Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 32
FERÐA-Df! FARANGURS
ITRYGGING
'uj'
ALMENNAR TRYGGINGAR £
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967
RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA-SKRIFSTOFA
SÍMI 10-1DD
Loftleiðavélarnar hafa þótt nokkuð stórar og miklar um sig, en þær virðast þó smávaxnar hjá þessum nýja Douglas-risa, sem
getur flutt 250 farþega. Það er einmitt þessi gerð af þotum, sem Loftleiðir hafa mestan áhuga á.
Banaslys á Reykja-
víkurflugvelli
„Þakka þér fyrir að
koma og sjá okkur"
— heyrðist hvarvetna þar sem forsetinn
ræddi við gamla fólkið
NÍTJÁN ára stúlka beið bana á
Reykjavíkurflugvelii um klukk-
an hálffjögur í fyrrinótt, er hún
lenti í skrúfu flugvélar.
Plugmaður notkfcur hafði tefcið
á leigru eins hreyfils flugvél,
fjögurra sæta af gerðinni Cessna
172 Skyhawk, og hugðist hann
fara í hringflug yfir Reykjavífc
með þrjáir stúlkiur, sem hann
þekfcti. Hann ók vélinni út á
brautarendann til flugtafcs, en
þá bað ein stúlfcnanna þess að
fá að fara inn í flugstöðina áður
en ferðin hæfiist. Flugmaðurinn
ófc vélinni aftur til flugsstöðvar-
innar, og stöðvaði hreyfilinn.
Stúlkan fór út úr vélinni jafn-
sfcjótt og hún staðnæmdist, áður
en flugmanninum gæfist ráðrúm
til þess að hindra hana, og í
stað þess að ganga aftan við
vélina, beygði hún sig undir nef
hennar, með þeim afleiðingum,
að skrúfan, sem snerist enn, lenti
á höfði hennar og veitti henni
banahögg.
Nafn stúl'fcunnar er ekki unnt
að gefa upp að svo stöddu,
vegna þesis að ekki hefur náðst
til allra aðstandenda hennar.
Einkaskeyti til Mbl. frá Elínu
Pálmadóttur. Gimli, Man.
31. júlí.
FORSETI Íslands opnaði í gær
minjareit með steini þeim, sem
sagt er að fyrstu íslenzku land-
nemarnir í Nýja íslandi hafi
komið að á Willow-tanga árið
1867. Undir þessum steini fædd-
ist fyrsta barnið í nýlendunni.
Einnig afhjúpaði forsetinn stóra
víkingastyttu, er viðskiptamála-
ráðuneytið hefur látið reisa fram
an við elliheimilið íslenzka á
Gimili til minja um að fslenzikir
landnemar settuist þar fyrst að.
Forsetinn heimsótti bæði elli-
heimili Betels, hið ársgamla í
Selkirk og gamla elliheimilið á
Gimli, þar sem eru 160 gamal-
menni, flest af íslenzkum ætt-
um, að meðalaldri 86 ára.
manni Mbl. að hann vildi koma
þarna upp reglulega íslenzkum
stað, sem ferðamenn gætu heim-
sótt.
í dag er að hefjast íslend-
ingadagur í glampandi sólskini á
Gimli. Fjöldi manns hefur
streymt að frá fjarlægum stöðum
í Vestur- og Austur-Kanada. Ail-
ur staðurinn er skreyttur íslenzk-
um fánum. Forsetinn og fjaillkon-
an, Signý Eton, verða fremst í
sikrúðgöngu, er fer um bæinn.
Á laugardaginn opnaði forset-
inn Guttormisisafnið í Háskóla
Winnipeg og afhenti verðilaun
fyrir dýfingar karla af þriggja
metra bretti á samamerísfcu leik-
unum. Á laugardagsikvöld sat
forseti veizlu frímúrara af ís-
lenzfcum ættum.
Hogstætt veður,
en lítil veiði
í FRÉTTATILKYNNINGU, sem
Morgunblaðinu barst í gær frá
LIÚ, segir, að frá laugardegi til
mánudags hafi aðeins sjö skip
tilkynnt síldarafla, samtals 1570
lestir. Á laugardag tilkynntu
þessi skip afla til Raufarhafnar:
Helgi Flóventsson ÞH 80 lestir
óg Jörundur II RE 150 lestir. Á
sunnudag tilkynntu afla til Rauf
arhafnar: Fífill GK 230 lestir og
Vörður í>H 240 lestir, en til Dala
tanga Jón Kjartansson SU 470
lestir.
í fréttatilkynningunni frá þvi
í gær segir, að veður hafi venð
hagstætt á miðunum næstliðinn
sólarhring, þá tilkynnti Hamra-
vík KE um 300 lesta afla til
Raufarhafnar, en Súlan EA til-
kynnti um 100 lestir til Dala-
tanga.
Settur prófessor
Iensku
Mbl. barst í gær svohljóðandi
tilfcynning frá Menntamálaráðu-
neytinu:
Með lögum nr. 41/1966 var
stofnað prófesisorsemibætti í
ensfcu við heimspekideild Há-
isfcóla íslands. Embætti þetta var
auglýst laust til umsóknar og
hefur I. J. Kibby, lektor, verið
isettur prófeissor í ensfcu við
heimispökideild Hásfcóla íslands
till eins árs frá 1. júlí 1967 að
■telja.
Mega fjölga sjónvarps
starfsmönnum í 64
Sex daga sjónvarp ákveðið
1 FRÉTTUM Ríkisútvarpsins í
gærkvöldi var frá því skýrt, að
Ríkisútvarpinu hefði verið heim
ilað að fjölga starfsmönnum
Sjónvarpsins í 64.
Mbl. hafði samband við út-
varpsstjóra, Vilhjálm Þ. Gísla-
son og iinnti hann nánari frétta
af þessari heimild. Sagði útvarps
stjóri, að til þessa hefðu 40
manns verið fastráðnix hjá Sjón
varpinu, en starfandi menn þar
hefðu verið orðnir 51. Nú væri
heimilað að fastráða í þessi
störf og eins að fjölga starfs-
mönnum í 64. Sagði útvarps-
stjóri, að hér væri um að ræða
störf bæði í dagskrár- og tæfcni-
deild Sjónvarpsins, en flestir við
Hurður úrekstur
ú Akureyri
MJÖG hraður bílaárekstur varð
á mótum Glerárgötu og Þórunn
arstrætis kl. 17,25 á laugardag-
inn. Trabant bíll var á Jeið suð-
ur Glerárgötu á austari akbraut
og ætlaði að beygja til hægri við
gatnamótin yfir á vestari ak-
braut, en í því kom stór sex
manna fólksbíll af Keflavíkur-
flugveili á eftir honum og ætl-
aði fram úr. Lenti hann á hægra
afturhornj Trabantsins, sem lyft
ist upp, valt yfir á vinstri hlið,
siðan á toppinn og stöðvaðist
loks á hægri hlið . í honum voru
bjón með barn sitt.
í fyrstu var talið, að enginn
hefði meiðzt, en í gær kenndi
ökumaður Trabantsins einhvers
lasleika.
Keflavíkurbíllinn mun hafa
verið á miklum hraða og löng
hemlaför mældust. Ökumaður
viðurkennir 70 fcm á fclst., en 35
km hámarkshraði er leyfilegur.
Trabantinn var mjög illa far-
inn en litið sem ekkert sá á
stóra bílnum. Sv. P.
bótarmennimir yrðu þó ráðnir í
tæknideild. Störf þessi yrðu aug-
lýst næstu daga, sagði útvarps-
stjóri.
Þá gat hann þess ennfremur,
að nú hefði verið ákveðið að
fjölga útsendingardögum Sjón-
varpsins í sex. Ekki er fullkom-
lega ákveðið hvaða dagur verð-
ur frír af sjónvarpssendingum,
en það verður nær miðri viku.
Egilsstöðum, 31. júlí.
í GÆR var baldinn fundur í
Valaskjálf á Egilsstöðum að til-
hlutan Jónasar Haralz, forstjóra
Efnalhagssitofnunarinnar, tiil þess
að ræða samgöngumál. Fiíndinn
sátu stjórn Samlbands sveitarfé-
laga á Austurlandi, flestir þing-
menn kjördæmisins, Brynjólfur
Ingólfsson, ráðuneytiisstjóri, vega
verkfræðingur og vegaverkstjóri.
Jónas Haralz ferðaðist síðari
hluta vikunnar sem leið um
Austurland með vegaverkfræð-
ingi og ráðuneytisstjóra í sam-
göngumálaráðuneytinu til þess
að kynna sér ástand í vegamál-
um.
Fundurinn var haldinn til a@
kynnast skoðiunum forvígis-
manna á Austurlandi um sam-
göngumál og fyrst og fremst
vagamál.
Atvinnujöfnunarsjóður og
Efnaihaigsistofnunin eiga að gera
byggðaáætlandr ag landshlutaá-
ætlanir. Nú liggur fyrir að gera
,s amgönguáætlun fyrir Austur-
landskjördæmi. Jónias Pétursson,
alþingismaður, sem er í stjóm
Atvinnujöfnunarsjóðs, beittá sér
fyrir þvi, að forstjóri Efnahags-
„Þaikfca þér fyrir að fcoma og
sjá ofcfc/ur", heyrðist hrvarvetna,
er forsetinn ræddi við gamla
fólfcið, sem í margar vikur hafði
hlakkað til þessarar stundar.
Hápunktur dagsins var þó, er
George Johnson, menntamáilaráð-
herra, flaug með forseta og utan-
ríkisráðherra út í Mikley í Winni
pegvatni, þar sem allir eyjabúar
af íslenzikum ættum tóku á móti
þeim í hjartanlegri móttöku-
veizlu með pönnufcökum og rúllu
pylsum, en Johnson sagði frétta-
stofnunarinnar færi þessa ferð
til að kynnast af eigin raun á-
standi í vegamálum Austur-
lands.
Á fundinum var sfcipzt á skoð-
unum og var hann í heild mjög
gagnlegur. Er þess nú að vænta,
að rösklega verði tekið tii við
samgönguáætlun fyrir Austur-
land — Austurlandsáætlun í sam
göngumálum og þá fyrst og
fremst vegamálum. — Fréttarit-
ari. —
Mikið gras í
Breiðafjarðar-
eyjum
Stykkishólmi, 28. júlí.
MIKIÐ gras er nú komið í ailar
eyjar. í Flatey er óhemjugras og
jafmvel er fLugvöllurinn það loð-
inn að þungt er undir fæti fyrir
flugvélarnar sem þangað koma.
Verðuir mörgum er sér þetta
mikla hey, sem vitanlega fer floc
Framhald á bls. 31
Fundur f Valaskjálf
um samgöngumál
Nokkrir jarðskjálfta
kippir um helgina
NOKKRIR jarðskjálftakippir
fundust um helgina, að því er
Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta
fræðingur tjáði blaðinu í gær.
Mældust 20 jarðskjálftakippir á
mælum veðurstofunnar frá því
a föstudagskvöld og þar til í
gærmorgun, en eftir kl. 8 í gær
morgun mældust engir jarð-
skjálftar.
Snörpustu kippirnir mældust
kl. 2,21 aðfaranótt laugardags-
ins og kl. 12.45 á sunnudag. All-
ir áttu þessir kippir upptök sín
norðan og austan við Villinga-
holt.
Engir kippir mældust norðan-
lands yfi ■■ helgina, en frá veð-
urathugunarmanni í Grímsey
bárust fregnir um jarðhræringar
á milli kl. 3 og 3.10 aðfarp.nótt
sunnudagsins.
Magnús Gunnar ólafur Birgir
Héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins í Skjólbrekku á
Akureyri og ■ Skúlagarði
UM næstu helgi verða þrjú hér-
aðsmót Sjálfstæðisflokksins sem
hér segir:
Akureyri, föstudaginn 4. ágúst
kl. 21. Ræðumenn verða Birgir
Kjaran, alþingismaður og Ólaf-
ur B. Thors, lögfræðingur.
Skjólbrekku, laugardaginn 5.
ágúst kl. 21. Ræðumenn verða
Birgir Kjaran, alþingismaður og
Gunnar Sólnes, stud. jur.
Skúlagarði, sunnudaginn 6.
ágúst kl. 21. Ræðumenm verða
Birgir Kjaran, alþingismaður
og Magnús L. Sveinsson, skrif-
stofustjóri.
Skemmtiatriði annast Ómar
Ragnarsson og hljómsveit Magn
úsar Ingimarssonar. Hljómsveit
ina skipa Magnús Ingimarsson,
Alfreð Alfreðsson, Birgir Karls-
son og Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Söngvarar með hijómsveitinni
eru Þuríður Sigurðardóttir og
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur þar
sem hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar leikur fyrir dansi og
söngvarar hljómsveitarinnar
koma fram.