Morgunblaðið - 18.10.1967, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKT. 1907
MAYSIE GREIG: 35
Læknirinn
og
dansmærin
ég sæi þig aldrei aftur. Það hefði
getað gert mér allt auðveldara.
— Mér þykir leitt ef þú vilt
ekki sjá mig, Marcel, en ég þarfn
aðist ráðlegginga þinna.
— Vitaniega vil ég sjá þig.
Röddin var allt í einu orðin hás
og áköf. Ég hef orðið að taka á
öllum viljastyrk mínum til að
stilla mig um að hringja til þín.
— Hversvegna hringdirðu þá
ek'ki til mín? sagði hún lágt. —
Ég hefði haft mikla ánægju af
því.
_ — Ég veit það, sagði hann. —
Ég hélt, að ég væri sterkur, en
líklega hef ég verið veikur fyr-
ir. Þú veizt ekki, hvaða áhrif
það hefur á mig að sjá þig. Það
freistar mín til að slíta öll fjöl-
skyldubönd og varpa öllum skyld
um fyrir borð. Hversvegna
komstu hingað?
— Ég sagði þér það — það
var til þess að láta þig líta á fót
inn á mér. Ef ég get aldrei dans-
að framar, er mér eins gott að
taka tiiboði hr. Hennesy og fara
til New York með honum og
Dickie.
— Er Hennesy að hugsa um að
fara vestur?
Hún kinkaði kolli. — Dickie
verður að fara í almennilegan
skóla. Hann er komir.n fram yfir
þann aldur.
— En þarft þú að fara með
þeim? Röddin var næstum biðj-
andL
— Ef ég get ekki dansað, er
ekkert til að haida í mig hér.
— En þá verðurðu svo langt
í burtu. Ég gæti ekki til þess
hugsað, elskan mín.
— Já, en þú ætlar að fara að
gifta þig. Ég held, að mér væri
bezt að fara tilBandaríkjanna.
Hendur hans voru krepptar á
borðinu. Hann laut höfði. — Þú
verður auðvitað að ráða því.
Ekki hef ég neinn rétt til að
leggja þér lífsreglurnar. En
hefði þetta bara allt verið öðru
vísi.....
Það varð aftur þögn. Hún ósk-
aði þess, að hún gæti huggað
hann. Hana hefði langað til að
strjúka hendi yfir dökka hárið
á honum. Hann var orðinn elli-
legri en hún mundi eftir að hafa
séð hann áður. Hún var gripin
meðaumkun með honum, en jafn
framt með sjálfri sér.
— Marcel, sagði hún lágt, —
það bíða fleiri sjúklingar eftir
þér.
Hann leit snöggt upp. — Því
var ég búinn að gieyma. Ég
gleymi öllu þegar ég er með þér,
elskan mín. Þetta er þó víst ekki
annað en læknisvitjun.
Þegar hann hafði skoðað fót-
inn, sagði hann: — Ég ræð þér
til að fara ekki að æfa neitt,
næsta mánuðinn. Og það gæti
jafnvel verið of snemmt. Þú verð
ur að fara mjög varlega til að
byrja með.
— Þá geta liðið margir mánuð
ir þangað til ég get dansað á
sviði? sagði hún hún í örvænt-
ingu sinni.
— Það gæti vel svo farið.
— Þá er ekki annað fyrir mig
að gera en taka tilboði hr.
Hennesys.
Hann rétti úr sér. — Það verð-
urðu sjálf að ákveða.
Eftir ianga þögn spurði hann,
til þess að þreifa fyrir sér: — En
hvað um hann Timothy Atwater?
Hún yppti öxlum. — Tim er
býsna illa kominn, hann er al-
veg blásnauður. Að minnsta
kosti gæti ekkert fengið mig til
að giftast honum héðan af. Ég
er ekki ástfangin af honum leng
ur.
— Ég komst upp á milli ykk-
ar, var það ekki, Yvonne? Fyrir-
gefðu mér það.
— Eg verð að komast af stað,
sagði hún loksins. Hinir sjúkling
arnir fara 'að verða óþoiinmóðir.
— Gætirðu ekki hitt mig eitt
hvert kvöldið? spurði hann, áð-
ur en hann opnaði fyrir henni
dyrnar.
Hjartað í henni sló ákaft. En
hún vissi, að það mundi ekki
vera hyggilegt. Það mundi bara
særa hana enn meir en orðið
var.
— Ég held ekki, Marcei. Ég
sé ekki, að við höfum neitt frek
ar hvort við annað að segja.
Hann laut höfði og svaraði
engu.
— Ef þú skyldir einhvern
tíma þarfnast mín til eins eða
annars þá skaltu ekki hika við
að leita til mín. Ég skal alltaf
verða góður vinur þinn — ég
vona bezti vinur þinn, Yvonne.
— Þakka þér fyrir, sagði hún
og smaug síðan út um dyrnar.
18. kafli.
Dickie var ek'ki heima, þegar
hún kom heim. Hún leitaði Ant-
oinette uppi. En Antoinette yppti
aðeins öxlum og sagði, að Dickie
hefði farið niður í fjöru til að
synda. Hann hefði ekki viljað að
hún færi með sér. Vildi heldur
fara einn.
Hún beið fram að hádegisverð
artíma. en þegar Dickie var þá
ekki kominn, tók hún að gerast
óróleg. Hún fór sjálf niður á litlu
— Ég hefði áhuga á að leysa
baðströndina, en sá hann þar
heldur ekki, Aron var enn í
Cannes.
Hún fór inn í nokkur nágranna
húsin og spurði, hvort nokkur
hefði séð Diekie um morguninn,
en það hafði enginn.
Hún var of áhyggjufull til þess
að hafa nokkra matarlyst sjálf.
Þetta hafði verið órólegur morg-
unn hjá henni. Hún vissi ekki
hvað til bragðs skyldi taka þang
að til Aron kæmi heim. Vitan-
lega hefði hún getað snúið sér
til lögreglunnar, en hinsvegar
vonaði hún, að Dickie kæmi
sjálfur, á hvaða stundu sem
væri. Hann var greindarbarn og
fullfær um að sjá um sig sjálf-
ur. En hvað gat hann verið að
gera?
Hún stóð við gluggann í leik-
stofunnL þegar Jean Garcin kom
á bílnum að framdyrunum og
Aron steig út. Hún vildi bíða
í nokkrar mínútur e,: síðan ætl-
aði hún að segja honurn frá
hvarfi Dickies. Svo gat hann
ákveðið, hvort farið væri til lög
reglunnar eða ekki.
Þegar hún kom til hans, var
hann alveg frá sér. — Viltu sjá
þetta? sagði hann. — Meðan þú
hefur verið að fiækjast í Nice
og ég í Cannes, hefur Dickie
verð rænt!
Hún greip andann á lofti: —
Rænt?!
— Lestu þetta. Einhvern strák
ur, sem fólkið þekkti ekki, kom
með þetta í morgun.
Hún las bréfið:
Hr. Aron Hennesy: —
Við höfum tekið son yðar
í okkar vörzlu. Ef þér viljið sjá
hann lifandi aftur þá akið eftir
Cimesveginum frá Nice þangað
til þér sjáið bíl með engu núm-
eri á. Afhendið eklinum eitt
hundrað þúsund dali í pening-
um. Kenniorðið er DLABLE. Ef
þér farið í lögregluna, er lítil
von um, að þér sjáið nokkurn
tíma son yðar lifandi. Hann er
greindur drengur, svo að það
Siglið úl með
Regino Mnris
Flogið til
Mollorca
Siglt héðan frá Reykjavík
31. október með Regina Maris
og komið heim aftur 10. nóv.
1. flokks hótel á Mallorka.
Verð frá 15.895, eftir klefum
um borð.
Allar nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
LÖND & LEIÐIR
Aðalstræti 8 - Sími 24313
þig af eina dagstund.
gæti orðið oklkur hættulegt að
láta hann lifa. En jainskjótt sem
við höfum fengið penngana í
hendurnar, skal sonur yðar
koma aftur heim. Enn verð ég
að vara yður við þvi að leita til
jögreglunnar.
Bréfið var óundirskrifað.
Aron hneig niður í stólinn
sinn. Hann var náfölur og hend-
urnar skulfu. — Dickie! andvarp
aði hann. — Ekki veit ég,
hvernig ég færi að, ef ég missti
hann. Þá ætti ég ekkert að lifa
fyrir.
Yvonne hafði einnig hnigið
niður í stól. — Þetta er hræði-
legt, Aron! Hvað getum við
gert? Ætlarðu að snúa þér til
iögreglunnar?
— Og eiga það á hættu, að
Dickie verði myrtur? Nei, sann-
arlega ekki, sagði hann, fast-
mæltur. — Það hefur líkt þess>u
komið fyrir í Bandaríkjunum, og
jafnsikjótt sem farið hefur verið
í lögregluna, hefur drengurinn
verið myrtur. Enda er lögreglan
klaufar, ef út í það er farið. Hún
mundi setja verði á veginn. Svo
mundu ræningjarnir myrða
Dickie og sleppa síðan úr landi.
Ég verð að bjarga lífi hans, hvað
sem það kostar — hvað sem það
k-ostar. Hann kreppti hnefana og
barði þeim niður í stólbríkurnar.
— Þú vilt þá heldur greiða
lausnargjaldið en hætta lífi
Dickies?
— Já, miklu fremur, svaraði
hann hörkulega. —- Ég verð að
fá drenginn aftur. Seinna get ég
afhent lögregiunni málið, ef ég
kæri mig um. En aðalatriðið er
að heimta Dickie aftur. Þú skil-
ur að ég get ekki hætt lífi hans.
Ég næ í peninga hjá American
Express í dag og afhendi þá ekl
inu-m, sem þeir eru að tala um.
Þá skulum við sjá, að Dickie
verður kominn heill á húfi í
kvöld. Peningarnir skipta engu
máli fyrir mig — ekkert í sam-
anburði við öryggi sonar míns.
Hann hallaði höfðinu fram á
hendur sér á borðinu. — Ég þoli'
þetta ekki, Yvonne. Þoli það
ekki. Da>uði Grace var mér nægi
legt áfall. Ég gæti ekki lifað, ef
eitthvað kæmi fyrir Dickie.
— Mér finnst nú samt sem áð-
ur, að þú ættir að afhenda lög-
reglunni málið.
— Nei. Ekkert gæti fengið mig
til að leggja líf sonar míns í
hættu. Eins og ég sagði, sikipta
peningarnir engu máli, en ör-
yggi Dickies er fyrir öllu. Ég
ætla að fara að eins og þeir
segja, og sjá, hvort Dickie kem-
ur aftur heill á húfi, áður en ég
fer í iögregluna.
— Þetta er víst rétt hjá þér.
Öryggi Dickies skiptir mestu
máli.
Hún fór utpp á loft, örvænting
arfull.
Ekki vissi hún, hversvegna
henni datt Tim í hug. Hann hafði
verið örvæntingarfullur seinast
þegar þau hittust. En aidrei færi
Tim að gera annað eins og þetta.
Það var ó'hugsandi. Hún flýtti
sér að hætta að hugsa um þetta.
Það var allt fullt af glæpamönn-
um og fyrrverandi glæpamönn-
um á Miðjarðarhafsströndinni.
Hver þeirra, sem var, hefði get-
að rænt Dickie.
DONSKU EPLASTULKURNAR
HEIMSÆKJA VERZLANIR Á EFTIRFARANDI TÍMUM
í DAG OG Á MORGUN:
' í DAG: kl. 08.30—09.30 MATARDEILD SS, HAFNARSTR. 5.
SILLI & VALDI, AUSTURSTR. 17.
kl. 09.45—10.45 MELABÚÐIN, HOFSVAIL.AGÖTU.
KRON, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12.
kl. 11.00—12.00 KRON. STAKKAHLÍÐ.
VERZL. HERJÓLFUR, SKIPH. 70.
! Á MORGUN: kl. 08.30—09.30 MATARDEILD SS, HAFNARSTR. 5.
SILLI & VALDI, AUSTURSTR. 17.
kl. 09.45—10.45 ÁRBÆJARKJÖR, ROFABÆ.
KJÖRB. LAUGARÁS, NORÐURBR.
kl. 11.00—12.00 VERZL. KOSTAKJÖR, SKIPH. 37.
KJÖRBÚÐ SS, LAUGAVEGI 116.
LÆRIÐ AÐ MATBÚA EPLI
SÝNIKENNSLA AÐ HALLVEIGAR STÖÐUM DAGLEGA Á KLUKKU
STUNDARFRESTI FRÁ KL. 15—20.