Morgunblaðið - 04.10.1967, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKT. 1967
Eftir Anatoly A.
Blagonravov
(Skrifað samkvœmt
ósk Assoeiated
Press)
(Sovétríkin hófu geim-
öldina hinn 4. dag októ-
bermánaðar 1957. Hér
skýrir forstjóri geim-
ferðastofnunar Sovét-
ríkjanna, Anatoly A.
Blagonravoy, frá fyrsta
áratugnum og bendir á
viðfangsefni framtíðar-
innar).
í þessum mánuði lýkur
fyrsta áratug geimaldar, er
Geimöldin er ekkert tilfall-
andi fyrirbæri í þróun nátt-
úruvísindanna. Hún er eðli-
legt og óumflýjanlegt stig í
þróunarsögu mannkynsins.
I>að hefur verið áætlað, að
nú á dögum tvöfaldist magn
vísindalegrar þekkingar
mannkynsins á sem næst tíu
tíu árum. Þessi hagfræðilega
staðreynd sýnir eina hlið á
lögmáli nútímaþróunar mann-
kynsins, sem verður með sí-
auknum hraða, eftir því sem
tíminn líður. En þetta stjórn-
ar aftur og segir fyrir um
framfarir vísinda og tækni-
fræði, og þessi hraði er líka
nauðsynlegur til þess að upp-
fylla kröfur nútímaþróunar
þjóðfélagsins.
En frekari framförum á
sviði vísinda og tækni verður
Sputnik-1, fyrsti gervihnötturinn, sem skotið var á braut um-
hverfis jörðu, var lítill á nútíma mælikvarða, en hann opnaði
leiðina. Síðan hefur um 750 hnöttum verið skotið á loft, og
eru um 500 þeirra bandarískir. Sputnik-1 vó 90 kíló, og sést hér
likan af honum, sem sýnt er á heimssýningunni í Montreal.
hófst með sendingu fyrsta
rússneska gervihnattarins —
en það var upphafskafli í
sögu kerfisbundinna og stöð-
ugra rannsókna á geimnum.
Þegar Sputning var sendur
á loft, opnaðist einnig leiðin
til rannsókna, ekki einasta á
geimnum, sem næstur er
jörðu heldur o>g til rannsókna
á geimnum milli reikistjarn-
anna, tunglsins og stjarnanna
í sóLkerfinu.
Eftir tíu ár getur það verið
mögulegt að taka saman ár-
angurinn af raunlhæfum vís-
indalegum og tæknilegum af-
rekum á sviði geimferða og
reyna að meta mikilvægi
þeirra fyrir mannkynið, út
frá upphafi sóknar mannsins
út í geiminn, og þeirra
áhrifa, sem hún getur haft á
menningu jarðarbúa.
ekki fullnægt framar með
þeim fróðleik, sem hægt er
að afla sér á jörðinni einni.
Hún heimtar síaukna út-
þenslu þess svæðis, sem fróð
leikurinn er fenginn frá —
síaukna vitneskju utan úr
geimnum.
Það er því engin furða þótt
jörðin sé orðin ofþröngt svið
fyrir auknar framfarir í nátt-
úruvísindunum, og geignurinn
sé orðinn æ mikilvægara
starfssvið nútíma vísinda.
Hinn 12.. apríl 1961, hálfu
fjórða ári eftir að fyrsti gervi-
hnötturinn fór á loft, flutti
fyrsta sovézka geimfarið,
Vostok, mann út í geiminn.
Farinu stýrði geiimfarinn
Yuri Gagarin. Eftir að hafa
farið hringinn kring um jörð-
ina, lenti farið á fyrirfram
ákveðnum stað, eftir 108 mín-
Mynd þessi var tekin á alþjóða-flugmálasýningunni í París í maí sl. Sýnir hún líkan af Vostok-
geimskipi í trjónu eldflaugar á skotpalli. Það var samskonar farartæki, sem flutti Yuri Gagarin
út í geiminn fyrstan manna 12. april 1961.
útna fluig. Þetta flug sannaði
það fyrst, að það gat verið
fræðilega mögulegt að láta
m-enn fljúga um geiminn.
■Það, sem gerir slíkt flug
fyrst og fremst nauðsynlegt er
eðli þeirra viðfangsefna, sem
tengd eru geimrannsó.knum.
Sannleikurinn er sem sé sá,
að nútíma sjálfvirk tæki,
hversu fullkomin sem þau
eru, vantar enn mikið til að
geta annazt — einkum skap-
andi starfsemi, sem maðurinn
einn ræður við.
Við frekari rannsóknir him-
ingeimsins munum við æ oft-
ar rekast á óþekkt fyrirbæri,
sem óhugsandi er að gera sér
grein fyrir að óreyndu máli.
Og ef til vill er þetta ein-
mitt mikilvægasti þátturinn í
geimrannsóknum. Það er ef
fram kctma ný og ófyrirséð
vandamál, sem síðan eru
leyst, og gera möguleg þau
framfaraskref, sem auka
þekkingu okkar á náttúru-
lögmálunum.
Jafnvel „gáfaðasta“ sjálf-
virkt tæki getur ekki fundið
út það sem manninum er
óþekkt í grundvallaratriðum,
því að tæki, sem þetta getur
ekki starfað nema samkvæmt
fyrirskipunum frá mannin-
um, eða þegar bezt lætur
betrumhætt þessar fyrirskiþ-
anir um leið og það fram-
kvæmir þær. Það er maðurinn
einn, sem getur að nokkru
gagni rannsakað hið óþekkta,
gert réttar ákvarðanir við
ófyrirséð skilyrði og notað til
fulls þau tækifæri, sem eru
að opnast til rannsókna á
heiminum kring um okk.ur.
Það er þessvegna, sem
geimíerðir mannsins eru ann-
að og meira en tilraunir á
sviði vísinda og tækni. Þessi
flug eru orðin ómissandi
nauðsyn til frekari rýmkunar
á náttúruþekkingu okkar,
þróun nútíma náttúruvísinda
og — síðar meir — aukinna
framfara mannkynsins.
För mannsins út í geiminn
þýðir byrjun hins nýja,
kosmiska stigs tilveru jarð-
neskrar menningar, og upphaf
starfsemi mannsins úti í
geimnum.
Allan tíma þeirrar sögu,
sem nú er umliðin, voru
mannlegar verur íbúar jarðar
innar. Mannlegur líkami
skapaðist í jarðnesku um-
hverfi og öll ferðalög manna
voru bundin takmörkum
jarðarhnattarins.
Að vísu beindust á fyrri
tímum vísindarannsóknir
manna ekki einvörðungu að
reikistjörnu vorri, heldur og
þeim fyrirbærum er utan
hennar gerðust. Rannsakaðar
voru bæði jarðneskar og
kosmiskar hrærin.gar: gang-
ur reikistjarnanna, áhrif
tungls á sjávarföll, áhrif sólar
innar á hreyfingu lofts og út-
Framhald á bls. 30
Anatoly A. Blagonravov, forseti geimrannsóknarnefndar sov-
ézku vísindaakademíunnar.