Morgunblaðið - 18.11.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.11.1967, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐTÐ, LAUGARDAGÚR 18. NÓV 1967 MACNÚS ÞÓRÐARSON: piTin ifFI ANi niqrr“ l\l 1IU „lULLnlll J 1900 — Mikið þarfaþing ICELAND 1966. Handbook Published by The Central Bank of Iceland. Editors Jó- hannes Nordal, Valdimar Krist insson. — 390 bls. + XI. — Reykjavík 1967. BEZT er að taka fram þegar í uipphafi, að bók þessi er í raun- inni meira en „hand(bók“ eða uppsláttarrit í venjulegri merk- ingu þeirra orða, enda bendir stærð hennar til þess. Óhætt er að segja, að bókin sé fullkomn- asta og aðgengilegasta heimildar rit um ísland, sem völ er á. Líka mætti henni við nárnu, þar sem hægt er að leita upplýsinga um fsland og íbúa þess, — hvort sem menn þarfnast heildaryfir- lits eða fróðleiks um einstaka þætti þjóðlífsins. Þetta er fimmta útgáfa upp- lýsingarits þess, sem Landsbanki íslands (og nú Seðlabanki ís- lands) hefur gefið út um ísland. Fyrsta útgáfa bókarinnar kom út árið 1926, á 40 ára afmæli Landsbanka íslands og í tilefni þess. Var það alhliðu kynningar- og upplýsingarit um land og þjóð, ætlað útlendingum, enda á ensku, eins og síðari útgáfur. Næst kom bókin út árið 1930, að mestu óbreytt frá fyrstu útgáfu, og síðan árið 1936. Árið 1946 kom bókin enn út, og þá mjög breytt frá fyrri útgáfum, svo að segja mætti, að um algerlega nýtt rit hafi verið að ræða. Til dæmis var sú bók um þrefalt stærri en útgáfan frá 1936. Líklegt má telja, að upphaf- lega hafi það verið ætlunin að gefa ritið út á úu ára fresti, þótt hié hafi orðið á síðan árið 1946 og þar til nú. Heiti bókarinnar (t.d. nú „Iceland 1966“) bendir til'þess, að miða eigi ávallt við sjötta ár hvers áratugar, en ekki er víst, að það sé heppileg regla, og þá sízt að taka ártalið inn í bókarheitið, a m. k. varla, ef hugs að er um sölumöguleika. Bókin kemur út árið 1967, þótt hún beri ártalið 1966 í nafni sínu og seljist e.t.v. aðallega á árinu 1968. Hætt er við, að „1966“ geti fælt væntanlega kaupendur frá kaupunum, þar eð þeim finnst eðlilega, að bókin hljóti að vera úrelt, þegar fram yfir það ár er komið. Líklegt er og, að margir álíti hér um átbók að ræða. Verði framhald á útgáfu þessar- ar bókar, sem líklegt og æski- legt er, ætti að sleppa ártalinu úr titlinum. f flestum löndum koma slík heildarupplýsingarit út á veg- um ýmissa opinberra stofnana; sums staðar árlega. Hvarveitna þykja þau hin mestu þarfaþing, bæði til notkunar innanlands og til kynningar erlendis. Tilgang- ur rits þess, sem hér um ræðir, mun einkum vera hinn síðar- nefndi, en ég mundi þó ætla, að notagildi hennar fyrir íslendinga sjálfa væri ómetanlegt. Hér vant ar nefnilega slíkt rit með öllu, og vita það að minnsta kosti all- ir blaðamenin, hve oft verðtír löng og torsótt leit að upplýs- ingum um ýmsa þætti þjóðlífs okkar. „Iceland 1966“ er eina full komna „uppsláttarritið“, sem við eigum í bili um land og þjóð. Mikill fengur er að því að fá allar þessar upplýsingar saman á einn stað, ekki sízt af því, hve mörgum hér er ósýnt um að átta sig á, hvar og hvernig þeir eigi að ieita sér fróðleiks um hin margvíslegustu efni, jafnvel hin einfóldustu. Fólk hér virðist enn ekki kunna almennt að not- færa sér handlbækur og uppslátt arrit, sem þó eru til hér í ýms- um, einstökum greinum, — held ur rífast menn, þar til þeir verða hásir, og hringja síðan til Morg- unblaðsins og biðja þann, sem a vakt er þá stundina, að skera úr þrætunni. Þetta ber að vísu vott um mikið og gleðilegt traust manna á Morgunblaðinu, — en guð hjálpi blaðamannin- um, ef hann getur ekki komið með svarið á stundinni og veit ekki einu sinni, hvar á að leita þess. Yfirleitt virðist fólk ekki kunna að færa sér í nyt bóka- söfn og heimildarrit, — en það er önnur saga. Dr. Jóhannes Nordal Hér er sem sagt komið alhliða upplýsingarit um ísland, sem ís- lendingar sjálfir ættu að læra að nota, en eins og í inngangs- orðum bókarinnar segir, er hvergi hægt að veita tæmandi upplýsingar um neitt efni. Þá verða menn að leita út fyrir ramma þessarar bókar, en ann- ars er hann furðuiega rúmur, a.m.k. í sumum greinum. Að því leyti ber bókin af öðrum svipuð- um, sem hér hafa út komið, enda veitir stærð hennar mun ríflegra svigrúm. Þar gjalda hinar smæð ar sinnar, þótt góðar geti verið. Helztu missmíð þessarar bók- ar mundi ég telja þá, hve ójafnt er skipt rými milli ýmissa greina. Ég geri ráð fyrir, að rit- stjórar bókarinnar hafi skammt- að höfundum hennar ákveðið hlöðurúm hverjum, en afrakstur inn hafi orðið æði mismikill; sumir skilað of stuttum grein- um en aðrir of löngum. Skil ég vel, að ritstjórum hafi verið óhægt um vik að reka greinarn- ar aftur í höfundana og láta þá ýmist þjappa saman eða teygja á, þar eð slíkt tefui að jafnaði mjög mikið fyrir bókarsmíði. Auk þess veit ég, að það er oft erfitt í framkvæmd, því að höf- undum getur verið það mjög við kvæmt mál. Bókinni er skipt í ellefu höf- uðkafla, sem aftUT greinast í fjölmarga undirkafla. Aðalkafl- arnir eru: Country and Popul- ation, History and Literature, Constitution and Government, Foreign Relations, Industries, Trade and Commumcations, Eco- nomic Policy and Finance, Soci- al Conditions, Religion and Edu- cation, Science and the Arts, og Recreational Activities. Aftast er svo greinargott „Directory" um helztu stofnan- ir og embættismenn, „Diplo- matic Missions", og síðast en ekki sízt ágæt bókaskrá, „Biblio- graphy“, sem vísar á helztu rit um ísland, og þá afbragðsvel unnin atriðisorðaskrá, „Index'. Mér telst til, að í henni séu hátt á annað þúsund atriðisorð, en eins og allir vita, sem slík rit nota, er afar áríðandí að vel tak- ist til um samningu indexins. Það verk hefur Þórður Einars- son unnið. Höfundar bókarinnar munu vera fjörutíu talsins, og er vita- Valdimar Kristinsson skuld of langt mál að telja þá upp hér. Flestir eru þeir meðal færustu manna í sinni grein, og er það í sjálfu sér ágæt trygg- ing fyrir því, að ekki sé rangt skýrt frá, en hins vegar er þeim all-missýnt um framsetningu. Eins og áður segir, virðast mér hlutföll milli greina ekki alltaf rétt; til dæmis eru þætt- Irnir um helztu atvinnugreinar okkar mjög mislangar. Bjarni Bragi Jónsson skrifar um land- búnað og Davíð Ólafsson um sjávarútveg. Báðar eru greinarn ar góðar að mínu v.ti, en grein Bjarna Braga þó heldur löng og grein Davíðs of stutt. A.m.k. eru það óeðlileg hlutföll, að skýrt skuli frá landbúnaði í helmingi lengra máli en fiskveiðum. Fyrsti höfuðkafinn, „Country and Population", er aðallega skrifaður af ýmsum helztu nátt- úrufræðingum okkar, en alls eru höfundar hans sjö og þar af fjórir doktorar. Sá kafli sýnist mér allur hinn skilmerkilegasti og til fyrirmyndar um hnitmið- aða frásögn og rétt hlutföll milli aðalatriða og aukaatriða. Annar höfuðkaflinn, um sögu og bókmenntir, er einnig hinn prýðilegasti, og má raunar segja, að þar sé ein merkasta grein bókarinnar, „Literary Heritage" eftir dr. Sigurð Nordal, en sú grein er sérstaklega samin fyr- ir þetta rit. Til þess að vera sjálf um mér samkvæmur, verð ég þó að taka fram, að sú grein er of löng, þegar á heildarrými bókar- inn-ar er litið. Skal ég þó verða síztur manna til þess að full- yrða, að greinargerð fyrir bók- menntalegri arfleifð okkar eigi ekki heiðurssess skilinn í bók sem þessari. iHér er að sjálfsögðu ekki hægt að rýna í hvern þátt, en af grein- argóðum og hæfilega löngum þáttum má sérstaklega nefna grein dr. Júlíusar Sigurjónsson- ar urri „Pu'blic Health", þátt dr. Þóris Kr. Þórðarsonar um kirkj- una (ágætur kafli) og ekki sízt grein dr. Steingríms J. Þorsteins sonar um nútímabókmenntir. Grein Agnars Kl. Jónssonar um utanríkismál er einnig hnitmið- uð, og sama má segja um grein Ólafs Björnssonar um „Employ- ers and Labour“ og greinar þeirra dr. Jóhannesar Nordals, dr. Gísla Blöndals og Valdimars Kristinssonar. Fyrst ég féll í þá freistni að fara að telja upp, get ég bætt víð þætti dr. Kristjáns Eldjárns um bókhlöður og söfn, grein Lárusar Sigurbjörnssonar um leiklist, Jóns Þórarinssonar um tónlist og Björns Th. Björns- sonar um myndlist. Þáttur Hans G. Andersens um fiskveiðilög- söguna er mjög ýtarlegur og e.t.v. fulllangur, en þar sem hér er um mál að ræða, sem nauð- svnlegt er að skýra vel fyrir út- lendingum, er lengd hans líklega réittlætanleg.. Grein Páls Líndals um „Local Government" er og mjög skiimerkileg. Rafmagni og varmaorku eru hvergi nærri nógu góð skil gerð, og kaflinn um hið síðarnefnda alltof stutt- ur. Fullmikill sparðatíningur er í þættinum um almannatrygg- ingar. Þetta er nú heldur hraflkennt yfirlit, og mörgu verður að sleppa, bæði góðu (aðallega), sæmilegu og slæmu. Ekki má gleyma að geta þess, að P. G. Foote, prófessor í Lund únum, hefur þýtt mestallan text ann á ensku, en Peter Kidson að nokkru. P. G. Foote og Þórður Einarsson sáu um prófarkalest- ur. Hann hefur verið augnlýj- andi verk, því að nóg er af töl- um og töflum. Virðist hann hafa tekizt vel, þótt eitthvað hafi slæðzt inn af villum, en engri alvarlegri man ég eftir. Fremst og aftast i bókinni eru litprent- uð landabréf eftir Guðmund Guðjónsson. Nokkrar litprentaðar ljós- myndir eru í bókinni og allar til prýði. Litbrá sá um prentun þeirra. Hins vegar kann ég ekki við myndatextana „A typicai Icelandic farm“ og „Redfish catch on board a trawler". Mun- aði nokkru að segja okkur, hvað bærinn og togarinn heita? Stundum er kvartað undan því með réttu, að íslenzkir þýð- endur hirði ekki um að breyta enskum yards, fetum og mílum í metramál, svo að islenzkur les- andi átti sig á lengdarhlutföll- um. Hér er öfugt að farið: allt gefið upp í kílómetrum, metr- um o.s.frv., svo að enskumæl- andi fólki, sem bókin er aðallega ætluð, er gert óþarflega erfitt fyrir. Bókin er prentuð í ísafoldar- prentsmiðju og bæði traustlega og snyrtilega bundin, svo sem henni hæfir. Verð bókarinnar er 490 krónur. Mitt álit er það, að bók þessi sé bráðnauðsynlegt þarfaþing í öllum skrifstofum og hvers konar stofnunum, og áreiðanlega er hún íslenzkum heimilum þarf ari gripur en sumar þær alfræða bækur á erlendum málum, sem fólk er að burðast við að kaupa með afborgunum. Þar sem von- andi verður ekki of skammt til jóla, þegar umsögn þessi birtist, ætti ekki að vera ó'hæfilegur aug lýsingakeimur að peirri skoðun minni, að fáar bækur séu heppi- legri til þess að senda útlend- ingum og erlendum stofnunum til kynningar á iandi og þjóð. — Magnús Þórðarson. Gunnar Sigurðsson, Seljatungu: Ur sveitinni ÞAÐ væri að bera í bakkafull- an l'ækinn, ef ég færi nú að segja frá hinni góðu heyskap- artíð hér sunnanlands á sl. sumri, svo oft og rækfflega hef ir verið frá því sagt í fréttum útvarps og blaða. Annars er að geta hinnar einstöku veðr- áttu, er verið hefir nú í haust og sem verkar sem suimarauki fyrir alla, en ekki sízt þá er við landbúnaðarstörf vinna. Áreiðanlega er sja-ldgæft að svo vel viðri í svo langan sam felldan tíma eins og gert hiefi-r á si. 7—8 vikium hér um slóð- ir. Aldrei nein teljandi úr- kiama, utan eina viku í septem ber, og ekki frost veruiega fyrr en um miðjan október en þá sýndi Vetur konungur and lit sitt og fór frostið þá allt niður í 17 stig, en það er að sögn Veðurstofunnar það mesta um meira en fjörutíu ára bil. Þegar vorin eru stutt — skamimur tíimi milli þess að fénaður fer úr húsi tii þess að menn byrji siátt — þá eru mörg verkefni, er sveitastörf va-rða óieyst og bíða hausts- ins. Svo vffldi ég telja að ver ið hafi hér að þessu sinni, Vor ið var kalt, klaki fór seint úr jörð og sauðiburður var anna- samari víð-ast hvar en í með- allagi má telja. Sláttur stóð með styttra móti og verulegur timi hefir gefizt til þess að sinna hinutm marigbreytilegu og ólíkustu verkefnum. Fólkið er að vísu fátt til starfa á heimilunum eftir að október heflst og skóilarnir hafa sogað til sín ungmennin, er hvar- vetpa leggja virka hönd að framlieiðsiluistörfum. En aðstaða öil til veíkanna hefir víðast tekið framförum og fáar hend- ur afkasta ótrultega miklu. Það er áreiðanlega ljótt að bera sér það í munn, að svo sem engar framfarir hafi orð- ið í landbúnaðinum á síðustu árum, en því sá ég haldið fram í „Tímanum" um da-ginn, þeg ar hann fé'kk eitt ka-stið útaf -efnaihaigsaðgerðum ríkisistjórn- arinnar. En þeir hafa sitt álit og staðreyndirnar breytast ékkert við það, hvert það álit er h verju sinni. Sauðtfjárslátrun er nú að mestu lokið í sláturhúisium hér austan fjalls og stendur slátr- un nautgripa nú yfir. Nýr sl á tu rleyfish af i kom hér til að þessu sinni, en það er Kaupfé- lag Árnesinga, en sláturhús þess er á Eyrarbakka. Sl'átur- félag Suðurlands er sem fyrr ilangistærsti aðilinn, er kaupir igripi til silátrunar og hefir ný iega verið sagt frá fjártöiu þeirri er sláturbús þess í Laug iarási og á Selfossi hafa tekið ó móti í haust og er því ó- iþarft að endurtaka það hér. í sláturhúsi Hafnar á Selfossi hiefir Verið s'látrað nær 10 þús. fjár, sem er urn tvö þús-und fieira en á sl. hausti. Gert er ráð fyrir að farga þar um 300 nautgripum að þessu sinni, ert sláturhiúsið er starfandi all't árið og er einatt tekið á móti gripum til förgunar. Vænleiki dfflka hefir hér reynzt mieiri ien á fyrra ári þrátt fyrir erfitt vor. Uppskera garðávexta varð hér þar tffl ég veit um það biil í meðallagi og þá ekki síður úr moldarjarðvegi en sandi. Nokk- uð var um að frostið, sem á gekk um miðjan " október, kæmi siumum framleiðendum garðávaxta fflla bæði hjá þeim er voru þó búnir að ná uppúr görðum, og eins munu nokkrir hafa átt eitthvað óupptekið. Og svo er þá veturinn kom- inn. Á almanakinu líka. Ef veðrátta vetrarins verður eitt- hvað svipuð og fyrsta da-g hennar, þá verður ekki þörf á að kvaTta undan því. Veður var hér hið fegursta, kyrrt og iéttskýjað og hitinn komst um miðjan dag upp í 4—5 stig. Undir kvöldið l’agði svo þoku- slæðing yfir með jörðinni, en það köllum við ýmist „keJiinga velilu“ eða dalalæðu. Ekki skal ég dæma um hvort er réttara. Eitt a-f því sem jafnan fyl-gir vetrarkomu er, að þá er klukk unni seinkað uim einn klukfcu itíma. Nýllega sá ég frétt um það hér í blaðinu, að Bretar ætl'uðu ekki að sein-ka klukk- unni hjá sér oftar en að þessu sinni. Eftir að sumartími -kæmi þar aftur yrði hann lát inn haldast áfram. Myndu nú iekki ísl-enzk stjórnarvöld vilja tfara að dæmi Breta í þe-ssu' með klukkuna. Enginn fær hvort sem er viðhlítandi skýr- ingu á því, vegna hvers er ver ið að færa klukkuna hér frá 'sumartím-a. En fullyrða m.á að með því er fólki a.m.k. sem vinnur við landbúnað, g-erðu-r 'ógr-eiði þar eð dagsbirta er þá klukkutíma skemur á kvöldin Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.