Morgunblaðið - 04.10.1967, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKT. 19-67
19
Luis Carreru Blanco, flotaforingi,
sem Franco forseti Spánar, hef-
ur skipað varaforseta. Blanco er
64 ára.
Frá flóðunum í Suður-Tex-
as í fyrri viku. Tólf manna
fjölskylda í Ilarlingen flýr
heimili sitt á smábáti og leitar
hælis þar sem hálendara er.
Flnð þessi hafa valdið óskap-
legu tjóni í Texas og norður-
héruðum Mexikó.
Lofímynd af H.M.S. „Resol-
ution“, fyrsta Polariskafbáti
Breta, sem afhentur var flota
Bretadrottningar mánudag-
inn 2. október.
Kafbáturinn er smíðaður í
Vickers-skipasmíðastöðvun-
um, 122 metra langur og 9.15
metra breiður, búinn 16 Pol-
aris-eldflaugum af gerðinni
A-3 með kjarnaoddum gerð-
um í Bretlandi, svo hittnum
að hæfa mark í allt að 2.500
sj mílna fjarlægð.
Tvær áhafnir skiptast á um
að manna skipið og telur
hvor 13 sjóliðsforingja og
125 óbreytta sjóliða, og eru
á „Resolution" í tvo mánuði
í senn.
Myndin er tekiu fyrir
nokkrum dögum, er kafbát-
urinn kom úr fyrstu reynslu-
ferð sinni út á Atlantshaf og
hlaut þá umsögn stjórnanda
síns, M. C. Henreys skipherra.
að hann væri hið elskuleg-
asta skip í sjó og léti mjög
vel að stjórn.
Fyrir skömmu var frum-
sýnd í Parísaróperunni nýj-
asta kvikmynd þeirra hjóna
Richard Burton og Elizabeth
Taylor, „The Taming of the
Shrew“, sem gerð er eftir
samnefndu leikriti Shake-
speares. Ekki gekk greiðlega
að leiða gestina til sætis, því
mannmargt var úti fyrir dyr-
um óperuhússins og vopnað
lögreglulið til verndar frúnni
og höfuðdjásni því er hún bar
við þetta tækifæri og metið
er til 1,2 milljóna dala banda-
riskra eða sem næst 44 millj-
ónum íslenzkra króna.
Páll páfi setur biskupa- heiminum. Páfi setti þingið
þingið í Péturskirkjunni í með ræðu og varaði þar m.a.
Róm á föstudag sl. Þingið við þeirri hættu sem kristn-
sækja biskupar kaþóiskrar inni stafaði aí „hugsunar-
kirkju hvaðanæva að úr hætti nútímamanna“.
Unnið að undirbiiningi há-
tiðahaldanna sem fram munu
fara i Moskvuborg á næstunni
vegna hálfrar aldar afmælis
októberbyltingarinnar. Verið
er að koma fyrir Ijósaperum
á brú einni nálægt Rauða
torginu. I baksýn er Sankti
Ba«ilsd''mkirkjan. sem stend-
ur við enda torgsins.