Morgunblaðið - 05.08.1967, Page 4

Morgunblaðið - 05.08.1967, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUE 5. AGÚST 1967 BÍLALEIGAN -FERÐ- Daggjaid kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. SÍMI 34406 SENDU M MAGNÚSAR SKtPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftirlokun simi 40381 ' *.£S>£IH' 1-44-44 \mmm Hveríisgötu X03. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifaiið < ieigugjaidl Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Síml 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f-j===*B/UU£IGAH RAUOARARSTlG 31 SfMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki tJtvarps- og sjónvarpstæki Suðuriandsbraut 12. Sími 81670 (næg bílastæði) SAMKOMUR Hjálpræðisherinn Sunnudag kl. 11 og 20,30 samkomur. — Kapteinarnir Kröta og Haugsland og Ásold- sen stjórna og tala. Allir vel- komnir. Bænastaðurinn Fálkagata 10. Kristileg samkoma sunnud. 6. ágúst kl. 4. Bænastund alla virka daga kl. 7 e. m. Allir velkomnir. K.F.U.M. Samkoma fellur niður ann- að kvöld vegna unglingamóts- ins í Vatnaskógi og tjaldasam- komu Kristniboðssambandsins við Álftamýrarskóla. Tjaldasamkomumar við Álftamýrarskólann. Á samkomunni í kvöld kl. 8,30 tala hjónin Herborg og Ólafur Ólafsson, kristiniboði, og Geirlaugur Árnason. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kristniboðssambandið. ★ Embættaveitingar „Kjósandi á Akureyri skrifar: „Árið 1931 birtist grein í blaði, sem hét Rauði fáninn og var gefið út af kommúnistum í Reykjavík. Meðal margra annara „dýrgripa“ og „djásna" í nefndri grein, standa þessar setningar: „Af öllum andlegum fyrir- brigðum, sem menn þekkja, er ekkert eins niðrandi fyrir al- heimslögmálið, ekkert eins letj andi fyrir manninn í lífsbar- áttunni, ekkert eins fjarlægt skynseminni né í svo mikilli mótsögn við sjálft sig sem trú- arbrögðin. Þau eru alltof fjar- stæð til þess að hægt sé að trúa þeim, ómöguleg til þess að sannfæra, og sljóvga ýmist hug og hugsuin, eða leiða til sky.nsemislauss fimbulfambs". — Þessi grein kom mér ósjálf rátt í hug, þegar ég las leið- aránn í Tímanum 25. júní sl. Yfirskriftin á leiðaranum er: Embættaveitingar. Eftir að hafa lesið leiðara þennan, leitaði ég uppi grein- ina í Rauða fánanum. Því næst minntist ég þess, að flokkúr sá, er gefur Tímann út, hafði sjálf ur, á sínum valdaáirum í ríkis- stjórn, „þverbrotið" þær regl- ur, sem talað er um, að ekki sé rétt að brjóta við embætta- veitingar. Jónas frá Hriflu setti rektor Menntaskólans í Reykja vík þvert ofan í vilja gamalla kennara skólans, sem þóttust hafa forrétt til stöðunnar. Sama gerðist í hvert einasta skipti sem Framsókn veitti opinberar stöður. Meira að segja: Sá m.aður, sem leiðari Tímans segir hafa orðið fyrir rangindum við út- hlutun bæjarfógetaembættisins á Akureyri nýlega, hann kom hingað í bæinn á sínum tíma í skjóli flokksvalds, til að taka að sér fulltrúastöðu hjá ný- skipuðum, aðkomnum fógeta, — sem Reykvíkingar töldu þá, að tekið hefði embættið af Há- koni Guðmuindssyni. Ef til vill er Tíminn búinn að skipta um trúarbrögð. En er nokkuð naeð það að gera? Eru það ekki -trúarbrögð sem sljóvga o.s.frv. — og eru í mót- sögn við sjálft sig? Kjósandi á Akureyri". — Já, sannarlega voru það býsn mikil, þegar „Tíminn“ (af öllum blöðum) fór að fet‘,a fingur út í embættaveitingar, enda rann allt út í sandinn hjá honum, blessuðum karlinum, þegar hann birti hinn óheiðar- leg.a samda og villandi lista sinn um skipanir embættis- manna. (Ýmist hafði einn sótt um eða eingöngu Sjálfstæðis- menoi, og feitustu embættun- um var vísvitandi sleppt). Ann ars benti fyrrverandi starfs- bróðir Velvakanda honum á það á dögunum, að úr laga- deild hefðu um margra ára bil útskrifazt menn, sem að mikl- um meirihluta voru Sjálfstæð- ismenn, — stundum voru kandi datarnir það allir. Það væri því erfitt að ganga framhjá Sjálfstæðismönnum við em- bættaveitingar, þótt fullur vilji væri fyrir hendL Fróðlegt væri líka að athuga hlutfalls- tölu flokkanna við embætta- veitingar, þegar Framsókn hef ur einhverju fengið að ráða. Ekki væri óiíklegt, að það hlut fall væri skakkt, gömlu mad- dömunni í vil. — En látum nú þetta tal niður falla, því að ekki nennir Velvakandi að blanda sér í pólitískt þras. Strætisvagna- klukka á leiðinni Haraldur Stefánsson, eft- irlitsmaður hjá Sírætisvögnum Reykjavíkur, sendir þetta bréf vegna fyrirspurnar hér urn daginn: „Kæri Velvakandi! í dálkum þínum sl. föstudag, er fyrirspurn til S.V.R. varð- andi burtfarartíma vagnanna úr miðbænum og eftir hvaða klukku sé farið. Þeir vagnar, sem brottför hafa frá Lækjartorgi, eiga að fara eftir Torgklukkunni (Persil-klukkunni, enda er sú k,luk.ka talin mjög örugg). Vagnar, sem fara úr Lækjar götu, koma flestir inn á Lækj artorg á 60 mín fresti. Þar geta vagnstjórarnir borið sam an sínar klukkur eða þær, sem eru í vögnuinium, við Torg- klukkuna, en eftir þeim verða þeir að fara, þar sem engin klukka er í Lækjargötu. Þá eru það vagnarnir við Kalkofnsveg. Þeir fara eftir Útvegsbankaklukkunni, oftast nær, en því miður er sú klukka mjög ótrygg og heiur auk þess þann galla, að ekki er gott að sjá nákvæmlega, hvað hún er, þar sem hún snýst og sést þá undir stóra vísinn, og getur það munað ca. einni minútu. Það var ákveðið á sl. ári að festa kaup á fullkominni klukku, sem ynni eins og Torg klukkan (þ.e. stóri vísirinn hrekkur til eftir hverja mín- útu). Klukka þessi hefur fjórar skífur og verður sett á þak skýlisiins við Kalkofnsveg. — Klukkan er nú komin til lands- ins og vonandi verður hún sett upp bráðlega. Haraldur Stefánsson, eftirlitsmaður". Velvakandi þakikar skýrt og skjótt svar, og væri rounur, ef allir opinberir aðilar, sem eru spurðir eða gagnrýndir í þess- um dálkum, brygðu jafn fljótt og vel við. jlr Sannleikur eða . . . Friðrik Ól. Schram send- ir bréf með fyrirsögninni hér að ofan. „Þriðjudaginn 18. júlí sl. var flutt erindi í Ríkisútvarpið und ir nafninu: „Trúarvakning — hvað er það?“ Flytjandi þess var annar sóknarprestanna í Langholtsprestakalli, séra Áre- líus Níelsson. Ekki fór prestur leynt m-eð skoðanir sínar, og undirstrikaði hann þær með mörgum og jafnvel grófum orð um í annarra garð, og finnst mér það ekki gott fordæmi af presti að vera. Sá prestur, sem venur sig á tillitslaus orð í garð þeirra, er honum fellur e.t.v. ekki við, — aflar hann sér virðingar með því? Em ég ætla ekki að fara að ræða erindi hans í smáatriðum, þótt þörf væri á, svo að fólk fengi rétta hugmynd um, hvað trúarvakning er í raun og veru, heldur ætla ég aðeins að minn- ast á eitt atriði í erindinu. Prestur minntist í nokkrum orðum á Billy Graiham, vakn- ingaprédikarann heiimsfræga, sem lesendur þessa blaðs fá stundum, en þó alltof sjaldan, að 'beyra frá. Hann hélt því blákalt fram, að starf dr. Gra- hams væri ekki vakningastarf, heldur væri hér um að ræða starfsemi, sem byggðist á aug- lýsingaskrumi og múgsefjun!! Einnig sagði prestur, og ekki veit ég hvaðan hann hefur það, að enginn varanlegur árangur yrði af samkomum dr. Gra- hams. Ég hef fylgzt töluvert með starfi þessa stórmerka manns, dr. Billy Grahams, og lesið um samkomur hans og starfsað- ferðir og einnig kynnt mér árangurinn af starfi hans. Boð skapur Billys er boðskapur ritn ingarinnar. Hann bendir mönn um á, að þeir eigi að leita til Krists, hans, sem einn veitir þeim fyrirgefningu syndanna, frið og hamingju í þessu lífi og eilíft líf. Er þetta ekki boð- skapur biblíunnar? Jú, en þetta er ekki boðskapur þeirra, sem vilja sjálfir búa sér til veg til hjálpræðis. Prestur fann starfi Billys það til foráttu, hve ötuLleg,a hann auglýsir sam- komur sínar, og bar það saman við bítlahljómleika. Nú er mér spurn: Er réttara að auglýsa það, sem getur orðið til ills betur en það, sem getur orðið mönnum til góðs? Er eitthvað rangt við það, að notaðar séu allar heilbrigðar aðferðir til að koma því, sem gott er, til þeirra, sem þarfnast þess? Og svo þetta með árangur- inn af starfi dr. Grahams. f samkomuherferðinni í London síðastliðið sumar snerust til persónulegrar, kristinnar trúar tæpar 30 þúsundir manna. Margt af þessu fólki verður síð ar prestar, -læknar og kristni- boðar og vinnur með trú sinni gagn í þjóðfélagi sínu. Enginn árangur? Margar fjölskyldiur, sem hafa sundrazt, sameinast, misyndismenn og slæpingjar verða nýtir borgarar, og þeir, sem ráfa um friðlausir í hring- iðu nútímans, finna fótfestu og trúa á guð. Enginn árangur? Hvernig leyfir þjónandi prest- ur sér að fara með slíkt og það frammi fyrir alþjóð? Hvernig getur séra Árelíus kallað sig þjón guðs, og um leið rifið nið- ur boðskap hans í biblíunni og smánað fórnardauða frelsara okkar Jesú Krists, og gert lítið úr þeim, sem af veikum mæUi reyna að útbreiða ríki hans hér á jörð? Með fyrirfram þökk, Ránargötu 12, Reykjavík“. Friðrik Ól. Schraxn, — Ótt og títt er nú vegið að gömlum, góðum og ötulum pennavini Velvakanda, en það er þó bót í máli, að hann er maður til þess að svara fyrir sig. Annars las Velvakandi fyrir nokkru grein um Billy Graham í ensku blaði, sem sízt hefur verið kennt við kristiindóms- áhuga til þessa, þar sem lof- samlegum orðum var farið um starf hans í Lundúnum, ein- mitt vegna þess hve margir höfðu séð að sér og snúið á betri veg í líferni sínu eftir að hafa hlustað á hann tala. Á öðr um stað ,sá Valvakandi, að í prestaskóla einum í Lundúna- borg éru nú nákvæmlega tíu prósent nemenda þangað komn ir v.egna áhrifa frá predikunum Grahams. Engum þeirra hafði áður hvarflað í hug að gerast prestur. Velvakandi tekur það fram, að hann hlustaði ekki á erindi séra Árelíusar, en tréystir því, að rétt sé farið með hér að framan. H. BENEDIKTSSON, H F. Suðurlandsbraut 4 Sími 38300 Gluggagirði H. B E N E D I KT S S ON. H F. Suðurlandsbraut 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.