Morgunblaðið - 16.09.1967, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. SEPT. 1907
Sendisveinn óskast
strax að Rannsóknarstofu Háskólans við Baróns-
stíg. Uppl. í síma 19506.
Hef opnað
tannlæknastofu
að Hverfisgötu 37, 2. hæð. Sími 10755.
Viðtalstímar kl. 1—5.
Geymið auglýsinguna.
Hrafn G. Johnsen
tannlæknir.
I sláturtíðinni
Höfum til sölu, hvítar vaxbornar matar-
öskjur. Öskjumar eru sérstaklega hent-
ugar til geymslu á hvers konar matvæl-
um, sem geyma á í frosti. Sendum gegn
póstkröfu hvert á land sem vera skal.
Sími 38383.
Kassagerð Reykjavíkur
Kleppsvegi 33.
KLIMALUX
Lofthreinsari — Rakagjafi
Klimalux — Super Klimalux — rakagjafi
Klimalux - Super
er nýtt og endurbætt tæki, sem vinnur
á þann hátt, að stofuloftið sogast gegn-
um vatnsúða, sem veitir því raka, en
hreinsar jafnframt úr því óhreinindi og
tóbaksreyk.
KLIMALUX — SUPER gefur frá sér mik-
inn raka. Afköst má stilla frá 0,2 til 0,7
lítra á klst. Hetta er á rakagjafanum, er
stilla má þannig að hið raka loft leiti í
ákveðna átt.
Mótor þarf ekki að smyrja.
Hreinna og heilnœmara loft,
aukin vellíðan.
Athugið: Þeim, sem eiga eldri gerð af
KLIMA-LUX rakagjafa er bent á, að rétt
er að smyrja mótorinn lítið eitt. Leiðbein-
ingar um smurningu eru fáanlegar í
verzlunum okkar Bankastræti 11 og
Skúlagötu 30.
J. Þorláksson & Morðmann
Bankastræti 11, — Skúlagötu
Efri hæð þessa húss er framtíðarheimili Skáksambands íslands og Taflfélags Reykjavíkur.
Skákmenn fá
nýtt húsnæöi
Stórbœtt aðstaða til félagslífs skák-
manna, segir Cuðmundur Arason,
forseti Skáksambands íslands
SKÁKSAMBAND íslands og
Taflfélag Reykjavíkur hafa ný-
lega fest kaup á efri hæð húss-
ins að Grensásvegi 46. f tilefni
af því sneri blaðið sér til forseta
Skáksambands fslands, Guð-
mundar Arasonar, og spurði
hann um aðdraganda og fram-
gang þessa merka áfanga í hús-
næðismálum skákhreyfingarinn-
ar.
Hann sagði, að með þessu
væri að rætast gamall draumur
forystumanna skáksamtakanna.
Taflfélag Reykjavíkur var
stofnað árið 1900 og Skáksam-
bandið árið 1925, sagði Guð-
mundur, og við lestur gamalla
fundargerða kemur glögglega í
ljós, að oft hefur verið rætt um að
hrinda þessu máli í framkvæmd.
Meðal annars er til í fórum
Skáksamibandsins, frá forsetatíð
Sigurðar Jónssonar,, mjög ná-
kvæm áætlun um kaup og rekst-
ur á húseign í Garðastræti, sem
þáverandi stjórn hugðist festa
kaup á. Málið hefur þá eins og
jafnan áður strandað á fjár-
skorti.
— Er fjárhagur skáksamtak-
anna það ríflegur núna, að ykk-
ur sé með góðu móti fært að
gera þessi kaup?
— Þegar litið ei á það, að
kaupverðið er kr. 1.740.000.00,
er ástæða til þess að halda það,
en svo er ekki, því miður. Það
sem gerði okkur þetta kleift,
var væg útborgun, &ð mig minn-
ir kr. 460 þús., og eftirstöðvar
lánaðar til 12 ára. Með því að
halda vel á málum, vonumst við
til iþess, að geta staðið vel við
allar skuldbindingar okkar. Mik
ilvægast er, að skáklífið í land-
inu verði ekki svelt fjárhagslega
vegna kaupanna. Til þess hef-
ur þó að minnsta kosti ekki
komið enn og fullyrða má, að
aldrei hefur Skáksambandið stað
ið fyrir fleiri utanferðum skák-
manná en á þessu ári, þrátt fyr-
ir húsnæðiskaupin.
—i Eru utanferðir skákmanna
stærsti kostnaðarliðurinn í starf-
seminni?
— Vissulega. Við búum hér
úti í miðju Atlantshafi og ferð-
irnar milli landa eru dýrar. >átt-
takan í síðasta ólympíuská.kmóti
á Kúbu kostaði til dæmis um
200 þús. kr.
— Hver eru eignarhlutföllin
í húsnæðinu milli Taflfélagsins
og Skáksambandsins?
— Taflfélagið á tvo þriðju
.hluta og Skáksambandið á einn
þriðja. Vorið 1966 var skipt um
stjórnir bæði í Taflfélagi Reykja
víkur og Skáksambandinu. Báð-
ar nýj.u stjórnirnar settu sér í
upphafi það markmið, án þess
þó að hafa um það samráð, að
kaupa húsnæði undir starfsemi
sína. Þeir Taflfélagsmenn hugs-
uðu sér jafnvel að kaupa íbúðar-
hæð, en Skáksambandið hafði
hug á tveimur skrifstofuher-
bergjum — aðalatriðið var að
koma þaki yfir höfuðið. Þessi
sameiginlegi ásetningur varð til
þess, að málið tók þá stefnu, að
keypt yrði sameiginlega hús-
næði, sem fullnægði sem bezt
þörfum aðilanna beggja. Um
þetta varð þegar í upphafi góð
samvinna.
— Hvenær búist þið við að
taka húsnæðið í notkun?
— Þegar kaupin voru gerð
var um helmingur húsnæðisins
laus til afnota, en þurfti mikilla
lagfæringa við. Hinn helming-
urinn er bundinn leigusamningi
fram yfir næstu áramót. Við höf-
um þegar skipt með okkur hús-
næði því, sem laust er. Tafl-
félag Reykjavíkur fær um 60
fermetra sal auk skrifstofu, en
Skáksambandið fær eitt stórt
herbergi og annað minna. Þetta
hvorttveggja verður tilbúið nú
í þessum mánuði. Undirbúning-
ur er hafinn að endanlegri skipu-
lagningu alls húsnæðis, en
það fer mikið eftir fjárhaginum
hvenær þessu verður öllu lokið.
Skákin gefur ekki mikið af sér
í reiðufé. Hún er aftur á móti
mjög þroskandi tómstundaiðja
fyrir unga menn og lítil hætta er
á því, að ungir skákmenn verði,
lubbamennskunni að bráð.
— Hver verður helzta breyt-
ingin við tilkomu þessa nýja
húsnæðis?
— í fyrsta lagi er með þessu
lagður hornsteinn að fjárhags-
legu öryggi og í öðru lagi ger-
breytir þetta allri félagslegri að-
stöðu. Opið félagsheimili dreg-
ur vonandi til sín stórann hóp
ungra pilta, sem við þurfum ein-
mitt að ná til. Þegar 'húsnæðið er
fullgert, mun það geta hýst öll
helztu skákmót, sem haldin eru
hér.
í sfharðnandi samkeppni í
skákheiminum er nauðsynlegt
fyrir Skáksambandið að hafa að-
stöðu til æfinga fyrir kjarna
góðra skákmanna, þ.e. landslið,
stúdentalandslið og unglinga-
landslið. Við höfum hugsað okk-
ur að hefja undirbúning að
þessu strax í vetur með næsta
Ólympíuskákmót í huga, sem
haldið verður í Sviss haustið
1968.
— Verður þetta húsnæði rekið
sem félagsheimili og samkvæmt
lögum um félagsiheimilasjóð?
— Ég geri ráð fyrir því. Við
hö'fum þegar fengið loforð um
fyrirgreiðslu frá sjóðn.um. Vel-
vilji stjórnar félagsheimilasjóðs
er okkur mikill styrbur.
— Nú er siður að gefa öllum
félagsheimilum nafn. Hefur
ekki verið stungið upp á nafni?
— Ekki held ég það, ekki í
alvöru. Þó þætti mér. eitt nafn
TJViumfh á hlq 23
Einbýlishús til sölu
Til sölu um 190 ferm. einbýlishús í smíðum á Efri-
Flötum í Garðahreppi. Möguleikar á að ráða fyrir-
komulagi, ef samið er strax. Húsið selst fokhelt
og frágengið að utan. Þeir, sem áhuga hafa, leggi
nöfn sín inn á afgreiðslu blaðsins, ásamt upp-
lýsingum um greiðslumöguleika, fyrir 20. sept-
ember, merkt: „X-190 — 2731.“
EGGERT KRISTJANSSON & CO HF
HAFNARSTRÆTI 5 - SiMI H400