Morgunblaðið - 12.09.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.09.1967, Blaðsíða 10
MORGUNBLAEHÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPT. 1967 ar meo NTJU sniði Skammur tími er nú til stefnu að panta far með skemmtiferða- skipinu Regina Maris í hina glœsilegu Miðjarðarhafsferð SUDUR UM HÖFIN. Her á eftir \ verður bent á nokkur athyglisverð atriði, sem lítið hefur verið fjall- að um í auglýsingum áður. Greiðsluskilmálar Þar sem nú eru aðeins tvær vikur þar til M/S Regina Maris leggur úr höfn í hina glæsilegu Miðjarð- arhafsferð og enn er nokkurt pláss óselt höfum við ákveðið að gefa væntanlegum þátttakendum kost á að taka þátt í ferðinni með af- borgunarskilmálum, þ.e. að lána hluta andvirðis ferðarinnar í allt að eitt ár. Allar nánari upplýsing- ar um þetta eru veittar á skrif- stofunni. Fióvik frú aðolierðinni Regina Maris getur flutt um 20 bíla í sérstaklega útbúinni bílalest. Ef einhver kynni að óska eftir að sigla með skipinu til Napoli, svo dæmi sé nefnt, og aka síðan norður á bóginn og koma um borð aftur í Rotterdam, þá er sá möguleiki vissu- lega fyrir hendi. (Sjá leið og dagsetningar á kort- inu). Ef skipið verður ekki fullbókað um næstu helgi verður efnt til sérstakrar írlandsferðar, þ.e. siglt með skipinu héðan til Dublin og farin nokkurra daga ferð um írland og síðan haldið til London. Frá London yrði síðan flogið heim 4. október. Á sama hátt er ráðgert að hópur geti flogið til London 4. október og haldið þaðan til Parísar og fleiri staða á meginlandinu. Sú ferð myndi enda um borð í Reginu Maris í Rotterdam þann 13. október og hópurinn halda heim með skipinu, sem kemur til Reykjavikur 17. október. Okkur er ljóst, að margir hafa tök á því að fara hluta ferðarinnar, en ekki alla ferðina. Þess vegna munum við eftir fremsta megni mæta óskum fólks um frávik frá aðalferðinni, enda þótt það kosti mun meiri fyrirhöfn. Verð og verzlun Varðandi verðlag um borð í Regina Maris og á þeim stöðum, sem höfð er viðdvöl vilj.um við taka fram: • Um borð í skipiniu er verzlun, þar sem seldar eru margvíslegar vörur við hagstæðu verði srvo sem tíðkast á skemmtiferðaskipum. Má þar nefna vín, tóbak, sælgæti, ilmvötn, ljósmynda- vörur o.fl. Pakki af sígarrettum kostar 14 krón- ur, og er annað verðlag eftir því. • Stanzað er í Dublin á írlandi heilan dag og tvo daga í Rotterdam í Hollandi og eru þetta allt virkir dagar. Hafi menn áhuga á að gera inn- kaup í ferðinni, er rétt að benda á, að hvað snertir verð og vöruúrval eru þetta með hag- stæðustu stöðum álfunnar. • Kynnisferðir í landi má kaupa áður en lagt er af stað í ferðina, eða um borð í skipinu og er verð þeirra yfirleitt lágt, allt frá 150 krón- um. • Hafi farþegar áhuga á að taka bifreið með í ferðina er efcki reiknaður aukakostnaður. • Fyrir heimkomuna til Reykjavíkur er seldur toll- frjáls varningur um borð. • Fyrir þjónustu um borð má greiða í íslenzkum krónum. Skemmtanolíf Strax fyrsta kvöldið, er skipið leggur úr Reykja- víkurhöfn þ. 23. september er leikið fyrir dansi um borð. Undirbúin hefur verið mjög fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla ferðina og má hér nefna nokkur atriði: Haldnir verða um borð ekki færri en tólf dans- leikir. Verða það bæði venjulegir dansleikir, eins og við eigum að venjast hér heima, og koma þar fram ýmsir skemmtikraftar t.d.: Ómar Ragnars- son og hinir vinsælu skemmtikraftar The Dragoons. Einnig verður leikið fyrir gömlu dönsunum og á leiðinni frá Napoli til Cadiz verður haldið mynd- arlegt grímuball. Á leiðinni frá Dublin til Tangier verður mikil bjórhátíð á þýzka vísu. Múnchenbjór er veittur úr tunnum og auk þess verða á boðstólum þýzkar ballpylsur og hljómsveitin leikur viðeigandi dans- músik. Haldið verður sérstakt Bingokvöld, spiluð félags- vist og efnt verður til keppni í bridge og skák. Skemmtinefnd um borð mun vinna að því að fá sem flesta farþega til að taka þátt i skemmtana- lífinu, t.d. með söng, vísnagerð, músik o.fl. í Tangier verður heimsóttur frægur næturklúbb- ur, þar sem fram koma magadansmeyjar, fakír- ar og önnur atriði á austurlenzka vísu. í Dublin, Napoli, Palma, Mallorka, Lissabon og Rotterdam gefst færi á að kynnast næturlífi og skemmtunum og munu fararstjórar okkar vera þar með í ráðum. Um borð verða kvikmyndasýningar og auk þess er þar ágætt bókasafn. „Grillið", þar sem bæði er dansað og bornar fram veitingar er opið hvert kvöld og eins lengi og farþegar óska. Að degi til er efnt til ýmiss konar leikja. Um borð eru borðtennisáhöld, tæki til skotkeppni o.fl. Tízkuskóli flndreu fimm óro TÍZKUSKÓLI Andreu eir, um þeslsar mundir fimm ára og flytur nú í nýtt húsnæði aS Miðsúnæti 7. £ tilehni af því i hélt Andirea biaðamSnnafund í nýju húsakynnunum nýlega. - Ég var ekki fyllilega áinægð með nafnið tízikuskóli, en valdi það þó, þar sem eikki var um annað nafn að ræða. Gallinn við það nafn eT sá, að fólk haldur að um skóla sé að ræða, sem eingöngu kynnir hieilztu nýjungar í tízkuheimin- tnm, en þar held ég að sé ivm mikinn misskilning að ræða, | sagði Andrea Oddsteinsdóttir við bdaðamenn. L — Enda þótt við fylgjumst með öllu, sem gerist á því sviði, er aðaltakmark skólans fólgið í allt öðru. Ég hetf eink- um á'huga á að kenna fallega framlkomu, klæðaburð, og svo hetf ég stúlku sem kennir snyrt- ingu. — Það vantaði ekki hrak- spárnar þegar ég byrjaði með skólann, sagði Andrea í fram- haldi frásagnar sinnar. En þrátt fyrir brakspár og ónot úr ýmsum áttum, lifir skólinn ennþá góðu lífi. Aðsóknin fer sifeillt vaxandi og h^fur t.d. aldrei verið meiri en sl- ár. Andrea Odddteinsdótttr. Háskólofyrir- lestar am samanbarðar- bókmenntir DR. Steingerður Ellingston heldur fyrirlestur um samam- burðarbókenntir og náimstilhög un í bandarískum háskólum í boði Háskóla íslands, fimmtu- daginn 14. september kl. 5,30 í fyrstu kennslustafu háis'kólan®. Dr. Ellingiston hetfur dvalizt hér á lanidi í nokkurn tima, en tek- .ur við kennslu í Univerity otf Caliifornia Berkeley, í morræn- um málum í haust- Öllum er heimill aðgangur að fyrirlestr- inum, sem fluttur verður á ísL Styrkveiting úr Lnng vnds- S]001 HJÓNIN Selma, fædd Guðjóhn sen, og Kaj Langvad verkfræð- ingur í Kaupmannahötfn stotfn- uðu árið 1964 sjóð við Háskóla íslands til etflingar menningar- tengsl'um íslands og Danmerk- ur. Stjórn sjóðsins hetfir nú út- hlutað úr s’jóðnum í þriðja sinni. Þessu sinni var úthlutað némsistyrk til íslenzfcs kiandí-, dats. Styrkinm, að fljárhæð 36. 000.00 krónur, hlaut Sigtfús Johnsen, eðlistfræðingur, til framhaldsnáms í eðlistfræði við K a upm a n n ah atf n a rháskól a. (Frétt frá Háskóla íslands)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.