Morgunblaðið - 26.01.1968, Side 28
KSKUR
Suðurlandsbraut 14 — Sími 38550
Norðursjávarsíld ill-
seljanleg í Þýzkalandi
- íslenzku skipin halda á
miðin við Færeyjar
SJÖ íslenzk síldveiðiskip seldu
á Þýzkalandsmarkaði sl. mánu-
dag, þriðjudagr og miðvikudag,
eins og getið var í Mbl. fyrr í
vikunni. Seldu skipin bæði í
Cuxhaven og Bremerhaven og
fengu að meðaltali 4,88 krónur
fyrir kg. ísienzku skipin halda
nú á Færeyjarmið. Þar fannst í
gær mikil síld, en veður haml-
aði veiðum.
Samkvæmt upplýsingum Ernst
Stabel í Cuxhaven var Norður-
s„ávarsíldin mjög smá og mun
ekki markaður fyrir meira magn
nú í Þýzkalandi. Hins vegar eru
gæði þessarar smásíldar mikil,
þó hún hafi reynzt illseljanleg
vegna smæðar.
f gær lágu 19 íslenzk síldveiði-
skip í vari í færeyskum höfnum
og fleiri voru á leiðinni á miðin
við Færeyjar. Árni Friðriksson
fann úgær stórar torfur um 25
sjómílur austur af Fuglaey og
var síldin á 20 til 40 faðma dýpi,
og gekk í suður.
Síldarverksmiðjan í Færeyj-
getur tekið á móti 700 tonnum
á dag og gera menn sér góðar
vonir um mikla síldveiði, þegar
veðrið batnar.
Lágmarksverð á fiskúr-
gangi til mjölvinnslu
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á fiskbein-
um fiskslógi og heilum fiski til
r:jölvinnslu, frá og með 1. janú-
ar til og með 15. júní 1968:
Morðinginn
enn ófundinn
MORÐINGI Gunnars
Tryggvasonar er enn ó-
fundinn. Rannsóknarlög-
reglan vinnur nú úr þeim
fjölda upplýsinga, sem
henni berst daglega frá
almenningi og er það mik-
il vinna að þrautkanna
þær. Þess skal getið, að all
ar upplýsingar, sem rann-
sóknarlögreglunni berast
er farið með sem trúnaðar-
mál.
Kr.
Fiskbein og heill fiskur,
annað en síld, loðna, karfi
og steinbítur, hvert kg 0.47
Karfabein og heill karfi,
hvert kg 0.61
Steinbitsbein og heill stein-
bítur, hvert kg 0.30
Fiskslóg, hvert kg 0.21
Verðin eru miðuð við að selj-
endur skili framangreindu hrá-
efni í verksmiðjuþró.
Verðákvörðun þessi var gerð
Framhald á bls. 27
Nýr súttulundur
ekki boðuður
NÝR sáttafundur í deilu útgerð-
armanna og sjómanna á Suður-
nesjum, við Faxaflóa, Breiða-
fjörð og á Norðurlandi hafði
ekki verið boðaður, þegar Mbl.
hafði samband við Torfa Hjart-
arson, sáttasemjara, í gærkvöldi.
Hafnarstræti 84 á Akureyri, þar sem kona og tvö börn hennar brunnu inni á miðvikudagsmorgun.
Á myndinni sjást greinilega gluggarnir á íbúð þeirra sem fórust, en þeir eru lengst til vinstri á
miðhæðinni. Óvíst er um eldsupptök. (Ljósm. Mbl. Srv. P.).
SH og SÍS neita að selja
frystihiísunum umbúðir
— Bæjarútgerð Reykjavíkur
krefst afhendingar umbúða
— Gerir Sölumiðstöðina ábyrga
fyrir tjóni sem synjun á um-
búðum kann að valda
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti-
húsanna og Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga hafa
ákveðið að stöðva sölu á um-
búðum til frystihúsanna í
landinu meðan vandamál
Stórkostleg undirboð Norð-
manna á saltsíld í Póllandi
Um 40°jo lœgra verð en á Suðurlandssíld
ÞESS hefir að undanförnu verið
getið í norskum blöðum, að haf-
in sé á ný framleiðsla á norskri
saltsíld fyrir Póilandsmarkað eft
ir margra ára hlé og eru Norð-
menn bjartsýnir á, að vaxandi
markaður muni vera fyrir norska
saltsíld í Póllandi. „Haugesunds
Dagblað" skýrði frá því nú í
vikunni, að útflutningur á því
magni, sem saltað hefir verið
fyrir Pólland, sé nú að hefjast
og hefur blaðið eftir síldarmat-
inu norska að síldin, sem var
veidd í Norðursjó, sé mjög góð
vara — „utmerket vare“ —
í tilefni af þessum fréttum
snéri Morgunblaðið sér til Gunn-
ars Flóvenz, framkv.stj. Síldar-
útvegsnefndar í Reykjavík og
Leitaði nánari upplýsinga og
spurðist fyrir um hvaða áhrif
þetta gæti haft á síldarsöltunina
hérlendis.
Gunnar lét í té eftirfarandi
upplýsingar: ,
Pólverjar hafa keypt saltaða
síld frá íslandi svo til stöðugt
frá því árið 1948. Einnig
keyptu þeir (hér saltaða síld fyrir
síðari heimsstyrjöldinia. Magn
það, sem Pólverjar hafa keypt
hér, hefir verið nokkuð breyti-
legt, venjulega þó 20—40.000
tunnur á ári. Áhugi Pólverja á
saltsíldarinnflutningi fór þó
minnkandi eftir því sem þeir
juku eigin saltsíldiarframleiðslu
og síðustu árin hafa þeir skýrt
svo frá, að þeir hafi tekið fyrir
innflutning á saltsíld frá öllum
löndum nema íslandi og má fyrst
og fremst þakka það vöruskipba-
samningum landanna.
Er viðræður um nýjan við-
skiptasamning við Pólland stóðu
yfir í ágúst s.l., gáfu Pólverjiar
tál kynna, að þeir myndu á þess-
um vetri geta aukið nokkuð salt-
síldarkaup sín frá íslandi og var
á tímabili rætt um, að miagnið
gæti orðið 40—50.000 tunnur, en
Framhald á bls. 2
frystihúsanna eru óleyst.
í fyrradag krafðist Bæjar-
útgerð Reykjavíkur þess að
SH seldi frystihúsi BÚR um-
búðir, en á stjórnarfundi
SH var þeirri kröfu hafnað
með jöfnum atkvæðum, 5
gegn 5.
í gær kom útgerðarráð
Reykjavíkur saman til fund-
ar og samþykkti að tilkynna
stjórn SH, að Bæjarútgerðin
áskildi sér fullar bætur
vegna þess tjóns, sem synjun
á afgreiðslu umbúðanna
kynni að baka. Jafnframt er
þess óskað, að beiðni BÚR
um afgreiðslu umbúða verði
tekin fyrir að nýju strax í
dag, og tekið fram að verði
Þol hitaveitunnar
er nú /0 gráður
- segir Gunnar Kristinsson, verkfr.
BORHOLA Hitaveitunnar í
Blesugróf var tengd siðastUðinn
laugardag við leiðsluna, sem
flytur vatnið frá Reykjaveitunni.
Bætast þá Hitaveitunni milli 40
og 50 sekúndulítrar af 100 stiga
heitu vatni, sem samsvarar fjórð
ungi af öllu vatninu frá Reykj-
um.
Gunnar Kristinsson, verkfræð-
ingur hijá Hitaveitunni, tjáði
Mbl., að ihér væri um allmyndar-
lega viðbót að ræða. Eins og
menn myndu hefði Iþol Hitaveit-
unnar verið 6 stiga frost til lang-
frama. Við það að kyndistöðin
var tekin í notkun hefði þolið
Framhald á bls. 27
um neitun að ræða á ný
muni BÚR athuga, hvort
hægt er að krefjast afhend-
inga umbúðanna með aðstoð
dómstólanna.
Hér fer á eftir samþykkt
útgerðarráðs Reykjavíkur,
svo og fréttatilkynning frá
SH og Sjávarafurðadeild SÍS.
„Þar sem stjórn SH hefur
ítrekað neitað að láta af hendi
umbúðir um hraðfrystan fisk til
hraðfrystihúss BÚR á Granda-
garði og síðast í gær synjað
beiðni Bæjarútgerðarinnar um af
hendingu á slíkum umbúðum, þá
Framhaid á bls. 27
Brezks
togara
saknað
- ísfirzkur bátur
heyrði hann senda
út neyðarskeyti
UMBOÐSMAÐUR brezkra tog-
ara á íslandi, Geir Zoéga, bað í
gær Slysavarnafélagið að svlp-
ast um eftir brezkum togara, St.
Romanus H 223, en þá hafði
ekkert heyrzt frá togaranum síð-
an klukkan 19 hinn 10. janúar.
Þá var alit í lagi um borð. Hef-
ur togarans verið leitað við Nor-
egsstrendur en án árangurs. — f
gærkvöldi barst Slysavarnafé-
laginu tilkynning um það, að ís-
firski báturinn Víkingur m
hefði heyrt togara þennan senda
út neyðarskeyti 11. janúar sl.
St. Romanus fór frá Hull 7.
Framhald á bls. 27