Morgunblaðið - 18.10.1967, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.10.1967, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKT. 1967 Afmœliskveðja: Jón og Ásmundur Púlssynir sextugir ÞANN 28. sept. síðastl. áttu tví- burabræðurnir Jón og Ásmund- ur Pálssynir frá Garði í Fnjóska- dal sextugsafmæii. Þeir eru fæddir í Garði 28. sept. 1907, synir hjónanna Elísa- betar Árnadóttur og Páls G. Jónssonar sem þar bjuggu lengi. Páll faðir þeirra var með bú- skap sínum lengi póstur þar um slóðir og var duglegur ferða- maður. Elísabet og Páii eignuðust 8 börn, en fjögur komust upp til fuliorðins ára þau eru: Garðar lengi bóndi á Hofi í Flateyjar- dal seinna í Garði og nú búsettur á Akureyri, Jón og Ásmundur búsettir á Akureyrí og Ásrún, einnig á Akureyri. Jón og Ásmundur ólust upp hjá foreldrum sínum í Garði og þegar þeim óx fiskur um hrygg tóku þeir að mestu við forsjár bús þar ásamt _ Ásrúnu systur sir.ni. Þeir bræður þóttu strax hneigðar til bókar, en höfðu ekki kost á menntun fram yfir barna- t Maðurinn minn Böðvar Jónsson skósmiður, Hciðarbraut 17, Akranesi. andaðist á Sjúkrahúsi Akra- ness 16. þ. m. Guðrún Jóhannesdóttir. t Eiginkona mín, Kristín Jónsdóttír frá Torfastöðum í Fljótshlíð, lézt að heimili okkar, Njáls- götu 84, Reykjavík, mánu- daginn 16. októbermánaðar. Jón Arnason frá Vatnsdal. t Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, stjúp- móður og ömmu Kristínar Magncu Halldórsdóttur Asvallagötu 3, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 19. október kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Jóhannes Jóhannsson. lærdóm, nema þess er þeir öfl- uðu sér með sjáifsmenntun af lestri góðra bóka. Ekki er nú búið lengur í Garði, en jörðin nytjuð af bændum í dalnum en vonandi koma þeir tímar að vinnufúsar hendur fari þar aftur höndum um garða. Jón og Ásmundur dvöldust í Garði til 1945, en þá fluttu þeir ásamt móður sinni og systur til Akureyrar, en faðir þeirra var þá látinn. Festu þau kaup í húsi í Glerárþorpi, sem stóð á falleg- um stað efst í þorpinu og nefndu þau húsið Lundgarð og höfðu i nokkur ár smábúskap með annarri vinnu er til féll. Ásmundur staðfesti ráð sitt er hann gekk að eiga Margréti Hallgrímsdóttur, austfirzkrar ættar. Jón og Ásrún festu kaup í efri hæð í húsinu nr. 5 við Stór- holt í Gierárhverfi og eiga þar nú myndarlegt heimili. Jón réði sig sem starfsmann hjá Verzluninni Eyjafjörður og stundaði þar verzlunarstörf í nokkur ár, en gerðist þá sinn eigin húsbóndi og eignaðist verzlunina Norðurgötu 8 og verzlaði þar í nokkur ár og árið 1960 keypti hann Verzlunina Gierá í Glerárhverfi og rekur hana enn við sí vaxandi vin- sældúr. t Þökkum innilega allar sam úðarkveðjur, hlýjan hug og vináttu sem okkur var sýnd við fráfall og jarðarför eig- inmanns míns, föður, tengda- föður og afa Jónasar Sveinssonar Mýrargötn 2, Hafnarfirði. Gnðrún Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barna- börn og systnr hins látna. t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eigin- manns míns, föður, tengda- föður og afa, Sveins Kr. V aldimarssonar fiskeftirlitsmanns Háteigsveg 20 Sérstakar þakkir viljum vi'ð færa stjóm Sölumiðstöð hraðfrystihúsa fyrir þá vin- semd er hún hefur sýnt. Elín Theódórsdóttir, Halldóra L. Sveinsdóttir, Oddgeir Þorleifsson, Elín Oddgeirsdóttir, Sesselja Oddgeirsdóttir. t Útför mó'ður okkar, tengda- móður og ömmu Vilborgar Brynhildar Magnúsdóttur Baldursgötu 24, fer fram frá Fossvogskirkju í dag miðvikudaginn 18. okt. kl. 1,30. Jarðsett verður í Keflavíkurkirkjugarði. Rósa Jafetsdóttir, Jón Kristjánsson, Jóhanna Olafsdóttir Croak, Tómas Croac, Elsa Olafsdóttir Nielsen, Róbert Nielsen, Theódór Rósantsson, Helga Pétursdóttir, Pétur Þór Ólafsson, og barnabörn. t Minningarathöfn um son, bróður okkar og mág, Lárus Guðmundsson sem lézt í flugslysi 3. þ.m. verður í Langholtskirkju fimmtudaginn 19. okt. kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað. Regína Rist, Guðmundur Jóhannsson, Gíslunn Jóhannsdóttir, Óttar Guðmundsson, Kristín G. Isfeld, Haukur ísfeld. Jón er glaðsinna og skemmt- inn og vel hagmæltur, en fer nokkuð dult með þá gáfu sína, en nokkuð hefur sést eftir hann og þykir snoturt og ekki er ég grunlaus um að hann eigi fleira í pokahorninu. Félagsmálum hefur Jón sinnt nokkuð svo sem í Þingeyinga- félaginu á Akureyri og Lestrar- félag Glerárhverfis á honum til- veru sína að þakka. Jón hefur venð stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins og oft xrnnið honum vel. Ég óska þeim bræðrum til hamingju með þetta merkisaf- mæli og þakka þeim fyrir góð kynni á undanförnum árum og vona að þeir eigi enn eftir að starfa jafn léttir og kátir sem þeir eru. Þ. Hallfreðsson. — Utan úr heimi Framhald af bls. 14 og lagði nú land undir fót til að færa byltinguna út. Hann hafði ákveðnar hugmyndir bæði um Asíu og Afriku og í báðum þeim heimsálfum hafa skæruliðar borið á sér bækur með hagnýtum ieið- beiningum hans. En þar sem hann var arg- entínumaður, beindist ábugi hans sérstaklega að löndun- um í Suður-Ameríku. Síðan hann hélt frá Kúbu fyrir tveimur árum hafa fregn ir borizt af honum í ýmsum löndum Asíu og Afríku, þar sem hver einasti lögreglumað ur með viti hefði átt að verða var við ferðir hans. Trúlegra er, að hann hafi einkum hafzt við í Suður-Ameríku, þar sem hann skar sig á en.gan hátt úr fjöldanum — að minnsta kosti ekki ef hann rakaði af sér skeggið. Ef gert er ráð fyrir því að hann hafði farið frá Kúbu með það fyrir augum að færa út byltinguna og sömuleiðis er gert ráð fyrir því að hann hafi verið það skynugur að starfa í löndum þar sem hann þekkti sig og fólkið, sem þar býr, má segja, að afrakstur þessara tveggja ára hafi ekki orðið ýkja mikill. Á fundi Suður-Ameríkuríkja í Hav- ana á Kúbu í júlí og ágúst síðastliðnum var eftirtektar- vert, að margir kommúnista- flokkar létu hjá líða að senda íulltrúa — þar á meðal voru Argentína, Chile, Brasilía, Mexíkó og Venezúela. í loka- ræðu Fidels Castros á fundi þessum réðst hann harkalega að Venezúelamönnum fyrir að svikja hugmyndir sínar og Chés um sósíalismann. Markmið þeirra fulltrúa, sem viðstaddir voru virtist og að nokkru óljóst. Kommún- istaflokkur Uruguay sem í raun og veru hreykir sér hátt hugsjónalega dregur minna taum vinstrisinnaðra í Uru- guay en brezki kommúnista- flokkurinn taum Breta. Þó að Guevara væri fjar- staddur var hann kjörinn for- seti fundarins og skoðanir hans samþykktar af meiri- hluta hinna fáu, sem þarna mættu til leiks. Þó má telja sennilegt, að skoðanir hans verði enn um sinn mikils ráðandi í sumum löndum. Ef Guevara er dá- inn hefur hann alténd látið eftir sig ritaða erfðaskrá, og allt sem frá hans hendi hef- ur komið er lesið af ákefð þar á meðal í Vietnam, þar sem skoðanir hans hafa mun meira hagnýtt gildi en Rauða kverið eftir Mao Tse-tung. Sé Guevara á lífi mun hann áfram eiga Kina áhangendur og dulúðin í kringum hann, sem ekkert nær að granda, mun aukast. Ef hann er dá- inn gæti hann orðið píslar- vottur og hann lætur eftir sig a-m.k. eina kennslubók og þar að auki eina vel heppnaða byltingu og það er meira en Karl Marx gat státað af. Hvernig sem mákxm er háttað verður hann áfram þyrnir í augum á kreddu- bundnum kommúnistum og Saab til sölu árgerð 1964 í fyrsta flokks ásigkomulagi til sýnis og sölu í dag. Saab umboðið, SVEIN NBJÖRNSSON & CO. Skeifan 11, sími 81530. Snjóþotur Skíðasleðar Magasleðar NÝKOMIÐ í MIKLU ÚRVALL t Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin- manns míns og föður okkar, DAVÍÐS ÞORSTEINSSONAR, Arnbjargarlæk. Guðrún Erlendsdóttir og böm. VERZLUNIN QEíSÍRE ekki vafi á að hann mun kunna því vel, hvort seim hann er þessa heims eða annars. Haim er — eða var — einn þeirra gæfusömu manna, sem veit að hvað svo sem aðrir segja, er hann sá sem allt veit og veit allt bezt. Og ef hann er ekki framar, þá verður athyglisvert að fylgjast með þvi, hvort Fidel Castro heldur fram stefnu Guevara í utanríkismálum, sem þegar hefur reynzt svo dýrkeypt og lýjandi. — Minning Framhald af bls. 11 ið og eru, né hve lengi þau munu vara. Mér hefur skilizt, að margir þeir kennarar, sem hófu störf með honum þar (sumir al- veg byrjendur) telji sig eiga honum mikið að þakka. Eftir að Gísli hætti skóla- stjórn, kom hann oft í skólann á starfstíma, og um nokkur ár gegndi hann prófdómarastörfum þar. Það var ánægjulegt, að sjá hann koma inn ganginn og fá hann með við kaffiborðfð á kennarastofunni. Hann var allt- af heimamaður í Langholtsskól- anum. Við, sem unnum þar með honum um lengri eða skemmri tíma, söknum hans. Hann kem- ur ekki oftar til okkar holdi klæddur, hýr á svip með gam- anyrði og spakmæli á vörum. En andi hans svífur yfir skólastarf inu, og mun svo lengi verða. Með þakklátum huga vottum við konu hans, börnum og öðr- um nákomnum innilega samúð. Eiríkur Stefánsson. AU-ÐVITAÐ ALLTAF inm in i m m ii i i ^>nllctt LEIKFIMI_____ JAZZ-BALLETT Frá DANSKIN Búningar Sokkabuxur Netbuxur Dansbelti Margir litir •fc Allar statrðir Frá GAMBA Æfingaskór Svartlr, bleikir, hvitlr Táskór Ballet-töskur ^Qallettlrúífin E K 2 l K'GBBBB Z l U N I N mi I SÍMI 1-30-76 iinwjrMir iiith iiiiiiiiiiiiiii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.