Morgunblaðið - 18.10.1967, Page 28
B U Ð I N
Þekktustu
vörumerkin,
mesta fjölbreytnln
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1967
^TTloókvitch'.
# kosíar kr. 146.825,-
hagkvæmir greiðsluskilmálar
BIFREIBAR& LANDBÚNAÐARVÉLAR
SUÐURLANDSBRAUT 14 — SlMI 38600
Kaidasta októbernótt
síðan 1924 a.m.k.
- Mesta frost mœldist á GrímsstÖðum
á Fjöllum eða 19 stig
í VIÐTALI við Mbl. í gær sagði
Páll Bergþórason, veðuirfræð-
ingw, að sér sýndist allt benda
til þess, að sj. nótt hefði að
öllu samanlögðu veirið kaldasta
októbernótt síðan 1924 a.m.k.
Kuidinn vwr tiltöiulega mestur
fyrir aiustan fjall og á Suður-
landi, en á Norðurlandi var um
það bil jafn kalt og kaldast
hefur orðið áður siðan 1924,
þar sem skýrslur liggja fyrir.
Þá sagðist hann halda, að mjög
sjaidgæft væri að allt Iandið yrði
hvítt samtímis um þetta leyti
árs eins og nú mun hafa orðið-
18 stiga frost á Heliu.
Eins og fyrr segir var kuldinn
mestur á Suðurlandi. Á Hellu á
Rangárvöllum var 1® stiga frost
og eins á Hveravöllum. A Þing-
völlu-m var frostið 17 gráður,
sem er það mesta, sem þar hef-
ur mælzt í októbermánuði. Á
Kirkjubæjarklaustri var 10
stiga frost, en það er mikið
imiðað við þennan árstímia, en
þá verður sjaldan mikið frost á
Klaustri. Er þetta meira frost,
en við höfum áður fengið skýrsl
ur um þaðan, sagði páll.
8 stiga frost var á Stórhötfða
í Vestmannaeyjum, sem er gríð
armikið.
Þá var um það bil jafn kalt
á Norðurlandi eins og áður hef-
ur mest orðið, siðan mælingar
hófust, eða síðan 1924. Á Akur-
eyri var 11 stiga frost og 19
stig á Grímsstöðum á Fjöllum
eða hið mesta á landinu.
Dæmi eru um frostlausan
október í Reykjavík.
Hér í Reykjavík mældist 9
stiga frost, en áður hafa mest
mælzt 10 stig í október, síðan
mælingar hótfust 1924 eða fyrir
19 árum, en það var árið 1948.
Næsta ár, 1949- mældust 9
stig eins og nú. Þá sagði Páll,
að í Reykjavik hefðu komið þeir
októbermánuðir, að ekki hefði
mælzt frost í lotfti, eins og t.d.
1939, en þá var minnsti hiiinn
í október 0,2 stig yfir frost-
marki, en mjög algengt er, að
frostið fari ekki upp fyrir 5
stig í Reykjavík í þessum mán-
uði.
Þó að ekki sé mjög sjaldgœft,
að snjói í miðjum október, er
miklu algengara, að snjóinn
taki upp mjög fljótt aftur, sér-
staklega vegna þess, að þá fell-
ur hann otft á þíða jörð. En í
fyrrinótt var töluvert frost eða
6 stig og heldur þessi kuldi
snjónum töluvert við- sagði Páll,
svo að sóilbráðin hefur ekki
unnið á honum. Hann hefur nú
vérið í hálfan annan sólarhring
og kemst líklega í tvo a.m.k.
ÞaS er vetrarsvipur
Lækjargötu og Esjunni hér á myndinni,
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.).
sem tekin var í fyrradag.
AREKSTRAR VEGNA S0LU
HAGKAUPS Á MATVÖRU
Kaupmenn mótmœla viðskiptaháttum
verzlunarinnar - Hagkaup snýr sér til
viðskiptamálaráðuneytisins
FYRIR rúmri viku hóf verziunin
Hagkaup sölu á matvörum, og er
álagning fyrirtækisins á þessar
vörur talsvert minni en tíðkast
hjá öðrum matvörukaupmönn-
um. Litlu síðar var fyrirtækinu
tilkynnt af nokkrum viðskipta-
aðilum þess, að þeir treystu
sér ekki til að selja því slíkar
vörur framvegis, vegna mjög
eindreginnar andstöðu annarra
matvörukaupmanna. Eigandi
Hagkaups leitaði til viðskipta-
málaráðuneytisins af þessum
sökum, og tjáði Gylfi Þ. Gísla-
son, viðskiptamálaráðherra, blað-
inu í gær, að fundur hefði verið
haldinn með viðkomandi aðilum
til að fá iausn á þessu máli, og
annar fundur væri fyrirhugaður
í dag.
Morg.uíblaðið sneri sér í gær
til Pálma Jónssonar, eiganda
Hagkaups, og sagði hann að
heildsalar og framíeiðendur,
sem hann ætti matvöruviðskipti
við, hefðu tilkynnt sér, að þekn
hefði verið gert ókleift að eiga
frekari viðskipti við hann vegna
utanaðkomandi þvingana. Kvað
Pálmi augljóst að þetta stæði í
sambandi við verðlagninguna á
matvörum þessum, en hún væri
nokikru lægri hjá Hagkaup en
yfirleitt tiðkaðist. Sagði Pálmi,
að hann hefði leitað til viðskipta-
málaráðuneytisins til að fá leið-
réttingu sinna mála.
Sigurður Magnússon, formaður
Kaupmannasamtaka íslands tjáði
Mbl., að samtökin sem slík hefðu
ekkert með þetta mál að gera,
þar sem þau skiptu sér ekki af
hinum almennu viðskipbum fé-
lagsmanna sinna.
Þá ræddi Mbl. við Óskar Jó-
hannsson, kaupmann í Sunnu-
búð, en hann er formaður Félags
matvörukaupmanna. Hann sagði,
að félagið sem slíkt ætti enga
aðild að þessu máli, en hann
nefndi tvö dæmi um mismuninn
á verðlagninigunni í Hagkaup
og verzlun sinni, sem hann kvað
skýra sjónarmið sitt og margra
annarra kaupmanna.
Framhald á bls. 27
Bræðurnir slökktu eldinn
TVEIR unglingspiltar hringdu í
slökkvliðið laust fyrir klukkan
hálf sjö í gærmorgun og til-
ikynntu um eld að Túnigötu
51. Þegair slökkviliðið var að
koma á vettvang hringdu pilt-
arnir aftur og kváðust hafa
slökkt eldinn.
Drengirnir sváfu í herbergi
uppi á lotfti og vöknuðu í gær-
Dómssátt í máli brezka
skipstjórans
Mar gert að greiða 100 þús. kr. sekt fyrir
ólöglegan umbúnað veiðarfœra
MÁL skipstjórans á brezka tog-
aranum St. Matthews H-201, sem
varðskipið Þór tók að meintum
ólöglegum veiðum suð-austur
af Hvalbak laust eftir miðnætti
á sunnudagskvöld, var til lykta
leitt með dómssátt á Seyðisfirði
í gærkvöldi, þar sem ekki sann-
aðist annað brot en ólöglegur
umbúnaður veiðarfæra.
Skipstjóranum, Robert Fords,
var gert að greiða 100 þús. kr.
í sekt og allan kostnað rann-
sóknarinnar, en sektin var svo
há, þar sem skipstjórinn hafði
sýnt mikla þrjózku við tökuna
og neitað að stöðva togarann,
fyrr en skotið hafði verið að hon
um 7 púðurskotum og 4 föstum
skotum.
Voru komnir 8 mílur út fyrir
landhelgina
Guðmundur Kæmested skip-
herra sagði í viðtali við Mbl.
í gær, að kl. 10 á sunnudags-
kvöld hefðu þeir á varðskipinu
orðið varir við, að togarinn var
7,5 sjómílur innan fiskveiðimark
anna. Þegar þeir komu að hon-
um, voru vefðarfærin komin inn,
en togarinn sigldi til hafs. Skjót-
lega náðist talsamband við hann,
en skipstjórinn neitaði að stöðva
togarann, því að þá mundu varð-
skipsmenn færa skipið til hafn-
ar, en þeir hugðust athuga,
hvernig umhorfs væri á togar-
anum.
Þegar hér var komið sögu, var
skotið að togaranum 7 púður-
skotum, en skipstjórinn neitaði
eftir sem áður að stöðva hann,
fyrr en hann væri kominn út
fyrir 12 mílumar. Þegar þangáð
var komið, neitaði hann þó enn
sem fyrr algjörlega að stöðva
togarann og var þá skotið að
honum 4 föstum skoturrv og þá
loksins gafst hann upp, en þá
var klukkan stundarfjórðung
yfir miðnætti og var togarinn
þá kominn 8 mílur út fyrir fisk-
veiðitakmörkin, en síðan var
haldið með hann inn til Seyð-
isfjarðar.
Framhald á bls. 27
morigun við það, að reykjar-
svæ'la barst inn í herbergið.
Höfðu þeir snöp handtök, drifu
sig á fætur og fiundu eldinn,
sem var í hjónaherberginu, og
slökktu hann- Hafði kviknað í
útvarpi, sem stóð á náttborði
við hjónarúmið, og eldurinn
þaðan komizt í gluggatjöldin.
Slökkviliðsmenn fóru upp í íbúð
ina til að ganga úr skugga um
allt væri í lagi. Leyndist þá glóð
í gólfiteppinu og var hún fljót-
lega slökkt.
Útvarpið, náttborðið, glugga-
tjöldin og ýms blöð, sem eldur-
inn hafði komizt í, báru dreng-
irnir út á svalir eftir að hafa
slökkt í því.
Féllu á hálku
og lærbrotnuðu
TVENNT datt á hálkunni í fyrra-
kvöld og lærbrotnuðu bæði.
Laust fyrir klukkan hálf ellefu
datt Lárus Ólafsson til heimilis
að Bergstaðastræti 67 fyrir utan
hús sitt og um hálftíma síðar
datt Sigríður Ingvarsdóttir Öldu-
götu 8 á móts við hús númer
85 við Hverfisgötu.
Ekki var lögreglunni kunnugt
um fleiri slys á fólki, sem hafði
dottið á hálkunni, þegar Mbl.
taláði við hana í gærkvöldi, en
ástæða er til að hvetja gang-
andi vegfarendur til að sjá fót-
um sínum vel forráð vegna hálk-
unnar.
Þýzka stjórnin
ítrekar
mótmæli
sín við EBE
SENDIHERRA íslands í Bonn,
Magnús V. Magnússon, tjáði
Morgunblaðinu í símtali í
gær, að vestur-þýzki land-
búnaðarráðherrann, sem fer
með fiskimál, hafi fyrir
nokkrum dögum mótmælt
hinum nýia tolli, sem yfir-
stjóm Efnahagsbandalags Evr
ópu, setti í sumar á innflutn-
ing nýs og frysts fisks til
Vestur-Þýzkalands.
Sendiherrann sagði, að hér
væri um ítrekuð mótmæli
vestur-þýzku stjórnarinnar að
ræða, en hún teldi tollinn og
kvótatakmarkanir á innflutn-
ingi fisksins skaða hagsmuni
landsins.
Sendiherrann sagði, að yfir-
stjórn EBE í Brússel liefði
ekki ennþá svarað þessum
mótmælaorðsendingum vest-
ur-þýzku stjórnarinnar.
Telpa stór-
slasast
- á gangbraut í gœr
TÍU ára telpa, Hallfriður BJama
dóttir, Sigtúni 57, mjaðmagrimd
arbrotnaði, þgar bíll ók á hana
á gangbraut um klukkan sex
í gær.
Halltfríður var á leið norður
yfir gangbrautina á móts við
Laugaveg 176 þegar slysið varð.
Stór sendiferðabíll kom eftir
hægri akgrein og nam ökumað-
ur hang staðar til að hleypa
telpiunnd yfir. Jafnfraimt rétti
hann út höndina til að aðvara
þá bíistjóra, sem á eftir kornu.
Fólksibíll kom etftir vinstri ak-
grein og virðisit ökumaður hans
ekki hafa uppgötvað hættuna
fyrr en of seint, því hann byrj-
ar ekfld að hemla fyrr en hann
er kominn á hlið við sendiferða-
bílinn. Var fólksbíllinn á keðj-
um að aftan og nýjum snjó-
dekkjum að framan, en rann
samt á hemlunum yfir gang-
’brautina. Lenti Hallfríður fram-
an á bílnum og kastaðist til við
högigið. Hún var flutt 1 Slysa-
varðstofuna og síðan í Barna-
deifld Landspítalans. í ljós kom,
að hún hafði mjaðmagrindar-
brotnað.