Morgunblaðið - 10.09.1967, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. SEPT. 1967
J' 10
!
MEXICO — eða fullu nafni
Bandaríki Mexieo, sem á
spænsku heitir Estados Unidos
Mexieanos, verður vettvangur
mestu Olympíuleika og þar
munu fræknustu íþróttamenn og
konur heimsins fylkja liði og
mætast til átaka að rúmu ári
liðnu, eða í októbermánuði
1968.
Margir hafa gagnrýnt þá
samþykkt alþjóða Olyimpíu-
nefndarinnar að balda Olympíu
leikana 1968 í Mexico. Sú gagn-
rýni stafar einkum af því, að
Mexicoborg er byggð á hásléttu
2400 m yfir sjávarmáli og hið
þunna loft í þeirri hæð hefur
mikil og margvísleg áhrif á getu
íþróttafólksins. Hafa sumir
íþróttamenn hreinlega gefizt
upp við æfingar fyrir næstu
leika, en aðrir bafa iagt á sig
margvíslegar aukaæfingar til
að venjast loftþynningunni.
„Reynsluleikar" hafa verið
haldnir í Mexico, þar sem vís-
indamenn hafa rannsakað áhrif
loftþynningarinnar á afreksgetu
íþróttamanna. Ýmsar þjóðir hafa
sent íþróttafólk sitt til æfinga
á stöðum sem liggja í svipaðri
hæð og sannanlega hefur tug-
milljónum króna ef ekki hundr-
uðum milljóna verið varið til
rannsókna og æfinga íþrótta-
fólks, vegna hinna óeðlilegu og
einstæðu aðstöðu sem í Mexico-
borg er.
En íþróttafólkið og þjóðir
heimsins, sem beina athyglinni
að Mexico í október á næsta ári
munu líka kynnast sérstæðri
menningu, aldagömlum venjum
og einstæðu þjóðríki þar sem
Mexikanar eru.
Landið sjálft er stórt, meira
en milljón ferkílómetrar, eða 10
sinnum stærra en ísland. Landið
byggðu árið 1960 35 milljónir
manna. Landið er hið þriðja
stærsta af Suður-Ameríkuríkj-
unum, næst á eftir Brasilíu og
Argentínu, Það er fimmtungur
af stærð Bandaríkjanna. Nafn
landsins er dregið af nafninu
Mexitli, sem er heiti stríðsguða
Aztekanna.
Mexico er langt land og mjótt,
andstæðurnar í landslagi og
landsgæðum gífurlegar. Þar eru
auðnir og eldfjöll og þar eru
gróin héruð og búsældarmikil.
Landið á nokkuð á fjórða þús-
und kílómetra landamæri við
Bandaríkin. Landið er nálega
3000 km að lengd en þar sem
það er mjóst eru 135 mílur eða
tæplega 200 km milli Mexico-
flóa og Kyrrahafsins.
fbúar Mexieo eru „blendnir
menn og kjarnakonur" eins og
Hagalín komst að orði. Þrír
fjórðu hlutar þeirra eru svo-
kallaðir Mestízar, sem að hluta
eru Indíánar en að hluta hvítir
menn. 15 af hundraði íbúanna
eru af hreinum Indíánaættum
en 10 af hundraði eru hvítir
menn. Mestízum fjölgar en Indí-
ánum fækkar, segir í alfræði-
orðabók. Þar sem víðast annars
staðar liggur fólksstraumurinn
til borganna. Árið 1960 voru
50.7% íbúanna búsettir í borg-
um, 49.3%í sveitum. Þéttbýlast
er á hásléttunni umhverfis
Mexicoborg en Veracruz, fyrir
botni Mexicoflóa er þéttbýlasta
fylkið.
Mikil stéttaskipting er í
Mexico. Aðallinn, sem er fá-
mennur hópur hvítra manna á
flestar jarðir í landinu og mik-
inn auð. Mestízarnir og Indí-
ánarnir, meginhluti þjóðarinnar
býr við fátækt og erfið kjör.
f Mexicoborg eru 3 milljónir
íbúa og er langstærst borga
landsins. Næststærst er Guadlaj-
ara með 750 þús. íbúa.
Vegna legu sinnar og hæðar
státar Mexico af einstæðu lofts-
lagi. í raun og veru eru 3 loft-
lagsbelti í landinu. Við strend-
urnar og upp í 100 m hæð er
hitabeltisloftslag, frumskógar og
að mestu ólíft. í 1000 til 2000 m
hæð er „tempraða lofrslagsbelt-
ið“ sem er næstum óbreytilegt
árið um kring, milt og gott. Á
hásléttiun.um er breytilegt lofts-
lag, kallað „tierra fría“ eða
„kalda landið“. Þar verða Olym
píuleikarnir að ári og talinn er
sá árstími sem unaðslegastur er,
allt í blómasikrúði sólskinsins.
Mexikanar hafa löngum kom-
ið öðrum þjóðum á óvart, og það
munu þeir án efa einnig gera við
framkvæmd Olympíuleikanna
að ári. Sá, em þessar línur ritar
hefur hitt forráðamenn Mexi-
kianskra íþróttafréttamanna á al-
þjóðaþingi og leið varla sá dag-
ur þinghaldsins að mexíkönsku
fulltrúarnir kæmu öðrum full-
trúum ekki þægilega á óvart
með alls kyns tiltektum og at-
höfnum, gjöfum o. fl.
Spænsku sæfarendurnir, sem
fyrstir Evrópumanna komu til
Mexco stóðu einnig höggdofa er
þeir kynntust glæsileik mexi-
kanskra hátíðahalda og þeirri
aldagömlu menningu sem mexi-
kanska þjóðin bjó við. Sögu
þeirrar menningar má rekja til
ársins 900 fyrir Krist. Hin sér-
stæða menning Mexikana, sem
þróazt hefur í vísindum og list-
um, á rætur sínar að rekja til
Anahuac dalsins þar sem sér-
stæður þjóðflokkur skapaði eigið
ríki með siðum og venjum, sem
Evrópumenn höfðu aldrei áður
kynnzt. Enn eru til ýmis meist-
Fegurð, mýkt, hraði
araverk í byggingarlist frá þeim
tímum. Cuicuilco hét aðalmenn-
ingarmiðstöð Forn-Mexikana.
Hún grófst í hraunstraumi frá
eldfjallinu Xitle og var „týnd“
í margar aldir. Hluti þessa svæð-
is hefur nú verið grafinn upp.
Nálægt þessum stað, þar sem
mexikönsk menning á rætur sín-
ar og þar sem Mexikanar fyrr
á öldum tignuðu guði sína, hafa
Mexikanar 20. aldarinnar byggt
háskóla sinn, stolt nútímamenn-
ingar í Mexico. Skólinn hefur
til umráða 7,3 millj. feirmetra
lands og á svæðinu hafa verið
■m
Olympíuleikvangurinn 1968
reistar um 50 byggingar, sem
hýsa 20 skóladeildir, auk alls
annars aðbúnaðar nemenda og
kennara. Þar eru 7 rannsóknar-
stofnanir og bókasafn. 85 þús-
und nemendur eru í skólanum
og stöðugt berast fieiri umsókn-
ir um skólavist en hægt er að
sinna. Skólagjöld eru lág og há-
skólavist því nær ölium mögu-
leg.
Mexikanar leggja ekki ein-
göngu áherzlu á andlega mennt
heldur og líkamlega. Á hinu
glæsilega háskólasvæði er full-
komin aðstaða til iðkunar allra
íþrótta. Þar eru æíing-avellir fyr-
ir frjálsíþróttamenn, 4 knatt-
spyrnuvellir, völlur fyrir „base-
ball“, 12 körfuknattleiksvellir,
þar sem einnig má iðka blak, 12
tennisvellir, 10 handboltavellir,
íþróttahöll með gólfl'öt 30—60 m
að stærð, stór sundlaug með
áhorfendasvæði fyrir 5.600
manns og 4 aðrar minni laugar
fyrir dýfingar, sundknattleik og
byrjendakennslu. Hin stærsta
þeirra ,sem er af alþjóðlegri
stærð er mjög vel útbúin. Vatnið
er sérstaklega hreinsað og hitað
upp og þó að þurfi 5000 lítra
til að fylla laugina endurnýjast
vatnið á hverjum tímum.
Olympíuleikvangurinn 1963 er
einnig á landi háskólans. Ýmsar
umibætur fara nú fram á vellin-
um, m. a. er áhorfendasvæði
hans stækkað svo að hann mun
rúma 100 þús. manns í sæti. Unn-
ið er að gerð sérstakrar heiðurs-
stúna fyrir tigna gesti auk ann-
arrar fyrir starfsmenn og blaða-
menn. Verið er að setja upp flóð-
lýsingu, sem verður ein sú full-
komnasta sem nú þekkist, auk
margs konar annárs tækniútbún-
aðar, sem mun gera Olympíu-
leikana 1968 ógleymanlega. Utan
við völlinn er einnig unnið að
stæði fyrir 6000 bifreiðir og er
þannig fyrir komið að hvaða bif
reið sem er getur ekið á brott
hvenær sem er. Unnið er einnig
að sérstökum umferðabrautum
að veliinum.
Mexikanar hafa annars ekki
þurft að leggja í eins dýrar bygg
ingarframkvæmir í samibandi
við Olympíuleikana og aðrar
þjóðir hafa þurft að gera. Er
það m.a. vegna hinna fullkomnu
íþróttaaðstöðu sem háskólinn í
Mexico hefur kiomið upp. Þeir
þurfa þó að byggja íbúðarhverfi
fyrir íþróttafólkið, en búizt er
við að allt að 8 þúsund þátttak-