. Næstar komu sveitir Rú-
mena, Tékka og Austur-Þjóð-
verja með 19'% v. hver.
í B-flokki urðu Ungvarjar
efstir, hlutu 24 vinninga úr 32
skákum. AustuTTÍkismenn urðu
í öðru sæti með 21% v., íslend-
ingar þriðju með 19 v. og Hol-
lemdingar fjórðu með 16 vinn-
inga.
íslendingar tefldu við Skota í
síðustu umferð og unmu með 2%
v. gegn 1%. Trausti Björnsson
tapaði á fyrsta borði, Guðmumd-
ur Sigurjónsson vann á öðru,
Jón Þ. Þór gerði jafntefli á
þriðja og Bragi Kristjánssom
vann á fjórða borði.
Bragi hlaut 5% vinming úr 7
skákum eða 78,6% og tapaði
karla og kvenna og hinu árlega
Víðavangshlaupi Austurlands.
Úisamkoma hefst í samkomu-
rjóðrinu kl. 14. og leikur þar
Lúðrasveit Neskaupstaðar undir
stjórn Haralds Guðmundssonar.
Stefán Jasonarson í Vorsabæ
flytur ræðu og Elma Guðmunds
dóttir og Kristján Ingólflsson,
formaður U.Í.A., flytja ávörp.
Tónakvartettinn syngur og
Rúrik Haraldsson, Róbert Arn-
fimnsson, Karl Guðmundsson og
Eyvindur Erlendsson skemmta,
auk Barlys hins danska.
Kl. 17 verður glímusýning og
keppni í glímu og handknatt-
leik kvenna. Austmenn leika
fyrir unglingadansi kl. 19 og
Dúmbó og Steini á dansleik kl.
21.
Mánudagskvöldið 7. ágúst er
dansleikur í Valaskjálf á Egils-
stöðum. Dúmbó og Steini leika
þar og Barly skemmtir.
engri skák. Hann hlaut flesta
vinninga allra keppemda á fjórða
borði í B-riðli.
MORGIJNBLAÐINU hefur bor-
izt eintak af bandaríska blaðinu
Berkshire Eagle, þar sem sagt
er frá Val Skowronski, verzl-
unarstjóra „Navy Exchange"-
verzlunarinnar í Keflavík undir
fyrirsögninni: „Syngur íslandi
lof“. Skowronski hefur verið bú-
settur á íslandi si. 20 ár, en fór
fyrir skömmu í heimsókn til
Pittsfield í Massachusetts, þar
sem hann áður bjó.
Blaðið segir að Sko'wronski
hafi heimsótt mörg lönd og upp-
lifað sitt af hverju, en ekkert
sé honum eins kært og litla land
ið „þarna uppfrá“, við heim-
skautsbauginn. „Loftslagið t.d.
er dásamlegt. Það er aldrei of
heitt og veturnir eru ekki eins
Washington, 31. júlí AP).
FIMMTÍU fyrrverandi full-
trúar á flokksþingum Demó-
krataflokksins hafa lýst því
yfir í bréfi til Johnsons for-
seta, að hann þjóni bezt hags-
munum flokksins með því að
gefa ekki kost á sér til endur-
kjörs við forsetakosningam-
ar á næsta hausti.
í bréfi sínu segja fulltrú-
arnir að vegna ágreinings um
utanríkimál muni „milljónir
demókrata ekki sjá sér fært
að styðja frambjóðendur
flokksins við kosningarnar á
næsta ári“ til bæjar- og
sveitastjóma né til opinberra
embætta á vegum ríkisins.
— „Það er ekki lengur til neitt
einingarafl innan flokklsins, og
meðam svo er má reikna með
yfirburðasigri repuiblikana í bosn
ingiunum 1968“, segir í bréfinu.
„Slkjóit ákivörðun (yðar) um að
kaldir og í Berkshire. Loftið er
hreint og ferskt og algerlega
ómengað. Það er gott að búa
þarna“.
Aandstaðan við þetta var Pan-
ama, þar sem Skowronski var
sem hermaður 1939 og út síðari
heimsstyrjöldina: „Mér fannst
ég ekki geta komizt nógu fljótt
frá þeirri helv.... holu“. En það
þar ekki aðeins loftslagið sem
gerði honum landið kært, hann
hitti konu sína Guðrúnu Þórð-
ardóttur þar, og þau eiga fimm
börn, sex til fjórtán ára gömul.
Þetta var í fyrsta-skipti í átta
ár, sem hjónin heimsóttu Banda
rikin og í för með þeim voru
tvö barnanna. Börnin tala öll
góða íslenzku.
draga sig í hlé gæti tryggt ein-
hverjum öðrum framibjóðenda
demókrata sigurinn, ef honum
tekst að endurskapa einingu inn-
an flloddksins."
Aáriti af bréfi þessu var dreift
meðal fréttamanna á fundi hjá
samitökum einum í New York,
er nefnast „Borgarar sem styðja
Kennedy-Fulibright“, og vilja að
Röbert F. Kennedy öldungadeild-
arþingmaður frá New York verði
forsetaefni demólkrata við næstu
kiosningar og James W. Fulibright
öldungardeildarþingmaður frá
Ahkansa® varaforsetaefni.
Kennedy hefur sjáillfúr marg-
sinnis afneitað öllum tengisluin
við samtölk þesisi, og Fulbright
hefur lýst því yfir að hann þekki
ekkert til starflsemi samtakanna
né leiðtoga þeirra, auk þess sem
hann verði ekki í framboði sem
vara-forsetaefni demókrata. Dr.
Martin Shepard frá New York,
annar af tveimur forsetum borg-
arasamtakanna, boðaði frétta-
mennina til fundar í dag til
að skýra frá bréfinu til John-
sons forseta. Aflhenti hann frétta
mönnuim yfirlýsingu þar sem sagt
er að borgarasamtökin hafi átt
frumkivæðið að bréfinu til John-
isons, en að „fimmtíu manna
nefndin" væri óháð borgarasam-
tökunum. Hún væri andvig John
son, en það þýdldi ekki að hún
iværi hlynnt framboði Kennedys.
Segir einnig í yfinlýsingiunni að
tveir þeirra, sem undirrituðu
toréfið til forsetans hafi reynt ið
flá fund með Johnson, en verið
víisað frá.
Liecihtenstein, 30. júlí, NTB.
HANS Adam kirónprins tii dv :g
rikisins Liechtenstein gekk að
eiga þýzka greifaynju á sun í J-
daginn. Etfnt var til mikilla
hátiðahalda í rilkinu í tiiefni
brúðkauipsins. Prinsinn leggur
stund á þjóðhagsfræði í Sviss og
þar mun hann búa fynst rm sinn
álsamt konu sinni Mariu prms-
essu.
STAKSTEIMAR
Erfitt ár
Á sunnudag ritar leiðarahöf-
undur Tímans grein undir fyr-
írsögninni „Erfitt ár“ — þar
segir m.a. svo: „Það getur varia
verið tilviljun að bæði aðal-
málgögn ríkisstjórnarinnar birta
í gær forystugrein undir ofan-
rituðu nafni og mjög í sama
anda. Rikisstjórnin er að leggja
línur um ákveðna túlkun, sem
á að undirbúa þann jarðveg aff
menn sætti sig við þær kreppu
ráðstafanir sem hún kemst
ekki hjá. Nú er tónninn sá aff
mikla mjög hið illa árferði, og
kenna þvi um allt, en jafnframt
syngja ríkisstjórninni þann dýrff
arsöng, að nú væri allt komiff
í kaldakol af árferðinu, ef ekkl
nyti blessunar „viðreisnar-
stjórnarinnar. Áður þakkaði
stjórnin sér afrakstur einstaks
góðæris en nú kennir hún illu
ári um allt.“
Blaðinu snúið við
Það er rétt, að undanfarin ár
hefur sæmilega árað. Veðurfar
hefur ekki verið slæmt hvorki
til lands eða sjávar og mikil
fiskveiði hefur verið samfara
hækkun á verði útflutningsfram
leiðslunnar. En að ríkisstjórn-
in, eða nokkur einstaklingur
hafi þakkað sér slíkt, er hins-
vegar fjarstæða sem allir hljóta
•>ð sjá í gegnum, nema ef til
vill nokkrir forystumenn stjórn
arandstöðunnar, sem eru búnir
að syngja góðærissönginn þaff
oft að þeir eru farnir að trúa
efni hans.
Viðreisnarstjórninni tókst hins
vegar að halda þannig á mál-
um að mikill fengur hagnýtt-
ist vel. Dæmi þess ætti að vera
óþarfi að nefna, — þau blasa
hvarvetna við. Það nægir aff
minna á þá geysilegu uppbygg-
ingu fiskiskipastóls landsmanna
sem hefur grundvallaff mikla
veiði undanfarin ár, opinberar
framkvæmdir hverskonar, stór-
iðju og síðast en ekki sízt upp-
bvggingu gjaldeyrisvarasjóðsins
sem hefur mikil áhrif á rekst-
ur þjóðarbúsins, og hefur m. a.
tryggt frjálsa verzlun í landinu.
Undanfarið ár hefur hinsveg-
ar verið erfitt og viðurkenna
það allir, jafnvel forustumenn
stjórnarandstöðunnar. Þeir eru
hiusvegar fljótir að snúa viff
blaðinu, og eins ósparir á aff
kenni ríkisstjórninni nú um
erfiðleikana, eins og þeir voru
áður að þakka árferðinu.
Sjaidan hafa íslendingar ver-
ið eins vel undir það búnir aff
mæta erfiðu ári og einmitt nú
og það er bæði að þakka hag-
sælum stjórnarháttum undan-
farinna ára og sæmilegu ár-
ferði. Að minnsta kosti vita
flestir það, að góðæri nægir
ekki alltaf til. Á dögum vinstri
stjórnarinnar var hér ríkjandi
góðæri, bæði til lands og sjáv-
ar, en víst er um það, að sjald-
an hafa efnahagsmál þjóðarinnar
staðið jafn höllum fæti og þeg-
ar sú stjórn gafst upp, úrræða-
laus við að leysa úr vandanum,
sem hún hafði sjálf skapað.
Það sem hér hefur verið rak-
ið vitnar enn um þau miklu
vonbrigði Framsóknar sem úr-
slit Alþingiskosninganna voru.
Hefðu þeir náð valdastöðu
hefðu þeir sennilega fljótt grip-
ið til sinna yfirlýstu affferða til
lausnar efnahagsmálunum, —
að eyða upp þegar i staff gjald-
eyrisvarasjóði landsins og inn-
leiða á nýjan leik hafta «g
skömmtunar pólitík sína. Ey-
steinn Jónsson afneitaffi reynd-
ar þeirri stefnu í kosningabar-
áttunni, en enginn þarf að ætla
annað en hann hafi haft glögga
þekkingu á, að með uppurnum
gjaldeyrisvarasjóði var eina ráff
ið að koma slíku á aftur, þvi
þótt hægt sé um skamma stund
aff safna erlendum lausaskuld-
um, hverfur lánstraustið fljót-
lega þegar enginn gjaldeyris-
varasjóður er til.
íslenzku slúdentnrnir í 3. sæti
Syngur íslandi loff