Morgunblaðið - 04.08.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1967
Golfsamband íslands 25 ára
Efnt til golfviku dagana 13.-19. ágúst n. k.
GOLFSAMBAND íslands á 25
ára afmæli 14. ágúst n.k.
í tilefni þessara tímamóta hef-
ur verið ákveðið að efna til
reglulegrar golfviku hér sunn-
anlands dagana 13. til 19. ágúst
n.k.
Golfvikan hefst með afmælis-
keppni á golfvelli Golfklúbhs
Reykjavíkur við Grafarholt
sunnudaginn 13. ágúst n.k. og
verða þá leiknar 18 holur í öll-
um flokkum. þ.e.a.s. í unglinga-
flokki, kvennaflokki, 2. flokki, 1.
flokki og meistaraflokki. Er
ekki að efa að þátttakendur
verði geysimargir á móti þessu,
þar sem flestir þátttakendur í
landsmótinu, sem haldið verður
í vikunni, verði þátttakendur.
Tvenn eignarverðlaun eru veitt
fyrir beztan árangur í hverjum
flokki.
Mánudaginn 14. ágúst á af-
mælisdegi sambandsins verður
golfþing haldið, sem er aðal-
fundur sambandsins.
Þriðjudaginn 15. ágúst fer
fram öldugarkeppni með og án
forgjafar og jafnframt sveita-
keppni. í öllum þessum keppn-
Víkingur, FH og
Selfoss unnu í
bikarkeppninni
NÝLEGA fóru fram þrír leikir
í bikarkeppni KSÍ. FH vann stór
sigur yfir b-liði Þróttar 6 mörk
gegn 1, en FH hefur þegar tryggt
sér sigur í öðrum riðli 3. deild-
arinnar og virðast þar líkleg-
astir til sigurs. Þá vann Viking-
ur Breiðablik í Kópavogi í jöfn-
um ok skemmtilegum leik með
3 mörkum gegn 2 og Selfoss
vann b-lið Vikings með 1:0. Áð-
ur hafa leikið í bikrakeppninni
b-lið Akraness og b-lið Kefla-
víkur og iauk þeim leik með
sigri Skagamanna 3:2. Hafa því
]>essi fjögur lið: b-lið Akraness,
FH, Víkingur og Selfoss tryggt
sér þátttökurétt í annarri um-
ferð bikarkeppninnar, en fyrir-
komulag hennar er útsláttar-
keppni.
um er um að ræða 18 holu högg-
leik. Hér er um að ræða fyrsta
þátt meistaramótsins. Rétt til
þátttöku í öldungakeppninni
eiga þeir einir sem komnir eru
yfir 50 ára aldur en eins og kunn
ug er hafa ýmsir af fremstu
golfleikurum landsins þegar náð
þeim aldri. í sveitakeppni, sem
háð verður þennan dag er hins
vegar öllum þátttakendum í
landsmóti heimil þátttaka, sveit
irnar eru ekki valdar fyrirfram
frá hverjum klúbbi en sex beztu
menn hvers klúbbs mynda síð-
an sveit hans eftir úrslitum. Fær
klúbbur sá sem sigur ber af
hólmi heiðurinn af því að eiga
beztu golfsveit íslands árið 1967.
Þetta er í raun og veru lokaæf-
ing fyrir sjálfa meistarakeppn-
i/na, en hún hefst hinm 16. ágúst
n.k. Sú keppni fer fram í þrem-
ur ílokkum karla, 2. flokki, 1.
flokki og meistaraflokki. Hér er
um að ræða 72 holu höggleik,
sem leikinn verður á tveimur
völlum, á Hólmsvelli í Leiru þar
sem allir þessir fokkar leika 36
holur og Grafarholtsvelli í
Reykjavík, þar sem hinar 36 hol
urnar verða leiknar. Verður leik
ið á báðum völlum samtímis 18
holur á dag í fjóra daga. .Mun
meistaraflokkur hefja leik á
Hólmsvelli í Leiru og leika þar
16. og 17. ágúst en síðan í Graf-
arholti 18. og 19. ágúst. Ekki er
endanlega afráðið enn hvort 1.
eða 2. flokkur hefur leik í Graf-
arholti en það fer nokkuð eftir
fjölda þátttakenda í hvorum leik,
þar sem hugmyndin er að sem
jafnastur fjöldi leiki á hvorum
velli
Keppni í unglingaflokki verð-
ur háð á Grafarholtsvelli við
Reykjavík. Hún verður að þessu
sinni 72 holur, en brautir eru þá
nokkru styttri en í meistara-
keppni. Sú keppni er einnig 72
holu höggleikur eins og áður seg
ig og fer fram sömu daga og
meistarakeppni eða 16. til 19.
ágúst.
Meisetarakeppni kvenna: f
sambandi við þessi golfvik.u í til
efni 25 ára afmælis golfsam-
bandsins verður nú í fyrsta
skipti efnt til meistarakeppni
kvenna í golfi. Þykir golfsam-
bandinu vel til hlýða að þessi
fyrsta golfkeppni kvenna fari
fram á hinum nýja goifvelli Golf
klúbbsins Keilis á Hvaieyri við
Hafnarfjörð. Keppni þessi verð-
ur að þessu sinni 36 þoiu högg-
leikur og fer fram dagana 16.
17. og 18. ágúst og leika kon-
urnar 12 holur hvern dag.
Golfmótinu lýkur laugardag-
inn 19. ágúst en þá um kvöldið
verður haldið lokahóf sem jafn-
framt verður afmælisihóf sam-
bandsins, en það verður hald-
ið að Hótel Borg. All miklar
líkur eru á því að golfmót þetta
verði það langfjölmennasta sem
nokkurn tima hefur verið haldið
hér á landi og er ekki ósenni-
legt að iheildarfjöldi þátttakenda
£ öllum flakkum verði á annað
hundrað. Ættu þeir sem taka
ætla þátt í afmæliskeppninni eða
landsmótinu ekki að draga það
lengur að tilkynna þátttöku sína
til kappleikanefnda viókomandi
klúbba.
Lið KR er varð Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu 1967.
Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Pétursson, Bjarni Felix-
son, Jóhann Reynisson og Ellert Schram. Miðröð: Baldvin
Baldvinsson, Gunnar Felixson og Halldór Björnsson. Efsta röð:
Eyleifur Hafsteinsson, Ársæll Kjartansson, Þórður Jónsson,
Sigþór Jakobsson og Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR, er af-
henti KR-ingum sigurlaunin.
FRÁ LEIK AKUREYRAR OG VALS. — Knötturinn hefur ver-
ið sendur fyrir Valsmarkið og nýliðinn í liði ÍBA, Rögnvaldur
Reynisson, nær að skalla óverjandi í mark. Sigurður Dagsson,
markvörður, og Rögnvaldur skullu síðan saman nokkuð harka-
lega.
Staðan
í fyrstu deild
Danmerkurmeistarar í handknatt-
leik kvenna koma hingað til keppni
DÓNSKU meistararnir í hand
knattleik kvenna, Frederiks-
berg Idrætsforening, koma
hingað til lands n.k. laugar-
dag og leika hér nokkra
Ieiki í næstu viku og þá m.a.
við íslenzka landsliðið og ís-
landsmeistara Vals.
F.I.F. kemur hingað á veg-
um H.SJ. og Reykjavíkur-
félaganna Vals, Ármanns,
Víkings og KR og er keppni
þeirra hér liður í undirbún-
ingi íslenzka kvennalandsliðs
ins fyrir Norðurlandamótið,
er haldið verðui í nóv. í
haust.
F.I.F. varð, eins og áður
segir, Danmerkurmeistari
1966 og hefur liðið margsinn-
is tekið þátt í Evrópubikar-
keppni í kvennahandknatt-
leik. Þá hafa nokkrar liðs-
konur leikið með landsliði
Dana. Ein t.d. leikið 42 lands
leiki, önnur 22 leiki og tvær
hafa leikið 15 landsleiki. Alls
koma hingað 10 stúlkur, svo
og fararstjóri og þjálfari, sem
er hinn kunni handknattleiks
maður Gert Andersen, en
hann var fyrirliði Kaup-
mannahafnarúrvalsins er það
lék við Reykjavíkurúrval sl.
vetur.
F.I.F. leikur sinn fyrsta
leik hérlendis þriðjudaginn 8.
þ.m. við íslandsmeistara Vals
og fer sá leikur fram i Laug-
ardalshöllinni og hefst kl. 20.
Á undan þeim leik fer fram
bæjakeppni í handknattleik
karla milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar. Lið Reykjavík
ur velja Þórarinn Eyþórsson,
Ingólfur Óskarsson og Heinz
Steinman, en lið Hafnarfjarð
ar þeir Birgir Björnsson og
Viðar Simonarson.
Á miðvikudag leika svo
dönsku stúlkurnar við ís-
lenzka landsliðið og fer sá
leikur einig fram í Laugar-
dalshöllinni. Forleikur verð-
ur svo á þriðjudaginn, bæj-
arkeppni milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar i karla-
flokki.
Á fimmtudag , verður svo
haldin hraðkeppni með þátt-
töku Danmerkurmeistaranna
og liðum Reykjavíkurfélag-
anna, en ekki hefur verið end
anlega ákveðið var sú keppni
fer fram. Til greina hefur
komið að hún færi fram í
Hafnarfirði, á þeim velli sem
nú er keppt á í íslandsmótinu,
og þá einnig með þátttöku
F.H.
Sem áður segir koma stúlk
urnar á laugardagskvöld og
munu þær búa í Valsheimil-
inu á meðan dvöl þeirra stend
ur. Á sunnudag er ætlað að
þær fari upp í Borgarfjörð
með þátttakendum í Norræna
æskulýðsmótinu. Þá munu
einnig verða farnar ferðir um
Reykjavík og nágrenni borg-
arinnar með þær.
STAÐAN í 1. deild eftir leik
Vals og Akureyringa er
þessi:
Akureyri 9 6 0 3 21:11 12
Valur 9 5 2 2 17:15 12
Fram 8 3 4 1 10:8 10
Keflavík 9 3 2 4 7:9 8
KR 8 3 0 5 13:15 6
Akranes 9 2 0 7 9:19 4
Enn eiga því þrjú lið nær
jafna möguleika til þess að
vinna keppnina, þ.e. Valur,
Akureyri og Fram. Valur á
eftir leik við Keflavík í Laug
ardal 10. sept., Akureyri á eft-
ir leik við KR á Akureyri 3.
sept., og Fram á eftir leiki
við KR í Laugardal 28. ág.,
og Akranes í Laugardal 9.
sept. Svo sem sjá má á þessu
verður nú nokkurt hlé á Is-
land^nótinu eða til 28. ágúst.
Tvö lið geta fallið í 2. deild,
þótt óneitanlega séu likurnar
mestar að það verði Akranes.
Til þess að tií úrslitaleiks um
setu í 1. deild komi, þarf
Akranes að vinna Fram og
KR að tapa leikjum sinum
gegn Fram og Akureyri.