Morgunblaðið - 30.12.1967, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.12.1967, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. DES. 1967 HEIÐURSMAÐUR SJÖTUGUR Guðmundur að leggja upp í póstferð. Guðmundur póstur á Þor- jþergsstöðum. Verðskuldar Fálkaorðu fyrlr langa og erfiða þjónustu. >ANN 19. ágúst sl. varð Guð- mundur Árnason Skagapóstur að Þorbjargarstöðum í Laxár- dal Skagafirði, sjötugur. Hann er faeddur að Víkum ó Skaga 19. ág. 1897, sonur Árna bónda og húsasmiðs þar, hins merkasta manns og konu hans Önnu Tó-masdóttur, ágætrar konu. Guðmundur ólst upp í for- eldrahúsum fram yfir tvítugt þar ti'l hann fór í bændaskól- ann á Hvanneyri. Þetta eiga nú ekki að vera nein eftirmæli eft- ir Guðmund og verður því far- ið fljótt yfir sögu. Er heim kom frá Hvanneyri giftist hann heitkonu sinni Krist- ínu Árnadóttur frá Syðra Með- allandi á Skaga hinni ágætustu konu. Fóru þau að búa við lítil efni á Þorbjargarstöðum í Ytri-Lax- árdal í Skefilsstaðahreppi sem þá var nytjarýrt eyðibýli. Þessa jörð hafa þau bætt, svo að nú er þar eitt stærsta búið í hreppnum. Auk geysimikillar túnræktar hefur Guðmundur byggt þar nýtízku fjárhús yfir 400 fjár með um 1000 hesta hlöðu og er nú að byggja mynd anlegt íbúðarhús úr steinsteypu og vel þar til alls vandað. Margar fleiri umbætur á jörð- inni mætti telja, en ég sleppi því hér. Þar liggur því í augum uppi að þau hjón hafa ekki alltaf setið auðum höndum um dag- ana. Þó er enn ótalið tvennt, sem tekið hefur mikinn starfs- tíma frá Guðmundi: Annað eru störf hans í sveitarstjórn og var hann lengi oddviti hennar eða þar til fyrir fimm árum, að hann gaf ekki kost á sér lengur í þann starfa. Þá er hann og enn varamaður í sýslunefnd og er I ýmsum nefndum fyrir sveit sína. Hitt starfið eru póstferðir hans á Skagann nú í aldarfjórð ung, sem hann hefur rækt af þeirri samvizkusemi og alúð, er einkennir öll hans störf. Póst- leið hans liggur yfir Laxárdals- heiði, en hún er ekkert lamb að leika við fyrir ferðamenn í stórhríðum og ófærð að vetrin- um, enda hefur margur borið þar beinin í vetrarhríðum. Aldrei hefur þó Guðmundur frestað póstferð af Sauðárkróki yfir heiðina, þótt hann hafi átt á móti stórhríð að sækja á hest um, þegar ófært er öðrum far- artækjum. En oft hefur hann fcomizt í hann krappan í þess- um vetrarferðum og náttmyrkri. Nægir þar að nefna tvö nær- tæk dæmi frá sL vetri: Það var á Þorláksmesgu (23. des.) sl. að Guðmundur lagði upp, með jólapóst sveitunga sinna, frá Sauðárkróki og ók þá jeppa sínum. í póstinum var mikið af bögglum, sem áttu að fara til sveitunga hans. Ekki bar Guðmundi skylda til að flytja þessa böggla, þar sem þeir voru þyngri en 1 kg. hver. En hann vissi að ferðir hans voru einu föstu samgöngurnar í hreppinn og tók bögglana, svo að sveit- ungar hans fengju þá fyrir jól- in, eða á aðfangadag jóla. Þegar Guðmundur kom upp að Laxárdalsheiði skall á hann ein af hinum grímmu norð- lenzku stórhríðum með frosti, fannfergi og ofsastormi. Skamm degismyrkur var þá komið. Samt hélt Guðmundur áfram á móti veðrinu og komst með snjó mokstri af veginum norður á miðja heiði. En þar var fönn svo mikil að ógerlegt var að kom ast iengra á jeppanum. Stakk þá Guðmundur ábyrgð arbréfum og öðrum bréfum eft- ir þarna að hálfu í kafi í fönn. Á móti þessu veðri gekk hann alla leið heim til sin um nótt- ina. Hafði hann þá verið 19 klukkustundir á leiðinni frá Sauðárkróki. Má nærri geta hvernig konu hans hefur liðið að vita af hinum, nær sjötuga, eiginmanni sinum á ferð á móti þessu veðrL En Guðmundur nvíldist lítið heima, því á að- fangadagsmorgun brauzt hann ínn á heiðina með hest og drátt- arvél, ásamt syni sínum og öðr- um manni, tiil að sækja blaða- og bögglapóst í bílinn. Heim komust þeir á aðfangadagskvöld með póstinn, en bíllinn varð að bíða á heiðinni þar til að hláka kom um miðjam janúar. Á sjálfan jóladag var vægara veður og fór >á Guðmundur með allan póstinn á hestum allt til yztu bæjar á Skaga og heim kom hann að kvöldi ann- ars jóladags. Þetta gerði hann, og lagði líf sitt í hættu, til að sveitungar hans gætu betur notið jólanna heima. Geri aðrir nútímaimenn á 'hans aldri betur. Meirihluta sl. vetrar varð hann að flytja póst- tnn á hestum á Skagann vegna ófærðar og illviðra. Á laugar- dag fyrir páska sl. fór Guð- mundur á hestum á móti iðu- lausri stórhríð, heim með póst frá Sauðárkróki, en þá óttuðust menn ekki um hann, því engum datt í hug að hann hefði lagt af stað í sliku veðri. Allt gekk FYRIR nokkrum dögum barst mér í hendur Morgunblaðið frá 7. desemtoer síðastliðnum. þar birtist ræða formanns Lands- sambands íslenzkra Útvegs- manna. sem haldinn var við setn- ingu aðalfundar samtakanna. Um erfiðleika útgerðarinnar é yfirstandandi ári þarf enginn að efast, þar sem dregið hefur úr afla og verðfall orðið á flestum sjávarafurðum á þessu ári. Af- koma sjómanna og útgerðar hef ur byggst á síauknu aflamagni og að afurðaverð héldi áfram að hækka erlendis, en hlutur þeirra úr söluverði afurðanna hefur sí fellt minnkað. Það, sem vakti mesta athygli mína í ræðu formanns LÍÚ. var hvernig útvegsmenn telja að snúast beri við þeim vanda, sem nú steðjar að útgerðinni. Úr- ræðin áttu meðal annars að vera þau að stórauka sókn í þorska- stofninn með opnun fyrir tog- veiðum upp að 4 mílna grunn- línu- og beina síldveiðibátunum meira að þorskveiðum en verið hefur. Við þessu atriði vil ég spyrja, telja útvegsmenn að þorskstofninn þoli stóraukna sókn? í erindi, sem Jón Jóns- son, fiskifræðingur, flutti á ráð- stefnu Verkfræðingafélags fs- Iands síðastliðið vor undir nafn- inu ,.Helztu fiskistofnar á ís- landsmiðum og áhrif veiðanna á þá“, taldi fiskifræðingurinn að heildar dánartala kynþroska hluta þorskstofnsins mætti ekki fara yfir 65% á ári, rauða strik- ið sem hann nefndi svo. Um þorskinn sagði fiskifræðingur- inn meðal annars. „Á árunum fyrir stríð helzt sókn og heild- arafli nokkuð í hendur og sama má segja um árin eftir stríð allt til ársins 1958 en þá verða þátta- skil, því síðan hefur sóknin auk- izt óðfluga en heildaraflinn minnkað. Á tímatoilinu 1954— 1964 jókst sóknin um 87% en heildaraflinn minnkaði um 22%. Ekki er ósennilegt að hin raunverulega sóknaTaukning sé jafnvel enn meiri en fram kem- ur“. Ennfremur segir. „Við sjá- um að á stríðsáruum er dánar- talan mjög lág 30-40% á ári, en fer svo ört vaxandi eftir það og á tímatoilinu 1960-1964 var meðal dánartala komin upp und ir 70% á ári“. Verður að telja vafasamt að þorskstofninn þoli stóraukna sókn til lengdar. önnur úrræði formanns LÍÚ. þetta þó slysalaust og allir fengu sinn póst á annan páska- dag. Sl. vor gat hann ekki not- að bíl í póstferðir fyrr en í lok maí, vegna snjóa fyrst en síðar vegna úrrennslis og aurs í veg- um. Oft hefur Guðmundur á liðnum árum lent í ekki betri erfiðieikum á jóstferðum sín- um, en þeim sem að ofan er lýst, Eitt sinn t.d. fyrir nokkr- um árum ók hann tii Sauðár- króks að sækja póst í vondri hríð. Kona ein úr sveitinni var farþegi með honum í jeppan- um. Þurfti hún á sjúkrahús að ala barn, því ekki er ljósmóðir í hreppnum. Á Laxárdalsheiði tók konan joðsóttina og ól barn íð þarna i jeppanum í hríðinni þar á heiðinni. Guðmundi tókst að brjótast í hríð og ófærð að Heiði í Gönguskörðum. Þaðan 'hringdi hann í ljósmóður á Sauð árkróki til að gera konu og barni til góða. Brotizt var með ljósmóðurina að Heiði, og á sjúkrahúsið komst konan og bamið um kvöldið og heilsaðist báðum vel. Mörg fleiri dæmi mætti nefna um hve ótrúlega erfiðleika þessi samvizkusami starfsmað- útgerðinni til bjargar voru að skerða hlut sjómanna frá því sem nú er. Síðan er rætt um búnað skipa og útgerðarkostn- að, þar segir. ..Sífellt meira hef- ir verið kostað til búnaðar fiski bátanna í öryggis- og leitartækj um og dýrari veiðarfærum og hefir sá kostnaður allur lent á útgerðinni einnig, án þess að sjó menn tækju nokkurn hlut þar í á undanförnum árum“. Gleymt þá gleypt er, segir máltækið. Út- vegsmenn virðast ekki muna hvað gerðist 1962, en ég veit að sjómönnum er enn í fersku minni gerðardómur, sem þá var settur á kjör þeirra og þau stór lækkuð. Sú kjaraskerðing var byggð á þeim forsendum að sjó menn þurftu að gefa eftir af launum sínum vegna tilkostnað ar útgerðar við kaup á kraft- blökk og tækjaútbúnaði skip- anna. Auk þess er tekið af síld- arafurðum 9,6% útflutningssjóðs gjald og rennur meiri hluti þess til útgerðarinnar í tryggingar- gjöldum. Um laun sjómanna er það að segja að sjaldan eða aldrei hefur nein stétt tekið á sig eims mikla kja r as kerð ingu og síldveiðisjómenn á þessu ári. með 25% verðlækkun og stór- fellt minni afla. Nú heyrist heldur engin stétt gera þá kröfu að fá sömu laun og síldveiðisjómenn. Vetrarvertíðin var léleg hjá flestum sjó- mönnum og afkoman ekki betri en á síldveiðunum. Á 7 mánaða úthaldi við síldveiðar eru meðaltekjur háseta 93 þús und krónur þar með talið or- lof. Þessar tekjur hafa þeir einir sem ekkert sumarleyfi hafa fengið og verið allan tím ann um borð í skipunum. Að frádregnu fæði um borð eru eftir 10 þúsund króna mánað- arlaun. Þetta eru launin fyrir 7 daga vinnuviku. Flestir eða allir aðrir launþegar, sem vinna fjarri heimilum sínum, hafa frítt fæði, vaktaálag, staðaruppbót og fríar ferðir heim og á vinnustað 1-2 í mánuði, en ekkert af þess- um fríðindum hafa sjómenn. Aflaverðmæti síldarafurða til útgerðar og sjómanna árin 1966 og 1967: 1966 heildarafli 746 þúsund tonn. meðalverð 1,63 kr., verð- mæti 1216,4 millj. 1967 heildarafli 12. desemtoer 407 þúsund tonn meðalverð 1,25 kr., verðmæti 508,7 milljónir. Fullvíst er að meðaltekjur sjó- ur hins opinbera hefur þurft að yfirstíga, til þess að geta rækt sitt trúnaðarstarf sem bezt, bæði fyrir póstþjónustuna og sveitunga sína. Þetta læt ég samt nægja til að sýna, að full og rík ástæða væri fyrir hið opinbera að heiðra hann að verðugu fyrir hans löngu 25 ára þjónustu í þágu póstsins og sveitar sinnar. Tel ég viðeigandi, t.d. á næstu jólum, að forseti íslands og orðu nefnd sæmdi hann Fálkaorð- manna ná ekki 150 þúsund kr. árið 1967. Eitt gleggsta dæmið um hvern ig laun sjómanna eru. er frétta- bréf, sem ég sá í einu dagblað- anna nýlega, frá fréttaritara blaðsins utan af landi. Þar var frá því sagt, að atvinnuleysi væri á staðnum. Þó væru gerðir út tveir bátar á línu og öfluðu vel, en þriðji báturinn, sem einn ig er nýlegur og góður liggur. vantar mannskap. Á hinum bát- unum er svo naumur mannskap ur að þar má ekkert út af bera með veikindi, svo að bátarnir hætti veiðum fyrirvaralaust. Þannig standa málin í dag að menn vilja heldur ganga at- vinnulausir í landi en fara til starfa í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Útvegsmenn /erða að gera sér það Ijóst að rekstr- argrundvöll útgerðar verður að finna án þess að byggja á meiri afla, eða lækkaðri aflaprósentu til sjómanna og það á að vera hægt á meðan íslenzkir sjó- menn skila á land 5-6 sinnum meiri afla en stéttarbræður þeirra erlendis.. Sjómenn gera sér fullkomlega ljóst að góð af- koma þeirra fæst ekki nema að útgerðinni sé tryggður rekstrar- grundvöllur, enda eru þeir til- búnir að standa hlið við hlið út gerðarmanna í þeirri baráttu, um hækkað fiskveð og aukna nýt- ingu á aflanum sem gæfu auk- ið aflaverðmæti. Það er nauðsyn að auka til muna verðmun á fiski eftir gæðaflokkum og hvetja á þann hátt til vöruvönd- unar. Þá er nauðsyn á að breyta starfsreglum verðlags'ráðs sjávar- afurða, það nær engri átt að fiski verð sé byggt á rekstri fyrir- tækis. sem ekki er rekið nerna 1-2 mánuði á ári. Lágt fiskverð er orsök þess að hér hefur orð- ið gífurleg offjölgun í fiskverk- unarstöðvum og bræðslum, sem standa nú flestar í vandræðum vegna hráefnaskorts. Og ennþá er haldið á sömu braut. Fyrir einum mánuði var opnað nýtí frystihús austur á fjörðum nokk ur hundruð metra fyrir utan annað stórt frystihús sem staðið hefur aðgerðarlaust um langan tíma, og víða eru í smíðum íisk verkunarstöðvar, þar sem meira en nóg er af þeim fyrir. Við verðum að leggja áherzluna é betra hráefni, sem gefur aukið aflaverðmæti. Og skipuleggja veiðisvæðin til að fá af þeim betri afla með minni tilkostn- unni í tilefni sjötugsafmælis hans. Má líta á þessi ummæli miín sem umsókn uon þennan heiður Guðmundi til handa. Og mér er persónulega kunnugt um að allir sveitungar hans óska þess undantekningarlaust, að honum sé sýndur þessi heið- ur fyrir frábær stönf í þágu sveitar sinnar og föðurlands. P.t. Reykjavík, 6. nóv. 1967. aði en nú er. Gagnvart sildveið unum megum við halda betur á málunum en verið hefur, ef við eigum ekki að tapa þeim salt- síldarmörkuðum sem við höfum haft. Þar verður að koma til kaupendanna fljótlega og bjóða þeim samning og reyna af mætti að standa við gerða samninga, hvað síldarmagn, afhendingar- tíma og vörugæði snertir, ann- ars missum við þessi viðskipti til Norðmanna og fleiri þjóða. Sjómönnum er það full Ijóst að síldveiðar verða ekki stundaðar með neinum árangri á fjarlæg- um miðum, við þær aðstæður, sem voru síðastliðið sumar Þar þarf að verða á stór breyting svo afkoma sjómanna og útgerð- ar batni. í því sambandi vil ég benda á eftirfarandi 1. Söltun um borð í veiðiskipum. 2. Flutn- ingur á sild til vinnslu í landi. 3. Auknir flutningar á síld í bræðslu. Um söltun um borð í veiði- skipum er það að segja 'að hún er fær, (og kannske er það eina færa leiðin til að uppfylla salt síldarsamninga) en til að svo verði þuirfa sjómenn að fá borg- að fyrir stónaukna vinnu, sem á þá kemur og útgerðinni aukin aflaverðmæti og minni olíu- kostnaður. Sjómenn eru alltaf hræddir við að láta aflann á land í íslenzkri höfn, þar hafa þeim birzt svo margir hrafnar í gerfi síldarútvegsnefndar og sölumennsku, sem kroppað hafa fiskinn utan af beinunum, að 'II útgerðar og sjómanna hefur ekki orðið eftir nema beina- grindin ein. Athugandi væri lika að skera síldina á miðunum og setja hana þar í plastbelgi og flytja hana þannig til lands. U,n aðra flutninga á síld til vinnslu þarf að athuga notkun kassa, sem Þjóðverjum og Hollending um hafa reynst vel til geymslu síldar á sínum togskipum. Þeg- ar vel árar verður að taka topp ana og setja þá í varasjóð fyr- ir þessa atvinnugrein. Á þann hátt fara þeir ekki út í verðlag ið, en ekki mun veita af því að eiga til mögru áranna, sem allt af geta komið. Að lokum vil ég segja þetta: Velmegun íslenzku þjóðarinnar er og verður um ó- fyrirsjáanlegan tíma háð fisk- veiðum, vinnslu og sölu sjávaraf urða. Við verðum að gera þær kröfur til forráðamanna þjóðar- innar, að þeir skapi útgerðinni og sjómannastéttinni þann sess, sem þeim ber og það verður að gerast strax. • Páll GuSmundsson. Jón N. Jónasson. Selnesi á Skaga. Hugleiðingar að loknum fundi L.Í.O.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.