Morgunblaðið - 18.10.1967, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKT. 1967
UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR
— effir Jóhann
Jakobsson
forstöðumann
Almannavarna
Náttúrleg geislun
umhverfisins
Þess er áður getið í grein II,
Geislavirkt úrfall, að maðurinn
og aðrar lifandi verur jarðar-
innar ver'ða fyrir stöðugri geisl-
un frá umhverfinu. Geislim
þessi stafar utan úr geimnum,
geimgeislar, frá geislavirkum
efnum jarðarinnar og frá geisla
virkum efnum, sem finnast í lík-
ama manna og dýra. Geislun
þessi er mismunandi eftir stað-
háttum og hæð landsins yfir sjó.
Áhrifa geimgeislanna gætir
meir því hærra sem dregur frá
jörðu. Þannig þrefaldast geislun
þessi í 3000 metra hæð miðað
við sjávarmál. Heildargeislun,
sem líkaminn verður fyrir á
þennan hátt nemur þó aðeins
100—150 milli-rem*) á ári.
Önnur geislan, sem líkaminn
verður fyrir stafar frá læknis-
fræðilegri meðhöndlun, röntgen
1956)
ICRP (1950-1956 ) 0.3 rem/viku
0,1 rem / dag
ICRP (193/t -1950 ) 0,2 rem / dag
Geislun
(rem/ár)
5 meðaltal
15 hámark
30
60
-100
Leyfilegur geislaskammtur, hámark.
Áhrif geislunar
ú munninn
myndum, gegnum-lýsing og frá
áhrifum geislavirkna - efna frá
tilraunasprengingum fyrri ára
(1954—1961). Hið fyrmefnda
er mjög breytilegt og hið sfðar-
nefnda er talið að nemi aðeins
um 1—3 milli-rem á ári, ef ekki
verður framhald
sprengingum.
slíkum
4. GREIN
Geislun frá kjarnorku-
sprengingu.
Þess er éður getið í
(Kjarnorkuvopn og
grein I,
áhrif
þeirra), að einn skaðvaldurinn
er frumgeislun, sem nemur um
5% af orku sprengingarinnar.
Þessi geislun er lífshættuleg í
2,5 km. fjarlægð frá sprengi
stað og getur valdið alvarlegum
*) 1 Rem (millirem = 1/1000
rem) er mælieining fyrir líf-
fræðileg áhrif hvers konar geisl-
unar og jafngildir áhrifum, sem
1' R (röntgen) röntgen- og
gammageislna orsaka í lifandi
vef.
skaða í allt að 5 km. fjarlægð,
ef stærð sprengjunnar er 1 MT
(megatonn).
Geislun þessi gæti numfð 100
rem í 4 km. fjarlægð. Frum-
geislun varir aðeins örskamma
stund og hefur aðeins áhrif það
augnablik. Öðru máli gegnir
um geislun frá geislavirku úr-
falli, sem fylgir í kjölfar
sprengingar. Geislunin stafar þar
frá úrfallskomum, sem lagzt
geta yfir stór svæði líkt og eld-
fjallaaska. Þar er því um lang-
æa geislun að ræða, sem get-
ur numið hundruðum eða þús-
undum rem, ef skýling er ekki
tiltæk.
Náttúrleg geislun, sem sam-
kvæmt því, sem áður er sagt
nemur aðeins 100—150 milli-
rem á ári verður því hverfandi
miðað vfð þann geislastyrk,
sem frá kjarnorkusprengingu
stafar.
Áhrif geislunar á líkamann.
Líkami manna og dýra er
byggður upp af ótölulegum
fjölda örsmárra eininga, fruma.
Þessar einingar eru þó risastór-
ar miðað við stærð sameinda og
frumeinda, sem þær eru byggð-
ar af. Frumur líkamans endur-
nýjast stöðugt, þær hrörna og
deyja, en nýjar myndast í þeirra
stað. Þetta er hin eðhlegi gang-
ur líkamsstarfseminnar. Ef lík-
aminn verður fyrir geislun
skaðast viss fjöldi fruma eða
eyðileggjast. Ef geislunin er
væg, nær líkaminn að bæta
skáðann án þess að einstakling
urinn verði þess var. Sterkari
geislun og/ eða geislun í lengri
tíma, veldur meiri skaða á lík-
amsfrumunum. Vanlíðan og
veikindi koma fram lengri eða
skemmri tíma. Einstaklingurinn
þjáist af geislunarveiki. Ef
geislun á skömmum tíma nem-
ur 600 rem eða meira leiða
veikindin að jafnaði til dauða
innan skamms tíma.
Líkindi fyrir lífshættulegum
áhrifum
Skaðlegum áhrifum geislunar
á líkamann má skipta í þrjá
megin flokka.
1. Geislunarveiki. Einkennin
lýsa sér í fyrstu, sem máttleysi,
ógleði og uppköst. Einkenni
þessi hverfa, en innan 1—2
vikna koma þau aftur, jafn-
framt því, sem sjúklingurinn
fær sár í munn og háls, niður-
gang, hitasótt og hár byrjar að
falla af höfði.
Ef geislun er yfir 600 rem
leiðir veikin til dauða á skömm
um tíma. Vi’ð geislun um 400
rem eru a.m.k. 50% líkur fyrir,
að sjúklingur nái bata. Ef geisl-
un er innan við 300 rem má
gera ráð fyrir sjúkdómsein-
kennum á þriðju og fjórðu
viku eftir geislun. Batahorfur
eru góðar. Ef geislun er innan
við 200 rem verður geislunar-
veiki ekki vart að ráði.
2. Geislun getur verið orsök
til sjúkdóma, sem koma fram
löngu síðar á æfiskeiði. Sér-
staklega virðast áhrifin örfa
myndun krabbameins og hvít-
blæðis.
3. Geislun hefur áhrif á
erfðastofnana og eykur líkur á
vanþroska.
Geislunarveiki er ekki smit-
andi, en einstaklingur, sem orð-
ið hefur fyrir geislun, og er með
geislunarveiki, er næmari en
aðrir fyrir smitandi sjúkdóm-
um. Viðnám hans gegn sýkingu
er minna.
Geislun ber ætíð að varast.
A síðustu árum hefur áhrif-
um geislunar og geislavirkra
efna af eðlilegum ástæðum ver-
ið veitt vaxandi athygli. Notkim
geislavirkra efna hefur aukizt
stórlega. Kjarnorkustöðvar og
orkuver hafa verið reist. Til
að tryggja sem bezt, að geisl-
un valdi mönnum ekki skaða,
hafa verið settar ákveðnar regl
ur um hvað einstaklingar megi
verða fyrir mikilli geislun án
þess, áð það valdi þeim tjóni.
Reglur þessar hafa verið settar
og endurskoðaðar af Alþjóða-
nefnd geislavarna (International
Commission on Radiological
Protection).
Mynd 2 sýnir, að kröfurnar
hafa stöðugt verið gerðar strang
ari.
Aukin vernd gegn utanaðkom-
andi geislun, þrátt fyrir marg-
falda aukningu í notkun geisla-
virkra efna. Miðað við árið 1956
er þetta mark 0,1 rem eða 100
milli-rem á viku fyrir þá, sem
vinna með geislavirk efni. Fyr-
ir almenning er markið 500
milli-rem á ári.
1 MEGAT0NN
UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR UM ALMANNAVARNIR
Samband veitinga-
og gistihúsaeigenda
Almennur félagsfundur verður haldinn í Átthaga-
sal Hótel Sögu í dag kl. 4 eftir hádegi.
Áríðandi að félagmenn mæti.
STJÓRNIN.
SÖLUMAÐUR
ÓSKAST
til að selja mjög seljanlega
vöni, mjög góð sölulaun,
þyrfti helzt að hafa bíl.
Þeir sem vildu sinna þessu
sendi nafnr sitt og heimilis-
fang á afgr. Mhl. fyrir föstlu-
dagskvöld merkt: „Ágóði 224“
Bústjóra
vantar að skólabúinu að Skógum í Austur-Eyja-
fjallahreppi. Einnig kemur til greina að leigja jðrð
og hús og jafnframt að selja búfénað ásamt véla-
kosti, og öðru sem búinu fylgir. Umsóknir sendist
sýsluskrifstofunni Hvoisvelli fyrir 31. þessa mán-
aðar.