Morgunblaðið - 13.08.1967, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1967
Útibú Búnaðarbankans
í Hveragerði opnað
'S.L. föstudag tók til starfa að
Breiðumörk 19 í Hveragerði nýtt
utibú Búnaðarbanka íslands fyr-
ir Ámessýslu. Fjöldi gesta úr
’héraðinu voru viðstaddir opnun
útibússins ásamt landbúnaðar-
ráðherra, fjármálaráðherra,
bankaráði og bankastjórn.
Stefán Hilmarsson bankastjóri
flutti við þetta tækifæri fróð-
legt erindi um landbúnaðar-
framleiðslu Árnessýslu og hlut-
deild Búnaðarbankans og stofn-
lánasjóða hans í hinni öru þró-
un landbúnaðarins á undanföm-
um áratugum. í ræðu banka-
stjórans kom meðal annars fram,
að til Árnessýslu hafa verið veitt
mun fleiri framkvæmdalán en
til nokkurrar annarrar sýslu úr
stofnlánasjóðum bankans og
hærri að fjárhæð. Útistandandi
lán munu nú vera um 140 millj.
króna í sýslunni.
Árnesingar eiga nú tæpan
fimmta hlutann af nautgripa-
stofni landsmanna og framleiðsla
sama hundraðshluta af öllum
mjólkurafurðum.
Framleiðsla garðyrkjubænda
er einnig sú mesta á landinu. Þá
rakti bankastjórinn stefnu og
starfsaðferðir Búnaðarbankans í
lánamálum landbúnaðarins.
Útibúið í Hveragerði er hið
áttunda, sem bankinn setur á
stofn úti á landi auk fimm úti-
búa í Reykjavík, og hafa þau
öll eflzt mjög ört og orðið lyfti-
stöng atvinnulífi héráðanna.
Þessi þróun væri eðlileg og í
samræmi við lög og tilgang bank
ans að greiða fyrir peningavið-
skiptum þeirra, er stunda land-
búnaðarframleiðslu.
Fjöldi ræðumanna fagnaði
stofnun útibússins, þ.á,m. Ing-
ólfur Jónsson landbúnaðarráð-
herra, Þorsteinn Sigurðsson for-
maður Búnaðarfélags Islands,
Pá)l Diðriksson bóndi, Búrfelli,
Stefán Guðmundsson hreppstjóri
Hveragerði, séra Sigur’ður Páls-
son, Hraungerði og Einar Flyg-
enring sveitarstjóri í Hveragerði.
Einig tók til máls Jón Pálma-
son, formaður bankaráðs Búnað-
arbankans, og hinn nýi útibús-
stjóri, Tryggvi Pétursson, fyrrum^—
deildarstjóri Búnaðarbankans, en
hófinu stýrði Baldur Eyþórsson,
Gjaldkeri og bókari útibúsins er
varaformaður bankaráðsins.
Ragnar Guðjónsson, fyrrum
sparisjóðsstjóri.
Sparisjóður Hveragerðis og ná
grennis hættir nú störfum og
sameinast Búnaðarbankanum.
Gagngerðar breytingar hafa
farið fram á húsi bankans og
önnuðust þær ýmsir heimamenn
í Hveragerði undir stjórn Stefáns
Guðmundssonar og Svavars Jó-
hannssonar =kipulagsstjóra bank-
ans Húsakynnin eru hin vistleg-
ustu.
Óbreyttar vísltölur
f FRÉTTATILKYNNINGU frá
Hagstofu íslands segir, að vísi-
tala framfærslukostnaðar í
ágústbyrjun hafi reynzt vera
195 stig eða hin sama og í byrj-
un júlí. Matvöruvísitalan hefur
hækkað um eitt stig, en vísi-
tala fatnaðar og álnavöru hefur
aftur á móti lækkað um eitt stig.
Aðrir liðir eru óbreyttir.
f júlímánuði hækkaði verð á
aokkrum vörum í vísitölunni,
aðallega innfluttum vörum. Til
mótvægis þessum verðhækkun-
um var niðurgreiðsla kartöflu-
verðs aukin sem svarar 0,7 vísi-
tölustigum frá og með ágústbyrj
un.
Kaupgreiðsluvísitala hefur ver
ið reiknuð eftir vísitölu fram-
færslukostnaðar í ágústbyrjun
og reyndist hún vera 188 stig,
eða óbreytt frá því, sem var við
síðasta útreikning.
Samkvæmt þessu skal á tíma
bilinu 1. sept. til 30. nóv, 1967
greiða sömu verðlagsuppbót og
greidd er á tímabilinu 1. júní til
31. ágúst 1967, þæ. 15.25% á
grunnlaun.
Sex fogarar
með 1300 tonn
— til Reykjavíkur það sem af er ágúst
Togaralandanir í Reykjavík 333
ÞAÐ sem af er þessum mánuði
hafa 6 togarar landað í Reykja-
vík rúmlega 1300 tonnum af
fiski, að mestu leyti karfa, sem
farið hefur til vinnslu í frysti-
húsunum.
í byrjun mánaðarins komu Eg-
ill Skallagrímsson og Ingólfur
Arnarson með fullfermi, 243
tonn hvor, og Neptúnus landaði
265 tonnum. Sjöunda ágúst kom
Hallveig Fróðadóttir með 185
tonn og daginn eftir kom Nep-
túnus aftur vegna bilunar og
landaði 58 tonnum. Hinn níunda
kom Jón Þorláksson með 212
tonn og í fyrradag kom Marz
með tæp 120 tonn.
Eftir helgina koma Þormóður
goði og Púpiter til Reykjavíkur,
en ekki er vitað um afla þeirra.
Lægðin yfir Grænlandshaf
inu olli rigningu við SV-
ströndina í gærmorgun, og
voru horfur á að regnveðri?
yrði komið inn yfir landið
síðdegis.
Um helgina er útlit fyrir,
að suðlæg átt haldist, svo að (
þá má búast við góðu veðri
norðan lands, en vætu fyrir
sunnan.
Paul Michelsen garðyrkjumaður, Hveragerði fyrsti viðskiptavinurinm í hinu nýstofnaða útibúi
Búnaðarbankans í Hveragerði er afgreiddur af gjaldkera bankans Ragnari Guðjónssyni. Paul
Michelsen fékk reikning No. 1 við útibúið.
Ráðstefna um þróun á skipu-
lagsbyggingu atvinnuveganna
— haldin á vegum Stjórnunarfélags Islands
Stjórnunarfélag Islands hefur
ákveðið að halda ráðstefnu um
þróun í skipulagsbyggingu at-
vinnuvega, samvinnu, samruna
og stækkun rekstrareininga, þar
sem forstöðumenn og fuUtrúar
fyrírtækja, félaga og stofnana
koma saman, til þess að hlýða á
fræðandi erindi, ræða vandamál-
in, skiptast á skoðunum og
reynslu.
Ráðstefnan verður haldin að
Hótel Bifröst, fimmtudag 31.
ágúst, föstudag 1. sept. og laug-
ardag 2. sept. n. k.
Tilgangur ráðstefnunar er:
1. Að kanna, hvaða gildi skipu
lagsbygging atvinnuveganna hef-
ur fyrir framleiðni, samkeppnis-
hæfni og afkomu þeirra.
2. Að kanna, hvaða megin or-
sagir hafa verið að verki í mynd-
un núverandi skipulagsbygging-
ar, helztu greina atvinnulífsins.
Einkum séu dregnar fram þær
orsakir, sem beinlínis hafa stuðl-
að að smárekstri.
3. A‘ð kynna ráðstafanir, sem
kunnugt er, að gerðar hafa verið
erlendis, í því skyni að endur-
bæta skipulagsbyggingu atvinnu-
vega.
4. Að kanna, hvaða breytingar
eru æskilegar í skipulagsbygg-
ingu íslenzkra atvinnuvega og
hvernig mætti koma þeim breyt-
ingum í framkvæmd.
Jakob Gíslason, orkumála-
stjóri, formaður Stjórnunarfélags
ins, mun setja ráðstefnuna 31.
ágúst og síðan flytur Guðlaugur
Þorvaldsson, prófessor, erindi er
nefnist:
Skipulagsbygging íslenzkra
atvinnuvega og framtíðarviðhorf.
Föstudaginn 1. september
verða eftirfarandi erindi flutt:
1. Hvaða gildi hefur skipulags-
Nagasa&i, 9. ágúst AP.
HINIR 420.000 íbúar borgarinnar
Nagasaki í Japan héldu í dag
einnar mínútu bænarþögn kl.
11.02 að staðartíma, en á þeim
tíma féll á borgina önnur kjarn-
orfcusprengj an, sem Bandaríkin
létu falla á Japana í síðari heims
styrjöldinni. í þessari sprengingu
er talið. að hafi farizt um 73.000
manns og meistur hluti Naiga-
sakiborgar var lagður í rúst. Á
sunnudaginn var, 6. ágúst, var
í Hiroshima minnzt þess, að 22
ár voru liðin síðan fyrri kjarn-
orkusprengja Bandaríkjanna féll
á Japan.
Leiðrétting
I viðtali við Steindór Steindórs
son frá Hlöðum, sem birtist í
blaðinu í gær, slæddust inn tvær
prentvillur. I fyrsta dálki stend-
ur, er rætt er um ritgerð eftir
Steindór: „Siðari hlutinn mun
koma út á þessu ári“. Þama átti
að standa: „Siðasti hlutinn. ..“.
í fimmta dálki ræðir Steindór
um lífið og hefur þá fallið út
eitt orð. Setningin er rétt svona:
„Nei, lífið getur verið skemmti-
legt, auðugt og litríkt ef menn
hafa hug á og kunna að lifa
því svo.“
Saltvík opnar
um nœstu helgi
Skemmtistaður unga fólksins
— Saltvik opnar um næstu helgi,
en unnið hefur verið af kappi
að öllum framkvæmdum og á
nú aðeins eftir að leggja loka-
hönd á verkið. Á föstudag var
lokið við að leggja gólf í hlöðuna
á staðnum, en hún verður notuð
sem danshús.
Á laugardag verður dansað frá
kl. 21 til 02 og leikur hljóm-
sveitin Tempó fyrir dansi, en
hún er nú meðal vinsælustu
unglingahljómsveita landsins. Þá
verður varðeldur kynntur á
mfðnætti, flugeldasýning o. fl.
Ekki verður mikið um leik-
tæki fyrstu helgina, enda er hug-
myndin sú, að unga fólkið finni
sjálft hvað vanhagar um
og langar til að fá og komi ósk-
um sínum síðan á framfæri við-
komandi aðila.
Forráðamenn skemmtistaðar-
ins vænta þess að unga fólkið
taki þessari framkvæmd vel og
fjölmenni í Saltvík um næstu
helgi. Framtíð staðarins er háð
því.
bygging atvinnuveganna fyrir
framleiðni, samkeppnishæfni og
afkomu þeirra.
Fyrirlesari: Sven Ásbrink for-
stjóri Grangesbergsbolaget í Sví-
þjóð.
2. Samstarf og samruni fyrir-
tækja hér á landi: Fyrirlesari:
Þórir Einarsson, vfðskiptafræð-
ingur, Iðnaðarmálastofnun Is-
lands.
Síðan verða flutt stutt erindi
um viðhorf gagnvart stækkun
rekstrarreikninga:
1. Sjávarútvegur: Fyrirlesari
Valgarð J. Ólafsson, framkv.stj.
Valgarð J. Ólafsson hf.
2. Landbúnaður: Fyrirlesari:
Sveinn Tryggvason, framkv.stj.
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
3. Xðnaður: Fyrirlesari: Sveinn
Björnsson, framkv.stj. Iðnaðar-
málastofnunar íslands.
4. Byggingariðnaður: Fyrirles-
ari- Gu'ðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Breiðholts hf.
5. Verzlun: Fyrirlesari: Hilmar
Fenger, framkvæmdastjóri Natan
& Olsen hf.
Þá munu fara fram hópum-
ræður um einstaka atvinnuvegi.
Þar á eftir verður flutt erindi
er nefnist:
Þáttur skipulagsbyggingar i
framtíðaráformum —. liður í
auknum styrkleika einstakra
fyrirtækja og framfaraþróun at-
vinnuvega.
Fyrirlesari: Lars Mjös, forstj.
Industrikonsulent í Noregi.
Laugardagur 2. september.
Fyrir hádegið verða flutt tvö
erindi:
1. Þróun erlendis til samstarfs
og samruna fyrirtækja. Fyrir-
lesari: Sven Ásbrink, forstjóri
Grangesbergsbolaget í Svíþjóð.
2. Fjárhagsleg vandamál í sam
bandi við samruna fyrirtækja.
Fyrirlesari: Árni Vilhjálmsson,
prófessor.
Seinna um daginn fara fram
hópumræður um skipulagsbygg-
ingu atvinnuveganna, þar sem
eftirfarandi atriði verða rædd:
1. Hver eru sérkenni skipu-
lagsbyggingar íslenzkra atvinnu-
vega?
2. Er þörf á endurbótum I
skipulagsbyggingu atvinnuveg-
anna — og ef svo er, þá hverj-
um?
3. Er þörf stærri og færri
rekstrareininga í íslenzkum at-
vinnuvegum?
4. Hvaða ráðstafanir er hægt
að gera, hér á landi, til að ýta
undir hugsanlegar endurbætur
Framhald á bl*. 31