Morgunblaðið - 31.12.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. DES. 1967
13
Sextugur í dag:
EKristján Skagf jörð
múrarameistari
„ÞAÐ er svo margt ungt fólk að
verða fimmtugt um þessar mund-
ri“ sagði glaðlyndur maður við
mig fyrir nokkru. — Nú finnst
mér, að sama mætti segja u-m
vin minn Kristján Skagfjörð,
múrarameistara, — nema bara
það, að hann er nú orðinn sex-
tugur þótt undanlégt megi virð-
ast. Hann er nefnilega talinn
fæddur — samkvæmt skjallegum
upplýsingum — hinn 31. desem-
ber 1907 á Seyðisfirði. Foreldrar
hans voru hjónin Kristján Jóns-
son Skagfjörð og María Jónsdótt-
ir, hið ágætasta fó'lk.
Kristján, sem heitir fullu nafni
Jóhann Kristján Skagfjörð, þurfti
snemma að fara að vinna fyrir
sér og lágði stund á múraranám
hjá Einari Jóhannssyni múrara-
meistara og lauk sveinsprófi á
Akureyri 21 árs gamall. Upp frá
því vann hann við iðn sína óslit-
ið. þar til hann gerðist umsjónar-
maður Iðnskólans í Reykjavík,
þegar skólahaldið fluttist í hið
nýja hús við ‘ Skólavörðutorg,
1954. Um þetta nýja starf sótti
hann sökum þess. hve sement,
sandur og vatn höfðu ill áhrif á
hinar næmu hendur hans, —enda
fer fer Kristján mjúkum og lipr-
um fingrum um allt, er hann
snertir á, konur jafnt sem kalda,
dauða hluti.
Það er meðfætt hjá Kristjáni að
vera félagslyndur og koma sér
vel meðal kunningjá sinna. eins
þótt og e. t. v. meðfram vegna
þess. að hann hefur ákveðnar
skoðanir á því, hvað sé rétt og
hvað sé rangt. Hann kann líka
að láta álit sitt í Ijós á lipran
hátt og án þess að móðga náung-
ann; jafnvel að fá menn á sitt
band án þess að þeir verði þess
varir. — sannkallaður diplomat
að þessu leyti.
Félagslyndi Kristjáns hefur
fengið útrás í margvíslegum fé-
lagsmálastörfgaim. Hann var
lengi virkur þátttakandi í Múra-
féiagi Reykjavíkur, þar sem hann
gerðist félagi tveim árum eftir
sveinspróf. Þar gegndi hann ýms-
um trúnaðarstörfum. var í full-
trúaráði og varaformaður um
skeið. 1952 gekk Kristján í Múr-
arameistarafélag Reykiavíkur og
hefur þar sem annars staðar ver-
ið valinn til trúnaðarstarfa. t. d.
hefur hann verið í prófnefnd múr
ara frá 1960. — Þetta sýnir m. a..
að hann er talinn vandvirkur og
góður favmaður í sinni iðngrein.
enda mun mörgum auðvelt að
votta það. Kristján hefur lengi
tekið virkan þátt í Tðnaðarmanna
félaginu í Revkiavík oe haft þar
trúnaðarstörf á hendi. enda sýndi
félagið honum bá virðingu og
það traust að velja einmitt hann
til forustu, þegar mikið iá við og
halda átti veglega og virðulega
upp á 100 ára afmæli félaesins í
febrúar sl — Lagði Kristián þar
fram ótrúlega mikjð starf án
þess f rauninni að láta sér nokk-
urn tfma dett.a í hug að slaka á,
né ætiast til umbunar fyrir störf
sín. En eins og Kristján er ósér-
hlífiran og orðheldinn um allt,
sem hann lofar eða tekur að sér,
eins ætlast hann til að aðrir geri
slíkt hið sama. Ef slíkt bregst,
veldur það vini mínum mjög svo
sárum vonbrigðum.
Sem iðnaðarmaður og múrara-
meistari hefur Kristján lagt
gjörva hönd að fjölda mann-
virkja um dagana, en kunnust
eru mér störf hans við Iðnskól-
ann, en þar hefur hann unnið
mikið, allt af alúð og fórnfýsi,
vel á annan áratug, sem umsjón-
armaður. Auk þess hefur aðal-
þungi framkvæmda við nýbygg-
iraguna mætt á honum. — Get ég
ekki hugsað mér öl'lu liprari og
samvizkusamari samstarfsmann á
þessu sviði en hann.
Ég sný mér þvi snöggvast
beint til þín, Kristján, og votta
þér, fra.mmi fyrir allþjóð, þakk-
læti mitt og virðingu fyrir vel
unnin störf, fyrir ljúfmennsku
þína. ósérplægni, vandvirkni og
vináttu.
Það er tæpast hægt til þess að
ætlast að þeir, sem ekki eru mál-
um kunnugir, geri sér ljóst, hve
erilsamt starf Kristjáns er, en
svolítið má láta sér renna grun
í það. þegar frá því er sagt, að í
skólahúsinu er starfað frá um kl.
8 að morgni þar til mjög seint
á kvöldin, nær óslitið allt árið
um kring, enda haf sumarfrí hans
engin orðið þessi árin, ef ég man
rétt, utan eitt, og svo nú, er hann
um sextugsafmæli sitt bregður
sér í nokkra daga út fyrir land-
helgina.
Kristán hefur fastar skoðanir
á ýmsu fleiru en góðu handverki.
Hann hefur um margra ára skeið
verið ötull og áhugasamur stuðn-
ingsmaður þeirra hugsjóna, sem
Sjálfstæðisflokkurinn helgaði sig;
baráttunni fyrir frelsi í framtaki
í athöfn og hugsun. — Einnig hef
ur hann verið virtur og mikils
metinn í félagssamtökum, sem
hafa hvers konar mannúðar- og
líknarstörf á stefnuskrá sinni. —
Má þar nefna Oddfellow-regluna,
þar sem Kristján hefur lengi ver-
ið virkur, vel metinn og áhuga-
samur. sjálfum sér og Reglunni
til sóma. — Hið sama tel ég að
segja megi um Kívanisklúbb
Reykjavíkur, þótt þar þekki ég
minna til.
Já. Kristján kemur víða við
og verk hans öll til sóma.
Einn er sá félagsskapur, sem
ekki margir þekkja til og heitir
Kjarnorkuklúbbur. — Hann var
á sínum tíma stofnaður af ýms-
um framámönnum í iðnaðarmál-
um og hefur mjög takmarkaða
tölu félagsmanna, enda geta þeir
einir komizt í klúbbinn sem
þangað er boðið af félaasmönn-
um sjálfum. Þarna er Kristján
einn af fáum klúbbfélögum. og
veit ég. að hinir senda honum
ljúfar, en ekki smeðjulegar árn-
aðaróskir — til Kaupmannahafn-
ar — á sextugsafmælinu. Hitt
þykist ég vita, að þeir séu flestir
sárir og vonsviknir yfir því, að
geta ekki heimsótt hann í dag. —
því tæplega storma þeir til hans
til Hafnar. — En harin um það
— koma tímar og koma ráð.
Kristján er kvæntur Sigríði Jó-
hanssdóttur, myndar konu og
ágætri. og hafa þau staðið sam-
an í blíðai og stríðu, eru glöð á
góðri stund og eiga fjöldann a'll-
an af góðum vinum sem senda
þeim og börnum þeirra hueheil-
ar árnaðaróskir á þessum afmæl-
isdeai húsbóndans.
Kæri vinur minn K’-ictián. Ég
er aðeins einn af þessum mjög
svo mörgu sem senda bér hug-
S'keyti yfir hafið. buvskevti
þrungið þakklæti fyrir alla bína
Ijúfmennsku og heilindi ? athöfn
og umgengni með þökk fv-ir gf'ð
kynni og með einlægum óskum
um gott og fagurt mannh'f hið
næsta þér um ókomin ár.
Þór Sandholt.
MÚLAKAFFI
NÝJÁRSDACUR 1968
Opið frá kl. 6 f.h. til kl. 11.30 e.h.
MORGUNVERÐUR:
gj Frönsk lauksúpa.
gj Bacon og egg.
50 Skinka og egg.
g Tartalettur með hangikjöti og grænum baunum.
@ Smurt brauð.
gj Kökur.
\
Súkkulaði með rjóma.
gj Kaffi.
MATSEÐILL DAGSINS
frá kl. 11.00 f.h. til kl. 8.00 e.h.:
gj Sveppasúpa.
gj Innbökuð smálúðuflök með remouladesósu.
gj • Hakkað buff með lauksósu.
gj Lambasteik með grænmeti.
gj Hangikjöt með kartöflujafningi.
K Grísakótelettur með rauðkáli.
gj Hamborgarhryggur með frönskum kartöflum
og rauðvínssósu.
gj Kjúklingar með salati og frönskum kartöflum.
gj ís með ananas, jarðaberja og súkkulaðisósum.
gj Kaffi.
EIGINMENN. Bjóðið fjölskyldunni í mat í Múlakaffi
á nýjársdag.
MÚLAKAFFI
Gleðilegt nýtt úr
þökkum viðskiptin á liðnu ári.
MULAKAFFI
Gleðilegt nýtt úr
þökkum viðskiptin á liðnu ári.
VOCAKAFFI