Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 24
r 24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUB 1. ÁGÚST 1967 Sól og sumar á ný — En er þá ekki eitthvað sem er betra en annað? — Það er náttúrlega skást að gróðursetja í Heiðmörk, en hér er maður að reita arfa allan daginn. Og af því mér þótti þessar umræður ekki mjög ákjósan- legar í blaðaviðtal, kvaddi ég stúlkurnar, en snéri mér að öðrum, sem enn voru að vinna á vegum Skógræktar- innar og segjast eiga að fylgj ast með starfi hinna yngri, sem eru í unglingavinnunni. og spurði þær því um stúlk- urnar, sem ég var nýbúin að kveðja. — Þær, já, þær eru mjög duglegar. — Mjög duglegar, en ó- ánægðar með starfið, hvern- ig getur það farið saman? En þessar stúlkur hristu bara höfuðið yfir spurning- unni, höfðu engan áhuga á þvílíkum vangaveltum í sól- skininu og því þá líka að eyði leggja áhrifin frá góða veðr- inu með slíku. Þegar hér var komið sögu hafði ný stúlka bætzt í hóp- inn, Bergþóra, sem einnig hafði þarna stjórn á hendi. Allar voru stúlkurnar ánægð ar með starfið, og þá auð- vitað einkum í sól‘, sögðu þær, og hver skilur það ekki? — En vinnið þið lika í roki og rigningu? — Nei, ekki í rigningu, annars yfirleitt. Og það er unnið yfirleitt í görðum Reykjavíkurborg- ar og meira að segja líka í roki. TILBOÐ óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða til sýnis fimmtudaginn 3. ágúst 1967, kl. 1—4 í porti bak við skrifstofu vora Borgartúni 7: Vauxhall Velox, fólksbifreið árgerð 1964. Taunus Transit, sendiferðabifreið, árgerð 1963. Austin, sendiferðabifreið, árgerð 1963. Austin seven, sendiferðabifreið, árgerð 1962. Chevrolet, pick up., árgerð 1958. Ford Gal, fólksbifreið, árgerð 1961. Land Rover, jeppabifreið, árgerð 1964. Ford, langferðabifreið, árgerð 1951. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, sama dag kl. 4.30 e.h. að viðstöddum bjóð- endum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS. SÓL OG SUMAR var kom- ið á íslandi á ný eftir norð- anrosann og garðvinnan haf- in af fullum krafti eftir frí- dagana. Þennan dag, sem var með heitari dögum ársins, vann hópur stúlkna við vinnu sína á vegum Reykja- víkurborgar í görðunum við Miklutraut. Blaðamenn Mbi. bar þar i.S þegar klukkan var hálf þrjú og sáu sér til mik- illar furðu, að nokkrar stúlkn anna voru á heimleið. Að- spurð sagði ein a+ eldri stúlk unum, sem á að fylgjast með þeim yrgri, að þær hefðu ver ið svo duglegar þessar í dag og því tengju þæi að fara heim dálítið fyrr. —Er þá ekki unnið lengur en til þrjú hjá ykkur? — Nei. — Þessar, sem voru á för- um heim heita Svala, Ragn- heiður, Sylia og Ósa. Þrjár þeirra eru í Kvenr.askólanum ein í Hliðaskólanum. — Hvernig líkar ykkur í garðavinnunni? — Alveg ferlegt. — Hvað er að? — Það er bara allt, sagði ein þeirra kæruleysislega, — þetta er alveg ömurlegt. Mað ur stendur þarna kengboginn allan daginn fær verk í bakið og stirðnar allur, og kaupið maður! — Hvernig er borgað? — Ula, maður, tímakaup, svo að maður fær ekkert, þeg ar rignir. — Svo þið ætlið að sækja um þessa vinnu næsta sum- ar? — Nehei, alveg ábyggilega ekki. „Skyldi maður mega slappa af við og við“. Frá vinstri Hrafnhildur Sigríður og Guð- björg. Svala, Ragnheiður, Sylla, og Ósa, voru að fara heim og vilja frekar gera eitthvað annað en að vinna í görðunum. Við vinnuna. Jórunn og Bergþóra (tii hægri). ÍAMES BOND James Bond I B IT MUIFIEMN6 * DMWINC BY JOHN MctUSXI J 'OHD POUHeD MMÍ6LFA ÞRtNK ND WAITED UN6ASILY. TUE _ GLOOM OF 60LDFING6DS NOUSt GOT ON HtS NERVES. AND TNEN. IAN FLEMING Bond hellti sér í glas og beið órólegur. Drunginn yfir heimili Goldingers fór í taugarnar á honum. Þá . . . — Gott kvöld, herra Bond. En hvað það var vingjamlegt af þér að koma með svona stuttnm fyrirvara. — Heimboð þitt kom mér skemmtilega á óvart. — Ég verð að biðja þig að hafa mig af- sakaðan í hálftíma eða svo. Einn af kór- esku þjónunum minum lenti í smávand- ræðum. En ég ætla að kveikja áður en ég fer. Undarlegt, hugsar Bond. Hann skilur mig einan eftir af ásettu ráði. Hvers vegna? Og öll þessi Ijós — hér er allt roða slegið eins og í kvikmyndaveri. Skópokarnir vinsælu HWJOIIK Laugavegi 33 - Sími 19130

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.