Morgunblaðið - 26.01.1968, Síða 5
ft«*i jjaúwaí ji' _v;/<u:. i'M ■ j
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1968
L-»
Afstaða fslands til
aðildar Kína að S.Þ.
Greinargerð Hannesar Kjartanssonar
sendiherra íslands hjá 5.Þ. á síðasta
Allsherjarþingi samtakanna
Þegar fjallað var um aðild
Kína að Sameinuðuþjóðunum á
sl. flutti aðalfulltrúi íslands,
Hannes Kjartansson. ræðu, þar
sem hann gerði grein fyrir af-
stöðu íslendinga til þess máls
og þeirra tillagna sem fram
hefðu komið þar að lútandi.
Ræðan fer hér á eftir, laus-
lega þýdd og endursögð:
„Allsherjarþingið hefur nú í
sautján ár rætt spurninguna
um aðild Kína að Sameinuðu
þjóðunum, án þess að finna leið
frá því þrátafli sem hefur kom
ið í veg fyrir, að fundin yrði
jákvæð og viðunandi lausn á
vandamálinu.
Sú afstaða, sem sendinefnd
fslands hefur tekið til þessa
máls, hefur verið byggð á tveim
ur meglhatriðum. í fyrsta lagi
hefur það verið skoðun okkar
á liðnum árum, að aðild Kína
sé mikilvægt mál. Sú er enn-
þá skoðun stjórnar minnar. í
öðru lagi hefur íslenzka ríkis-
stjórnin verið andvíg aðild Al-
þýðulýðveldisins Kína á kostn-
að aðildar Lýðveldisins Kína
(Formósu). Sú afstaða, sem við
tökum til þeirra tillagna, er
liggja fyrir Allsherjarþinginu í
ár, mun enn markast af þessum
sjónarmiðum.
f tillögu þeirri, sem sendi-
nefndir Albaníu og tíu annarra
ríkja hafa lagt fram, er svo
kveðið á, að Alþýðulýðveldið
Kína taki sæti sem aðili að
Sameinuðu Þjóðunum en jafn-
framt verði Lýðveldinu Kína
vísað úr samtökunum. Utanríkis
ráðherra íslands, Emil Jónsson,
tók skýrt og óumdeilanlega
fram í eftirfarandi ræðu sinni
við almennu umræðurnar á
Allsherjarþinginu 4. október sl.
„Stjórn mín hefur ekki stutt og
mun ekki styðja neina tillögu,
sem gerir ráð fyrir aðild Al-
þýðuveldisins Kína annarsvegar
og brottvísun Lýðveldisins Kína
úr samtökunum hinsvegar. Það
þýðir þó ekki, að við séum and-
vígir aðild Alþýðulýðveldisins
Kína. Þvert á móti, við gerum
okkur fyllilega ljósar þær
hættur, sem felast í hinu ó-
eðlilega núverandi ástandi mál-
anna, það er, að ríki, sem telur
fimmta hluta allra íbúa heims-
ins, stendur enn utan þessara
samtaka og virðist æ einangr-
aðra frá samféla.gi Þjóðanna".
í nokkur ár og fram að síð-
asta Allsherjarþingi hefur ís-
lenzka sendinefndin setið hjá
við atkvæðagreiðslu um tillögu,
sem Albanía og fleiri ríki hafa
lagt fram. Við gátum ekki greitt
atkvæði með henni, þar sem
við erum algerlega andvígir
brottvísun Lýðveldisins Kína, en
þar sem við erum í sjálfu sér
ekki andvígir hugmyndinni um
aðild Alþýðulýðveldisins Kína
greiddum við heldur ekki at-
kvæði gegn henni. Á síðasta ári
hinsvegar breyttu ríkin, sem að
albönsku tillögunni stóðu, orða
lagi hennar lítillega frá því sem
verið hafði, þannig að nú var
tryggt, að sérhvert aðildarríki,
sem óskaði að greiða atkvæði
með því að Alþýðulýðveldið
Kína fengi aðild að samtökunum
mundi um leið greiða atkvæði
með því að vísa brott Lýðveld-
inu Kína mundi um leið hvort
sem það vildi eða ekki, greiða
atlkvæði með því að vísa brott
Lýðveldinu Kína.
Jafnframt kom fram nýtt
sjónarmið í málinu með tillögu,
sem sendinefndir Belgíu, Chile,
Ítalíu og fleiri ríkja, lögðu fram.
Þar var gert ráð fyrir því, að
þess að kanna málið frá öllum
hliðum og athuga hugsanlega
möguleika og leiðir til þess að
Alþýðulýðveldið Kína fengi að-
ild að samtökunum, án þess að
svipta Lýðveldið Kína sæti
sínu.
Sendinefndin íslenzka greiddi
atkvæði með þeirri tillögu. Við
vorum þeirrar skoðunar, að
hverjar svo sem takmarkanir
þessarar tillögu væru, gerði
hún ráð fyrir að á málinu væri
tekið með nýjum hætti. Margar
sendinefndir voru þeirrar skoð-
irnar, að skipun slíkrar nefnd-
ar mundi tilgangslaus. Við töl^-
um þetta hinsvegar málsmeð-
ferð, sem opnaði Allsherjarþing
inu leiðir út úr þeirri sjálf
heldu, sem málið hafði verið í
svo lengi og tæki fyrir árangurs
lausar atkvæðagreiðslur.
Við hörmuðum, að tillaga
Ítalíu og hinna ríkjanna skyldi
felld.
Þar sem íslenzka sendinefnd-
in hafði nú ákveðið að greiða
atkvæði með ítölsku tillögunni,
er miðað að því að leita já-
kvæðrar lausnar á vandamál-
inu, ákvað hún á síðasta ári
að greiða atkvæði gegn al-
bönsku tillögunni og leggja
þannig áherzlu á andstöðuna
gegn því að svipta Lýðveldið
Kína aðild sinni að Sameinuðu
Þjóðunum.
Sendinefndir Belgíu, Chile,
Luxembourg, Hollands og Ítalíu
hafa nú lagt fyrir allsherjar-
þingið nýja tillögu, samhljóða
þeirri, er lögð var fram á síð-
asta ári. Þar er lagt til, að skip-
uð verði nefnd til þess að kanna
vandamálin varðandi aðild Kína
að Sameinuðu Þjóðunum og
skuli hún leggja fram á 23.
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð
anna álit sitt á því, hvað sé
málinu í samræmi við mark-
mið og grundvallaratriði Stofn-
skrár Sameinuðu þjóðanna.
Sendinefndin íslenzka styður
þessa tillögu. Það er skoðun
okkar, að ekki sé hægt að líta
á þetta vandamál einungis sem
kröfur tveggja ríkisstjórna til
sama sætis. Það er söguleg og
stjórnmálaleg staðreynd, að Lýð
veldið Kína hefur átt aðild að
samtökunum frá stofnun þeirra,
tekið raunhæfan og friðsam-
legan þátt í alþjóðamálum og
uppfyllt allar skuldbindingar,
sem fylgja aðild að Sameinuðu
þjóðunum. Að vísa Lýðveldinu
Kína burt úr Sameinuðu þjóð-
unum væri ráðstöfun, sem tæp
ast getur talizt samrýmanleg
grundvallaratriðum Stofnskrár-
innar. Það væri vissulega í aug
ljósri mótsögn við grundvallar-
hugmyndina um aðild allra þjóð
hugmyndina um aðild allra
þjóða að samtökunum.
Að því er snýr að ríkisstjórn
Alþýðulýðveldisins Kína höfum
við margar ástæður til þess að
efast um óskir hennar og fyrir-
ætlanir.
Óskar hún að taka sæti hjá
Sameinuðu þjóðunum? Og ef
svo er, þá við hvaða skilyrði?
Yfirlýsingar, sem borizt hafa
frá Peking og hinir furðulegu
atburðir, sem gerzt hafa í Al-
þýðulýðveldinu Kína á síðustu
1—2 árum, gefa okkur gilda á-
stæðu til þess að sýna varkárni
í þessu máli. Og það virðist
ítölsku tillögunnar.
Sendinefndin íslenzka mun
greiða atkvæði með þeirri til-
lögu. Þannig óskum við að leggja
áherzlu á jákvæða afstöðu okk
ar til viðleitni, sem miðar að
því að leita lausnar á því vanda
máli, sem aðild Kína er. Jafn-
framt munum við greiða at-
kvæði gegn tillögunni sem
sendinefndir Albaníu og fleiri
ríkja hafá lagt fram.
Þá höfum við hér tillögu,
sem sendinefndir Ástralíu, Belg
íu og nokkurra annarra ríkja
hefur lagt fram. Það er skoðun
íslenzku sendinefndarinnar, að
spurningin um aðild og þátt-
töku stjórnar, sem fer með völd
í fjölmennasta ríki veraldar,
hljóti að vera samtökum þess-
um mjög mikilvægt mál. Og í
rauninni eru hinar langvarandi
umræður u-m þetta mál á Alls-
herjarþinginu öll þessi ár, hin
almenna þátttaka í þessum um-
ræðum, hinn mikli áhugi— og
vissulega einnig sú reiði— sem
þessi dagskrárliður hefur alltaf
vakið, í sjálfu sér nægar sann-
anir fyrir því hve alvarlegum
augum stjórnir aðildarríkjanna
líta þetta mál. Tillagan um að
vísa brott fullgildum aðila sam-
takanna, virtum aðila sem inn-
an Sameinuðu þjóðanna á sér
feril, sem er fyllilega sambæri-
legur við feril annarra ríkja,
ALLT MEÐ
Hannes Kjartansson
er mjög alvarlegt mál, sem ekki
er hægt að taka létt á eða
afgreiða með einföldum meiri-
hluta. Enda er tekið skýrt fram
í 18. grein Stofnskrárinanr, að
brottvísun aðildarríkis sé alvar-
legt mál, sem ekki verði tekin
ákvörðun um nema með tveim-
ur þriðju hlutum atkvæða. fs-
lenzka sendinefndin mun því
greiða atkvæði með tillögunni,
sem fram hefur komið af hálfu
sendinefndar Ástralíu, Belgíu og
fleiri ríkja. Þar eru ítrekaðar
fyrri ákvarðanir Allsherjarþings
ins um „að sérhver tillaga um
að breyta aðild Kína hjá Sam-
einuðu þjóðunum sé alvarlegt
vandamál og til þess að taka
á'kvörðun um það, þurfi tvo
þriðju hluta atkvæða, eins og
segiir í 18. gr. stofnskrár-
innar.“
Fréttir frá
Stykkishólmi
Stykkishólmi, 20. jan, 1968.
TÍÐARFAR hér síðan um ára-
mót hefir verið ákaflega mis-
vindasamt, áttabarningur og
sama áttin staðið skamma stund.
Skiptist þar á frost og þíða, storm
ar og regn. Ekkert er enniþá ró-
ið hér frá Stykkishólmi nema
1 bátur hefir farið ca. tvo róðra
en lítið aflað. Einn bátur er á
sjó í dag. Bátar eru að búast til
veiða, en hinsvegar er ekkert enn
séð hvenær vertíð hefst fyrir al-
vöru. Voru þeir bátar sem réru
með línu fyrir áramót ákveðnir
að halda áfram á línu, en bæðd
voru gæftir lélegar fyrir áramót
og afli tregur svo mikið tap varð
á úthaldinu. Var gert ráð fyrir
að AflatryggingaTsjóður myndi
koma til móts við útgerðar-
rnenn hér, en einhver tregða mun
á því og á þessu stigi málsins
ekki hægt að segja hvað úr
verður. Að sjálfsögðu torveldar
þetta mönnum að hefja veiðar
með línu, því útgerðariánin fóru
hjá mörgum til að gera upp hluti
mannanoa sem unnu við bátana
og því lítið til að hefja veiðar á
ný. Þó lifa menn í voninni um að
þetta lagist, þótt ekki séu þær
fréttir góðar sem nú voru að
berast af hraðfrystihúsunum.
Þau ætli sér ekki að taka á
móti nema grundvelli þeirra
verði breytt þannig að þau geti
borið sig.
Bátasmíðar.
Skipavík h.f. Stykkishólmi er
nú að búa sig undir að hefja
smíði tveggja 45 tonna þilfars-
báta sem félagið hefir tekið að
sér að smíða. Munu bátarnir
verð smíðaðir inni í húsi og er
það alger nýung hér. Skapar
þessi nýsmíði mdkla vinnu hér í
plássinu í allt að því ár, en það
er tímiinn sem bátunum skal
skilað á.
Færð hefir oftast verið góð
hér í héraðinu, þó hafa komið
byljir sem gert hafa það að
verkum að vegir hafa teppst svo
sem útnesvegur og vegurinn til
Búðardals, en tafirnar hafa þá
verið mestar í svokallaðri Narf-
eyrarhliíð. Nú var hún mokuð
um daginn og er því greiðfært
í Búðardal. Kerlingarskarð hef-
ir eiginlega aldrei lokast það
hefir verið stundum erfitt litlum
bilum, en áætluna rbíllinn hefir
alltaf komist leiðar sinnar og
staðizt áætlun.
Fréttaritari.
EIMSKIP
A næstunni ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Mánafoss 31. janúar
Skógafoss 12 febrúar
Reykjafoss 21. febrúar
ROTTERDAM:
Reykjafoss 2. febrúar
Goðafoss 9. febrúar **
Skógafoss 14. febrúar
Reykjafoss 23. febrúar
HAMBORG:
Reykjafoss 31. janúar
Goðafoss 13. febrúar **
Skógafoss 17. febrúar
Reykjafoss 27. febrúar
LEITH:
Mánafoss 4. ferbúar
Askja 21. febrúar
HULL:
Mánafoss 2. febrúar
Askja 19. febrúar **
Mánafoss 29. febrúar
LONDON:
Mánafoss 29. janúar
As'kja 15. febrúar **
Mánafoss 26. febrúar
NORFOLK:
Brúarfoss 2. febrúar
Selfoss 16. febrúar
Fjallfoss 1. marz *
NEW YORK:
Brúarfoss 8. febrúar
Selfoss 23. febrúaT
Fjallfoss 7. marz *
GAUTABORG:
Bakkafoss 6. febrúar
Tungufoss 20. febrúar **
Bakbafoss 5. marz
KAUPMANNAHÖFN:
Tungufoss 25. janúar **
Gullfoss 31. janúar
Bakkafoss 8. febrúar
Gullfoss 14. febrúar
Tungufoss 26. febrúar **
KRISTIANSAND:
Gullfoss 1. febrúar
Gullfoss 15. febrúar
BERGEN:
Skip í lok janúar
OSLO:
Lagarfoss 27. janúar
KOTKA:
Dettifoss 3. febrúar
Skipið losar á öllum að-
alhöfnum Reykjavik
Isafirði, Akureyri og
Reyðarfirði.
Aðoliundur Sjúlistæðisiélags
Seltirningu
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Seltirninga var haldinn í
Mýrarhúsaskóla 18. janúar s.l.
Formaður féiagsims, Snæbjörn
Ásgeirsson, setti fundinn og
gaf skýrslu um störtf á sd. ári.
Fundarstjóri var kosinn, Sig-
urgeir Sigurðsson, sveitarstjóri,
ritari, Sigurður Sigurðsison, hrl.
Gjaldkeri, Kristinn P. Mic-
helsen, skýrði reikninga, sem
samþykktir voru umræðuilaust.
Stjórnin var öll einróma end-
urkjörin, en hana skipa: Snæ-
björn Ásgeir.sson, formaður;
Magnús Erlendsson, varafor-
maður; Kristinn P. Miehelsen,
gjaldkeri; Sigurður Sigurðsson,
ritari; Magnús Valdimarsson,
meðstjórnandi.
Fundurinn var fjölsóttur og
umræður miklar. Ákveðið var,
að þorrablót á vegum félagsins
skyldi haldið 2. marz n.k. í Sam-
komu'húsinu Garðaholti.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum, auk þess )
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu iosa
í Reykjavík.
ALLT MEÐ
CÓLFTÍPPI
WILTON
TEPPADRECLAR
TEPPALACNIR
EFTIR MÁLI
Laugavegi 31 - Simi 11822.