Morgunblaðið - 16.09.1967, Page 4

Morgunblaðið - 16.09.1967, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. SEPT. 1967 ‘T* i. IVIAGIMÚSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 Hverfisgötn 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt teigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldi, Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Simi 35135, Eftir lokun 34936 og 36217. Flest til raflagna: Raf m agnsvör ur Heimilstæki Utvarps- og sjónvarpstæki Rafmagnsvörubiíðin sf Suðurlandsbraut 12. Simi 81670 (næg bílastæði). Ný íslenzk skdldsaga Bókaútgáfan Tvistur ■jf Hávaði í nútíma- þjóðfélagi „Hlustaverkur“ skrifar: „ Heiðraði Velvakandi! Ég þakka þér fyrir að hafa birt bréf um bílafant, en það er eins og enginn hafi vitað hingað til, að það er bannað Mér finnst það vera lögregl- unni að kenna, að hafa ekki kynnt mönnum þetta betur, t.d. með því að senda eigin lög- reglusamþykkt inn á hvert heimiii. Þetta óþarfa bílaflaut hér er alveg áþolandi (hvergi þolað erlendis, þar sem ég þekki til), og ef allir taka sig nú saman um að kæra jafn- óðum, leggst það smám sam- an niður. Þetta er ekki annað en óþarfa kækur. Mér þótti skrítið að lesa í frétt frá Sameinuðu þjóðunum, sem prentað var hér í blöðum líkt og væri það stórfrétt, að bílhurðaskellir væru bannað- ir með lögum í Sviss, og lægi við þeim stórsektir. Eru þeir ekki lfka bannaðir hér? Ekki veit ég betur, þótt ekki sé kannski beinlínis minnst á þá í umferðarlögum og lögreglu- samþykkt. Alls staðar í nútíma þjóð- félögum er nú reynt að draga úr þeim hryllilega en því mið- ur óhjákvæmilega hávaða, sem rekstri tuttugustu aldar sam- félags fylgir. Óholl og skað- vænleg áhrif hávaða á starfs- getu og sálarlíf borgaranna eru nú vísindalega sönnuð. All ir eru sammála um að tempra vélahávaða nálægt fólki, hvort sem það er við störf eða í hvíld heima fyrir. Víða erlend is hafa verið stofnuð félög, sem berjast gegn hávaða, eða jafn- vel stofnsettar nefndir af borg aryfirvöldum, sem beita sér gegn auknum hávaða og reyna að minhka þann, sem fyrir er. Ég sé ekki betur en full- komin þörf sé orðin hér fyrir stofnun slíks félags eða skip- un slíkrar nefndar. Alltof lít- ið eftirlit virðist vera haft með hávaðaframleiðslu bifreiða (að ekki sé talað um vélhjól) og staðsetningu hávaðasamra fyr- irtækja nálægt íbúðahverfum. í dálkum þínum, heiðraði Velvakandi, er rekinn áróður fyrir því, að þotur fái að eiga samastað á Reykjavíkurflug- velli. Að vísu birtast stundum bréf frá mönnum, sem eru á öðru máli. Þótt umrædd þota sé e.t.v. hávaðaminni en marg ar systur hennar, þá finnst mér ekki koma til mála, að hún fái að djöflast hér í nánd við hús okkar. Það heyrist alveg nóg í henni. Hlustaverkur." ■+C Boeing 727 og Reykjavíkurflug- völlur Gunnar Sigurðsson skrif ar: „Velvakandi góður! f dálkum þínum þann 29 f. m. ritar „huldumaður" nokkur, er kallar sig „Borgarbúa", greinarkorn um Reykjavíkur- flugvöll, sem mun ætlað að vera eins konar „svar“ við upp lýsingum þeim varðandi Boe- ing 727 og flugvöllinn, er birt- ust í dálkum þínum þann 18. f.m., frá undirrituðum. Af þeim sex atriðum, sem snerta þotuna og Reykjavíkur- flugvöll, er grein mín fjallaði um, minnist „Borgarbúi“ að- eins á tvö, þe.. val Flugfélags- ins á þessari gerð af flugvél og kostnað við endurbætur á flug vellinum. Um fyrra atriðið er það að segja, að Flugfélag ís- lands, tók ákvörðun um kaup þotunnar í des. 1965, en skil- yrði ríkisábyrgðarinnar um út- gerð“ af Keflavíkurflugvelli voru ekki kunngerð fyrr en vorið 1966, þannig að val flug- vélarinnar var miðað við, að hún yrði rekin af Reykjavíkur- flugvelli. Varðandi síðara atriðið, vil ég benda á það að „Borgar- búi“ gerir enga tilraun til þess að færa rök fyrir fullyrðingu sinni um tugi milljóna eða öllu heldur „hundruð milljóna króna kostnað“, sem þurfi til þess að þotan geti notað flug- völlinn. Fullyrðing af þessu tagi er algerlega óraunhæf og verður að afsaka þennan „mis- skilning" greinarhöfundar, sem er auðsjáanlega byggður á ó- kunnugleika. Að öðru leyti vil ég fullvissa „Borgarbúa“ um, að þotan getur hvenær sem er notað flugvöllinn sem bæki- stöð, enda hefir hún nú þegar athafnað sig hér án allra vand- kvæða, hafi það farið fram hjá honum. Um ummæli Jóhnnesar Snorrasonar, yfirflugstjóra, varðandi Reykj avíkurflugvöll frá árinu 1963, sem greinarhöf- undur vitnar í, er það að segja, að líta verður á þau í því sam- hengi, sem þau eru rituð, þ.e. a.s. í sambandi við framtíðar- skipan flugvallarmála Reykja- vikur og þá sérstaklega nýjan flugvöll á Álftanesi. Þó að framtíðarskipan þess- ara mála sé því miður ekki ennþá ákveðin, þá eru aðstæð- ur að ýmsu leyti breyttar frá því var fyrir rúmlega fjórum árum, þannig að Flugfélag ís- lands hefir orðið að miða áætl- anir sínar við notkun Reykja- víkurflugvallar áfram, í stað nýs flugvallar, sem var mjög á dagskrá á þeim tíma. Þessa staðreynd hefir Flugfélagið að sjálfsögðu lagt til grundvallar við val þotunnar og því eiga framangreind ummæli ekki við í þessu sambandi. Að lokum vil ég benda „Borg arbúa“ á, að kynna sér um- mæli Jóhannesai Snorrasonar, Skúla Magnússonar, flugstjóra, og Aðalbjarnar Kristbjarnar- sonar, flugstjóra, um þotuna og Reýkjavíkurflugvöll, er birtust í sjónvarpinu 24. júní sl., dag- blaðinu „Vísi”, þann 17. f. m. og Morgunblaðinu og Tíman- um 12. þ.m. og „reyna“ að draga réttar ályktamir af þeim „ummælum." Virðingarfyllst Gunnar Sigurðsson." Arabar og Gyðingar „Víðförull" skrifar: „Kæri Velvakandi! Heldur finnst mér hafa hall- að á Araba í bréfaskiptum fólks í dálkum þínum, og sér- staklega finnst mér ósann- gjarnt að níða niður þá fáu Araba, er hér dveljast við störf þvi að ég veit ekki betur en þeir hafi reynzt hér nýtir og ágætir menn. Leiðinda-flökku- fuglar eru af hvaða þjóðerni sem er; alls ekki frekar Arab ar en t.d. Frakkar og Englend- ingar. Hræddur er ég um, að samúð almennings með Gyð- ingum í nýafstaðinni styrjöld ráði hér einhverju um. Eg hef víða farið og víða dvalið, og það verð ég að segja (eigi ég á annað borð að gera upp á milli þjóða), að ólíkt finnst mér Arabar sbemmtilegra fólk en Gyðingar. Munið þið ekki eftir vísunni hér á eftir? Léttur gegnum lífið smaug ’sunn — líkur Júðonum. Einu sinni ekki laug ’ann — enginn trúð’ ’onum. En meðal annarra orða: Hver skyldi hafa ort og um hvern? Víðförull." Eru bankarnir o£ margir? „Hrólfur" skrifar: „Kæri Velvakandi! Hvernig skyldi standa á því, að margir eru á móti stofnun nýrra bankaútibúa víðsvegar í Reyk j avík? Aldrei koma nein klögumál fram opinberlega, þegar banka útibúum er komið á fót úti um landsbyggðina, enda er þar um sjálfsagða þjónustu við lands- lýð að ræða. Hér í Reykjavík er nákvæm lega sömu sögu að segja: Ver- ið er að stofna þörf fyrirtæki í hinum ýmsu borgarhverfum, til þess að gera fólki auðveld- ara og þægilegra að skipta við þessar bráðnauðsynlegu stofn- anir. Mér þætti gaman að sjá, hvernig eitt nútímaþjóðfélag kæmist af án greiðra banka- viðskipta. Hér er bæði um tíma sparnað og sjálfsagða dreifingu að ræða. Vilja þessar klögukerlingar kannskL að allir hrúgist saman í einum banka i Miðbænumf alla daga til þess að fá banka- afgreiðslu? Eitthvað yrði þá iák lega sagt. Þótt ég hafi ekki nein stór- felld bankaviðskipti dags dag- lega, þykir mér þessi dreifing bankanna mjög til bóta fró því, sem áður var, og vegna þess að ég er orðinn leiður á þessu nöldri í kringum hvert nýstofn að bankaútibú, sendi ég þér þessar línur í von um birtingu. Hrólfur.“ Línubrengl Velvakandi biður „Gamlan vegavinnumann" og lesendur sína afsökunar á því, hve of- boðslegt línubrengl var í bréfi hans í þessum dálkum í gær. Snjallir lesendur, einkum þeir, sem vanir eru að ráða kross- gátur eða leysa ýmsar orða- þrautir, munu þó vonandi hafa skilið að lokum, um hvað bréf- ið fjallaði. Atvinnurekendur — Forstöðumenn IBM — sérmenntaður kerfisfræðingur, sem annast hefur skipulagningu og deildarstjórn IBM-skýrslu- véladeildar óskar áð breyta um vinnustað. Þeir sem kynnu að hafa áhuga að ráða hann í þjón- ustu sín sendi Morgunblaðinu tilboð, ásamt nánari upplýsingum um launakjör. Tilboð merkt: „Skipulag, framtíð 2782.“ Garðahreppur Börn eða unglingar óskast til þess að bera út Morgunblaðið víðs vegar í Garðahreppi (Arnarnes, Flatir og fleira). Uppl. í síma 51247. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Jóns Hjaltasonar, hrl., verður land- spilda í Skógarbringum í landi Laxness í Mosfells- hreppi, nefnd Furulundur 28 seld á nauðungarupp- boði, sem háð verður á eigninni sjálfri, mánu- daginn 18. september 1967, kl. 4 e.h. Uppboð þetta var auglýst í 66., 67. og 68. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1966. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.