Morgunblaðið - 14.09.1967, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPT. 1967
'Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
iRitstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Œtitstjórn og afgreiðsla:
Auglýsingar:
í lausasölu:
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá.Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti -6. Sími 104,00.
Aðalstræti 6. Sími 212-4-80.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
Þ ÝZKALANDSFÖR
FORSÆTISRÁÐ-
HERRA
flin opinbera heimsókn for-
sætisráðherra íslands, dr.
Bjarna Benediktssonar, til
V-Þýzkalands, sem hófst sl.
þriðjudag, minnir á hin
traustu og sterku tengsl, sem
lengi hafa verið með Þjóð-
verjum og íslendingum, rof-
in í heimsstyrjöldinni síðari
en endumýjuð að henni lok-
inni. Samskipti okkar við V-
Þjóðverja frá stríðslokum
hafa verið slík, að þar hefur
sjaldnast borið skugga á og
íslendingar meta mikils þann
vinarhug, sem Þjóðverjar
hafa sýnt okkar fámennu,
þjóð. Þýzk saga á þessari öld
er saga þjóðar, sem þolað hef-
ur miklar hörmungar og vald-
ið öðrum miklu tjóni, en haf-
izt til vegs á ný í samfélagi
þjóðanna, fyrir eigin dugnað
og drengilega aðstoð annarra,
saga þjóðar, sem hefur búið
við grimmilegt einræði, en
treyst svo lýðræðislegt þjóð-
skipulag á síðustu tveimur
áratugum að til fyrirmyndar
er.
Að undanskildum frænd-
þjóðum okkar á Norðurlönd-
um hefur engin þjóð í Evr-
ópu sýnt íslandi og íslenzkum
málum jafn mikinn áhuga og
Þjóðverjar. Viðskipti land-
anna hafa verið mikil og okk-
ur hagkvæm um langt skeið
og það hefur ekki farið fram
hjá íslendingum, að V-Þjóð-
verjar hafa leitast við að
greiða fyrir þessum viðskipt-
um af fremsta megni. Síðasta
dæmi þess eru hin hörðu mót-
mæli v-þýzkra stjórnarvalda
vegna þeirrar ákvörðunar
stjórnarnefndar Efnahags-
bandalagsins að lækka toll-
kvóta á ísfiski, sem fluttur er
inn til V-Þýzkalands á haust-
mánuðum og hækka tolla á
honum. Svo raunsanna vin-
áttu kunna fslendingar vel að
meta.
Menningarleg samskipti
þjóðanna hafa einnig verið
mikil. 'Fjöldi manna af þýzku
þjóðerni hafa setzt að hér á
landi og m.a. auðgað mjög
tónlistarlíf þjóðarinnar og at-
hygli vekur, hve mikinn
áhuga þýzkir ferðamenn hafa
á íslandi, en fjöldi þeirra
kemur hingað á ári hverju.
íslendingar hafa frá stríðs-
lokum fylgzt af aðdáun með
baráttu Þjóðverja, austan og
vestan járntjaldsins, gegn
ásælni hins sovézka stórveld-
is. Berlín, hin gamla höfuð-
borg Þýzkalands, hefur orðið
tákn baráttu frjálsra manna
um heim allan gegn ofbeldis-
stefnu heimskommúnismans.
í þeirri baráttu ber hátt nöfn
manna á borð við Konrad
Adenauer og Ernst Reuter.
íslendingar treysta því, að sá
dagur muni koma, að í hjarta
Evrópu rísi á ný sameinað
Þýzkaland, frjálst og full-
valda lýðræðisríki, einn af
hornsteinum hinnar nýju
Evrópu.
Hin opinbera heimsókn for-
sætisráðherra íslands til V-
Þýzkalands mun treysta og
styrkja tengsl þessara tveggja
landa og íslendingar vona og
vænta þess, að samskipti
landanna í stjórnmálalegum,
viðskiptalegum og menning-
arlegum efnum muni enn
aukast og batna.
SKOLLALEIKUR
jl/|eðferð frændþjóða okkar
■*■’* á Norðurlöndum, sérstak-
lega Svía, á Loftleiðamálinu
svonefnda tekur á sig sífellt
furðulegri myndir. í fyrradag
lýsti samgöngumálaráðherra
Svía, Olof Palme, yfir því í
sænska útvarpinu, að ekkert
opinbert tilboð hefði komið
fram af hálfu íslendinga um
10—12% fargjaldamismun.
Hér er um bein ósannindi að
ræða. Tilboð þetta kom fram
á fundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna, sem haldinn
var í Reykjavík í apríl sl. og
erfitt er að trúa því, að sam-
bandið milli sænska utanrík-
isráðuneytisins og sænska
samgöngumálaráðuneytisins
sé svo sitirt, að sænska siam-
göngumálaráðherranum hafi
ekki verið kunnugt um þetta
tilboð íslendinga.
Nú hefur sænski samgöngu
málaráðherrann lýst því yfir
að þetta tilboð sé óaðgengi-
legt. Það er býsna athyglis-
vert, að hann skuli gefa slíka
yfirlýsingu áður en samgöngu
málaráðherrar SAS-landanna
komu saman til fundar, en
tilgangur þess fundar mun
einmitt hafa verið að ræða
þetta tilboð.
Ingólfur Jónsson, sam-
göngumálaráðherra sagði í
viðtali við Mbl. í gær: „Á
fundi SAS-landanna .....
hlýtur að koma fram,
hvort þau óski eftir að halda
sameiginlegan fund. Ef þeir
vilja ekki koma neitt til móts
við okkur er samningsgrund-
r-
Sómalskir uppreisnarmenn í Kenya láta af hendi
lifnaðarháttu.
Sómalía og fimmhyrnda stjarnan
í MOGADISHU, höfuðborg
Sómalíulýðveldisins, blaktir
við hún ríkisfáninn og heldur
á lofti hvítri stjörnu. Tvö
horn stjömunnar tákna
brezku Sómalíu og hina
ítölsku, sem sameinaðar voru
árið 1960 og voru upphaf
Sóma'líulýðveldisins, en þau
þrjú, sem eftir em minna á
þá staðreynd, að í nágranna-
löndum Sómalíulýðveldisins
þremur, Kenya, Ethíópíu og
frönsku Sómalíu bíður fjöldi
Sómala enn sameiningar við
ættjörðina, eins og yfirvöld í
Magadishu orða það. Engin
stjórn myndi halda velli í
Magadishu, léti hún sér ekki
tíðrætt um fólk þetta, svæði
þau er það byggir í nágranna-
löndunum og innlimun þeirra
í Sómalíulýðveldið, og haft er
fyrir satt að stjómin í
Mogadishu þjálfi menn og
vopni til óeirða og uppreisna
í nágrannalöndunum þremur.
Undanfarið ár hafa átök
uppreisnarmanna þessara við
stjórnarvöld í dvalarlandinu
orðið mest í Kenya, sem hýs-
ir 200.000 Sómali. Eru upp-
reisnarmenn þessir kallaðir
„shifta“ eða stigamenn og
þykja, eins og reyndax Sóm-
alir yfirleitt hermenn flest-
um betri, þolnir og nægju-
samir svo að af ber — og líka
fles.tum stoltari. Embættis-
maður í Kenya lét svo um
mælt nýverið, að stigamann-
irnir og reyndar Sómalir ytfir-
leitt teldu sig svo mikliu æðri
og meiri menn en láglend-
inga á borð við Kenyamenn,
að þeim þætti fráleitt að lúta
stjórn þeirra.
Og víst er um það, að ekki
hefur þessi skoðun Sómala
legið í þagnargildi. Er skoð-
anakönnun fór fram meðal
Sómalanna í Kenya árið 1962,
reyndist yfirgnæfandi meiri-
hluti þeirra fylgjandi sam-
einingu við Sómalíulýðveldið.
En um þessar mundir voru
Bretar í þann veginn að veita
Kenya sjálfstæði og höfðu
lítinn hug á að endurskoða
landamæri ríkisins að svo
stöddu. Og er Kenya var orð-
ið sjálfstætst og fulilvalda ríki
1963, tiikynnti Kenyat.ta for-
sætisráðherra Sómölum í
landinu, að vildu þeir ekki
sæta sömu kjörum og Kenya-
menn sjálfir og gerast full-
gildir borgarar í Kenya myndi
'þeim fyrir beztu að flytjast
úr landi til Sómailíu.
Viðbrögð Sómala voru
skæruhernaður, einstaka árás
ir á lögreg.luvarðstöð'var og
herstöðvar, þorpsverzlanir og
stjórnariskriifstofur. Kenyatta
gerði hvorttveggja á víxl, að
bjóða gull og græna skóga og
steyta hnefann, en hvorugt
dugði, og bardagarnir hafa
harðnað ár frá ári og mann-
fall aukizt að sama skapi.
f fyrra, er „stigamennirnir"
tóku að sá jarðsprengjum
í vegi í norð-austurhluta
Kenya greip stjórnin til ráða
sem áður dugðu Breturn vel
í viðureign þeirra við Mau
Mau menn og söfnuðu sam.an
Sómölum og kyrrsettu í víg-
girtum þorpum sem 'kallast
„manyattas". Þar voru íbúar
skrásettir, úthlutað beitilandi
fyrir kvikfé sitt og fyrirskip-
að að koma heim hvert kvöld
í þorpið. í þorpum þessum
var svo Sómölum, sem
aldrei höfðu slíku kynnzt
fyrri, séð fyrir skólum, heil-
brigðiisþjónustu og kaup-
skap ýmiskonar á samvinnu-
grundvellL
Nú er svo komið að nærri
80% Sómala í Kenya búa í
slíkum þorpum, 14 talsins og
virðast una hag sínum næsta
vel. Þeir úthúða „stigamönn-
unum“ í eyru gestkomandi og
sumir láta þau orð falla að
uppreisn muni ekki verða
Sómölum nein blessun nema
síður sé. Allt um það halda
hermenn úr her Kenya vörð
um þorpin dag og nótt og
gæta vandlega að hvorum
tveggja, óvinunum utan þorp-
anna og þeim sem innan
þorpsgirðinganna eru og
ólíklegt er, að það sé vel
þokkað af Sómölum að sæta
skoðiun hermanna ’hverju
sinni sem þeir fara út fyrir
þorpið, svo fullvíst sé að þeir
séu ekki að smygla neinu út
til stigamannanna.
Allt um það hefiur verið
kynrt að kalla í norðaustur-
Kenya undanfarið og stjórnin
í Nairobi vonar að ráðstafanir
hennar reynist ekki síður vel
er á líður, og verði vopnum
betri til að blekkja á „stiga-
mönnum“. Þó gera þeir sér
engar grillur, því meðan
menn horfa upp til firnm-
hyrndu stjörnunnar í Maga-
dishu og láta sig dreyma um
Sómalíu hina miklu, er taki
yfir vænan skika af hverju
nágrannalandanna þriggja
fyrir sig, er eins gott að vera
við öllu búinn.
mkki'&m
wv
UTAN ÚR HEIMI
völlur ekki fyrir hendi og þá
vaknar sú spurning, hvort
ástæða sé fyrir íslendinga að
sækja ráðherrafund vegna
máls þessa.“ Hér er auðvitað
um hagsmunaárekstur að
ræða milli íslands og SAS-
landanna. Danir og Norð-
menn virðast vilja sanngjarna
málamiðlun, en afstaða Svía
virðist vera önnur. Málsmeð-
ferðin er þegar orðin með
eindæmum og mál til komið
að þeim skollaleik linni.
EIN BRÚ EÐA
MARGAR BRÝR
t'hamsóknarblaðið segir í
■■• forustugrein sl. sunnudag,
að Framsóknarmenn hafi
1941 „fengið sett lög um brú-
arsjóð“ og á grundvelli þeirra
laga hafi verið byggð ein
stórbrú á ári í 25 ár og að nú
„verði að halda áfram sókn-
inni“, sem lýsi sér í byggingu
einnar stórbrúar á ári í 25
ár. Hvílík sókn!
í tíð núverandi ríkisstjórn-
ar hafa verið byggðar margar
stórbrýr á hverju ári og á
þessu ári hafa verið byggðar
fimm stórbrýr, þ. á. m. brú
á Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi sem kostaði 20 milljón-
ir króna. En Framsóknar-
menn láta sér nægja eina stór
brú á ári. Hætt er við að
ýmsum fyndist lítið um fram-
farir í samgöngumálum ef
þessi hugsjón Framsóknar-
manna fengi að ráða.