Morgunblaðið - 05.08.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. AGÚST 1967
23
Loftleiðir gefa út kynn-
ingarrit í 100 þús. eint.
LOFTLEIÐIR hafa látið prenta
tímarit, Trans-Atlantic Traveiler,
sem gefið er út í 100,000 eintök-
um. í»ví er dreift til farþega Loft
leiða meðan á fluginu stendur og
er ætlazt til að fanþegarnir taki
það með sér heim. í ritinu eru
fyrst og fremst gneinar og mynd-
ir frá íslandi svo og um félagið
sjálft og þjónustu þesis. Enrufretn
ur greinar og myndir um önnur
lönd, siern félagið flýgur til. Ritið
ér prentað í fullum litum (fjór-
ium litum) og litauðugt mjög.
Möng af stærstu flugfélögum
heims hafa sín eigin tímarit, sem
koma út misjafnleigá oft, en öll
miða þau að því að stytta far-
þegum stundir meðan á flugi
stendur og fræða jafnframt og
skiemmta, auka áhuga fólks á
nýjum stöðum -— á ferðalögum.
Óhætt er að néikna með að
Ihálf milljón manna lesi hvert
tölublað Tran.s-Atlantic Travell-
er, þvi reynslan hefur þegar
sýnt, að því er vel tekið af far-
þegum og þeir hafa blaðið með
sér heim.
Loftleiðir fengu Harald J
Hamar og Heimi Hannesison, rit-
Forsíða fyrsta heftisins af
„Trans-Atlantic Traveller“.
stjóra Iceland Review, til þess að
annast ritstjórn og útgáfu Trans-
Atlantic Traveller. Umbrotið
annaðist Gísli B. Björnsson, en
ritið er prentað í Hollandi. Ráð-
gert er að næsta hefti komi síð-
ari hluta vetrar.
Norrænir kvikmyndndagar
í Lubeck í september
DAGANA 22. til 24. september
munu fara fram í Lúbeck í ní-
ur.<la sinn norrænir kvikmynda-
dagar. (IX. Nordische Filmtage
Lúbeck 1967). Tilgangur þeirra
er að veita norrænum kvik-
myndamönnum og kvikmynda-
framleiðendum tækifæri til að
kynna myndir sínar á erlendum
vettvangi, en einnig að fylgjasi
með kvikmyndaþróun á Norður-
löndum. Þarna verða sýndar leik
myndir og stuttar myndir um
ýmis efni.
Paul Löbe látinn
Bonn, 4. ágúst — NTB
PAUL Löbe, sem var þingfor-
seti í Þýzkalandi á árunum 1920
—1932 lézt í sjúkrahúsi í Bonn
á fimmtudag, 92 ára að aldri.
Löbe var neyddur til að afsala
sér embætti í hendur Hermanni
Göring 1932 og var sendur í
fangabúðir ári síðar, en komst á
brott þaðan 1935. Hann var síðan
aftur tekinn höndum eftir mis-
heppnað tilræði við Adolt Hitler
20. júlí 1944.
Ekki er um venjudega kv’.k-
myndahátíð að ræða, engin sam-
keppni er og ekki verða veitt
nein verðlaun. En lítt þek'ktum
kvikmyndamönnum er þarna gef
inn kostur á að koma myndum
sínum á framfæri á breiðari
grundvelli en ella. Kostnaður við
þátttöku mynda er enginn nema
sending myndanna fram og afr-
ur.
Það hefur komið fram h’á
ráðamönnum Nordische Ti’.m-
tage. að þeir vilja að öll Norður-
löndin sendi myndir. í fyrra v ir
ísland í fyrsta skipti meðal þátt-
tökulanda, en bá var sýnd Surts
eyjarmynd Ósvald^r Knudsen,
Surtur fer sunnan. Vakti hún
mikla athygli og var talin eir.
beztu stuttu myndanna.
Þeir íslenkir kvikmyndagerð-
armenn, sem hefðu hug á að
senda myndir til Nordiscne Fi’ r
tage 1967, geta snúið sér ti’
Franz E. Siemsen, ræ&mans ,
Körnerstrasise 18, Lúbeck. sem
veitir allar nánari upplýsingur
og aðstoð.
Boston Wellvale
enn á strandstaö
— reynt að ná honum út á þriðjudag
BREZKI togarinn Boston Well-
vale er enn á strandstað á tsa-
firði, en elgandi hans, Guðmund-
ur Marselíusson, hefur í hyggju
að reyna að ná honum á flot á
flóði næsta þriðjudag.
„Ég er ekki viss um hvaða
skip ég fæ til þess að draga
skipið á flot. Þeir á Árvaki eru
að athuga fyrir mig hvort þelr
geti verið hér á þriðjudag, en
annars er nóg af heimabátum
hér núna".
„Ég hefi ekki tekið neina á-
kvörðun ennþá um hvað ég geri
við skipið þegar búið er að ná
una og þar á að þétta og gera
smá lagfæringar. Skrokkurinn
er ekki mjög mitkið skemmdur,
Það eru að vísu dældir á báð-
um síðum fyrir neðan lest og
það verður mikið verk ef á að
byggja skipið upp aftur. En mér
myndi þykja hræðilegt að þurfa
að rífa það í brotajám, þetta
er svo glæsilegt skip og ekki
nema fimm ára gamalt. Vélarn-
ar eru óhreyfðar og mikil olía
á þeim, svo að ég held að þær
séu ekki skemmdar. Ég vona
að skipið eigi eftir að sigla aft-
ur, en það er ekki annað að
gera núna en að bíða og sjá
hvernig til tekst.
Ingrid Bergman leikur aft-
ur á sviði í Bandaríkjunum.
Los Angeles, Kaliforníu, 4.
ágúst — AP —
Leikkonan Ingrid Bergman
kom til Los Angeles frá Par-
ís í gær, fimmtudag, að hefja
æfingar á leikriti sem bind-
ur enda á 21 árs útilegð henn
ar af sviði bandarískra leik-
húsa. Leikritið er „More
Stately Mansions” eftir banda
ríska leikritaskáldið Eugene
O’Neill og verður frumsýn-
ingin 12. september. Með Ing-
rid Bergman leika m.a. Art-
hur Hill og Colleen Dew-
hurst.
Fréttamönnum
AP og Reuter
visað frá Kongö
Grikkir mótmæla
herstjórninni
Kinshasa, Kongó, 4 ágúst
NTB-AP
STJÓRNIN í Kongó hefur vísað
öllum fréttamönnum og ljós-
myndurum Associated Press
fréttastofunnar úr landi á þeirri
forsendu, að þeir hafi sent úr
landi rangar upplýsingar. Til
sömu ráðstafana var gripið gegn
einum Téttamanni frá Reuter og
er öllum þessum mönnum gert
að verða á brott úr landi innan
tveggja sólarhringa. Jean Jacqu-
es Kande, upplýsingamálaráð-
herra, upplýsti í dag, að Josep
Mobutu, forseti, hefði tekið þessa
ákvörðun sjálfur.
Kande skýrði einum AP-frét.ta
mannanna svo frá, að Mobutu
hefði mjög gramizt fregn þeirra,
þar sem sagði, að heyrzt hefði
að Tshombe yrði fluttur til
Kongó um Kairó í Egyptalandi
með sovézkri flugvél. Ennfrem-
ur fregn, þar sem sagði eftir inn
anríkisráðherra Kongó, Etienne
Tshisekedi, að hvítir menn hefðu
verið drepnir og etnir í Katanga
og hefðu hermenn verið þar að
verki.
Reuter-fréttamaðurinn hafði
sent frétt um fall Kongóher-
manna í viðureign við málaliða,
sem Mobutu ekki líkaði.
Þá herma fregnir frá Kamebe
í Rwanda, að um hundrað Kongó
hermenn hafi í gær fallið í átök
um við málaliða í nágrenni
Bukavu. Hafði fréttamaður AP
þetta eftir frönskum manni, sem
búsettur er þar í nágrenninu.
Sá hinn sami sagði, að fram-
koma Kongóhermanna þar hefði
verið slík, að kongóskir verka-
menn hans hefðu farið þess á
leit við sig að greiða sér ekki
laun fyrst um sinn — þar sem
þeir óttiuðust, að hermennirnir
rændu laununum frá þeim.
Þær fregnir eru síðastar varð-
andi Moise Tshombe, að dagblað
ið „E1 Moudjahid“ í Alsír, sem
er að verulegu leyti undir stjórn
areftirliti, hafi á ný lagt fram þá
uppástungu, að settur verði á
stofn sérstakur afrískur dóm-
stóll til þess að fjalla um mál
Tshombes.
Toronto og Kaupanannahöfn,
4. ágúst (AP-NTB)
SAMTÖK Grikkja búsettra í
Danmqrku hafa skorað á félags-
menn að slíta ölium tengslum
við sendiráð Grikklands í Kaup-
mannahöfn. Segir talsmaður sam
takanna, að þessi áskorun eigi
rót sína að rekja til þess a'C
margir Grikkir hafa lent í erfið-
leikum er þeir leituðu aðstoðar
sendiráðsins m.a. við framieng-
ingu vegabréfa til að endurnýja
atvinnuleyfi sin í Danmörku.
Varaformaður samtakanna,'
Statis Rigass, hefur sikýrt Ritzau
fréttastofunni svo frá, að sendi-
ráðið setji það skilyrði fyrir
framlengingu vegabréfa, að við-
komandi undirriti yfirlýsinigu
um að hann muni ekki vinna
gegn grísfcu stjórninni. Hleldur
Rigass því fram, að sendiráðið
hafi sent leynilegar upplýsingar
og myndir til Grikfclands með
skýrslum um grísfca borgara í
Danimörku. Myndirnar eru að
sögn Rigass teknar úr dagblöð-
unum, sem oft hafa birt myndir
af mótmælaaðgerðum Gnikkja í
Danmörku gegn henforingja-
stjórninni í heimalandinu.
Gríisfcu samtökin í Danmörku
láta sér ekki nægja að skora á
félagsmenn sína að hætta sam-
skiptum við sendiráðið, heldur
hvetja þau þá til að gefa sendi-
ráðinu engar upplýsingar um
störf sín. Grikkjum í Danmörku
er nokkur vandi búinn við fram-
lengingu á atvinnuleyfum, ef
þeir slíta sambandi við sendiráð-
ið, en fulltrúar samtakanna hafa
átt viðræður við dönsk yfirvöld
um málið og hlotið góðar undir-
tektir. Vonast þeir til að unnt
verði að semja um viðunandi
lausn.
Talsmaður gríska sendiráðs-
ins í Kaupmannahöfn, J. Thano-
poulos, sendiráðsritari, kvaðst
ekki skilja þessi viðbrögð sam-
takanna. Segir hann að sendi-
ráðið hafi aldrei farið fram á
neinar yfirlýsingar um stuðning
við ríkisistjórnina frá þeim, sem
framlengja þurfa vegabréif sín.
Heldur hann því fram að engin
breyting hafii orðið á starfsemi
sendiráðsins við stjórnarskiptin
í Grikklandi.
Mótmæla konungskomu
f Kanada hafa Grikkir, sem
þar eru búsettir, undirrriitað
mótmælaaðgerðir í tilefni vænt-
anliegrar heimsóknar Konstan-
tíns konungs síðar í þessium mán
uði. Talsmaður grískættaðra
manna í Toronto, Demitrios Mak
of, sfcýrði frá því í dag, að um
30 þúisund grískættaðir íbúar
Toronto, hefðu ákveðið að fara
í mótmælagöngu hinn 25. ágúst,
daginn sem Konstantín er vænt-
anlegur þangað. Segir Makof að
konungur sé „höfuðástæðan“ fyr
ir byltingu hersins fyrr á þessu
ári.
Konstantín toonungur kemur
til Toronto til að taka þátt í
heimsmieistarakieppni í sigling-
um, sem þar fer fram dagana
28. ágúst til 3. september.
Vegleg gjöf
tU Skólholts
HINN 3. þm. barst Skálholti veg-
leg peningagjöf. Frú Ingunn
Sveinsdóttir á Akranesi afhenti
biskupsritara 50.000.00 fcró i.ir
sem gjöf til Skáliholts. Frú Ing-
unn tók það fram við afhend-
ingu gjafarinnar, að hún fæli
biskupi að ákveða, til hvaða stofn
unar eða starfisemi við upo^ygg-
ingu Sfcálholts fjárhæð þessi
skyldi renna.
Haile Selassie í Júgóslavíu
Pula, 4. ágúst — AP ^
HAILE Selassie, Eþíópíukeisari,
kom til Júgós-lavíu í dag, í
tveggja daga heimsókn, í boði
Títós, Júgóslavíuforseta.
Norrænir tónlistardagar
í Reykjavík
SÍÐAN 1947 hefur Tónlistarhá-
tíð Norðurlanda, eða „norrænir
tónlistardagar", verið haldnir
reglulega í höfuðborgum Norð-
urlanda. Þessi tónlistarhátíð var
haldin í Reykjavík í júní 1954
og nú er röðin aftur komin að
Reykjavík. Tónlistarhátíð Norð-
urlanda verður haldin dagana
17. til 23. september n.k.
Dómnefnd með fulltrúum frá
öllum Norðurlöndum valdi tón
verk þau, sem flutt verða á fjór-
um tónleikum. Auk þess verður
hátíðarsýning í Þjóðleikhúsinu
á leikritinu „Galdra Loftur" með
tónlist eftir JónLeifs. Stjórnandi
verður Páll P. Pálsson.
Ríkisútvarpið og Sinfóníu-
hljómsveitin hafa tekið að sér
framkvæmd hátíðarinnar, og
bjóða upp á sérstakan íslenzkan
hljómsveitartónleik í hátíðar-
vikunni. Þar er ætlunin að gefa
yfirlit yfir íslenzkar hljómsveit-
artónsmíðar eftir tónskáld á öll-
um aldri.
Svo sem áður er sagt, valdi
norræn dómnefnd verkin á fjóra
tónleika. Tveir tónleikanna
verða kammertónleikar, sem
Musica Nova sér um. Stjórnandi
hljómsveitartónleikanna verður
Bohdan Wodiczko.
Dagskrá hátíðarinnar verður
sem hér segir:
Sunnudaginn 17. september,
hátíðarsýning í Þjóðleikhúsinu,
„Galdra Loftur” með tónlist eft-
ir Jón Leifs.
Mánudaginn 18. september,
kammertónleikar í umsjá Mus-
ica Nova. Þar verður flutt
„Hringspil” eftir Pál P. Pálsson,
kórverk eftir Bjarna Slögedal,
Vagn Holmboe og Jón Leifs,
„Elegía“ eftir Tor Brevik, píanó
tónsmíðin „Gaffkys* eftir Gunn
ar Berg og blásaraoktett eftir
Rautavaara.
Þriðjudaginn 19. september
verða hljómsveitartónleikar.
Flutt verða „Serenade" eftir
Björn Fongaard, „Píanókonsert"
eftir Hermann Koppel, en þar
mun höfundur sjálfur leika ein-
leik og „Sinfónía nr. 2“ eftir
Osmo Lindeman.
Fimmtudaginn 21. september
verða aðrir kammertónleikar.
Þar leikur kvartett undir for-
ustu Björns Ólafssonar strok-
kvartetta eftir Deák, Rydman,
Werle og Salmenhaara. önnur
verk verða „Suoni" eftir Her-
manson, „Risposte 1“ eftir Nau-
mann og „Magnificat" eftir Hov
land.
Föstudáginn 22. september
verða síðari hljómsveitartónleik
arnir. Þar verður flutt „Mut-
anza“ eftir Lidholm, „Sinfónía”
eftir Kokkonen, „Respons" eft-
ir Nordheim. Guðrún Tómas-
dóttir mun syngja einsöng í „A
L’inconnu" eftir Rovsing-Olsen
og Ruth Little Magnúson í
„Herbsttag" eftir Borup-Jörgen-
sen, en tónleikunum lýkur með
sinfóníu Leifs Þórarinssonar.
Á tónleikunum, sem Sinfóníu-
hljómsveitin og Ríkisútvarpið
halda miðvikudaginn 20. sepem
ber, verður flutt „Passacagila"
eftir Pál ísólfsson, „Adagio"
eftir Jón Nordal, „Þrír Davíðs-
sálmar’* eftir Herbert H. Ágústs
son, sem Guðmundur Jónsson
syngur, ,Sönglög“ eftir Fjölni
Stefánsson, sem Hanna Bjarna-
dóttir syngur, „Hlými” eftir
Atla Heimi Sveinsson og „Raps-
ódía“ eftir Jón Ásgeirsson.
ÓKugsandi að
styðja JoKnson
segir James M. Gavin
Cambridge, 4. ágúst — AP —
JAMES M. Gavin, fyrrum hers-
höfðingi og sendiherra Banda-
ríkjanna í Frakklandi, hefur
sagt lausu sæti sínu í ráðgjafa-
nefnd demókrataflokksins i
Massaschusettes á þeirri for-
sendu, að hann sé svo andvíg-
ur styrjöldinni í Vietnam, að
hann geti ekki fengið sig til
þess að styðja endurkjör Lynd-
ons B. Johnsons í embætti for-
seta í kosningunum 1968.
Gavin hefur haldið uppi
harðri gagnrýni á stefnu Banda
ríkjastjórnar í Vietnam frá þvl
snemma á árinu 1966.