Morgunblaðið - 01.08.1967, Side 5

Morgunblaðið - 01.08.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967 5 Rimur voru heilli þjoð í kröppum kjörum almennt viðfangsefni — segir Sigurður Nordal í inngangs- erindi nýs heftis af Biblio graphy of Old Norse-lcelandic Studies „Leirburðarstagl og holta- þokuvæl fyllir nú breiða byggð með aumlegt þvaður, bragðdaufa rímu þylur vesall maður“. Fyrirsögn hefði ein- hvemtíma þótt, að þess- um ljóðlínum yrði snúið á erlent mál, en nú hefur það gerzt. Snjallir menn í University College í Lon- don hafa snúið þessum lín- um á enska tungu, þannig: „A barren babble echoes the wide dales through, muffled kind of sound and poetaster’s fumble, as some poor wretch in- tones a rímur-jumble“. Þessa þýðingu er að finna í BONIS, nýju hefti af Biblio- graphy of Old Norse-Iceland- ic Studies 1966, sem Mbl. hef- ur borizt. í þessurn fjórða ár- gangi ritsins er inngangsgrein fyrirlestur Sigurðar Nordals prófessors um rímur og lausa- vísur, sem hann flutti á fundi Rímnafélagsins 1958. Eins og nafn ritsiís ber með sér er það á ensku og hafa þeir Pet- er Foote, forstöðumaður Uni- versity College í London og Richard Perkins, lektor við sömu stofnun, snúið fyrirlestr inum á ensku. í ensku þýð- ingunni hefur Jón Samsonar- Dr. Sigurður Nordal. son, lektor, baett við neðan- málsathugasemdum og til- vitnunum. í fyrirlestrinum rekur Sig- urður Nordal sögu rímna- kveðsfcaparins og víkur að gildi þeirra fyrir aðrar og síð- ari bókmenntir. Segir hann í því sambandi: „Mönnum hætt ir stundum við að gleyma því, að það er ekki einungis gæði bókmennta, sem skipta máli, heldur líka megin þeirra. Þær öldur, sem rísa hæst í listinni, eiga sér einatt breið- an og djúpan grunn í iðni og áhuga, iðnaði og ástundun fjölda manna, sem aldrei vinna sér nein fullkomin af- rek til ágætis. Og þegar við sjáum svart á hvítu sundur- liðaða skrá yfir þá þúsund rímnaflokka, eða hvað þeir nú eru margir, sem ortir hafa verið á íslandi, þá er ég illa svikinn, ef menn geta annars staðar í veröldinni fundið á- þreifanlegra dæmi þess, að ein tegund bókmennta, án þess að nokkuð sé þrefað um listargildi hennar, hafi verið heilli þjóð, í kröppustu kjör- um, svo almennt viðfangs- efni og daglegt brauð öld eft- ir öld“. Um ferskeytluna segir pró- fessor Sigurður Nordal síðar í fyrirlestrinum: „Hinu er sjaldnar gaumur gefinn, hvað sum höfuðskáld síðari alda hafa lært af rímunum og hversu þeim stundum hefur tekizf sérstaklega upp í fer- skeytlum. Hallgrímur Péturs- son þjálfaði sig til þrautar í rímnasmiðjunni, með því að yrkja jafnvel heila rímu í sléttuböndum, og getur efcki leikið vafi á því, að honum hefur verið allt bundið mál, hvort sem var andlegs eða veraldlegs efnis, auðveldara viðfangs eftir en áður. Eða er það ekfci athyglisvert, að sjálf ur Jónas Hallgrímsson skuli fremur grípa til ferskeytlunn- Dr. Halldór Halldórsson. ar en nokkurs hinna erlendu hátta, sam hann kunni, þegar hann yrkir Stökur, Eniginn grætur íslending, sem ef til vill eru runnar dýpra af hjartarótum hans en nokfcurt annað kvæði?“ Um yngstu skáldin segir: ,Úr því að ég minntist á yngstu skáldin, sem mörgum heiðursmönnum finnst nú vera mikil vandræðabörn og vonarpeningur, þá er ekki úr vegi að geta þess, að í öllu sínu trúleysi, agaleysi og rím- leysi eiga þau sér samt einn spámann og leiðtoga, sem þau öll lúta, Stein Steinarr, — og hann er rímnaskáld.“ (Til- vitnanir eru hér teknar sam- kvæmt ísl. útgáfu fyrirlestr- arins, Rvik 1959). Bibliography of Old Norse- Icelandic Studies er gefin út af Muntosgárd í Kaupmanna- höfn. Aðalritstjórar verksins eru tveir af ritstjórum Orða- bókar Árnasafns, þeir Hans Bekker-Nielsen og Thorkil Damsgaard Olsen, sem hafa unnið verkið í samvinnu við Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn. Aðstoðarrit- stjórar eru auk þsssara tveggja fleiri Danir, en einnig vísindamenn frá öðrum Norð- urlöndum, þeir Halldór Hall- dórsson, prófessor, Ludvig Holm-Olsen, prófessor í Berg- en, Dag Strömback, prófessor í Uppsala, Palle Birkelund, bókavörður í Kaupmanna- höfn, Morten Ruge, bókavörð- ur í Kaupmannaihöfn, Chr. Westergárd-Nieken, prófessor í Árhus og Ole Widding, aðal- ritstjóri Orðabókar Árnasafns. Eins og nafn ritsins bendir til er þar að finna skrá yfir rit um norræn fræði, sem út hafa komið á síðasta ári. Taldar eru upp 17 borgir í tveimur heimsálfum, sem út- gáfustaðir, er sérstaklega sé fylgzt með, en þess jafnframt getið, að fylgzt sé með nor- rænum fræðum í miklu fleiri stöðum. Umgetin rit í þessum árgangi eru 486, en þesis ber að geta, að þar eru taldair eins'takar greinar í öðrum rit- um og bókum, t.d. koma þar tii marga.r greinar í því bindi af Kulturhisitorisk lexikon for nordisk medeltid, sem kom út á árinu. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvert gagn er að riti sem Bibliography of Old Norse-Icelandic Studies. Það er ómisisandi öllum þeim, sem eitthvað fást við rannsóknir í norrænum fræðum og hér á landi þar sem áhugi á forn- norrænum efnum er jafn al- mennur og raun ber vitni, hlýtur rit sem þetta að vera sérstakur aufúsugestur. Þesis skal getið að lokum, að nýir áskrifendur geta snúið sér til Hans Bektoer-Nielsen, Den Arnamagnæanske Kom- missions Ordbog, Proviant- gárden, Christians Brygge 8, Kþbenhavn K, Danmark. j.h.a. Hugleiðingar um Reykjavík, 23. júlí. — í til- efni af ritstjórnargrein í blaði yðar í dag leyfi ég mér að senda yður eftirfarandi hugleiðingar um málefni Þingvalla: Flestar þjóðir eiga sér staði, sem eru þeim kærir af söguleg- um eða trúarlegum ástæðum. I mörgum löndum er að finna staðí, sem þykja bera af um náttúrufegui'ð. Hér á íslandi tengist þetta tvennt saman á Þingvöllum. Það er því ekki óeðlilegt að Alþingi hefur með lögum gert staðinn „friðhelgan helgistað allra íslendinga“. En kunnum við að umgangast þennan helgistað? Vitum við hvað við viljum í þeim efnum og í hverju helgin á að koma fram? Kirkjur hafa ytri sem innri einkenni um helgi sína, en helgin á Þingvöllum er enn sem komið er fyrst og fremst hugtak úr íslendingasögunni, sem skortir allt ytra form. Ég get tekið undir naúðsyn þess að reisa litla, fallega kirkju á staðnum, en að öðru leyti, ef það er vilji þjóðarinnar að þarna sé „alvöru" þjóðgarður, er sannarlega óæskilegt að írek- ari byggingaframkvæmdir eigi sér þar stað umfram það sem orðið er. Jafnvel mætti hugsa sér að leggja þá kvöð á sumar- bústaði þá, sem illu heilli hafa verið leyfðir innan þjóðgarðs- ins, að forsætisráðuneytið, sem ber ábyrgð á málum staðarins, fái forkaupsrétt. að þeim og þeir verði þannig smám saman tekn- ir úr ábúð og fjarlægðir. I dag við umræður um Þing- velli á betur við mál fólksins en skáldanna, því sannleikurinn er sá að málefni Þingvalla eru í megnasta öngþveiti og öll um- sjá staðarins þarf að komast í annan og heppilegri farveg. A ég þar ekki við störf séra Eiríks, sem af stakri góðvild er tilbúinn að leysa hvers manns vanda á öllum tímum dags. Á hverju sumri streyma ís- lendingar og aðrir þúsundum saman úr sveit og borg til Þing- valla til að njóta þar þeirrar sérstæðu náttúru, sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Sumt af þessu fólki fer til gistihússins að Valhöll og kaupir sér veit- ingar og lætur þar við sitja, en langflestir staðnæmast í fallegri laut við tjaldið sitt og nesti og dvelja þar lengur eða skemur, ofc heilar fjölskyldur. Nauðsynlegt er að gera ráð- Þingvelli stafanir til að koma til móts við þetta fólk, t. d. með því að: Ráða eftirlitsmenn, er klædd- ust snyrtilegum einkennisbún- ingi og sem gætu hvorttveggja, veitt upplýsingar um sögu stað- arins og haldið uppi eftirliti með hreinlæti, gróðri, veiði o. s. frv. Láta gera afmörkúð bílastæði með vissu millibili þar sem hægt væri að geyma bíl um lengri eða skemmri tíma. Leggja litla gangstíga, sem gerðu fólki kleift að íá sér gönguferð um þjóðgarðinn. Slík- ir síígar mundu opna marga fagra útsýn og gera ferð til Þing- valla eftirminnilegri. Tekið verði alveg fyrir að stunduð sé netaveiði í „Þjóð- garðinum“ af aðilum, sem greiða hvort sem er ekkert fyrir það, svo að fiskurinn komist upp að landinu til fólksins, sem stend- ur' á vatnsbakkanum og greitt hefur kr. 50,00 fyrir daginn. Sanngjarnt sýnist ennfremur að fé það, sem inn kemur fyrir veiðileyfi verði notað til fiski- ræktar í vatninu. Skyldur yið Þingvelli eru því við fólkið, sem vitjar Þingvalla og að finna það ytra form á alla umgengni á staðnum, sem hæfir helgi hans. En á meðan fólkinu i Vatns- koti helzt uppi a’ð torvelda mönnum ferðir um þjóðgarðinn með vegatálmunum og sendir síðan hóp unglinga til að setjast að fólki sem brýtur boðorð þeirra, þá er ekki hægt að tala um „friðhelgan helgistað allra íslendinga“ né vert að hafa hátt um hjartslátt íslands og vöggu þingræðisins. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Guðmuðidur Árnason. Argentína flytur inn hveiti. Buenos _Aires, 31. júlí NTB: ARGENTÍNA, eitt mesta hveiti- ræktarland heimsins, sem árið 1965 filutti út jafnmikið hveiti og Kanada og Ástralía, býr nú við yfirvofandi hveitistoorti. Er þetta stjórninni mikið áfall og hefur landbúnaðarráðherrann sagt af sér, en landsmönTium er heitið nægum innflutningi hveit- is til þess að ekki verði skort- ur á því. Talið að til þess muni þurfa milli 50 og 100 þúsund lest ir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.