Morgunblaðið - 08.09.1967, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPT. 1967
Rúmt hundrað sdtti um
stöður við sjönvarpið
UmsókiKarfrestur <um etöður
við sjónvarpið rann út 25. ágúst
síðastliðinn- Með fjölgun sjón-
varpsdaga í viku er þörf aukins
Litil
síldveiði
SÉLDARFRÉTTIR LÍÚ fimmtu-
daginn 7. september.
Kaldi var á síldarmiðunum sl.
sólarhring og lítil sem engin
veiði.
12 skip tilkynmu 1,710 lestir alls. um afla,
Raufarhöfn lestir:
Hannes Hafstein EA 140
Sigurþjörg ÓF 170
Héðinn ÞH 200
Örfirisey RE 130
Börkur NK 230
Halkion VE 140
Guðmundur Péturs ÍS 60
Dalatangi lestir
Hólmanes SU 70
Ásgeir RE 160
Harpa RE 200
Hugrún ÍS 130
Víkinguæ III. ÍS. 80
Djakarta, 7. sept.
Amir Maehumud hershöfðingi
sagði í Djakarta í dag, að rúm-
lega 3000 föngum, sem grunaðir
voru um þátttöku í samsæri
kommúnista haustið 1965 yrðu
brátt leystir úr haldi Maóhumud
gaf engar skýringar á þessum
náðunum.
starfsliðs og voru 33 stöður aug-
lýstar til uimsóknar. Á annað
hundrað umsókna barst og var
sótt uim flestar þær stöður sem
auglýstar voru. Verið e>r að
vinna úr umsólknunum, en
menntamálaráðherra gengur end
anlega frá skipun fólks í stöð-
umar. Úrvinnslunni er hraðað
sem verða má og verða stöðurn-
ar veittar áður en langt um líð-
ur.
Stöður þær sem hér um ræðir
eru stöður dagskármanna, að-
stoðaffióilks í frétta- og fræðslu-
deild og lista- og skemmtideild
og kvikmyndatökumanna og
k v ifemy nda g e r ðarfiól ks.
Slökkviliðið og Almannavarnir
nýtt æfingasvæði í Öskjuhlíð
fá
Á FUNDI sinum sl. þriðjudag
samþykkti borgarráð að heimila
æfingasvæði slökkviliðs og Al-
mannavarna í Öskjuhlið. Mbl.
talaði við Rúnar Bjarnason,
slökkviliðsstjóra, og gaf hann
eftirfarandi upplýsingar.
Fyrir nokkru fór Almanna-
varnadeild Reykjavíkur þess á
leit við borgarráð, að þessu
svæði yrði ekki ráðstafað til
annarrar notkunar vegna n,auð-
synjar á æfingasvæði fyrir
slökkviliðið og Almannavarnir.
Leyfi borgarráðs er háð þeim
skilmálum, að svæðið verði
áfram opið umferð og almenn-
ingi, þegar æfingar fara ekki
fram og éinnig, að svæðið verði
ógirt í framtíðinni.
Svæði þetta er rúmir tveir
hektarar og liggur sunnan við
hitaveitustokkinn og allt suður
fyrir grjótnámið gamla. Sagði
slökkviliðsstjóri, að svæði þetta
væri mjög heppilegt sem æfinga
svæði fyrir slökkviliðið og Al-
mannavamir en einnig gætu aðr
ar björgunarsveitir fengið þar
aðstöðu til eflinga. Væri mjög
Engin ákvörðun tekin
— hvort innflytjendur greiði tolla af
brunnum vörum í Borgarskálum
TALSVERÐAR vangaveltur «ru
mamna á meðal, hvort þeir aðil-
ar, se*n vörnr áttn í vöru-
skemmum Ehnidtips, 9em brunmi
komi til með að þurfa að greiða
tolla af vamJngrmm, seim brann.
Á hitwi bóginn «r Ijóst að inn-
flytjendur mimu þurfa að greiða
farmgjöld fyrtr þær vörur.
Til að fá svar við fyrrnefnda
atriðinu sneri Mbl. sér til Björns
Hermannssonar í fjármálaráðu-
neytinu. Hann kvað þetta mál
hafa verið rætt í ráðuneytinu,
en en/gin ákvörðun verið tekin
enn. Tollalögin heimiluðu hvor-
tveggja, þ.e. að láta greiða
tolla af brunnum vörum eða
veita undanþágur frá því í til—
vikum sem þessum. Bjóst bann
við, þar sem málið væri svo
veigamikið, að fjármálaráðherra
myndi sjálfur taka ákvörðun í
médinu.
Torfi Hjartarson, tollstjóri,
tjáði Mbl. að tollar hefðu verið
gefnir eftir, þegar vörusíkemmu-
bruninn varð í örfirisey fyrir
fáeinum árum, en jafiníramt var
þá tekið fram, að efcki mætti
líta á það sem fordæmi-
æskilegt, að náin tengsl sköpuð-
ust milli Almannavarna og
annarra sjálfboðaliða, sem að
björgunarmálum vinna.
Þá sagði slökkviliðsstjóri, að
nú væri verið að vinna að stofn
un sérstakrar björgunarsveitar
innan Almannavarna og yrði
henni skipt í ýmsar deildir, svo
sem ruðningasveit til bjargar
fólki úr rústum, sjúkraflutninga
sveit, fjarskiptasveit, hjálpar-
sveitir, lögreglu- og slökkviliðs,
og svo nefndar A-b-c sveitir en
meðlimir þeirra verða þjálfaðir
í meðferð og notkun tækja, sem
mæla gashættu, geislavirkni og
þess háttar.
Loks sagði slökkviliðsstjóri,
að með hinu nýja æfingasvæði
í Öskjuhlíð batnaði mjög öll að-
staða slökkviliðs til æfinga en
þó þyrfti að gera þar nokkrar
ráðstafanir fyrst, m.a. taka úr
notkun benzíngeyma, sem á
svæðinu eru og fleira.
Stálvörn við
Keflavíkurveg
UNDANFARIÐ hefur verið
unnið að því að setja upp stál
girðingu meðfram Keflavík-
urveginum fyrir ofan Hafn-
arfjörð. Samkvæmt upplýs-
ingum Vegamálaskrifstofunn-
ar er þetta gert til öryggis,
þar sem húsin fyrir neðan veg
inn standa mjög nálægt hon-
um og að ofanverðu er kant-
urinn mjög hár. Nær girð-
ingin út fyrir Sethergsveg, en
ekki miin ætlunin að girða
lengra meðfram veginum —
a.m.k. ekki að svo stöddu.
Myndin er af vörninni með-
fram Keflavíkurveginum.
Undarlegt umferðar-
óhapp á Akureyri
Akureyri, 7. sept.
UNDARLEGT umferðaróhapp
varð í Hafnarstræti kl. 13:35 í
dag. Stór kranabifreið var á leið
norður götuna og veitti öku-
maðurinn því athygli, að spyma
(járnstöng, sem látin er nema
við jörð, þegar kraninn er að
störfum) hjá hægra afturhjóli
hafi losnað, vegna biiunar á
splitti, og skagaði hún um einn
og hálfan meter út frá bifreið-
inni.
Fiat-fólksbifreið stóð mann-
laus við stöðumæli fyrir framan
Akureyrarapótek og hafði eig-
andinn, Sigurbjörn Friðriksson,
brugðið sér inn í Apótekið. Er
ekki að orðlengja það að spyrn-
an á kranabifreiðinni kræktist
undir vinstra afturhorn fólks-
bifreiðarinnar, kippti henni upp
á gangstéttina og slengdi henni
á húsið af miklu afli. Höggið var
svo mikið, að fólksbifreiðin
skekktigt öll og beyglaðist mik-
ið og er hún talin ónýt.
Svo lánlega tókst þó .til, að eng
inn var á þessari stundu stadd-
ur á gangstéttinni, þar sem
óhappið varð, þótt þar sé ann-
ars sjaldan mannlaust, enda stað
Niðurstaða fengin
i deilunni um
Kisiliðjuveginn
f GÆRKVÖLDI afhentu hæsta-
réttardómararnir Gizur Berg-
steinsson, Einar Arnalds og Jón-
atan Hallvarðsson úrskurð sinn
uim það, hvort friðlýsing Nátt-
úruverndarráðs á nýja hraun-
inu milli Reykjahlíðar og Gríms
staða í Mývatnssveit innan eins
kílómeter fjarlægðar frá bakka
Mývatns rifti hinuan staðfesta
skipulagsuppdrætti, þar sem
vegarstæði hins svonefnda Kís-
iliðjuvegar er ákveðið, eða ekki.
Hafa báðir málsaðilar. Náttúru
verndarráð og skipulagsstjórn
samþykkt að hlíta niðurstöðu
hæstaréttardómaranna þriggja.
Mbl. tókst ekki í gærkvöldi að
afla sér upplýsinga um niður-
stöðu gerðardómsins en hún
verður væntanlega birt í dag.
urinn í hjarta bæjarins.
Þar sem hægri framhlið fólks-
bifreiðarinnar skall á húsinu var
veggurinn aðeins 40 til 50 sm.
breiður og var stór sýningar-
gluggi öðru megin en hinum
megin dyr apóteksins. Skemmd-
ir urðu engar á húsinu, nema
hvað niðurfallsrör úr þakrennu
lagðist saman.
Milli Fiat-bifreiðarinnar og
næstu bifreiðar fyrir framan
voru aðeins fáir sm. Hvorki þann
bil né stöðumælinn sakaði hið
minnsta.
20 stiga hiti var á Akureyri
eftir hádegið í dag.
— Fréttaritari.
Tókíó, 7. sept.
Alþjóðleg ráðstefna um bygg-
ingu atómsins hófst í Tókíó í dag.
Ráðstefnuna sitja 330 eðlisfræð-
ingar frá 26 löndum.
San Francisco, 7. sept. AP.
Jarðskjálfta varð vart í San
Francisco skömmu eftir hádegi
i dag, en hann olli engu tjóni
enda tiltölulega vægur.
Kœrf vegna meints brots
á vökulögum
HLÝTT loft sunnan af hafi
var hér á landi í gær- Hitinn
var víðast 10—12 stig og sums
staðar hærri í innsveitum á
Norður- og Austurlandi síð-
degis. Á Akureyri var einna
hlýjaist, eða 18 stig um nón-
bilið.
Lægðin suður af Græn-
landi mun halda norður á bóg
inn, og því má búast við suð-
lægri átt hérlendis um heligina
með bjartviðri og hlýindum
um norðan- og austanvert
landið, en einhverri vætu
suðvestan tiL
RANNSÓKN stendur nú yfir í
máli stjórnenda á togaranum
Þormóði goða, vegna kæru, sem
Sjómannafélag Reykjavíkur
lagði fram á hendur þeim fyrir
meint brot á lögum um hvíldar
tíma háseta á íslenzkum botn-
vörpuskipum. Jón A. Ólafsson,
fulltrúi sakadómara, hefur rann
sókn málsins með höndum og
snéri Mbl. sér til hans í gær.
Jón sagði, að kæra Sjómanna-
félagsins byggóist á viðtali sem
birzt hefði : dagblaðinu Vísi,
við skipstjóra Þormóðs goða,
þegar togarinn kom hekn úr
veiðiferð af Grænlandsmiðum.
Málið var tekið fyrir hjá
Sakadómi 22. júni sl. og lýkur
yfirheyrslum væntanlega fyrir
næstu helgi og verður málið þá
sent saksóknara til ákvörðun-
ar.
Mbl. hafði einnig saimhand við
Þonstein Arnalds, framkvæmda
stjóra Bæjarútgerðar Reykja-
víkur.
Hann kvaðst sem minnst um
málið vilja segja, þar eð rann-
sókn væri enn ólokið en tók það
fram, að ef unnið hefði verið
fram yfir þann tíma, seim samn-
ingar heimila, um borð í Þor-
móði goða í þessari veiðiferð,
þá hefði það eingöngu verið
gert til að bjarga verðmætum
og þá bæði í þágu útgerðarinnar
og áhafnarinnar sjálfrar.
Eins og kunnugt er hefði afli
togaranna verið mjög tregur á
síðustu árum en glæðzt talsvert
að undanförnu og væri því ekki
nema skiljanlegt, að skipstjóri
og skipverjar vildu nýta sem
bezt þá möguleika, sem þeim
bærust I hendur.
Skipstjórinn á Þonmóði goða
sagði Þorsteinn, hefur sýnt fram
framúrskarandi dugnað síðan
hann tók við skipstjórn og er
einn þeirra skipstjóra, sem eiga
ríkan þátt í því, að mena hafa
aftur öðlast trú á togaraútgerð
hér á landi, og á hann miklar
þakkir skildar fyrir sorf sín.
Að lokum sagði Þorsteinn, að
eflaust mundi mönnum þykja
það súrt í brotá ef t.d. skipstjór-
ar á síldveiðiskipum yrðu kærð-
ir fyrir að fullnýta alla veiði-
möguleika, ef úr rættist með
aflabrögð á síldveiðunum.
Mbl. hafði einnig samband við
Sjómannafélag Reykjavíkur en
þeir kváðust ekkert vilja um
málið segja.