Morgunblaðið - 04.08.1967, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.08.1967, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1967 Golfsamband íslands 25 ára Efnt til golfviku dagana 13.-19. ágúst n. k. GOLFSAMBAND íslands á 25 ára afmæli 14. ágúst n.k. í tilefni þessara tímamóta hef- ur verið ákveðið að efna til reglulegrar golfviku hér sunn- anlands dagana 13. til 19. ágúst n.k. Golfvikan hefst með afmælis- keppni á golfvelli Golfklúbhs Reykjavíkur við Grafarholt sunnudaginn 13. ágúst n.k. og verða þá leiknar 18 holur í öll- um flokkum. þ.e.a.s. í unglinga- flokki, kvennaflokki, 2. flokki, 1. flokki og meistaraflokki. Er ekki að efa að þátttakendur verði geysimargir á móti þessu, þar sem flestir þátttakendur í landsmótinu, sem haldið verður í vikunni, verði þátttakendur. Tvenn eignarverðlaun eru veitt fyrir beztan árangur í hverjum flokki. Mánudaginn 14. ágúst á af- mælisdegi sambandsins verður golfþing haldið, sem er aðal- fundur sambandsins. Þriðjudaginn 15. ágúst fer fram öldugarkeppni með og án forgjafar og jafnframt sveita- keppni. í öllum þessum keppn- Víkingur, FH og Selfoss unnu í bikarkeppninni NÝLEGA fóru fram þrír leikir í bikarkeppni KSÍ. FH vann stór sigur yfir b-liði Þróttar 6 mörk gegn 1, en FH hefur þegar tryggt sér sigur í öðrum riðli 3. deild- arinnar og virðast þar líkleg- astir til sigurs. Þá vann Viking- ur Breiðablik í Kópavogi í jöfn- um ok skemmtilegum leik með 3 mörkum gegn 2 og Selfoss vann b-lið Vikings með 1:0. Áð- ur hafa leikið í bikrakeppninni b-lið Akraness og b-lið Kefla- víkur og iauk þeim leik með sigri Skagamanna 3:2. Hafa því ]>essi fjögur lið: b-lið Akraness, FH, Víkingur og Selfoss tryggt sér þátttökurétt í annarri um- ferð bikarkeppninnar, en fyrir- komulag hennar er útsláttar- keppni. um er um að ræða 18 holu högg- leik. Hér er um að ræða fyrsta þátt meistaramótsins. Rétt til þátttöku í öldungakeppninni eiga þeir einir sem komnir eru yfir 50 ára aldur en eins og kunn ug er hafa ýmsir af fremstu golfleikurum landsins þegar náð þeim aldri. í sveitakeppni, sem háð verður þennan dag er hins vegar öllum þátttakendum í landsmóti heimil þátttaka, sveit irnar eru ekki valdar fyrirfram frá hverjum klúbbi en sex beztu menn hvers klúbbs mynda síð- an sveit hans eftir úrslitum. Fær klúbbur sá sem sigur ber af hólmi heiðurinn af því að eiga beztu golfsveit íslands árið 1967. Þetta er í raun og veru lokaæf- ing fyrir sjálfa meistarakeppn- i/na, en hún hefst hinm 16. ágúst n.k. Sú keppni fer fram í þrem- ur ílokkum karla, 2. flokki, 1. flokki og meistaraflokki. Hér er um að ræða 72 holu höggleik, sem leikinn verður á tveimur völlum, á Hólmsvelli í Leiru þar sem allir þessir fokkar leika 36 holur og Grafarholtsvelli í Reykjavík, þar sem hinar 36 hol urnar verða leiknar. Verður leik ið á báðum völlum samtímis 18 holur á dag í fjóra daga. .Mun meistaraflokkur hefja leik á Hólmsvelli í Leiru og leika þar 16. og 17. ágúst en síðan í Graf- arholti 18. og 19. ágúst. Ekki er endanlega afráðið enn hvort 1. eða 2. flokkur hefur leik í Graf- arholti en það fer nokkuð eftir fjölda þátttakenda í hvorum leik, þar sem hugmyndin er að sem jafnastur fjöldi leiki á hvorum velli Keppni í unglingaflokki verð- ur háð á Grafarholtsvelli við Reykjavík. Hún verður að þessu sinni 72 holur, en brautir eru þá nokkru styttri en í meistara- keppni. Sú keppni er einnig 72 holu höggleikur eins og áður seg ig og fer fram sömu daga og meistarakeppni eða 16. til 19. ágúst. Meisetarakeppni kvenna: f sambandi við þessi golfvik.u í til efni 25 ára afmælis golfsam- bandsins verður nú í fyrsta skipti efnt til meistarakeppni kvenna í golfi. Þykir golfsam- bandinu vel til hlýða að þessi fyrsta golfkeppni kvenna fari fram á hinum nýja goifvelli Golf klúbbsins Keilis á Hvaieyri við Hafnarfjörð. Keppni þessi verð- ur að þessu sinni 36 þoiu högg- leikur og fer fram dagana 16. 17. og 18. ágúst og leika kon- urnar 12 holur hvern dag. Golfmótinu lýkur laugardag- inn 19. ágúst en þá um kvöldið verður haldið lokahóf sem jafn- framt verður afmælisihóf sam- bandsins, en það verður hald- ið að Hótel Borg. All miklar líkur eru á því að golfmót þetta verði það langfjölmennasta sem nokkurn tima hefur verið haldið hér á landi og er ekki ósenni- legt að iheildarfjöldi þátttakenda £ öllum flakkum verði á annað hundrað. Ættu þeir sem taka ætla þátt í afmæliskeppninni eða landsmótinu ekki að draga það lengur að tilkynna þátttöku sína til kappleikanefnda viókomandi klúbba. Lið KR er varð Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu 1967. Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Pétursson, Bjarni Felix- son, Jóhann Reynisson og Ellert Schram. Miðröð: Baldvin Baldvinsson, Gunnar Felixson og Halldór Björnsson. Efsta röð: Eyleifur Hafsteinsson, Ársæll Kjartansson, Þórður Jónsson, Sigþór Jakobsson og Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR, er af- henti KR-ingum sigurlaunin. FRÁ LEIK AKUREYRAR OG VALS. — Knötturinn hefur ver- ið sendur fyrir Valsmarkið og nýliðinn í liði ÍBA, Rögnvaldur Reynisson, nær að skalla óverjandi í mark. Sigurður Dagsson, markvörður, og Rögnvaldur skullu síðan saman nokkuð harka- lega. Staðan í fyrstu deild Danmerkurmeistarar í handknatt- leik kvenna koma hingað til keppni DÓNSKU meistararnir í hand knattleik kvenna, Frederiks- berg Idrætsforening, koma hingað til lands n.k. laugar- dag og leika hér nokkra Ieiki í næstu viku og þá m.a. við íslenzka landsliðið og ís- landsmeistara Vals. F.I.F. kemur hingað á veg- um H.SJ. og Reykjavíkur- félaganna Vals, Ármanns, Víkings og KR og er keppni þeirra hér liður í undirbún- ingi íslenzka kvennalandsliðs ins fyrir Norðurlandamótið, er haldið verðui í nóv. í haust. F.I.F. varð, eins og áður segir, Danmerkurmeistari 1966 og hefur liðið margsinn- is tekið þátt í Evrópubikar- keppni í kvennahandknatt- leik. Þá hafa nokkrar liðs- konur leikið með landsliði Dana. Ein t.d. leikið 42 lands leiki, önnur 22 leiki og tvær hafa leikið 15 landsleiki. Alls koma hingað 10 stúlkur, svo og fararstjóri og þjálfari, sem er hinn kunni handknattleiks maður Gert Andersen, en hann var fyrirliði Kaup- mannahafnarúrvalsins er það lék við Reykjavíkurúrval sl. vetur. F.I.F. leikur sinn fyrsta leik hérlendis þriðjudaginn 8. þ.m. við íslandsmeistara Vals og fer sá leikur fram i Laug- ardalshöllinni og hefst kl. 20. Á undan þeim leik fer fram bæjakeppni í handknattleik karla milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Lið Reykjavík ur velja Þórarinn Eyþórsson, Ingólfur Óskarsson og Heinz Steinman, en lið Hafnarfjarð ar þeir Birgir Björnsson og Viðar Simonarson. Á miðvikudag leika svo dönsku stúlkurnar við ís- lenzka landsliðið og fer sá leikur einig fram í Laugar- dalshöllinni. Forleikur verð- ur svo á þriðjudaginn, bæj- arkeppni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar i karla- flokki. Á fimmtudag , verður svo haldin hraðkeppni með þátt- töku Danmerkurmeistaranna og liðum Reykjavíkurfélag- anna, en ekki hefur verið end anlega ákveðið var sú keppni fer fram. Til greina hefur komið að hún færi fram í Hafnarfirði, á þeim velli sem nú er keppt á í íslandsmótinu, og þá einnig með þátttöku F.H. Sem áður segir koma stúlk urnar á laugardagskvöld og munu þær búa í Valsheimil- inu á meðan dvöl þeirra stend ur. Á sunnudag er ætlað að þær fari upp í Borgarfjörð með þátttakendum í Norræna æskulýðsmótinu. Þá munu einnig verða farnar ferðir um Reykjavík og nágrenni borg- arinnar með þær. STAÐAN í 1. deild eftir leik Vals og Akureyringa er þessi: Akureyri 9 6 0 3 21:11 12 Valur 9 5 2 2 17:15 12 Fram 8 3 4 1 10:8 10 Keflavík 9 3 2 4 7:9 8 KR 8 3 0 5 13:15 6 Akranes 9 2 0 7 9:19 4 Enn eiga því þrjú lið nær jafna möguleika til þess að vinna keppnina, þ.e. Valur, Akureyri og Fram. Valur á eftir leik við Keflavík í Laug ardal 10. sept., Akureyri á eft- ir leik við KR á Akureyri 3. sept., og Fram á eftir leiki við KR í Laugardal 28. ág., og Akranes í Laugardal 9. sept. Svo sem sjá má á þessu verður nú nokkurt hlé á Is- land^nótinu eða til 28. ágúst. Tvö lið geta fallið í 2. deild, þótt óneitanlega séu likurnar mestar að það verði Akranes. Til þess að tií úrslitaleiks um setu í 1. deild komi, þarf Akranes að vinna Fram og KR að tapa leikjum sinum gegn Fram og Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.