Morgunblaðið - 18.11.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967
ÍMAGNÚSAR
SKIPHOLTi21 SÍMAR 21190
rii;úeftir tokur< s!mi 403S
»■£>SIM11-44-44
m/iiFiM
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sífflf 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundaugaveg 12 - Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
4 , — ’B/IA IF/trAM
RAUOARARSTÍG 31 SÍMl 22022
Hreinsum rúskinnskápur,
jakka og vesti. Sérstök
meðhöndlun.
Efnalaugin Björg,
Háaleitisbr. 58—65, sími
31380, ‘útibú Barmahlíð 6,
simi 23337.
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
Þakkir til
Siglfirðinga
„Kæri Velvakandi!
Mig hefur lengi iangað til að
láta landsmenn vita' hversu
mikið afbragðs-fólk það er, sem
byggir Siglufjörð. Sem aðfluitt-
ur Siglfirðingur get ég vel
dæmt um það.
Eins og þið vitið, er ekki
alltaf gaman að ganga um og
betla og sníkja, en það er nú
einu sinni það, sem kvenfélög-
in lifa á. Oft lendir það á sömu
konunum ár eftir ár að fara í
sömiu hverfin fyrir félög sín,
hvort heldur það er Slysa-
varnafélagið Vörn, Kvenfélagið
Von eða Kvenfélag sjúkrahúss
ins.
Annað hvort er það bazar,
merkjasala eða kökubazar, en
ég þori að fullyrða, að undan-
tekningarlaust er manni vel
tekið.
Tökum sem dæmi nýja
sjúkrahúsið okkar. Það væri
alltof langt mál að telja upp
allt, sem því hefur borizt, bæði
af rausnarlegum peningagjöf-
um og alls konar tækjum, inn-
anstokksmunum og listaverk-
um. En þetta hefur alt saman
verið skrifað niður og bókað,
ef einhvern skyldi langa til að
skoða. Þar sem sjúkrahúsið tók
til starfa fyrir tæpu ári, skyldi
maður ætla, að áhuginn á því
væri eitthvað farinn að dofna,
en það er nú eitthvað annað.
Glöggt dæmi um það er bazar,
sem Kvenfélag sjúkrahússins
hélt fyrir skömmu.
Það var farið i öll hús til
þess að betla, hvort sem þar
áttu heima félagskonur eða
ekki, og ekki gieymdum við
karlmönnunum. Árangurinn
varð 64 þúsund krónur. Hvað
finnst ykkur um það? í svona
litlum bæ, og með atvinnuhorf-
ur eins og þær eru í dag, —
geri aðrir betur.
Þetta er bara það, sem við-
kemur kvenfélögunum, en það
eru alveg sömu undirtektirnar
við annars konar hjálparstarf-
semi, en um það ætla ég ekki
að skrifa að sinni Með þessum
orðum vildi ég bara þakka
Siglfirðingum fyrir afbragðs-
viðtökur, al'ltaf hreimt.
Ein af þeim sem sníkir".
FEILER REIKNIVÉLIN
fer ‘iicrurfnr nm
landið.
★ LEGGIJR 8AMAN
★ DREGIiR FRA
★ GEFIJR KREDITIJTKOIVIL
★ STIMPLAR Á STRfiMIL
Feiler reiknivélin kostar rafknúin
7.504.00
handknúin
5.687.00
Fullkomin viðhaldsþjónusta
á eigin verkstæði.
%
SKRI FSTOFUVÉLAR H.F.
S
Hverfisgötu 33
Jími 20660.
Páll og Jón, en
ekki Pall og Jon
„Kæri Velvakandi!
Undanfarið hefur íslenzkt
mál verið ofarlega á baugi. Ail
ar hugsanlegar greinar þess
hafa verið dregnar fram og
ræddar, sérstaklega í útvarp-
inu . En ein er sú grein, sem
mér virðist, að hafi orðið út-
undan. Á ég þar við merki yf-
ir staf, punkt og kommu. Nú
eru reglur þessu viðvíkjandi
eins einfaldar og hugsazt get-
ur og ekki til sá maður, (sem
á annað borð er skrifandi),
sem ekki kann þær og notar án
umhugsunar. En þó er ekki
hægt að láta hjá iíða að minn-
ast á þetta atriði, vegna þess,
að einn er sá aðili, sem brýtur
þessar reglur. En það er sá,
sem sízt skyldi. A nafnskírtein
um þeim, sem nýlega befur
verið deilt út meðal fólks, fyr-
írfinnst hvorki punktur né
komma yfir staf. Og ef ég man
rétt, er þetta eins á skatta-
skýrslum og fleiri skýrslum.
Heiti nú maðiur Jón eða Páll,
J>á er varlega treystandi því
nafnskírteini, sem á stendur
Jon eða Pall. Ég hélt, að nafn-
skírteinin ættu að vera einstakl
ingnum hjálpargagn við að
sanna nafn sitt og aldur, en til
að svo geti verið, verður það
að gefa réttar upplýsingar. Og
enginn heitir Jon eða Pall, Svo
að þetta er í raun og veru tvö-
falt brot. Annars vegar er staf-
setningarvilla og hins vegar
rangar upplýsingar.
Ég veit ekki, hver á sökina.
Ef til vill eru hér á ferð
skýrslugerðarvélar, sem engar
kommur og punkta hafa, en sé
svo, eru þær líka ónothæfar og
ætti að aka þeim á ruslahaug-
ana hið bráðasta.
Sagt er, að við íslendingar sé-
um sinnulausir, látum sem
ekkert komi okkur við, sem
ekki er ofan í okkar eigin
koppi og sofum í tilverunni og
margt fieira. En þitt er að sjá
um, að svo sé ekki. Sé einhver
vel vakandi, þá heldur hann
þeim, sem umhverfis hann eru,
einnig vakandi. Mér finnst
þetta vera alvarlegra mál en
svo, að þagað sé yfir því og um
það. Mér liggur við að krefj-
ast þess, að eitthvað sé gert í
málinu, áður en annar hver
íslendingur heitir Jon.
Vertu blessaður og sæll.
Páll en ekki Pall“.
Vantar tóm-
stundaheimili
„Kæri Velvakandi!
Ég er 10 ára strákur, sem
leiðist á sunnudögum. Ég og
vinir mínir getum ekkert gert
nema að fara í bíó, og stund-
um erum við búmr að marg
sjá myndirnar. Okkur vantar
tómstundaheimili, sem við get-
um verið í frá kl. 2 til kl. 6 á
hverjum sunnudegi. Þar ætti
að vera hægt að smíða, tefla,
spila á spil, safna frímerkjum,
spila borðtennis og teikna.
Strákur í Melahverfinu“.
ir „Forvitinn“
skrifar:
Reykjavík, 15. 11. 1967.
Velvakandi:
í tilefni af „vísinda“-þætti
sjónvarpsins í gærkveldi væri
fróðleg.t að fá upplýst, hverjar
væru tekjur Raunvísindastofn-
unarinnar af segulmælingum,
sem sendar eru til útlanda
bæði ,,austur“ og ,,vestur“.
Forvitinn“.
— Velvakandi munidi ljá
svari rúm í þessum dálkum.
Nauðungaruppboð
Eflir kröfu Theodórs S. Georgsðonar hdl., fer fram
nauðungaruppboð að Bergþórugötu 3 hér í borg,
fimmtudaginn 23. nóvember n.k. kl. 15.30 og
verður þar seld prentvél Heidelberg, árgerð 1963, talin
eign Hagprents h.f.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
KAUPMENN -
KAUPFÉLÖG
LEIKFÖNG
JÓLATRÉSSKRAUT
GJAFAVÖRUR
glæsilegra úrval en nokkru sinni fyrr.
HANDLUGTIR - HÖFUÐLUGTIR
V ASALJÓSA—RAFHLÖÐUR
á ótrúlega lágu verði.
ERL. BLANDON & CO. H/F.,
Laugavegi 42 — Sími 12877.