Morgunblaðið - 04.10.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.1967, Blaðsíða 12
I 12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKT. 1967 Listamannalaun Síðari hluti / m. Listamannalaunin Hr. Erlendur Jónsson skrifar athyglisverða grein í Morgun- blaðið þ. 13. Sept. sl. sem hann nefnir „Um innblástur og fleira“. í greininni er m.a. drepið á að- stöðu rithöfundanna í þj'óðfélag- inu og réttilega bent á þá ann- marka, sem eru og hafa verið á úthlutun listamannalauna. Telur hann, að aðalmeinið sé i því fólgið, að rithöfundar séu ekki stétt meðal annarra sitétta þjóðfélagsins. Þetta er auðvitað hárrétt, þó að nokkuð hafi það lagazt eftir að rithöfundafélögin tvö hófu með sér náið samstarf í Sambandi ísl. rithöfunda. Að vísu hafa þeir ekki í rúma tvo áratugi skipt sér af úthlutun listamannalaunanna, enda hefur reynzlan sýnt, að slík afskipti eru ekki heppileg. En í stað þess hafa þeir talið víst — og enginn skyldi lá þeim það — að það væri einmitt hlutverk Alþingis, sem veitir listamannalaunin, að - haga úthiutun þeirra á þann hátt, sem aðrar stéttir haga launakjöruim sínum, þ.e.a.s. sem jöfnustum, og sé um launamis- mun að ræða, verði hann miðað- ur við starfsaldur, og tekið sé íum leið tillit til þess að um starfandi listamenn sé að ræða, þannig að ritstörfin séu megin- þátturinn í starfi þeirra. Sérstök heiðurslaun og eftirlaun eru allt annars eðlis. Allt annað er mjög óviðfeldin einkunnagjöf. Um það segir hr. Eriendur Jónsson rétti- lega: „Óvinsælust hefur úthluiunin verið fyrir þá sök, að höfundum hefur verið skipað niður í flokka, sumir launaðir hærra, aðrir iægra. Höfundar í lægri flokk- unum hafa unað meinilla við slíka flokkun. Þeir hafa talið, að almenningur kynni að líta á hana sem einkunnir. Og hver var svo mikill og réttsýnn, að hann væri þess umkominn að gefa slíkar einkunnir?" Bæta má við, þessum orðum til áherzlu, að mismununin, sem 'hr. Erlendur Jónsson talar um, í laxi hérlendis — ENNÞA liggja ekki fyrir endanlegar tölur um laxveiðina í sumar, sagði Þór Guðjónsson veiðimálastjóri í viðtali við Mbl. í bær. — Veiðibækurnar hafa ver ið að berast til okkar að undan- förnu, og verður sennilega ekki fullunnið úr þeim gögnum fyrr en í nóvember. Það liggur hins- vegar fyrir að laxveiði hefur ver ið ágæt í sumar, þótt ekki sé hægt að segja um það á þessu stigi málsins, hvort þetta sumar sé með allra beztu laxveiði- sumrum. _ Laxveiði í sumar var tiltölu lega bezt sunnanlands og á Vest- urlandi. Lökust mun veiðin hins vegar hafa verið á Norð-Austur- landi, en þess ber að gæta að þar er að jafnaði ekki mikil veiði svo hún kemur ekki til með að hafa mikil áhrif á heild arútkomuna. — 1 Elli’ðaánum var veiðin í sumar 1362 laxar, á móti 1292 í fyrrasumar. Aðrar tölur sem við höfum eru þessar, og skal þá tekið fram, að þær eru engan enginn endanlegur: Leirvogsá 413 laxar, — þar veiddust 165 laxar í fyrra, Laxá í Kjós, þar voru er og hefur aldrei verið annað en einkunnagjöf, hvað svo sem ýmsir aðilar kunna að segja, til þess að reyna að friða hina óánægðu. Það sannast bezt á því, að engar þær grundvallarreglur er.u sýnilegar, sem ætla mætti að nefndin hefði farið eftir. Rithöfundasamtökin á Norð- urlöndum, sem við erum aðilar að, geta ekki litið á þessa mis- munun öðrum augum. Ekki þarf ríkt ímyndunarafl til að skynja, að mismununin, eins og hún er eftir hinum nýju lögum, getur beinlínis spilllt fyrir íslenzkum 'höfundum á erlendum markaði og hlýtur raunar að gera það. Það er mjög leiðinlegt að neyð- ast til að grípa til orðsins at- vinnurógur í þessu sambandi, en hjá því verður ekki komizt, því að einkunnagjöfin getur aðeins haft þau ein áhrif. Sá er þetta ritar, hefur og orðið þess bein- línis var. Þetta er miklu hættulegra fyrir höfundana en útilokunar- stefna sú, sem steingert skóla- kerfi hefur tekið upp í lestrar- 'bókum sínum og bókmennta- sögum. Hún er svo augljós í ein- stökum atriðum, og xvo barna- leg, að slíkt er varla til annars en að hlæja að. Hið hörmulegasta við allt þetta er þó það, að sjálft Al- þingi íslendinga þolir til lengd- ar slíkan leikaraskap með það fé, sem það af örlæti sínu veitir til styrktar rithöfundum í land- inu. Svo er að sjá sem ráðamönn- um hafi orðið þetta ófremdar- ástand ljóst. Menntamálaráð- herra brá við og lagði fyrir síð- asta Alþingi frumvarp til laga um Listamannalaun. Var það samþykkt og laununum úthlutað samikvæmt hinum nýju lögum í ver eð leið. Ætla mætti því að öllu athug- uðu, að vandinn væri nú leyst- ur, og réttur og sanngirni hefði leyst órétt og handahóf af hólmi. Áður en vikið er að nýju lög- unum er rétt að fara nokkrum orðum um tilhögun úthlutun- arinnar áður en þau komu til sögunnar. Eftir að Alþingi fól sérstakri 1557 laxar komnir á land 9. sept., en á veiðitímabilinu í fyrra veiddust þar 1149 laxar. Þá var og ágæt veiði í Norðurá, e'ða yf- ir 1590 laxar, en þar veiddust 1092 í fyrra. í Laxá í Dölum og Haukadalsá í Dölum varð veiðin í sumar ennfremur nokkru betri en í fyrra, eða 635 í Laxá og um 600 í Haukadalsá. Fréttir sem við höfum frá Miðfjarðará eru 548 laxar, Víðidalsá 715 laxar, eða heldur minna en í fyrra en veiði í Laxá í Ásum mun hinsvegar vera nær helmingi meiri en í fyrra. Þá mun veiði í Laxá í Þingeyjarsýslu verður heldur meiri en í fyrra, eða um 1200 laxar nú. — Ekki liggur nákvæmlega fyrir ennþá hvað stærsti lax sem veiddist í sumar var þungur. Fá- ir munu vera stáerri, en sá sem Kristinn Jónsson forstjóri Akur- eyrarflugvallar veiddi við Grænu tanga í Laxá í Þingeyjarsýslu 20. ágúst. Var það 30 þunda hæng- ur. — Töluvert hefur verið talað um roðsáraveiki þá sem kom upp í laxi í írlandi, og hefur það orðið til þess að veiðimenn hafa verið vel á verði í sumar og ó- venjulega mikið hefur borizt hingað af fiskum, sem hafa ver- nefnd að úthluta listamanna- styrkj.unum, munu flokkarnir hafa verið 5 eða 6, en síðustu árin voru þeir 4. Tveir efstu flokkarnir (síðustu árin) 50 og 30 þús. kr. munu bæði af nefndinni og listamönnum sjálf- um hafa verið álitnir fastir. Niðurröðunin í flokkana virðist jafnan hafa verið nokkuð handa- hófskennd, þó að viss festa sé sjáanlega upp úr 1961, og eru allar líkur á að jafnvægi hefði smárn saman komizt á, þótt eng- in lög hefðu komið til. En eins og áð.ur er sagt verkaði flokka- skipun þessi eins og einkunna- gjöf, þó að hún hafi í rauninni aldrei verið svo slæm eins og nú er, vegna þess hve margir flokkarnir voru. Og þó að sjálf- sagt hafi oftar en skyldi gætt vissra „alikálfasjónarmiða“ í gerðum nefndanna, var það ómetanlegur kostur, að þeir rit- höfundar, sem voru í tveimur efri flokkunum gátu verið nokk- urnveginn öruggir um að þeim yrði ekki kastað út. Þeir einir vita, sem reynt hafa, hve þýð- ingármikið það er fyrir starfandi rithöfunda að geta átt víst að fá listamannalaun árlega, þótt lítil væru. En óánægjan í röðum lista- manna fór vaxandi, menn bentu á einkunnagjöfina og þótt ekki viðunandi. Flestir í þeim hópi munu því hafa fagnað því er það fréttist, að frumvarpið væri á leiðinni. Rithöfundasamtökin fengu það til umsagnar og létu Bandalagi íslenzkra listamanna álit í té. Munu rithöfundar hafa sætt sig við frumvarpið, að því tilskyldu, að fé yrði veitt til þess að unnt væri að framkvæma það á sómasamlegan hátt. Ekki var tillögum þeirra sinnt og verður því að telja, að samtök rithöfunda hafi í raun hafnað frumvarpinu eins og það lá fyr- ir. En allt kom fyrir ekki. Skal nú farið nokkrum orðum um hin nýju lög. Lögin eru í 4 greinum og taka til allra annarra listamanna en þeirra, sem Alþingi hefur veitt heiðurslaun. Skipta skal lista- mönnum í 2 launaflokka og sé efri flokkurinn helmingi hærri sumar i'ð eitthvað sárir eða sjúkir. Ekki hefur samt neitt komið fram sem bent geti til þess að roðsára- veikin sé komin í laxinn hérna. Það kom hingað lax úr Norður- á, sem var dálítið ljótur útlits. Ég sendi fiskinn til veiðimála- stjórans í London, sem gaf þann úrskurð að fiskurinn væri ekki roðsáraveikur, heldur væri um meinlausari bakteríur að ræða. Þá veiddist í nokkrum ám, eink- um síðari hluta sumars, fiskur sem var skaddaður á höfði Höfðu sfðan sveppir komist í sár in og litu þau út eins og hvítar skellur. Virfist þeíta hel’/t koma fyrir í vatnslitlum ám. Hvað þetta er liggur ekki fyrir, en minna má á að sumarið 1951, sem var að úrkomu til svipað sumrinu í sumar, veiddust nokkr ir laxar með svipuð einkenni. Skrifaði ég þá til útlanda, og leitaði upplýsinga, en hafði held ur lítið út úr þeim. Mál þetta er nú til frekari athugunar hjá okkur. 1951 virtist þetta ekki vera hættulegt og fiskurinn jafn aði sig alveg aftur. — Þá hafa komið hér inn fisk- ar í sumar sem hafa verið áber- andi særðir eftir stökk, og eru þá blettirnir á kviðnum e'ða hlið unum. Sveppir setjast síðan í þessi sár og geta náð undirtök- unum og drepið fiskinn. en sá neðri. Síðan skal fara fram leynileg atkvæðagreiðsla um skiptingu í flokkana. Ætla má, að launin í efri flokknum eigi að vera föst, árleg laun. En auðséð er nú þegar, að neðri flokkurinn á ekki að vera fast- ur. Geta þeir, sem þar eru, því búizt við að verða af laununum hvenær sem meirihluta nefndar- innar þóknazt. Auk þessara meginatriða eru reglur um til- högun úthlutunarinnar. Nefndin skal kosin til 4 ára af samein- uðu þingi, en auk þess skulu aðildarfélög Bandalags ísl. lista- manna eiga rétt á að tilnefna hvert um sig 2 fulltrúa til ráðu- neytis við nefndina. Allt virðist þetta varla harla gott eftir orðanna hljóðan, en þegar til framkvæmdanna kem- ur, verður annað uppi á teningn- um. Heyrzt hafði, að einn megin- tilgangur laganna væri að koma í veg fyrir hina hvimleiðu eink- unnagjöf, sem tíðkazt hafði. En hafi svo verið, sannast átakan- lega á höfundum fr.umvarpsins, það sem séra Hallgrímur segir: „Þetta, sem helzt nú varast vann, varð þó að koma yfir hann“. Eins og áður er sagt var eink- unnagjöf 4-flokka kerfisins svo tilviljanakennd, að naumast var hægt að taka hana alvarlega. Öðru máli er að gegna um hina nýj.u tilhögun. Einkunnagjöf sú, sem menn vildu forðast, er marg- falt meira vansæmandi n-ú. Helmingsmunurinn á laununum gerir algerlega út um það. Raunar mættu ýmsir „laun- þeganna" öfunda höfunda lag- anna af þessari geníölu uppfinn- ingu. Það er nefnilega ólíkt munntamara að geta sagt að Pétur sé helmingi betra skáld en Páll, heldur en eins og áður var, að leggja á minnið mismuninn í krónum milli 4 flokka! — Skylt er þó að geta þess, að á æðstu stöðum hafa menn ekki verið fúsir á að viðurkenna þessa gamansömu túlkun á flokka- skiptingu úthlutunarnefndar — þyikir hún ekki sanngjörn, og er það að vonum. En þá er spurn- ingin: Hver er þá tilgangurinn með þessum gífurlega mun? Ekki er sjáanlegt að úthlutun- arnefnd hafi fylgt nokkurri „línu“ til grundvallar einkunna- gjöf sinni. Heldur ekki hefur hún lýst yfir að skiptingin sé sam- kvæmt „listrænu" mati meiri- hluta hennar, enda er vafasamt hvort sú leið hefði verið fær. Ég endurtek orð Erlends Jóns- sonar: „Og hver var svo mikill og svo réttsýnn, að hann væri þess umkominn að gefa slíkar einkunnir?" Svarið höfum við þegar feng- ið. Meiri'hluti úthlutunarnefnd- ar listamannalauna á því herrans ári 1967 taldi sig þess umkom- inn, eins og hann hef-ur sýnt í verki. Við fækkun úthlutunarflokk- anna hafa orðið nokkrar hækk- anir á laununum. Þannig hefur 50 þús. kr. flokkurinn frá í fyrra hækkað í 60 þús., og sá flokkur, sem áður var 20 þús. er nú 30 þús. Aðeins þeir, sem hlutu 30 þús. í fyrra, að undanskildum 3 rithöf. sem hækkaðir voru í 60 þús., hafa setið við sama og áð- ur. Það má því með sanni segja að þeir hafi fært fórnir fyrir til- verknað nefndarmeirihlutans. Er það auðvitað í samræmi við hákristilegan þahkagang að færa fórnir, og mættu þeir raunar una því vel, einknum ef fórnin væri veitt af f'úsum og frjálsum vilja, sem annars verður að teljast nokkurt vafa- mál. Og fórn þeirra er ennþá stærri en þetta, sem er í raun launalækkun, því að þeir verða nú að sætta sig við að staða, sem áður var trygg verður ótrygg í framtíðinni. Getur það verið, að meirihluti nefndarinnar hafi ekki athugað þetta? Fátt hefur frétzt af fundum nefndarinnar, enda þótt lögin veittu nefndarmönnum heimild til að skýra frá tillögum sínum. Þessa heimild hefur þó hr. Einar Laxness notfært sér. f frétt um úthlutunina í Þjóðviljanum er birt sérálit hans og tlllögur um 3 rithöfunda, sem hann vill færa upp í efri flokkinn. Einkennileg- ast við það er, að blaðið fylgir ekki hinni sjálfsögðu kurteis- venju að birta nöfnin í stafrófs- röð oig ljóstrar því þá um leið upp hver tilgangurinn var. Enginn þarf að segja mér að Einar Lax- ness eigi sökina á þessari smekk- leysu. Aðrir nefndarmenn hafa 'hafa ekki látið í sér heyra. Að sjálfsögðu 'hafa verið deildar meiningar innan nefndarinnar, og ég hef ástæðu til að ætla, að formaðurinn, hr. Helgi Sæ- mundsson, hafi haldið fráhi sjónarmiði, sem ef það hefði orð- ið ofaná, myndi hafa skapað grundvöll fyrir heilbrigðri tilhiögun í úthlutunarmál- unum í framtíðinni. En það átti ekki að fara svo. Hver orsökin er, er ekki vitað. Hvort það er hin leynilega atkvæða- greiðsla, sem reynzt hafi ein- hverjum andleg ofraun, eða vötnin hafi gruggazt af rykmett- uðum melavindi, eins og við segjum í Skaftafellssýslu, skal ósagt látið. Aðalatriðið er, að árangurinn hefur valdið von- brigðum, bæði persónulega að sjálfsögðu, og það, sem verra er, veikt trú manna á að þessum málum verði í náinni framtíð komið í það horf, sem tryggir hag rithöfunda bezt. Hér skal ekki farið út í að greina nöfn rithöfunda, sem óverðskuldað hafa verið settir hjá við þessa úthlutun, enda er það utan ramma þessa greinar- korns. Féð var allt of naumt, og eins og áður er sagt, hefði átt að fresta framkvæmd laganna þangað til fjárhagsgrundvöllur var fyrir hendi. Og svo er það víst tilgangur- inn að skipta jafnvel árlega um menn í neðri flakknum. En hvernig getur nokkrum ábyrgum aðila dottið í hug að hægt sé að bjóða mönnum, sem hafa helgað mestan hluta ævi sinnar ritstörfum og kommir eru á efri ár, upp á þá trakteringu að verða varpað eins og knetti út og inn um náðardyr nefndar- innar annaðhvert ár? Þó að sleppt sé hinu vansæmandi í þessu sambandi (æra ísl. rithöf- unda hefur lengi verið lítils metin), þá er aðstaða margra þeirra þannig, að það væri mjög tvíbentur hagnaður, ef ekki beint tap að hljóta slikan vafa- pening. Nú er það næsta Alþingis að ráða einhverja bót á þessum vanda. Það má ekki koma fyrir að lög, sem sett eru í beztu mein- ingiu, snúizt þannig í fram- kvæmdinni að þau verði eitt- hvert þyngsta áfall sem ísl. rit- höfundar hafa orðið fyrir síðan Alþingi hófst handa um að létta kjör þeirra með fjárstuðningi fyrir rúmum 70 árum. IV. Starfsstyrkir í athugasemdum við lögin um listamannalaun segir: „í viðræðum, sem mennta- málaráðherra hefur átt við stjórn Bandaiags íslenzkra listamanna, hefur komið í ljós, að innan bandalagsins er sérstakur áhugi á því að fá lögtekin ákvæði um sérstakt starfsstyrkjakerfi til handa listamönnum, samkv. um- sóknum þeirra". Skipuð hefur verið nefnd til þess að athuga möguleika á því að breyta núverandi listamanna- launum að nokkru leyti í starfs- styrki. Fljótt á litið virðist ekki vera nema gott eitt um þetta að segja. Starfsstyrkir er allt annað en hin föstu listamannalaun, sem auðvitað er óhjákvæmilegt að halda við lýði í framtíðinni. Slíkir styrkir eru miðaðir við að vinna að ákveðnu verki og eru þannig ekki óskyldir styrkjum Hugvísindasjóðs til ritstarfa. Og er þá að sjálfsögðu ætlunin að styrkþegi skili verki sínu í hend- ur fróðleiksfúsum almenningi áður en heill mannsaldur er liðinn. Um fyrirkomulag starfsstyrkj- anna er ekki hægt að ræða að svo stöddu, þar sem nefndin hefur ekki enn skilað áliti. En Ágætis laxveiði sunnan- lands og vestan í ekki hefur orðið vart við roðsáraveiki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.