Morgunblaðið - 18.10.1967, Blaðsíða 1
28 SIÐUR
Mjúk lending
á Venusi í nótt
Moskvu, 17. okt., NTB.
í NÓTT kl. 4.30 að ísl. tíma kem-
SÞ:
Mikilvægor
viðræðui hafnoi
ur sovézka gcimflaugin Venus-4
að samnefndri plánetu. Forseti
sovézku vísindaakademíunnar,
M. Keldysj, sagði á blaðamanna-
fundi í dag, að þess væri vænzt,
að hægt væri að láta geimflaug-
ina lenda mjúkri lendingu á
plánetunni, en engu væri hægt
að spá um árangurinn, því til-
tölulega lítið er vitað um and-
rúmsloftið á Venusi.
New York, 17. okt., AP.
U Thant, aðalritari SÞ, ræddi
í dag við fyrsta varautanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Vasilij
Kuznetsov, og fulltrúa Banda-
rikjanna hjá SÞ, Arthur Gold-
berg. Viðræður þessar beindust
að því að finna viðunandi lausn
á deilunni fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Viðræður þessara þriggja
stóðu yfir í 45 mínútur, en engin
tilkynning var gefin út að þeim
loknum.
Talið er víst, að Kuznetsov
muni innan tíðar ræða við Gold-
berg um kreppuna fyrir botni
Mfðjarðarhafs og önnur vanda-
mál, sem nú steðja að Allsherj-
arþingi SÞ. Kuznetsov kom til
New York ó mgnudag og ræddi
þegar við komuna við utanríkis-
ráðherra Egyptalands, Mahumad
Riad, sem nokkru síðar ræddi
við Goldberg.
Fullvíst er talið, að aðaltil-
gangurinn með komu Kuznet-
sovs sé jafnt að ræða um hinn
fyrirhugaða sáttmála um bann
við dreifingu kjarnorkuvopna
eins og úm kreppuna í löndum
Gyðinga og Araba.
Venus-4 mun, ef allt gengur
að óskurn, senda upplýsingar til
jarðar um lofthjúp Venusar, en
slíkar upplýsingar eru geysi-
mikilvægar fyrir geimferðir
framtíðarinnar, sagði Keldysj.
Hann sagði ennfremur, að árang-
ur þessarar geimferðar ylti á
loftþrýstingnum á Venus, en
upplýsingar, sem flaugin- hefur
þegar'sent frá sér benda til að
hitinn umhverfis hana nú sé 400
gráður á Celsíus.
VIUA BEINAR VIÐRÆÐUR
Jerúsalem, 17. okt., AP. arhafs og koma á varan-
ÍSRAELSSTJÓRN tilkynnti legum friði á þessu svæði.
í dag, að hún héldi fast við
fyrri ákvarðanir sínar um ■P*» 'ÓáflBBl
miililiðalausar samningavið- K iH
ræður við Araha, cnda væri BMFs' ,
það eina leiðin til að leysa ÍÍyBK; I
deiluna fyrir botni Miðjarð- * *
Fjölga mönnum
■ VSetnam
Astralíustjórn hefur ákveð
ið að fjölga í her sínum í S-
Víetnam úr 6.300 manns í
8000 manns. Einnig hefur
stjórn Nýja Sjálands ákveðið
að fjölga í her sínum — um
170 manns.
Forsætisráðherra Ástralíu,
Harold Holt, sagði á þjóðþinginu
i dag, að árásarmáttur ástralska
heraflans í S-Víetnam yrði í
raun tvöfaldaður. Sagði Holt, að
öflugir skrfðdrekar yrðu sendir
til S-Víetnam og auk þess þyrl-
ur o. fl.
Wang í ónáð
Peking, 17. okt. — NTB —
VEGGSPJALDASTYRJÖLD er
hafin í Peking gegn áróðurs-
málaforingja kínverskra komm
únistaflokksins, Wang Li, sem
á sæti í menningarbyltingar-
nefndinni í Peking.
Wang er ásakaður um njósn-
ir í þágu forseta kínverskra
þjóðernissinna, Sjang Kai-sjek.
Ofsinn, sem einkennir árásirn-
ar á Wang Li, kemur á óvart,
því í júlí sl. var hann hylltur
sem ein af hetjum stjórnarinn-
ar.
Fyrsta merkið um að Wang
væri fallinn í ónáð bom 1. okt.
sl., á þjóðhátíðardegi Kínverja,
þegar hann var ekki viðstaddur
í hinni opinberu heiðursstúku á
Torgi hins himneska friðar.
Forsætisráðherrann lýsti því
yfir, að Ástralía væri nú betur
varin en nokkru sinni fyrr á
Framhald á bls. 27
Abba Eban
Á fundi með stjórn sinni í
morgun sagði Abba Eban,
utanríkisráðherra ísraels, að
þjóðin mundi ekki sætta sig
við neitun Araba við beinum
viðræðum.
Yfirlýsing, sem gefin var út
að loknum fundi ríkisstjórnarinn
ar, lagði fyrir fulltrúa ísraels
hjá Sameinuðu þjóðunum, að
haga máli sínu samkvæmt þess-
ari ákvörðun.
Eban leggur af stað til New
York á föstudag nk. til viðræðna
við Dean Rusk, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, um sam-
vinnu landanna.
Til harðra átaka kom milli
brezkra hermanna og ara-
bískra þjóðernissinna í Ad-
en sl. sunnudag. í átökun-
um féll einn Arabi en þrír
særðust lifshættulega. Fjórir
brezkir hermcnn særðust í
þessum bardögum og sést
einn þeirra hér að ofan í fylgd
félaga sinna fyrir utan sjúkra
stofu í Aden. Á húsvegginn
eru letraðir upphafsstafir
arabísku þjóðfrelsisfylkingar-
innar. (AP-mynd>.
Lestarstjóri
ákærður
Óðinsvéum, 17. okt., NTB.
ÁKÆRUVALDIÐ í Óðinsvéum
höfðaði í dag mál á hendur lest-
arstjóranum Curt Alfred Múller,
sem stjórnaði lestinni „Norður-
Jótinn“, er hún ók aftan á aðra
lest um fjóra km. austur af Óð-
insvéum 10. ágúst sl„ en i þessu
járnbrautarslysi fórust 11 og 30
særðust.
Nasser fús að hefja viðræður við
isralsmenn undir leiðsögn S.Þ.
Brezkur þingmaður skýrir frá viðtali við Nasser, hinu fyrsta
við hann, sem birtist opinberlega frá því í júnístyrjöldinni
Nasser forseti Egyptalands
er fús að hefja viðræður við
Israel undir leiðsögn Sam-
einuðu þjóðanna og það jafn-
vel áður, en Israelsmenn
flytji á brott herlið sitt frá
Sínaiskaga. Hefur forsetinn
stungið upp á því, að slíkar
viðræður færu fram innan
marka vopnahléssamkomu-
lags þess, sem gert var
1949. Hann er einnig reiðu-
búinn að fallast á, að bund-
inn verði endi á styrjaldar-
ástand það gagnvart tsrael,
sem Egyptar hafa haldið
fram, að ríkt hafi allt frá
stofnun ísraelsríkis.
Þetta kemur m. a. fram í
viðtali, sem Sir Dingle Foot,
þingmaður og fyrrum ríkis-
saksóknari í Bretlandi átti við
Nasser forseta fyrir skömmu,
og birtist í blaðinu The Ob-
server. Sir Dingle segir hins
vegar, að Nasser krefjist
þess, að ekkert samkomulag,
einnig að því er varöar Súez-
skurð, verði samið endanlega
um, fyrr en herlíð ísraels-
manna sé á burt af egypzku
landssvæði. Forsetinn bindur
einnig heimild fyrir ísraels-
menn um að sigla skipum
sínum um skurðinn því skil-
yrði, að vandamál arabískra
flóttamanna frá Palestínu
verði í samræmi við ályktun
Sameinuðu þjóðanna, þar sem
farið er fram á, að þeim verði
annað hvort leyft að snúa
heim, eða þeim greiddar
bætur.
Sir Dingle segir enn fremur
að Nasser forseti vonist til
þess, áð Bretar og Egyptar
taki upp stjórnmálasamband
sín á milli að nýju og að í
kjölfar þess fylgi nánari sam-
vinna í efnahags- og menn-
ingarmálum milli Bretlands
og Egyptalands.
Þetta voru nokkur helztu
atriðin, sem fram komu í við-
tali Sir Dingles við Nasser, en
það fór fram sl. fimmtudag
og er fyrsta viðtalið, sem
haft er yið forsetann og birzt
hefur á prenti, síðan styrj-
Foot
Nasser
öldinni milli Araba og Isra-
elsmanna lauk í júní sl.
Meiri gagnrýni á Nasser.
Sir Dingle segir, að Nasser
sé nú gagnrýndur miklu
frjálslegar en áður heima fyr-
ir og ósigurinn í sumar hafi
að sjálfsögðu orðið þess vald-
andi, áð hann hafi fallið í
áliti á meðal mjög margra.
Sir Dingle telur hins vegar,
og hefur þá skoðun sína eftir
sendistarfsmönnum, blaða-
mönnum og ýmsum öðrum,
Framhald á bls. 27