Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967 Ingibjörg Pálsdóttir - Minning t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Asgeir Auöunsson, Sörlaskjóli 48, andaðist að morgni sunnu- dagsins 30. júlí í Landakots- spítala. Jónina G. Jónsdóttir, Gunnar A. Ásgeirsson, Karen E. Ásgeirsson _______og bamabörn.___________ t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, Guðsteinn Ingi Sveinsson frá Selfossi, andaðist í Sjúkraíhúsi Kefla- víkur 30. júlí sl. Rannveig Skaftfells, synir, foreldrar og systkin hins látna. t Eiginkona mín, Olga Þórarinsdóttir, Laugamesvegi 76, Reykjavík, andaðist að Landakotsspítala 30. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björn Dúason og vandamenn. Á NORDURHVELI jarðar þrá- um við, sem hér búum, meira sól og birtu en þeir sem njóta hennar í ríkara mæli, og til'finn- ing ömurleikans kemur yfir okkur, þegar dregur fyrir sólu og kuldanepja færist að. Þannig varð mér við, er mér var sagt andlát mágkonu minnar Ingi- bjargar Pálsdóttur. Ég hafði tal- að við hana tveimur dögum áð- ur, þá glaða og hressa eins og venjulega. Þessvegna kom and- látsfregnin eins og kuldanepja yfir mig. Ingibjörg fæddist að Litlu- t Maðurinn minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, Magnús Jónsson, járnsmiður, Kambsvegi 14, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 3. ágúst kl. 13:30. Blóm og kranzar afbeðið. Elisabet Guðmundsdóttir, böm, tengdabörn og barnabörn. Reykjum í Hraungerðishreppi 17. febrúar 1926, dóttir hjónanna Vilborgar Þórarinsdóttur og Páls bónda Árnasonar, sem þar bjuggu. Ólst hún upp hjá for- eldrum sínum í stórum systkina- hópi til tvítugsaldurs, en þá gekk hún að eiga eftirlifandi eig inmann sinn Gísla Ágústsson, raf virkjameistara. Þau hófu búskap á Selfossi, en eftir skamma dvöl þar, fluttust þau til Vestmanna eyja, fæðingarbæjar Gísla, og dvöldu þaT í nokkur ár. Á þeim árum byggðu þau sér myndar- legt hús, en skömmu eftir að þau fluttu í það, leituðu þau til Reykjavíkur, því þar eygðu þau meiri atvinnumöguleika og betri afkomu. Núna seinustu árin hafa þau svo verið búsett í Kópavogi, en þar reistu þau sér fallegt hús að Kastalagerði 9. Þetta er í fáum orðum staxfs- saga þeirra hjóna Ingibjargar og Gísla, en tvær dætur eignuðust þau: Ingveldi 17 ára og Vilborgu 15 ára, sem báðar dvelja í for- eldrahúsum. Ég kynntist Ingibjörgu fyrir um það bil 20 árum, en ég vil segja, að núna síðustu árin hafi kunningsskapur okkar breytzt í vináttu, sem fór vaxandi við nánari kynningu, eftir að hún flutti hingað suður. Þá fór ég að sjá betur kosti hennar og læra að meta þá miklu góðvild og hjálpsemi, sem henni var svo eiginlegt að láta í té, en svo virtist sem hún hefði yndi af að hlaupa undir bagga og létta öðr- um störfin. Heimilið er sá hornsteinn, sem t Föðursystir mín, Signý Jónsdóttir frá Neðri-Hundadal, andaðist 27. júlí. Jarðarförin fer fram föstudaginn 4. ágúst, kl. 13.30 frá Fossvogiskixkju. Guðmundur H. Einarsson. t Benjamín V. Jónsson frá Súðavík, lézt 30. 7. á Elliheimilinu Grund. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 3. 8. kl. 10,30 f. h. Börn hins látna. t Útför mágs mínis og föður- bróður, Ingvars Elís Albertssonar frá Klukkufelli, verður gerð frá Fossvogs- birkju miðvikudaginn 2. ágúst kl. 10.30. Helga Jónsdóttir og börnin. t Þökkium innilega auðsýnda samúð og vinanhuig við and- lát og jarðarför Alberts Bjarnasonar, Túngötu 21, Keflavík. Lísbet Gestsdóttir, Bjami Albertsson, Ingibjörg Gísladóttir, Hinrik Albertsson, Ráðhildur Guðmundsdóttir, Hjálmar Guðmundsson, Sigrún Albertsdóttir, Edwald Bóasson. t Þökkixm auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginkonu, móður, tengda- móður og ömmu, Þórunnar Elísabetar Stefánsdóttur. Þorsteinn Júlíusson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Ársæll Þorsteinsson, Ragna Ágústsdóttir, Halldór Haraldsson, Helga Björgúlfsdóttir og barnabörn. t Innilega þöbkum við öllpm nær ag fjær, sem auðsýndu ofckur samúð og vinarhuig við andlát og jarðarför sonar okkar, Sveins Gíslasonar, Kýrholti. Jóna Sveinsdóttir, Gísli Bessason. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Magðalenu Brynjólfsdóttur, Háholti 30, Akranesi. Börnin. t Innilegustu þaklkir fyrir auðsýnda samúð við andlát Snorra Stefánssonar frá Stóru Gröf, Skagafirði. Böm, tengdaböm og barnabörn. t Alúðarfyllstu þakkir flytj- um við öllum þeim, sem auð- sýndu ofcfcur samúð og vin- áttu við andlát og jarðarför Ingileifar Eyjólfsdóttur, Steinskoti, Eyrarbakka. Eyjólfur Agústínusson, Daníel Ágústínusson, Anna Erlendsdóttir, Herdís Guðjónsdóttir, Úlfar Magnússon og bamabömin. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við útför konu minnar, móður, tengda- móður ag ömmu, Maríu Guðmundsdóttur. Bjami Pétursson, Lilja Bjamadóttir Bendizen og böm, Lára P. Bjarnadóttir og Eggert Jónsson og böm, Elínborg og Erik Ingvarsson, böm og bamaböm.__________ t Innilegar þakkdr fyrir auð- sýnda samúð og vinaxhiug við andlát og jarðarför Helga Guðbrandssonar, Fossá í Kjós. Aðstandendur. hvert þjóðfélag stendur á, og á heimilunum fáum við þann þroska, sem okkur endist bezt í lífinu. Hvert heimilí er fyrst og fremst verk konunnar og bsr henni vitni til góðs eða til hins verra. Heimili Ingibjargar og Gísla hafði yfir sér þann hlý- leikablæ, sem býður gesti vel- komna og lætur þeim líða vel. Heimili Ingibjargar var sannar- lega vitnisburður um góða konu, sem hafði ánægju af að láta öðr um líða vel í návist sinni. Þó hérvistardvöl Ingibjargar yrði ekki lengri og manni finnd- ist að hún væri kölluð burtu frá hálfunnu starfi, þá skilur hún eftir minningu, sem varpar ljóma á skugga þann, sem nú hefur dregið yfir. Ég vona svo að minningin um góða eiginkonu og ástríka móð- ur, veiti Gísla og dætrunum tveimur styrk til þess að stand- ast sorgina, sem nú hefur steðj- að að. G. Ág. SYSTUR-KVEÐJA SÓLIN hellti geislum sínum yfir Suðurland, og blómin réttu fram krónur sír.ar. En allt í einu kom kaldur gusttir og dimm ský byrgðu himininn. Það kom haust um leið og hún systir mín dó, við stöndum eftir, fátæk og smá. Hjartkæra systir mín mig lang- ar að þakka þér með nokkrum fátæklegum orðum allt sem þú hefur gert fyrir mig og fjöl- skyldu mína. Fyrir allar okkar gleðistundir, sem við höfum átt saman og eins ef eitthvað á móti blés, varzt þú alltáf öruggt at- hvarf. En ég finn það bezt núna að við höfum aldrei haft ástæðu til sorgar fyrr. Nú er sólin sem þú elskaðir svo heitt farin að skína á ný til merkis um, að við eigum að þakka guði fyrir að þú sem varzt svo lífsglöð og dug- mikil, skyldir fá að hverfa ein- mitt svona snögglega án þess að þurfa að þjást lengi því það var á móti þínu eðli að kvarta nokkurn tíma. Þú sem ert köll- uð fyrst úr okkar hópi, elsku Imba mxn, munt taka á móti okkur þegar stundin kemur, því þitt heimili og þínar útréttu kær leikshendur biðu okkar ætíð hér, hjá þér vildu allir gista. Þess vegna veit ég að við munum aldrei þurfa að kvíða neinu. Guð styrki okkur öll og gefi þér blessun sína. Stefanía. STUNDUM slær ljár dauðans svo snöggt og óvænt, og þar sem sízt skyldi, að við stöndum höggdofa og efumst að þetta geti átt sér stað, að örlögin geti ver- ið svo miskunnarlaus að kannske lítið barn, ungur maður eða eins — eins og nú í þessu tilfelli — ung kona er hrifin burt mitt í önn dagsins frá ástríkum eigin- manni og tveimur dætrum á ung lingsaldri. Þegar ég kveð vinkonu mína, Ingibjörgu Pálsdóttur, er mér efst í huga þakklæti fyrir dá- samlega viðkynningu og aðdáun á hennar mörgu, góðu hæfileik- um. Kringum hana var alltaf hressandi blær dugnaðar og glaðlyndis, svo að allir fóru af hennar fundi glaðari í siirni. Ingibjörg var af góðu bergi brotin í báðar ættir, en foreldr- ar hennar voru hjónin Vilborg Öfjörð og Páll Árnason, bóndi á Litlu-Reykjum í Flóa, bæði dugn aðar- og mannkostafólk. Ingi- björg fæddist 17. febr. 1926 og ólst upp í foreldrahúsum í stór um systkináhópi og veit ég að þar hefur oft verið glatt á hjalla. Árið 1949 giftist Ingibjörg eftir- lifandi manni sínum, Gísla Ágústssyni, rafvirkja, ættuðum úr Vestmannaeyjum og þar bjuggu þau fyrstu búskaparárin og eignuðust þar tvær elskuleg- ar dætur, sem nú eiga á bak að sjá ástkærri móður. í Vestmanna eyjum bjuggu foreldrar Gísla og þau mátu tengdadóttur sína mik ils, enda var hún þeim alla tíð sem bezta dóttir. Árið 1958 fluttust þau Ingi- björg og Gísli til Reykjavíkur og byggðu sér síðar fallegt hús að Kastalagerði 9, Kópavogi, og hafa átt þar yndislegt heimili síðustu árin. Það var alltaf sér- staklega skemmtilegt að heim- sækja þau hjónin. Þar ríkti gleði, góðvild og samheldni. Ingibjörg var listræn og smekkvís og bar heimili þeirra þess gott vitni. Hún vildi hvers manns vanda leysa og naut þar sem annars staðar síns góða eiginmanns. Hennar er nú sárt saknað af eiginmanni, dætrum og stórum ástvinahópi og bið ég þess að góður Guð gefi þeim öllum styrk í þessari miklu sorg. — I. P. Vinabær barna í Gladsaxe Kaupmannahöfn, 28. júlí, NTB — Opnaður var opinberlega í dag alþjóðlegur vinabær barna í Gladsaxe, sem ætlað er að stuðla að auknum samskiptum og skilningi þjóða 1 milli. Þátt- takendur eru ellefu ára börn frá ýmsum löndum og vinabær- inn verður í Gladsaxe til 8. ágúst. „Friðarpostuli" hanðtekinn. Tel Aviv, 28. júlí, NTB — Sjálf skipaður „friðarpostuli" Israels- rikis, Abie Nathan, var hand- tekinn í dag, föstudag, er hann lenti lítilli einkaflugvél sinni I Tel Aviv eftir mjög augljóslega misheppnaða tilraun til að reyna að fljúga til Egyptalands að hitta að máli Nasser forseta. Þetta er í annað skiptið sem Nathan reynir slíkt, hið fyrra var í febrúar í ár. Vandamönnxxm mínum og vinum, fjær og nær, sam glöddiu mig á margvislagan hátt á srjötugsafmæili mínu, 22. júlx síðastliðinn, færi ég míniar hjartans þákkir. Sigriður Ögmundsdóttir. Hjartanlega þakka ég böm- um mínum ag öðr.um ættingj - um og vinixxm, sem á ednn eða annan hátt glöddu mig á 75 ára afmælinu, 26. júlí sl. og gerðox mér daginn ógleyman- legan. Guð blesisi ykkxxr öll. Ólöf Gísladóttir. Þöktoum innilega Kirkjiufeór LágafeRssóknar, Mosfellsisveiit og sóknarpresti, eimnig Þórði Guðlmundissyni og frú Freyju Nordalh, ennfremur frú Mar- gréti Siguriðardóttxir og manni hennar, Andrési Guðnasyni, fyrir raiúsnarlegar og alúðleg- ar móttökur síðas tliðdnn sunnudaig, Ihinn 23. þ. m. Þessi dagur verður ofckur öllxxm ógieymanlegur. Með kæiri kveðju, Sandgerði 28. 7. 1967. Kirkjukór Hvalsneskirkju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.