Morgunblaðið - 31.12.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. DES. 19'67 l Aðeins þrjií ár kaldari í Reykjavík eftir 1920 MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt fréttati'tkynning frá Veður- stofunni um veðrið 1967, og segir þar: Meðalhiti ársins 1967 vair 4.2° í Reykjavík, en 2.6° á Akureyri. Er það 0.8° neðan við meðallag áranna 1931—60 í Reykjavík, en 1.3° kaldarja en í meðallagi á Akureyri. Árið 1966 var meðal- hitinn í Reykjavík sá sami og í ár, en á Akureyri var meðal- hitinn 2.3° árið 1966, og eru þessi tvö ár þau köldustu frá árinu 1951, en þá var hitmn í Reykjavík 4.1°, en 2.8° á Akur- eyri. Til samanburðar má geta þess, að frá aldamótum hafa 11 ár verið kaldari í Reykjavík en síðastliðin tvö ár, þar aí aðeins 3 eftir 1920 (árin 1921, 1949 og 1951). Á Akureyri hafa einnig 11 ár verið kaldari en 1967 á þessari öld, en þar af aðeins Góð fœrð um Suðurland ÞRÁTT fyrir éljagarra og frem- ur kaldranalegt veður í gær var fært um aUt Suðurlandsundir- lendi, en þó áttu sumir ökumenn erfitt með að komast leiðar sinn- ar vegna dimmviðris. Teppist veigir nú um áramótin, verða þeir ruddir aftur 2. janúar. Samkvæmt uppiýsingum Veð- urstofunnar var fært um allt Suðurland í gær, fyrir Hvalfjörð, um Borgarfjörð og Snæfellsnes. Fært var og um Dali og Bröttu- brekku fyrir stóra bíla. Á Vest- fjörðum var fært milli Bíldu- dals og Patreksfjarðar og sömu- leiðis suður á Rauðasand. Vegurinn yfir Holtavörðu- heiði var í gær algjörlega iok- aður. Annars staðar var fært um Norðurland, nema hvað Siglu- fjarðarvegur var þungfær. Ól- afsfjarðarmúli var ófær. Vegur- inn yfir Öxnadalsheiði var opn- aður í fyrradag, en var aðeins fær stórum bílum í gær. Fært var í gær frá Akureyri til Húsavíkur um Dalsmynni og jeppafært var frá Húsavík til Rautfarhafnar, Þistilfjarðar, >órs hafnar, Bakkafjarðar og Vopna- fjarðar, en í gærmorgun var þó farið að skafa á þessum leiðum og má búast við, að þær séu nú orðnar iþung- eða ófærar. Á Austfjörðum var fært um Fljótsdalshérað og Fagradal og suður með fjörðum frá Reyðar- firði til Hornafjarðar. Fjarðar- heiði og Oddiskarð voru lokuð, svo og Vatnsskarð til Borgar- fjarðar. Næst er áætlað að reyna að opna mjög víða fjallvegi hinn 2. janúar. >á verða ruddir vegir um Snæfells.nes, vestur í Dali, leiðin Reykjavík—A.kureyri, Oddskarð eystra og víðar. 5 ný ísl. met í boðsundum Á innanfélagsmóti Ármanns í sundi 28. des. sl. voru sett fimm ný isl. met í sundi — öll í boð- sundsgreinum. í 4x50 m bringusundi syntu Leiknir Jónsson, Stefán Ingólfs- son. Reynir Guðmundsson og Guðmundur Gíslason á 2:18,6 mín. í 4x50 m skriðsundi kvenna syntu Ellen Ingvarsdóttir, Hrafn- hildur Kristjánsdóttir, Sigrún Sig gtirsdóttir og Matthildur Guð- mundsdóttir á 2:41,7 mín. uunnar Schram í 4x50 m skriðsundi karla synti sveit Ármanns (Sig. Þorkelss., Þorst. Ingólfsson. Trausti Júlíuss. og Guðm. Gíslason) á 1:48,3 mín. í 4x50 m skrifsundj kvenna syntu Hrafnh. Kristj., Ellen Ingvad., Matth. Guðmd. og Sig- rún Siggeirsd. á 2:10,5 mín. 1 4x100 m bringusundi synti sveit Ármanns á 5:15,2 mín., en i henni voru Leiknir, Brynjúlfur Jónsson, Reynir og Guðmundur. Árangurinn í öllum þessum greinum eru ný ísl. met. Aðalsteinn Norberg Ritsímastjðra skipti Ritsímastjóraskipti verða nú um áramótin. Af því starfi læt- ur Gunnar Schram, áður um- dæmisstjóri Landssímans á Ak- ureyri, sem gegnt hefur störfum ritsímastjóra síðastliðin tvö ár, en lætur nú af störfum fyrir ald- urs sakir. Gunnar Schram hefur verið í þjónustu Landssímans síðan árið 1915, formaður Félags ísl. símamanna og ritstjóri Síma- blaðsins var hann um árabil. Við starfi ritsímastjóra tekur nú Aðalsteinn Norberg sem er rúmlega fimmtugur að aldri. Hef ur hann starfáð lengi í þágu Landssímans. 1 ár eftir 1920 (árið 1966). Fyrstu tveir mánuðir ársins voru hlýrri en venja er, en allir aðrir miánuðir kaldari en í meðal ári, sérstaklega marz, en hann mun hafa verið kaldasti marz- mánuður frá 1919 ásamt marz 1947. Úrkoma í Reykjavík mældist 807 mm, en á Akureyri 467 mm og er hann í réttu meðallagi á báðum stöðvumim. Sólskin mældist mun meira en yenja er á báðum þessum stöðv- um. í Reykjavík mældist sól- skin í 1518 stundir og er það 270 stundum meira en í meðal- ári, og á Akureyri voru sólskins- stundirnar 1073 eða 111 stundum umfram meðallag. Þetta er annað árið, sem veðurathugunarstöðin á Hvera- völlum er rekin, og reyndist meðalhitinn þar vera -1.5° og úrkoman 750 mon, en samsvar- andi tölur í fyrra voru -1.8° og 433 mm. Sólskin mældist þar árið 1967 í 1311 stundir, en 1270 klst. árið 1966. Árið 1967 var meðalhiti í Reykjavík 42 C° en var árið 1966 einnig 4.2. Meðalhitinn 1931 til 1960 var 5.0 stig. Á Akur eyri 2.6 stig en árið áður 2.3. Meðalhitinn 1931—60 var 3.9 stig. Á Hveravöllum var hitinn -1.5 en árið áður -1.8. Útkoman var 1967 807 mim, en árið áður 711 mm, en meðalúr- koma var 805 mm árin 1931—60. Á Akureyri var úrkoma 467 mm en árið 1966 418 mm, en meðal- úrkoma árin 1931—60 474 mm. Á Hveravöllum var úrkoman 750 mm en árið áður 433 mm. Meðalúrkoman var hin sama og á Akureyri. Sólskinsstundir í Reykjavík voru 1518 en árið 1966 1541. Á Akureyri voru sólskinsstundirn- ar 1073 en árið áður 913. Á Hveravölluim voru þær 1311 en 1270 árið á undan. Forsíðumyndina tók Kristinn Benediktsson í Hljómskála- garðinum af hækkandi sól. Póstburðagjöld til útlondu hækkn VEGNA gengisbreytingar ís- lenzku króunar hækka nokkur póstgjöld til útlanda frá og með 1. janúar 1968, en innanlands burðargjöld verða óbreytt. Sem dæmi má nefna, að burð- argjald fyrir 20 g. bréf í flug- pósti verður eftir breytinguna 7 kr. til Norðurlanda, 8,50 kr. til Bretlands og 9,50 kr. til megin- lands Evrópu. Fyrir 10 g. brétf til Bandaríkjanna og Kanada verð- ur burðargjaldið eftir breyting- una 10,50 kr. Eins og fyrr segir hækka eng- in burðargjöld fyrir innanlands- sendingar. Konstantin Grikklandskonungur ásamt börnum sinum tveim- ur Páli krónprins og Alexíu prinsessu við jólatréð í Villa Polissena, þar sem konungsf jölskyldan dvaldist yfir jólin hjá frænda konungs. Minnkandi gildi Súez-skurðarins London, 30. des — NTB ANTHONY Cayzer, forseti sam- taka brezkra skipaeigenda, heid- ur því fram í grein, sem hann ritar i arselkýrslu tryggingar- og skipaskoðunarfélagsins Lloyds, að árið 1975 verði varla til olíu- flutningaskip, sem noti Súez- skurðinn. Telur hann, að þá verði varla dýrara fyrir skipin. að sigla suður fyrir Góðravonar- höfða. Cayzer bendi áf að jafnvel nú Týndur hundur SVARTUR hundur með hvítt trýni er í vanskilum að Efsta- sundi 90 í Reykjavík. Ólöf Sig- urjónsdóttir, sem þar býr, bjarg aði honum frá kökkum sem voru aði honum frá krökkum sem voru hundsins beðinn að hafa sam- band við hana sem fyrst. Ólöfu virtist hundurinn vera fullvax- inn, og ekki einn þeirra sem hafðir eru í húsum hér í Reykja vík, taldi frekar að hann væri úr nærliggjandi sveitum. llm sérkenni sagði hún að hann hefði örlítið hvíta og brúna sokka á fótunum. Eigandi getur náð sambandi við Ólöfu í síma 33063. hafi Súezskurðurinn mun minni þýðingu fyrir Breta en áður, þótt engin þjóð hafi notað skurð inn jafn mikið og Bretar áður en honum var lokað í júni. Fyr- ir 10 árum fóru 60% olíuflutn- inga Breta um skurðinn, en sú hlutfallstala thefur síðan lækkað niður í 25%. Hefur þessi lækk- un orðið bæði vegna vaxandi notkunar risa-stórra flutninga- skipa, sem ekki komast gegn- um skurðinn, og vegna nýrra olíulinda í Alsír og Lýbíu. Lok- un skurðarins hetfur að sögn Cayzers ,leitt til aukinnar eftir- spurnar eftir enn stærri olíu- flutningaskipum, og árið 1970 má búazt við, að í það minnsta 160 olíuflutningaskip 200 þúsund tonna eða stærri verði komin i notkun. Af þeim hafa rúmlega 100 verið smíðuð eftir lokun skurðarins. Verði skip þessi not- uð við olíuflutninga suður fyrir Góðravonarhöfða frá Persaflóa t:i Evrópu ,geta þau flutt alls um 200 milljónir tonna af olíu árlega. sem er svipað því magni er fór um skurðinn árlega fyr- :r lokun hans. Búazt má við, að þessir flutningar aukizt enn á næstu 10 árum þannig, að olíu- flutningaskipin hætti að mestu að nota Súez-skurðinn, sagði Cayzer. Sjö hvítir menn dæmdir ■ Missisippi tyrir dráp þriggja baráttumanna tyrir réttindum blökkumanna Jackson Missisippi, 30. des., NTB ALRÍKISDÓMSTÓLL í Jackson, Missisippi, dæmdi í gær sjö hvíta menn í allt að 10 ára fangelsi er sannazt hafðj að menn þessir höfðu lagt á ráðin um að bana þremur þeirra, er þátt tóku í réttindabaráttu blökkumanna i Missisippi 1964. Allir voru hinir sakfelldu þó frjálsir ferða sinna að dómsupp- kvaðningu lokinni, gegn settri tryggimgu. Þeir hafa allir áfrýj- að dómumim. Lengstan fangelsis- dóm fengu Ku Klux Klan-leið- toginn Sam H. Bowers og Wayne Roberts, sem báðir voru dæmdir í tíu ára fengelsi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.