Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967
HREINDÝRIN
ÞAÐ HEFUR verið auglýst í blöð
um og útvarpi að hreindýra-
veiðar hafi verið bannaðar á
því herrans ári 1967 og vekur
það furðu okkar Héraðsbúa
Aðalástæðan er talin vera lítil
fjölgun á stofninum.
Talning á hreindýrum fór fram
fyrir skömmu og fullyrtu taln-
ingsmenn að þeim hefði ekki
f jölgað nema um 165 dýr frá því
á s.l. ári. Það má vera að þetta
sé rétt, en þó vil ég leyfá mér
á’ð efast um nákvæmni tölunnar.
Það er rtokkuð undarlegt að dýr-
unum skuli ekki hafa fjölgað
meira en þetta, ef taldir hafa
verið 534 kálfar. Þá virðist vanta
frá því í fyrra 369 fullorðin
dýr. Það þættu slæmar heimtur
hjá bónda. Hvað veldur þessari
fækkun? Ekki var leyft að veiða
hreindýr s. 1. ár og þó það hefði
verið leyft hefðu tæpast verið
veidd fleiri dýr en 369, mfðað
við veiðiskýrslu hreindýraeftir-
litsmannsins frá árunum 1959 til
1964.
Eru ekki til skýringar á þessu
fyrirbæri.
Það tala sumir um að mikið
augnayndi sé að hreindýrunum,
sérstaklega, þegar þau eru komin
nálægt mannabyggðum, svo al-
menningur geti séð þau. Svo er
gaman fyrir okkar menningar
þjóðfélag að hafa þessar villtu
skepnur reikandi um öræfin og
til að halda við veiðimannastétt-
inni.
Við, sem þekkjum hreindýrin,
vitum að þegar þau sækja heim
til mannabyggða, eru þau ekki
að koma til að fá af sér mynd
í blöðin eða halda á sér sýningu
fyrir almenning, það er hungrið
og yfirvofapdi hordauði, sem
knýr — því sem næst — ör-
magna skepnurnar heim til
mannabyggða, þegar áfrerar
hafa kaffært hvert lífsbragð í
venjulegum gönguhögum.
Þannig hefur því margur
bóndinn, sem hefur haft haga af
skornum skammti fyrir fé sitt
úm vetur mátt horfa á þá al-
þakta hreindýrum einn góðan
veðurdag, og þau skilja ekki eft-
ir neitt, sem sauðfé getur nærzt
á. Síðan hefur bóndinn orðið að
taka búsmala sinn á fulla inni-
gjöf. Ég þekki líka þess dæmi
að bændur á Jökuldal hafa bori’ð
örmagna hreindýr til bæja til
að reyna að lífga þau við, en
þrátt fyrir góða hjúkrun hefur
það ekki borið árangur, þau
hafa undantekningarlaust drep-
izt.
Gæti nú ekki verið að einhver
hluti af þessum 369 dýnrm væri
í þessum kvóta.
Hvað segir Dýraverndunarfé-
lagið við þessu? Er það rétt að
friða þessi dýr og fjölga stofn-
inum til a'ð láta þau svo veslast
upp úr næringarskorti á útmán-
uðum? Mér er sízt í hug að fara
að deila á friðun dýra. Ég er
alinn upp í sveit og er dýravin-
ur. En er þetta ekki að skjóta
fram hjá markinu.
Síðastliðinn vetur voru mörg
hreindýr hér við Egilsstaði og
nágrenni. Þau höfðu sæmilega
haga og féll ekkert af þeim svo
ég viti, og menn töluðu um
hvað þau væru gæf og þökkuðu
það að ekki hefði verið skotið
á þau undanfarin ár. En ég held
að skýringin sé ekki sú. Það er
ekki eðli hreindýra að snúast
Stykkishólmi 28. júlí:
UNDANFARIN ár hefur ágang-
ur togbáta á Breiðarfjarðarmið
stöðugt farið vaxandi. í sumar
hefir keyrt um þverbak og hafa
togbátar bæði frá Snæfellshöfn-
um og anarsstaðar að stundað
togveiðar inn um allan fjörð, t.d.
sækja þessir bátar allt inn á
móts við Skor að norðan og inn-
undir Selsker að sunnan. Hér er
um að ræða síendurtekin land-
helgisbrot og þrátt fyrir marg-
ítrekaðar kærur og kvartanir
virðist lítið vera gert af hálfu
hin-s opinbera til að koma í veg
fyrir þau, eða láta þá brotlegu
sæta ábyrgð.
Á sl. hausti sendi mikill meiri
hluti útvegsmanna og sjómanna
á Snæfellsnesi sjávarútvegsmála-
ráðherra skriflega áskorun um
að vernda Breiðarfjarðarmið fyr
ir togveiðum.
Enn hefir þó ekki verið ráð-
in bót á þessu og tpgveiðunum
heldur áfram. Eru Snæfellingar
mjög gramir, sem vonlegt ,er
yfir því sem er að gerast á
þessu sviði, enda hér um að
ræða eitt af stærstu hagsmuna-
málum byggðarlagsins.
Ég hef talað við smábátafor-
menn hér í Stykkishólmi og ber
öllum sa-man um að þessi háska-
lega veiði megi ekki halda á-
fram, hel-dur verði tafarlaust að
kringum mannabyggðir og hér
á Úthéraði er enginn gróður,
sem hentar þeim. Ég er því mið-
ur hræddur um að mannaást
hreindýranna sé sprottin af
skorti.
Og sé litið á málin frá raun-
sæju sjónarmiði, þá er það aug-
ljóst að fá hrsindýr þurfa minna
a'ð borða en mörg hreindýr.
grípa í taumana. Ber þessum
mörtnum saman um, að þverr-
andi fiskafli í Breiðafirði sé að
verulegu leyti a-f völdum þeirr-
ar veiðiaðferðar sem hér hefir
verið lýst. Höskuldur Pálsson,
s-em um fjölda mörg ár hefir
stúndað sjóinn á vélbátum héð-
an úr Stykkishólmi, tók það
djúpt í árinni, að hanm taldi, að
ef þessu héldi áfram, sæi hann
ekki fram á anað en að verða
að hætta að sunda sjóinn á vél-
bát sínum, sem er ca. 6 tonna
trill-ubátur. — Fréttaritari.
Gro-u-tville, AP.
ALBERT J. Luthuli var jarðsett-
ur á sunnudag í Groutville í S-
Afríku, að viðstöddu-m þúsund-
um s-vartra Afríkuimanna, s-em
hrópuðu í sífe-llu „Uhuru —
(freiLsi)". Luthuli hlaut friðar-
verðlaun Nobels 1960 og síðan
var hann undir eftirliti Apari-
heids-tjórnarinnar í S-Afrítou.
Lisisabon, AP.
ENSKI kappakstursmaðurinn
Tim Cash lézt í kappakstri í
P-ortúgal á s-unnu-dag, er bifreið
hans af Merlyn-gerð hvo'fdi.
Carl-ois Gaspar frá Portúgal vann
keppnina.
^VÍSIRÍ
AFGREIÐSLA Afgreiðsla VÍSÍS er flutt úr Túngötu 7
að Hverfisgöt u 55
SÖLUBÖRN!
Komið í dag
að Hverfisgöt u 55
HVISIRI — - ===
Hákon Aðalsteinsson
Egilsstöðum.
Ágangur togbóla ó Breiðaijarðar-
mið ier stöðugt vaxandi
ÞRIGGJA DAGA ÞJÓÐHATIÐ IEYJUIVIíEó.Iagúst
Flugfélagið veitir 25% afslátt af fargjöldum til Vestmannaeyja
í tilefni af Þjóðhátíðinni 4-6 ágúst.
FLJÚGIÐ MEÐ FLUGFÉLAGINU Á ÞRIGGJA DAGA ÞJÓÐHÁTÍÐ í EYJUM.
Knattspyrnufélagið Týr éífW Flugfélag íslands