Morgunblaðið - 01.08.1967, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.08.1967, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1967 KR Reykjavíkurmeistari — eftir nauman sigur gegn Fram 1-0 KR-INGAR urftu Reykjavíkurr meistarar í knattspyrnu, en þeir sigruðu Fram með einu marki gegn engu á Melavellinum í gær kveldi. Leikurinn var fjörugur og bauð upp á aragrúa spenn- andi augnablika. Ekki verðlur sagt að úrslitin gefi rétta hug- mynd um gang leiksins, því að titillinn hefði alveg eins og ekki siður getað lent hjá Fram. En eins og oft áður var gersamlega loku fyrir það skotið, að Fram- arar gætu nýtt tækifæri sín, þó þeir fengju þau oft og tíðum færð á guildiski, ef svo má að orði komast. Það var Baldvin Baldvinsson sem skoraði hið þýðingamikla mark KR-inga á 38. mínútu fyrri hálfleiks. Eyleifur lék einin upp miðjuna og er hann kom á móts við vítateiginn sendi hann knött inn til Baldvins, sem stóð einn og óvaldaður innan vítateigsins, og skaut hann föstu skoti fram- hjá Hallkeli, markverði. Fram að markinu hafði leikur- inn verið mjög fjörugur og oft og tíðum ágætiega leikinn af báðum liðum. Bæði liðin áttu ágæt tækifæri, en Framarar þó öliu fleiri, sem lentu flest í hönd um Guðmundar markvarðar KR. Kom hann mjög við sögu í þess- um leik og sýndi gáða mark- vörslu hvað eftir annað. Geta KR-ingar þakkað honum öðrum fremur sigurinn, og er það mik- ill styrkur fyrir liðið að hafa fengið hann aftur til leiks. Meginn hluti síðari hálfleiks mátti heita einstefnuakstur fyr- ir Fram og hvað eftir annað skapast gífurleg hætta við mark KR. Á 3. mínútu átti Grétar t.d. skalla að marki, sem Guðmund- ur varði naumlega, og á 10. mín. kemst hann einn og óhindraður inn fyrir varnarvegg KR, en Guð mundur bjargar glæsilega. Fleiri gullin tækifæri áttu Framarar, sem þeir glopruðu út úr höndun- um fyrir hreinan klaufaskap. Fyrstu 30 mín síðari hálfleiks áttu KR-ingar aðeins eitt gott tækifæri, en það var á 21. mín er Baldvin komst einn inn fyrir varnarvegg Fram og renndi knettinum naumlega framhjá. Síðustu 10 mín tóku KR-ingar góðan sprett, og komst Fram- markið þá í nokkur skipti í hættu, og m.a. bjargaði Ólafur Óiafsson einu sinni naumlega á marklínu. Þrátt fyrir þá staðreynd að Framarar töpuðu leiknum getur varla neinum blandast hugur um það, að þeir voru sterkari aðil- inn í leiknum. En á hinn bóginn skortir liðinu tilfinnanlegf mann, sem getur rekið endahnút á oft ágætlega útfærð upphlaup þeirra, því að án hans verða titl- arnir torfengnir. KR-ingar mega vel við þessi úrslit una, og er vonandi að þessi sigur lyfti liðinu upp úr þeim öldudal, sem það hefur verið síð ustu dagana. Og það er vissulega sálrænn styrkur fyrir liðið að hafa fengið Guðmund Pétursson aftur til leiks, því að hann sann- aði það enn einu sinni í þessum ieik, að öruggari og betri mark- vörður er vandfundinn hér á landi. Ennfremur ættu áhorfend ur að gefa hægri bakverðinum Halldóri gaum, því að hann á vafalítið eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. — bvs. Verða 4 íslandsmet sett á móti Sundsambandsins í kvöld? SUNDSAMBAND íslands gengst fyrir sundmóti í nýju sundlaug- inni í Laugardal í kvöld kl. 8. AlJt fremsta sundfólk okkar verður meðal keppenda, þar á meðal öll þau, sem taka þátt í Norðurlandamótinu í Danmörku núna um miðjan mánuðinn og ennfremur þau, sem fara á Evr- ópumeistaramót unglinga, sem haldið verður i Svíþjóð fáeinum dögum síðar. í kvöld verður keppt í átta greinum karla og kvenna svo og í tveimur boð'sundum. Búizit er við að nokkur ný Islandsmet verði se<tt, svo sem í 200 metra skriðsundi og 200 metra fjór- eundi karla og í 400 metra skrið- siundi og 200 metra baksundi kvenna. í 200 meitra skriðsundi mætast þeiir Guðmunduir Harðarson oig Guðmiundiur Gislason, en þeir eiga meit í þessari grein í sam- einingu. Það er í bæði skiptin sett í lítilld laug — Guðmundur Harðarson setti met sitt í febrú- ar en Guðmundur Gíslason jafn- aði það í apríl. Er þetJta þvi í fyrsita skipti sem þeir nafnar keppa í 50 metra lauig. Þá eir jafnvel búizt við að Guðmundur Gíslason muni bæta met sitt í 200 metra skriðsundi. Gent er ráð fyrir hairðcri keppni í 400 metra skriðsundi. Þar er meílhafinn 13 ára stúlka frá Sel- fossd, Guðmunda Guðmundsdótt- ir að nafni. Hún syndir nú í 3. eða 4. skipti í 50 metra laug, og mótherjd hennar er Hrafnhildur Kriistjánsdóttir, sem áður áltti metið í þessari grein. Sigrún Sig- geirsdóftir ihefur vart synt 200 metra baksund svo að undan- förnu, að hún hafi ekki setit nýfit met, og er ekkert því til fyrir- stöðu að svo verði enn í þeitta sinn. Paul Wilson nemi í háskóla S-Kaliforníu fer hér yfir 5.384 m. í stangarstökki, en það er nýtt heimsmet í stangarstökki. Gamla metið var 5.358 m. og átti það skólabróðir Wilsons, Bon Seagren. Metið var sett 23. júní sl. Tekst Akurnesingum aö forða falli? Sigruðu Keflvíkinga 1-0 í tilviljunarkenndum leik SKAGAMENN sigruðu í Kefla- og Keflavíkur var fjörlega lelk- vík á sunnudaginn. Ennþá er inn og fjöldi marktækifæra hjá þvi ekki útséð um hvaða lið stíg báðum Iiðum, gerði leikinn ur hið þunga skref niður í 2. spennandi og skemmtilegan fyr- deild i haust. Leikur Akraness ir áhorfendur. \ Skagamenn áttu tvö stangar- skot, en Keflvíkingar gerðu be+- Fram - Valur 20-16 SL. laugardag var leikinn einn leikur í íslandsmótinu í útihand knattleik karla. Fram vann Va: með 20 mörkum gegn, 16. í kvennaflokki vann Valur ÍBK og Ármann vann Breiðablik með 9 mörkum gegn 6. Boðið til keppni í golfi UNGLINGADEILD Golfklúbbs Reykjavíkur bíður öllum ungl- mgum ,í Reykjavík ög annars staðar, sem golf leika, til „op- innar“ 18 holu keppni með og án forgjafar. Keppnin hefst á Grafarholtsvelli kl. 18, miðviku- daginn 2. ágúst. 19 ÁRA Rússi, Alexander Gordejev, setti í gær nýtt Evrópumet í 100 metra flug- sundi í Moskvu. Tíminn er 58,5 sek. Ahorfendur inni á velllnum og ósamstæðir búningar NÚ hafa öll lið er taka þátt í meistaraflokki karla í íslands mótinu í útihandknattleik komið fram á sjónarsviðið. — FH hcfur unnið tvo fyrstu leiki sína með yfirburðum, en með i þeim riðli eru KR, ÍR og Víkingur. Ætla má að íslandsmeisturunum verði létt ur róðurinn til úrslita í riðlin- um. I hinum riðlinum er keppnin jafnari, en þar keppa Valur, Haukar og Fram. Bæði Fram og Hukar hafa nú unnið Val. Haukar með nokkrum yfirburðum en Fram með að- eins þriggja marka mun, eftir yfirburði í fyrri hálfleik. Lið Fram virðist einna sigur- stranglegast í þessum riðli, enda mun það hafa æft mjög vel að undanförnu með tilliti til Evrópubikarkeppninnar. — Annars má búast við spenn- andi og jöfnum leik þeirra við Hauka. Mótið fer nú í fyrsta skiptá fram á malíbiikuðum vielli, svo- kollaðri „skólamöl" í Hafnar- firði. Leiðir það af séir, að leikirnir eru mi'klu skemmti- legri oig keimlíkari innilhand- knattileik en meðan leikið var á igra'svelli. Er ekki annað að sjá en þessi tilraun muni vel takast. Það vekur hinsrvegar at- hygli, að álhorfendasætin og stæðin eru alveg fast við voll- in,n og ógirt frá honum. Er því ekikert einsdæmi að sjá nokikra krakka vera hlaup- andi á vellinum í meðan á lieifc stendur, og í leik Fram og Hauka bar það hvað eifltir annað við, að maður sá, er sá um innáskiptimgu fyrir Fram- ara gekk langt inn á völlinn, án þess að dómairi befði nofck- uð við það að atihuga. Ætti að vera au'ðvelt fyrir fram- kvæmdanefnd mótsine að lag- færa þetita, t.d. með þvi að girða völlinn af með snúru og vonandi verðuir búið að kippa þessu í lag fyrir næsta leik. Þá hafa verið gagnrýndir búningar leikmanna oig það með réttu. ísia n dsm eist ara,r PH hiafa hingað til leikið í æf- ingabúningum sinum, og finnsf manni fara heldur illa á því. Málsbætur eiiga þeir þó í því að búningarnir eru allir sametæðir. Það sker sig hins'Vegar mikið og leiðinlega úr, þegar einn leikm'aður hirð ir ekfci að fana úr æfinga- blúsisu sinni, þegar allir aðtir í liðinu leika í félagsbúningi. Slíkt skeði í leik fram og Vals á dögunum. Þá er það heldur hjákátleglt fyrir álhonfendur, að sjá dómara klæddan jakka fötum, í hvítri skyntu, með bindi oig , „blánk“-skóm dæma leik. Slíkit áltti sér einnig sitað í þekn leik. Það mætti telja það iágmarkskröfu, að íþrótta fólk væri í sæmilega hrein- um og fallegum félaigsbúning- um í leikijum sínum, en því miður er þar víða pöttur brot- inn. Eimstök Mð t.d. Valuor, er þar til hreinnar fyrirmyndar. sitj. ur, því þeim tókst að hitta stang ir og þverslár fjórum sinnum í leiknum. Má af þessu sjá, að oft hefir hurð skollið nærri hælum og næstum tilviljun ráðið, að stigin tvö lentu hjá Akranesi. Skagamaðurinn skotharði, Matthías Sveinsson, skoraði mark Akraness eftir gróf mis- tök hjá vörn Keflavíkur. Og Matthías átti einnig annað guil- ið tækifæri, er hann skaut í stöng og knötturinn hrökk út til hans aftur, og enn brást Matthí- asi fótafimin, því hann skaut framhjá opnu og mannlausu markinu. Magnús Torfason lék nú aftur með ÍBK eftir meiðslin, sem hann hlaut í landsleiknum við Svía fyrr í sumar. Var Keflvík- ingum mikill styrkur að Magn- úsi, enda þótt hann sé ekki í sömu æfingu og áður. Vörnin hjá Keflavík var betri hluti liðsins, eins og svo oft áður, en framlín una vantar meiri snerpu og ör- yggi, þvi að með fjögur stangar- skot, getur það talizt óheppni, að skora ekki a.m.k. eitt mark. í liði Skagamanna var Matthías mjög góður og einnig Einar markvörður. Liðið í heild er skipað ungum, en vel leikandi piltum, sem virðast í hraðri fram för. Virðast Skagamenh ekki þurfa að óttast framtíðina, jafn vel þótt liðið hvílist í 2. díeiid í eitt ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.