Morgunblaðið - 31.12.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. DES. 1967
5
Askenasí og
Sinfóníuhljómsveitin
RÓBERT A. Ottósson var stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitarinnar
á tónleikum hennar sl. fimmtu-
dag, en hlutverk hans var að
mestu hlutverk undirleikarans.
Að öðru leyti hvíldi þungi þess-
ara tónleika á herðum snillings-
ins Vladimírs Askenasís.
Tónleikarnir hófust með for-
leik Menedelssohns, Fingalshelli,
og var það eina hreina hljóm-
sveitarverkið, sem hér var flutt.
Það var einstaklega skýrt mót-
að, ef til vill leikið í hægasta
lagi, en þó mjög áheyrilega, og
varð veglegur „upptaktur“ þess,
sem á eftir fór.
Askenasí lék síðan tvo píanó-
konserta, nr. 27 í B-dúr eftir
Mozart og nr. 3 í c-moll eftir
Beethoven. Þessi konsert Moz-
arts er hinn síðasti, er hann
samdi, og í mörgu ólíkur hin-
um fyrri, „upphafið verk“ í
fyllsta skilningi orðsins, háleitt
og djúpúðugt í senn. Satt að
segja var sá samanburður á
Mozart og Beethoven, sem hér
mátti gera, ekki allskostar hag-
stæður hinum síðarnefnda, enda
er konsert hans, þrátt fyrir allt,
æskuverk, samið um svipað leyti
og fyrsta sinfónían og fyrstu
kvartettarnir. En bæði verkin
voru flutt af djúpri alvöru,
næmri stílkennd og að sjálf-
sögðu með tæknilegum yfir-
burðum. Má fullyrða, að kostir
þeirra og sérkenni nutu sín svo
sem bezt varð á kosið.
Það mátti sjá, að áheyrend-
ur væntu sér mikils af þessum
tónleikum, því að sjaldan hef-
ur samkomuhús Háskólans ver-
ið þéttar setið. Píanókonsertar,
að minnsta kosti hinir þekktari,
eru vinsælt tónleikaefni, ekki
mundu hafa notið sín betur
hvort í sínu lagi, eins fyrir því
þótt meðferð þeirra væri með
þeim ágætum sem fyrr segir.
Fyrir allmörgum árum kall-
aði ég Askenasí á prenti „tengda
son íslands", og hafa ýmsir
síðan tekið sér þau orð í munn.
Síðan hefur hann verið hér tíð-
ur gestur og ávallt verið vel
fagnað, svo sem vert er. Nú
hefur það heyrzt, að hann muni
ætla að setjast hér að, eða hafa
að minnsta kosti aðalbækistöð
sína hér, en sem kunnugt er sit-
ur slíkur maður sjaldan lengi á
einum stað. Það mundu margir
telja það ánægjulega nýjársgjöf,
ef þessi fregn fengist staðfest
nú um áramótin.
Gleðilegt nýjár.
Jón Þórarinsson.
Biöjast hœlis
I Svíþjóð
Stokkhólmi, 29. des AP—NTB
BANDARÍSKIT sjóliðarnir fjórir,
sem struku af bandaríska flug-
vélamóðurskipinu „INTREPID“
er það var í Japan 23. október
sl. eru nú komnir til Svíþjóðar
og hafa beðizt hælis þar sem
pólitískir flóttamenn. Þeir
struku af skipinu til þess að mót
mæla styrjöldinni í Vietnam og
hafa verið í Moskvu um hríð.
Þeir komu tii Stokkhólms flug
leiðils frá Moskvu í morgun og
voru þegar færðir í lögreglustöð
ina í Mærsta til yfirheyrslu. Síð
an voru þeir iótnir lausir, en
útlendingaeftiriitið sænska skip-
aði þeim að hafa sam,band við
lögregluna á hverjum degi unz
tekin hefði verið afstaða til
beiðnar þeirra um landvist.
Mennirnir heita, Richard Bailey,
John Barilla, Miohael Lindnes
og Ciaig Anderson og eru á aldr-
inum 19 og 20 ára.
Við komuna til Stokkihólms
sögðu þeir í viðtali við frétta-
menn, að þeir sæju ekki efitir
að hafa flúið — og þeir vonuðu
að aðrir ungir Bandaríkjaimenn
færu að dæmi þeirra og mót-
mæltu þannig styrjöldinni, seim
væri óréttLát að þeirra dómi.
Þeir sögðust hafa kosið Svíþjóð
vegna þess að það væri hluit-
laust land. Þeir væru ekki stjórn
málalega sinnaðir, og þvi hefðú
þeir ekki vilja verða eftir í Sov-
étríkjunum, þrátt fyrir boð
Rússa uim það. Fái þeir ekki
landvistarleyfi í Svíþjóð segjast
þeir muni reyna fyrir sér í Sviss
eða Austurríki.
Sovézka stjórnarblaðið „Izve&t
ia“ sagði frá för þeirra í morg-
un í stuttu máli. Haft er eftir
góðum heimildum í Maskvu, að
bandaríska sendiráðið þar hafi
reynt að hafa samband vtó sjó-
mennina, en árangurslaust.
Vladimir Ashkenazy
sízt þegár einleikarinn er svo
víðkunnur, vinsæll og ágætur
listamaður sem Askenasí. Samt
verður prógramgerð af þessu
tagi að teljast óheppileg, nema
þá sem algerð undantekning, og
er þá vafalaust heppilegra að
setja saman á efnisskrá verk,
sem standa fjær hvort öðru í
tíma og stíl en þau tvö, sem hér
voru flutt. Þessi tvö verk
Vesturveldin
svara Rússum
Moskvu, 29. des., AP-NTB.
STJÓRNIR Bandaríkjanna,
Bretlands og Frakklands til-
kynntu í dag, að þær styddu
tilraunir v-þýzku stjórnarinnar
til að minnka spennuna milli V-
Þýzkalands og nágranna þess í
austri. I samhljóða yfirlýsing-
um, sem sendiherrar landanna
þriggja afhentu i Kreml í dag
segir, að v-þýzka stjórnin hafi
hvað eftir annað lýst yfir vilja
sínum til að semja við Sovét-
stjórnina og bandamenn hennar
um að báðir aðilar forðist vald-
beitingu og reyni að komast að
samkomlagi um ágreiningsefni
sín.
Yfirlýsingar stórveldanna
þriggja eru svar við orðsendingu
Sovétstjórnarinnar fyrir þremur
vikum þess efnis, að v-þýzka
stjórnin reyndi að ýta undir ný-
nazismann og ógni nágrönnum
sínum í austri.
Sovézka utanríkisráðuneytið
hefur ekkert sagt opinberlega
um yfirlýsingar stórveldanna, en
í dag réðist utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, Andrei Gromyko,
á Vesturlönd í ræðu, sem hann
flutti í Kreml í tilefni 50 ára
afmælis stofnunar diplómata-
þjónustunnar sovézku. Gromyko
ásakaði Vesturlönd um að daðra
við „þýzka hernaðarstefnu,
hefndarstefnu og nazisma". Vest
rænum fréttamönnum var ekki
boðið til afmælishófsins, en hin
opinbera sovézka fréttastofa,
Tass, sendi út ágrip af ræðu ut-
anríkisráðherrans.
Orðrétt sagði Gromyko, að
sögn Tass: „Vesturlönd bera aug
sýnilega litla virðingu fyrir
sögulegri reynslu. Vesturlönd
eru greinilega ekki óvön því, að
daðra við þýzkan nazisma, hern-
aðar- og hefndarstefnu".
ANCLI - SKYRTUR
COTTON - X COTTON BLEND
og RESPI SUPER NYLON
Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47.
Hvítar — röndóttar — mislilar.
Margar gerðir og ermalengdir.
ANCLI - ALLTAF
Um leið og vér óskum landsmönnum
farsældar og friðar á komandi ári,
viljum vér að hafa vel minna á tryggt. i nauðsyn KP * 4t pess
[ Almennar Tryggingar hf. (|) simi 1 17700 J